Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2009, Page 36
föstudagur 16. janúar 200936 Helgarblað
HIN HLIÐIN
Er alltaf í rétti
Nafn og aldur?
„Magnús Jónsson og er 43
ára.“
Atvinna?
„Leikari.“
Hjúskaparstaða?
„Sexhleypa.“
Fjöldi barna?
„Ein dóttir, Hekla Magnús-
dóttir theramin-leikari.“
Hefur þú átt gæludýr?
„Jebb. Nokkur í gegnum tíð-
ina. Yfirleitt kisusystur.“
Hvaða tónleika fórst þú á
síðast?
„Á Nasa. Þar spiluðu Egill
Sæbjörns, Mugison, Hjálmar
og fleiri.“
Hefur þú komist í kast við
lögin?
„Já, er alltaf í Rétti.“
Hver er uppáhaldsflíkin þín
og af hverju?
„Vínrauðu Lloyds-skórn-
ir sem ég keypti hjá Rauða
krossinum um daginn á þrjú
þúsund kall. Ég gef einhverj-
um von með þeim kaupum.“
Hefur þú farið í megrun?
„Nei, en ég hætti einu sinni
að borða mat í þrjár vikur.
Mæli með viku.“
Hefur þú tekið þátt í skipu-
lögðum mótmælum?
„Já, á laugardaginn var ég
niðri á Jónstorgi.“
Trúir þú á framhaldslíf?
„Já, ég trúi á geimverur.“
Hvaða lag skammast þú þín
mest fyrir að hafa haldið
upp á?
„Oh Carol með Smokie.“
Hvaða lag kveikir í þér?
„Heroes með Bowie.“
Til hvers hlakkar þú núna?
„Að hitta ET.“
Hvaða mynd getur þú horft á
aftur og aftur?
„Close Encounters of the
Third Kind og L.A. Law, alla
seríuna.“
Afrek vikunnar?
„Það er alltaf mikið afrek að
komast í gegnum jólamán-
uðina, september, október,
nóvember og desember. Ég
vona að kreppan breyti því
rugli í eina viku.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Nei, betra. Ég hef látið gera
stjörnukort fyrir mig.“
Spilar þú á hljóðfæri?
„Ég gutla á tölvufæri, kassagítar,
bassa og hljómborð.“
Viltu að Ísland gangi í Evrópusam-
bandið?
„Nei, Geimverusambandið.“
Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Flatskjár, jeppi, hlutabréf, sum-
arhöll, sólarlandaferðir, fóta-
nuddtæki og Heineken-múffa.
Nei, bíddu, það er kreppa og þá
er það ást og kærleikurinn.“
Hvaða íslenska ráðamann
mundir þú vilja hella fullan og
fara á trúnó með?
„Vá, alls engan.“
Hvaða fræga einstakling myndir
þú helst vilja hitta og af hverju?
„Georg W. Bush og þá til að rass-
skella hann á beran bossann.“
Hefur þú ort ljóð?
„Ég er trúður og trúðurinn er
ljóð.“
Nýlegt prakkarastrik?
„Ég skil ekki spurninguna.“
Hvaða fræga einstaklingi líkist
þú mest?
„Pabba og pabbi er mjög líkur
Paul Newman.“
Ertu með einhverja leynda hæfi-
leika?
„Ég tala selamál. En það er eigin-
lega leyndó.“
Á að leyfa önnur vímuefni en
áfengi?
„Vil helst að fólk fái að ákveða
það sem það vill gera sjálft í þeim
efnum.“
Hver er uppáhaldsstaðurinn
þinn?
„Draumaheimar.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir
áður en þú ferð að sofa?
„Skelli nokkrum gúrkusneiðum á
andlitið, set á mig nátthúfuna og
leggst á svæfilinn.“
Hver er leið Íslands út úr
kreppunni?
„Að Páll Skúlasson, Þorvaldur
Gylfason, Njörður P., Þorvald-
ur Þorsteins, Lilja Mósesdóttir,
Elísabet Rónalds, Kolbrún Hall-
dórs og ein geimvera sem kon-
urnar velja, fái þriggja mánaða
umboð frá þjóðinni til að plotta
saman nýtt samfélag á Íslandi frá
grunni.“
asdisbjorg@dv.is
Magnús Jónsson er einn af leikurunuM í spennuþáttaröðinni réttur en sýning-
ar á henni hefJast innan skaMMs. Magnús er ekki bara leikari heldur annar
MeðliMa dúettsins bb og blake seM hefur gert það gott að undanförnu.
Mynd xxx
NICOLAI
Véla- og hjólastillingar
Tímareimar - Viðgerðir
BIFREIÐASTILLINGAR
Faxafeni 12 Sími 588-2455
H
TH
T
Tilboðið gildir út janúar 2009
Geisladiskar 49krdiskurinn
25 eð 50 diskar á spindli.
Málum olíumálverk eftir ljósmyndum
Barnamyndir
Andlitsmyndir
Dýramyndir
Fjölskyldumyndir
Brúðkaupsmyndir
Landslagsmyndir
og hvað sem er annað...
www.portret.is
Sími: 899 0274Mjög góð verð og stuttur afgreiðslutími
Olíumálverk
Ljósmynd
Ný og betri
Bjargey Aðalsteinsdóttir íþrótta-
fræðingur talar um hvað við getum gert
til að bæta heilsuna og auka vellíðan.
Aukum hamingju okkar
Fjölmiðlakonan Sirrý ræðir um
sjálfstraust á erfiðum tímum.
Hafðu það gott
Opinn kvennafyrirlestur á Hótel Sögu (Salur: Harvard II)
Laugardaginn 24. janúar kl. 10-13 (mæting 09:45)
Morgunstund gefu gull í mund.
Fyrirlestrar, uppákomur, dans og gleði.
Verð: 4.500 kr. Afsláttarverð: 3.900 kr. ef greitt er 3 dögum fyrirfram.
Skráning og nánari upplýsingar á www.sirry.is Allir velkomnir.
Á næstunni,,Hafðu það gott” á Reykjanesi, Akureyri, Vestmanneyjum og víðar.
Stubbastandar
Utanhúss öskubakkar,
bæði standar og á vegg.
Standur ehf
S: 842-2535
stubbastandur@gmail.com