Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2009, Blaðsíða 40
föstudagur 16. janúar 200940 Lífsstíll
Fataskipti Ef þú ert í stórum vinkvennahópi ættir þú að
lauma að þeirri hugmynd að hafa skiptikvöld. allar fáum við jú
leið á fötunum okkar og viljum eignast ný öðru hverju og er því
tilvalin hugmynd að allar vinkonurnar komi saman með allt sem
þær eru orðnar leiðar á í fataskápunum sínum, svo sem flíkur,
belti, skó, skart, töskur og annað og býtti. Þú gætir fengið tæki-
færi til að eignast bol vinkonu þinnar sem þér finnst svo flottur
og fötin þín gætu öðlast nýtt líf hjá þakklátum vinkonum.
umsjón: kolbrún pálína hElgadóttir, kolbrun@dv.is
slepptu þér á
Fyrsta steFnumóti
Hvaða kona kannast ekki við að hafa fengið óteljandi ráð frá vinkonum fyrir fyrsta
stefnumótið með einhverjum. DV tók saman nokkra punkta sem gott er að hafa í huga
fyrir fyrsta stefnumótið en umfram allt skiptir máli að þú sleppir fram af þér beislinu,
njótir þín til hins ítrasta og umfram allt gerir þér ekki of miklar væntingar.
Besta leiðin til að eiga frábært fyrsta
stefnumót er að fara á stefnumót-
ið með því hugarfari að þú ætlir að
njóta þín til hins ítrasta og gera engar
væntingar um að vinna hug og hjarta
mannsins sem þú ert á stefnumóti
með. Ef þér tekst þetta muntu einnig
sýna á þér örugga og heillandi hlið.
Ef þú og „deitið“ þitt smulluð
saman í fyrsta skiptið sem þið hitt-
ust er vissulega auðvelt að gleyma
sér í framtíðarhugsunum og draum-
um um hamingjusamt líf og spyrja sig
hvort þetta sé sá rétti. Stoppaðu þess-
ar hugsanir hið snarasta, annars er öll
von úti um að kvöldið fari vel.
Minntu sjálfa sig þig á að þetta er
aðeins ein kvöldstund, slakaðu því á
og slepptu þér. Fyrsta stefnumót er
aðeins tilraun. Það gæti gengið upp
og það gæti alls ekki gengið upp. Ef
það eru engir neistar til staðar máttu
ekki líta á kvöldið sem sóun. Þú fórst
þó allavega út að borða eða gerðir
eitthvað annað skemmtilegt og hefur
án efa sögu að segja vinkonunum.
Í guðs bænum ekki tala um fyrr-
verandi kærasta á fyrsta stefnumót-
inu eða rifja upp stundir úr fyrri
samböndum. Það getur verið mjög
fráhrindandi.
En ef þú hins vegar spjallar við
„deitið“ á sama hátt og þú myndir tala
við vini og vinkonur ættir þú að geta
sýnt á þér skemmtilega og afslappaða
hlið. Segðu frá vandræðalegum at-
vikum í vinnunni, eða segðu fyndnar
sögur af misheppnuðum sambönd-
um vinkvenna þinna. Umfram allt
vertu þú sjálf.
Rannsóknir hafa sýnt fram á það að
með því að sýna veikleika á einhverju
sviði, eins og lofthræðslu, myrkfælni
eða annað því um líkt, færðu fólk til
að líka betur við þig og líða betur í
návist þinni. Reyndu því alls ekki að
vera fullkomin eða láta viðkomandi
halda að þú sért það. Segðu frá ótta
þínum og veikleikum. Ekki sakar að
viðurkenna að þú hafir nú verið örlít-
ið stressuð fyrir stefnumótið, það að
geta viðurkennt það gerir þig mann-
lega og á vissan hátt örugga.
Vertu óbeisluð og hikaðu ekki við
að syngja með laginu sem er í útvarp-
inu í bílnum eða annað skemmtilegt.
Það að vera svolítið opin og flippuð
sýnir að þú hefur upp á spennandi
karakter að bjóða. Sérstaklega þar
sem „deitið“ þitt á eflaust ekki von á
því að þú sýnir svona hegðun. Smá
skemmtun, húmor og spenna gerir
stefnumótið einfaldlega frábært.
Hreyfingar líkamans geta gef-
ið margt til kynna. Fylgstu vel með
því hvernig „deitið“ þitt hagar sér. Ef
hann hallar sér upp að þér líkar hon-
um líklega vel við þig og þá getur þú
leyft þér að halla þér örlítið á móti.
Ef hann talar mjög hratt og er stress-
aður skalt þú reyna að tala hægar og
vera yfirveguð. Þá slakar hann frek-
ar á.
Að lokum eru nokkrir hlutir sem
hafa ber í huga þegar kemur að því að
panta mat á veitingahúsum á fyrsta
stefnumóti. Alls ekki panta þér mat
sem getur verið subbulegt að borða,
samanber spaghettí, humar eða ann-
að slíkt sem er borðað með höndun-
um. Það er ekki aðlaðandi að vera
sleikjandi út um munnvikið eða vera
með puttana á kafi í matnum. Pant-
aðu þér dannaðan disk og vertu dama
og í guðs bænum ekki drekka of mik-
ið.
Gangi þér vel á fyrsta stefnumót-
inu!
Ekki búast við of miklu
Ekki gera of miklar væntingar
á fyrsta stefnumótinu.
konan
konan
innblástur
Frá hommum
kanye West hefur nú uppljóstrað
hvaðan hann fái innblásturinn að
því hvernig hann klæði sig.
rapparinn segist alltaf tékka á því
hverju samkynhneigðir menn
klæðist því þeir kunni svo sannar-
lega að klæða sig. Því ætti okkur
ekki að bregða við slúður um það að
kayne West sé farinn að kíkja á eftir
karlmönnum, við vitum að hann er
bara að tékka á stílnum þeirra.
Dökkhærðar
Farsælastar
bretar eru ólmir í að gera kannanir á
hinu og þessu. nýlega stóð
hárvöruframleiðandinn garnier fyrir
könnun á hárlit kvenna. útkoma
könnunarinnar var sú að dökkhærð-
ar konur nái meiri starfsframa og eigi
betra ástarlíf en rauðhærðar og
ljóshærðar. Einnig kom fram að 76%
bresku þjóðarinnar telja dökkhærðar
konur vera gáfuðustu konurnar en
þær þéna að auki að meðaltali tíu
þúsund krónum meira á mánuði en
ljóshærðar og rauðhærðar.
niðurstaða könnunarinnar var þó
ekki eingöngu slæm fyrir þær sem
ekki eru dökkhærðar, ljóshærðar
voru kosnar skemmtilegustu konurn-
ar og rauðhærðar kosnar þær
djörfustu.
Föt úr sígarettu-
stubbum
sífellt er verið að finna nýjar leiðir til
endurvinnslu en það allra nýjasta og
eflaust það undarlegasta er föt búin
til úr gömlum sígarettustubbum.
hönnuðurinn alexandra guerrero
frá Chile hefur nú hannað heila línu
af höttum, hönskum, peysum og
teppum úr sígarettum.
alexandra og sjálfboðaliðar hennar
tíndu stubbana af götum Chile og
sótthreinsuðu þá. Því næst voru
stubbarnir þurrkaðir, eiturefni á borð
við nikótín fjarlægð og búið til efni.
Efninu er síðan blandað við ull til að
sauma úr því fatnað.
tíska
tíska
konan
Bókin Uppeldi fyrir umhverfið er
komin út hjá Sölku. Í bókinni er fjall-
að um hvernig hægt er að annast
börn með grænan lífsmáta að leið-
arljósi; með því að nota umhverfis-
vænar bleiur, mildar snyrtivörur og
hreinsiefni, endurnýta föt og hús-
gögn, njóta útivistar og fækka bíl-
ferðum er hægt að stunda uppeldi
fyrir umhverfið.
Í bókinni eru gefnir valkost-
ir. Ljósgrænt, grænt og dökkgrænt.
Í ljósgræna flokknum er til dæm-
is bent á að hægt er að fá umhverf-
ismerktar vörur en svo stigmagnast
ráðin.
Bókin er eftir Susannah Marriott
en kemur út í íslenskri þýðingu Katr-
ínar Jakobsdóttur og Gunnars Sig-
valdasonar. Katrín og Gunnar eiga
tvo syni og því reynslumikil þegar
kemur að börnum og barnauppeldi.
Katrín Jakobsdóttir er þýðandi glæsilegrar uppeldisbókar:
grænn líFsmáti
Uppeldi fyrir umhverfið fjall-
ar um vistvænar bleiur, lífrænt
fæði og margt fleira nytsamlegt.
Þýðandi bókarinnar
katrín jakobsdóttir alþing-
iskona þýddi bókina.
konan