Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2009, Page 34
föstudagur 16. janúar 200934 Ættfræði
umsjón: Kjartan gunnar Kjartansson, kgk@dv.is
Friðrik Kristjánsson
bifreiðastjóri á selfossi
Friðrik fæddist á Hjarðarbóli í Ölfusi
og ólst þar upp og að Stóra-Saurbæ.
Hann lauk námi frá Grunnskóla
Hveragerðis 1975.
Friðrik vann á vertíð í Þorláks-
höfn og hjá Sláturfélagi Suðurlands
á árunum 1975-77, starfaði í Ullar-
þvottastöðinni í Hveragerði 1978-
87 jafnframt því sem hann vann við
akstur á vegum Kristjáns Jónssonar.
Friðrik hóf síðan störf hjá Dal-
verki 1987 og var bílstjóri þar til
2001. Hann starfaði síðan aftur í
Ullarþvottastöðinni í tvö ár en hóf
þá akstur hjá Vélgröfunni þar sem
hann starfar enn.
Friðrik tók jafnframt við bú-
rekstri að Stóra-Saurbæ 1996, af
Jóni Guðmundssyni, bróður fóst-
urföður síns, og hefur stundaði þar
sauðfjárbúskap og nautabúskap til
2003 er fjölskyldan flutti á Selfoss.
Fjölskylda
Eiginkona Friðriks er Ólína Þórunn
Sigurðardóttir, f. 11.6. 1961, hús-
móðir á Selfossi. Þau hófu saman
búskap 1978 en giftu sig 30.5. 1981.
Hún er dóttir Sigurðar Þórðarsonar,
f. 7.3. 1933, d. 20.8. 1998, og Krist-
ínar Þorvaldsdóttur, f. 5.8. 1935, d.
12.10. 2008, húsfreyja.
Börn Friðriks og Ólínu Þórunn-
ar eru Jóhanna Ósk Friðriksdóttir, f.
14.7. 1979, húsmóðir á Eyrarbakka,
gift Guðlaugi Björgvinssyni og eiga
þau tvær dætur; Kristín Sigríður
Friðriksdóttir, f. 25.2. 1981, starfs-
kona við leikskóla á Selfossi en
maður hennar er Jón Róbert Páls-
son og eiga þau einn son; Kristjana
Ólöf Friðriksdóttir, f. 30.12. 1987,
starfskona við leikskóla á Selfossi
en maður hennar er Jón Helgi Dan-
íelsson; Friðrik Freyr Friðriksson, f.
5.4. 1993, nemi en unnusta hans er
Aníta Dís Káradóttir.
Systkini Friðriks eru Björn Krist-
jánsson, f. 18.10. 1939, veitinga-
húsaeigandi að Básum í Ölfusi;
Kristín Kristjánsdóttir, f. 5.8. 1941,
fræðslustjóri í Kópavogi; Ásgeir
Kristjánsson, f. 17.12. 1943, leigu-
bílstjóri í Reykjavík; Loftveig Kristj-
ánsdóttir, f. 27.6. 1947, starfskona
við leikskóla; Gestur Kristjánsson, f.
15.5. 1952, vélstjóri í Reykjavík.
Foreldrar Friðriks: Kristján Ey-
steinsson, f. 29.7. 1910, d. 16.2. 1967,
bóndi að Hjarðarbóli í Ölfusi, og
Halldóra Þórðardóttir, f. 10.6. 1918,
húsfreyja að Hjarðarbóli og síðar að
Stóra-Saurbæ. Fósturfaðir Friðriks
frá 1970 var Ólafur Guðmundsson,
f. 24.3. 1916, d. 10.6. 1983.
Ætt
Kristján var sonur Eysteins, b. í
Litla-Langadal á Skógarströnd og
síðast á Breiðabólstað Finnssonar,
b. á Skallhóli Einarssonar, b. í Neðri-
Hundadal, bróður Finns á Háafelli,
og Sveins, föður Ásmundar mynd-
höggvara. Einar í Neðri-Hunda-
dal var sonur Sveins, b. í Neðri-
Hundadal Finnssonar. Móðir Finns
á Skallhóli var Sesselja Jónsdóttir.
Móðir Eysteins var Guðbjörg, syst-
ir Sesselju, móður séra Jónmund-
ar í Grunnavík. Guðbjörg var dóttir
Gísla, b. á Bæ og Leysingjastöðum
Jóhannessonar, í Víkum á Skaga
Jónssonar. Móðir Gísla var Guðríð-
ur Bjarnadóttir. Móðir Guðbjarg-
ar var Guðfinna Sigurðardóttir, frá
Álftatröðum Magnússonar. Móð-
ir Guðfinnu var Þóra Sveinsdótt-
ir, b. í Snóksdal Hannessonar, pr. á
Kvennabrekku Björnssonar.
Móðir Kristjáns var Jóhanna,
dóttir Odds á Giljalandi Sólmunds-
sonar, b. á Mjóabóli Jónssonar.
Móðir Odds var Svanborg Jóns-
dóttir. Móðir Jóhönnu var Dagbjört
Jóhannesdóttir, b. í Blönduhlíð,
Grímssonar.
Halldóra er dóttir Þórðar, b. í
Eskiholti í Borgarhreppi í Mýrasýslu
Oddssonar og Loftveigar Þórðar-
dóttur.
50 ára á föstudag
Kolbrún Ósk Skaftadóttir
bóKaormur í reyKjavíK
Kolbrún fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp í Vesturbænum. Hún
var í Grandaskóla, Hagaskóla og
stundaði nám við Kvennaskólann
í Reykjavík.
Kolbrún var í sumarvinnu hjá
Pennanum með skóla, starfaði
lengi við leikhús í borginni við leik-
muni og sýningastjórnun, lengst
af hjá Kaffileikhúsinu en auk þess
við Borgarleikhúsið. Hún vann auk
þess við tökur á sjónvarpsþáttum
og við kvikmyndagerð og hefur
skrifað fjölda bókadóma sem birst
hafa í umsögnum bókaforlaga.
Hún starfar nú við birgðabókhald
hjá Pennanum.
Kolbrún æfði knattspyrnu,
handbolta og körfubolta á ungl-
ingsárunum með KR og keppti
í þessum greinum um skeið. Þá
vann hún í sjoppunni við félga-
smiðstöðina í Frostaskjóli á ungl-
ingsárunum.
Fjölskylda
Maki Kolbrúnar er Lilja Torfadóttir,
f. 9.6. 1976, hárgreiðslukona.
Sonur Kolbrúnar og Lilju er Fel-
ix Skafti Liljuson, f. 31.12. 2007.
Börn Lilju og stjúpbörn Kol-
brúnar eru Elísabet Rut Haralds-
dóttir, f. 20.9. 1995; Alex Uni Har-
aldsson, f. 18.8. 2000.
Systkini Kolbrúnar eru Hanna
Kristín Skaftadóttir, f. 21.9. 1981,
nemi við HR; Hjalti Þór Skaftason,
f. 24.10. 1989, nemi við VÍ.
Foreldrar Kolbrúnar eru Skafti
Harðarson, f. 10.9. 1956, fram-
kvæmdastjóri Parket og gólf, og
Sara Magnúsdóttir, f. 23.6. 1956,
fjármálastjóri.
30 ára á laugardag
85 ára á laugardag
ÞorKell ÁrnaSon
fyrrv. starfsmaður reyKjavíKurborgar
Þorkell fæddist á Vífilsstöðum, þar
sem móðir hans var þá starfsstúlka,
og ólst upp í Hafnarfirði. Um ferm-
ingaraldur flutti hann til Reykjavík-
ur með móður sinni og stjúpföður en
þau voru lengst af búsett við Haðar-
stíginn.
Þorkell starfaði hjá Eimskipafé-
laginu á sjötta áratugnum en hóf síð-
an störf hjá Reykjavíkurborg 1962
og starfaði þar til 1994 er hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir.
Þorkell hefur verið til heimilis hjá
systur sinni, Árnu Steinunni.
Fjölskylda
Hálfsystkini Þorkels, sammæðra, eru
Guðbrandur, f. 29.10. 1926, d. 12.12.
2002, bílamálarameistari og örygg-
isvörður í Reykjavík, var kvæntur
Bjarndísi Albertsdóttur húsmóður
og eignuðust þau sjö börn; Svanur,
f. 14.12. 1929, fórst með Suðurland-
inu 25.12. 1986, sjómaður í Reykja-
vík, var kvæntur Fríðu Gústavsdóttur
og eignaðist hann fimm börn; Árna
Steinunn, f. 5.5. 1932, húsmóðir í
Reykjavík, gift Guðjóni Andréssyni,
ökukennara og fyrrv. forstöðumanni
og eiga þau fjögur börn; Már, f. 19.8.
1942, matreiðslumaður og bifreiða-
stjóri í Reykjavík, kvæntur Gíslínu
Gunnarsdóttur og eiga þau tvö börn.
Uppeldisbróðir Þorkels var Birg-
ir Harðarson, f. 18.8. 1946, d. 20.6.
1987, forstöðumaður Eimskips í Nor-
folk í Bandaríkjunum.
Hálfsystkini Þorkels, samfeðra,
eru Kristján, f. 1932, fyrrv. starfsmað-
ur við Húsdýragarðinn í Reykjavík;
Magga Alda, f. 1936, nú látin, hús-
freyja í Núpakoti undir Eyjafjöllum;
Hilmar, f. 1938, skipstjóri á Höfn í
Hornafirði; Snæbjörn, f. 1940, út-
gerðarmaður á Bíldudal; Rannveig,
f. 1942, bankastarfsmaður á Patr-
eksfirði; Jóna Vestfjörð, f. 1943, hús-
móðir í Hafnarfirði; Auðbjörg, f.
1944, bankastarfsmaður í Reykjavík;
Hreiðar, f. 1944, fórst með Sæfara
frá Tálknafirði, skipstjóri, búsettur á
Bíldudal; Bjarnfríður, f. 1947, banka-
starfsmaður í Reykjavík; Björg, f.
1948, bankastarfsmaður í Garðabæ;
Magnús, f. 1950, framkvæmdastjóri í
Reykjavík; Guðrún, f. 1951, húsmóð-
ir á Hvolsvelli; Sigrún, f. 1956, hús-
móðir í Hafnarfirði.
Foreldrar Þorkels voru Árni Krist-
jánsson, f. 7.11. 1901, d. 1965, verka-
maður í Bræðraminni á Bíldudal, og
Steinunn Þorkelsdóttir, f. 14.6. 1895,
d. 6.8. 1950, húsmóðir í Reykjavík.
Stjúpfaðir Þorkels var Rögnvaldur
Guðbrandsson, f. 27.9. 1900, d. 28.2.
1983, lengst af verkstjóri hjá Slippfé-
laginu í Reykjavík.
Ætt
Árni var sonur Kristjáns, sjómanns
og b. í Bræðraminni á Bíldudal Jóns-
sonar, b. á Barðaströnd Guðmunds-
sonar. Móðir Kristjáns var Málfríður
Jónsdóttir.
Móðir Árna var Rannveig Árna-
dóttir, Ólafssonar.
Systir Steinunnar var Ingveldur,
amma Helenu Eyjólfsdóttur söng-
konu. Steinunn var dóttir Þorkels,
b. í Lambhaga Árnasonar, bróð-
ur Guðrúnar, langömmu Víglundar
Þorsteinssonar forstjóra, og Péturs
Guðmundssonar, fyrrv. flugvallar-
stjóra. Móðir Þorkels í Lambhaga var
Steinunn Þorkelsdóttir, b. í Krýsuvík
Valdasonar, og Þórunnar Álfsdóttur,
b. í Tungu í Flóa Arasonar, hrepp-
stjóra á Eystri-Loftsstöðum Bergs-
sonar, ættföður Bergsættar Stur-
laugssonar.
Móðir Steinunnar yngri var Ing-
veldur, langamma Páls Jenssonar
prófessors. Systir Ingveldar var Sig-
ríður, langamma Harðar Sigurgests-
sonar, fyrrv. forstjóra Eimskipafé-
lagsins. Önnur systir Ingveldar var
Sigurbjörg, amma Guðmundar
Björnssonar læknaprófessors. Ing-
veldur var dóttir Jóns, ættföður Set-
bergsættar, og bróður Sigurðar, afa
Ottós N. Þorlákssonar, fyrsta forseta
ASÍ. Jón var sonur Guðmundar, b. í
Miðdal í Mosfellssveit, bróður Ein-
ars, langafa Sigríðar, móður Vigdísar
Finnbogadóttur. Móðir Ingveldar var
Sigríður Þórðardóttir, b. á Reykjum í
Biskupstungum Jónssonar, b. á Rafn-
kelsstöðum, bróður Sigurðar, afa
Vilborgar, langömmu Sigurborgar,
móður Emils Jónssonar forsætisráð-
herra. Sigurður var einnig afi Elín-
ar, langömmu Eyjólfs, föður Sveins,
fyrrv. forstjóra Frjálsrar fjölmiðlunar.
Jón var sonur Jóns, lrm. á Stóranúpi
Magnússonar, b. í Bræðratungu Sig-
urðssonar.
Kristján fæddist á Akureyri og
ólst þar upp. Hann var í Lund-
arskóla, Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar, stundaði nám við VMA og
lauk stúdentsprófi þaðan, stund-
aði nám við HA og lauk þar BA-
prófi í sálfræði og stundar nú nám
í kennslufræði við HA.
Kristján hefur starfað með
unglingum um langt skeið, fyrst
við félagsmiðstöðvarnar á Akur-
eyri frá því hann var sjálfur átján
ára, starfaði á vegum skátahreyf-
ingarinnar á sumrin, var flokks-
stjóri í unglingavinnunni og við
nýframkvæmdir á vegum bæj-
arins og hefur starfað við Ung-
mennahúsið á Akureyri sl. fimm
ár og verið umsjónarmaður þess
sl. tvö ár.
Kristján stundar mikið úti-
vist, fjallgöngur, og ferðir á skíði
og snjóbretti. Þá er hann mikill
áhugamaður um hálendi Íslands
og ferðir um það.
Fjölskylda
Kona Kristjáns er Sara Ómarsdótt-
ir, f. 25.12. 1982, tækniteiknari.
Sonur Kristjáns og Söru er Jök-
ull Bergmann, f. 25.4. 2008.
Systir Kristjáns er Margrét
Bergmann, f. 1.12. 1969, þroska-
þjálfi á Akureyri.
Foreldrar Kristjáns eru Tómas
Bergmann, f. 242.3. 1945, starfs-
maður í Viðjulundi á Akureyri,
og Halla Pálsdóttir, f. 14.4. 1950,
starfskona við leikskóla á Akur-
eyri.
Kjartan Gunnar Kjartansson rekur
ættir þjóðþekktra íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma
viðburði liðinna ára og minnist horfinna
merkra íslendinga. lesendur geta sent inn
tilkynningar um stórafmæli á netfangið
kgk@dv.is
30 ára á föstudag
Kristján Bergmann Tómasson
umsjónarmaður Hússins á aKureyri