Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2009, Qupperneq 25
föstudagur 16. janúar 2009 25Helgarblað
bandamenn í raun. Innan vébanda
VR eru 28 þúsund félagar sem vel-
flestir greiða í Lífeyrissjóð verslun-
armanna. Því er næsta ósennilegt að
félagið taki undir þá kröfu okkar að
verðtryggingin verði afnumin, enda
þótt þeir hagsmunir að létta greiðslu-
byrði af húsnæðislánum séu miklu
þyngri en hvernig fita megi lífeyris-
sjóðina. Allt helgast þetta af því að
stéttarfélögin eru fjármagnseigendur
og aldrei fer vel á því að þjóna tveim-
ur herrum; það er lífeyrissjóðum
og launamönnum. Annars er um-
hugsunarvert að enginn hefur sýnt
almenningi fram á það með skýr-
um rökum hvers vegna er tæknilega
útilokað að afnema verðtrygging-
una. Mér finnst slíkt virðingarleysi.
Þau svör sem þjóðin hefur fengið
frá ráðamönnum í kjölfar banka-
hrunsins eru allt of oft merkingar-
leysur og útúrsnúningar. En þetta er
vonandi að breytast. Mótmæli síð-
ustu vikna og mánaða virðast vera að
skila árangri. Dropinn holar steininn.
Reyndar virtist mér þessi mótmæla-
alda vera að fjara út fyrir jólin, en
nú rís hún af tvíefldum krafti,“ segir
Vésteinn sem stefnir á að taka þátt í
starfi samninganefndar Hagsmuna-
samtaka heimilanna. Hennar hlut-
verk verður að koma á viðræðum við
ríkisvaldið, bankana, stéttarfélög og
aðra þá sem ráða og fjalla um hags-
muni fjölskyldnanna í landinu – og fá
hina sömu til aðgerða.
„Jú, vissulega má vera að þessum
aðilum þyki sem við séum að rugga
bátnum. En slíkt er í góðu lagi því
þessir menn hafa stefnt velferð þjóð-
arinnar í hættu og mikinn vanda.
Þeir verða því að geta tekið gagnrýni.
Flestir þeirra sem eru í forystusveit-
inni eru hálaunafólk. Ég tel hins vegar
að sá sem velst til formennsku í Hags-
munasamtökum heimilanna þurfi
að þekkja á eigin skinni hvar eldarnir
brenna. Ellegar mun samtökin skorta
naðsynlegan baráttukraft.“
Verðtryggingin er þýfi
Vésteinn Gauti starfar í dag sem
markaðsstjóri hjá Spara.is. Áður en
hann réð sig þangað, starfaði hann í
eitt misseri hjá eignastýringu Glitnis.
Segir það hafa verið mjög lærdóms-
ríkan skóla – hvar starfsfólkið hafði
það eitt markmið að aðstoða við-
skiptavini við að ná sem bestum ár-
angri.
„Hjá bankanum lögðu sig all-
ir fram um að veita góða þjónustu
eftir bestu samvisku. En vissulega
sér starfsmaður á plani ekki allt
sem fram fer. Aðeins örfáir menn
komu að þeim ákvörðunum sem
leiddu til falls Glitnis og hinna bank-
anna þriggja í kjölfarið. Aðrir voru
að vinna eftir sinni bestu vitund og
skipan frá yfirboðurum sínum að
hlutum sem áttu að vera viðskipta-
vinum hagfelldir. Við sem vorum í
eignastýringunni töldum til dæmis
vera skyldu okkur að bjóða viðskipta-
vinum sem besta ávöxtun í gegnum
sjóði bankans, þó áhættan væri meiri
en ella. En við þessir almennu starfs-
menn vissum hins vegar ekki hverj-
ir skulduðu sjóðnum og máttum það
ekki samkvæmt reglum Fjármála-
eftirlitsins. Síðan sprakk blaðran
enda höfðu þá verið undirliggjandi
vandamál sem almennir starfsmenn
vissu ekkert um. Auðvitað eiga allir
að greiða sitt en almenningur getur
einfaldlega ekki risið undir því þeg-
ar afborganir hafa hækkað jafnmikið
og raun ber vitni. Allar líkur benda til
að bankarnir hafi tekið stöðu á móti
krónunni á síðasta ári sem aftur kom
verðbólgu og lækkun gengis hennar
af stað. Verðtrygging síðasta árs er
að stórum hluta oftekin – sem ber að
höndla sem þýfi og skila aftur til rétt-
mætra eigenda sinna.“
SigurðurBogiSævarsson
Ekki á leiðinni í pólitík
Vésteinn útilokar ekki
pólitískan feril en segir
hann þó ekki á dagskrá.
„Stóra verkefnið í
dag er að gera allt
hvað hægt er til
að bæta Stöðu þeSS
mikla fjölda fólkS
Sem nú er komið í
öngStræti vegna
húSnæðiSSkulda.“