Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2009, Síða 13
föstudagur 8. maí 2009 13Fréttir
Ragnar Erling
Hermannsson
ragnar sló í gegn í
sjónvarpsþáttunum
Leitin að strákunum.
Nú á hann yfir höfði
sér allt að tuttugu ára
fangelsisdóm.
mynd HEiða HElgadóttiR
Afar líklegt er að ríkið verði ráðandi hluthafi yfir Sparisjóðn-
um í Keflavík og sjö öðrum sparisjóðum sem beðið hafa um
eiginfjárframlag vegna bágrar fjárhagslegrar stöðu sinnar.
Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðaneytinu verða sett
afar ströng skilyrði fyrir því að eiginfjárframlagið verði veitt
til sparisjóðanna, meðal annars að ríkið eignist stóra hluta
í þeim. Sparisjóðirnir verða hins vegar áfram sjálfstæðar
stofnanir að nafninu til.
RÍKIÐ VERÐUR
RÁÐANDI YFIR
SPARISJÓÐUNUM 8
Afar líklegt er að íslenska ríkið
verði ráðandi stofnfjárhluthafi
í Sparisjóðnum í Keflavík og sjö
öðrum sparisjóðum innan nokk-
urra vikna. Sparisjóðirnir átta
hafa óskað eftir eiginfjárframlagi
frá ríkinu sem Hjördís Vilhjálms-
dóttir, ráðgjafi Steingríms J. Sig-
fússonar fjármálaráðherra, segir
afar líklegt að verði veitt en með
afar ströngum skilyrðum þó, með-
al annars að ríkið eignist stóra
hluti í þeim.
Sparisjóðirnir átta hafa beðið
um eiginfjárframlagið frá ríkinu
vegna bágrar stöðu þeirra og til
þess að tryggja rekstrargrundvöll
sinn til framtíðar en þeir voru all-
ir reknir með miklu tapi á síðasta
ári.
Sparisjóðurinn í Keflavík var
til dæmis rekinn með rúmlega 17
milljarða króna tapi í fyrra, sam-
kvæmt ársreikningi ársins 2008,
og er eigið fé hans nú tæplega
5,5 milljarðar en var rúmlega 25
milljarðar samkvæmt ársreikn-
ingi 2007. Eiginfjárframlagið sem
beðið er um frá ríkinu er því jafn
hátt og eigið fé sparisjóðsins í lok
síðasta árs og ætti, samkvæmt því,
að tryggja ríkinu um 50 prósent af
stofnfjárhlutunum ef það verður
veitt. Eiginfjárframlagið sem ósk-
að er eftir er hins vegar reiknað út
frá ársreikningi ársins 2007, en í
neyðarlögunum frá því í haust var
íslenska ríkinu veitt heimild til að
veita sparisjóðunum slíkt framlag
upp á allt að 20 prósent af eigin fé
þeirra.
Fjármálaráðuneytið lætur nú
gera úttektir á Sparisjóðnum í
Keflavík og hinum sparisjóðunum
sjö til að meta hvort rekstur þeirra
geti verið tryggður með eiginfjár-
framlagi og aðkomu ríkisins að
rekstrinum.
Strangir skilmálar ríkisins
Fjármálaráðuneytið hefur enn
ekki tekið ákvörðun um það hvort
Sparisjóðnum í Keflavík, og hin-
um sparisjóðunum sjö, verði veitt
þau fjárframlög sem forsvars-
menn þeirra báðu um, að sögn
Hjördísar, en allt bendi til að svo
verði.
Niðurstaða um hvort sparisjóð-
unum verði veitt fyrirgreiðsla mun
liggja fyrir í síðasta lagi um næstu
mánaðamót, að sögn Hjördísar,
en hún er í samstarfshópi á vegum
fjármála- og viðskiptaráðuneytis-
ins sem vinnur nú að undirbún-
ingi vegna eiginfjárframlaganna
til sparisjóðanna og með hvaða
skilmálum þau verða veitt. Hjördís
segir alveg ljóst að eiginfjárfram-
lögin verði ekki veitt án strangra
skilmála og að ríkið muni gera
kröfu um að eignast hlut í spari-
sjóðunum í kjölfarið ef af því verð-
ur.
Óljóst er hins vegar hvaða áhrif
þessi aðkoma ríkisins mun hafa
á stofnfjáreign núverandi stofn-
fjáreigenda í sparisjóðunum átta
en reikna má með að hún rýrni
allverulega. Hjördís segir að það
liggi ekki fyrir að svo stöddu hvaða
áhrif aðkoma ríkisins að spari-
sjóðunum mun hafa fyrir núver-
andi stofnfjáreigendur en að það
sé eitt af því sem verið sé að ræða í
samstarfshópnum. Stofnfjárhlut-
ir núverandi stofnfjáreigenda í
sparisjóðunum eru hins vegar
ekki mikils virði um þessar mund-
ir sökum bágrar stöðu þeirra og
tapreksturs síðasta árs.
Engin framtíð; engin aðstoð
Hjördís segir að það sé alveg ljóst
að ríkið muni ekki veita einstök-
um sparisjóðum fyrirgreiðslu ef
það þykir líklegt að sparisjóður-
inn nái ekki að tryggja rekstrar-
grundvöll sinn með slíkri aðstoð.
„Ef við höldum að þrátt fyrir fram-
lagið muni sparisjóðurinn deyja
í sumar þá munum við ekki setja
peninga inn í hann en ekkert
bendir til annars en allir spari-
sjóðirnir fái eiginfjárframlagið frá
ríkinu,“ segir Hjördís.
ólíklegt að sparisjóðirnir
verði látnir gossa
Heimildarmönnum DV ber sam-
an um það að afar ólíklegt sé að ís-
lenska ríkið grípi ekki inn í rekstur
Sparisjóðsins í Keflavík og hinna
sparisjóðanna sjö með einhverj-
um hætti. Afar ólíklegt sé að þeir
verði látnir verða gjaldþrota og
hætta rekstri, en nær öruggt
þykir að sparisjóðanna bíði þau
örlög ef ríkið veitir þeim ekki eig-
infjárframlögin.
Þess vegna er afar líklegt að
ríkið veiti sparisjóðunum fyrir-
greiðsluna en aðeins að því gefnu
að það verði ráðandi hluthafi í
kjölfarið. Stóra spurningin er hins
vegar með hvaða skilmálum þetta
verður gert og mun það skýrast á
næstunni að sögn Hjördísar.
Af máli Hjördísar að dæma
liggur því fátt annað fyrir en að ís-
lenska ríkið verði ráðandi stofn-
fjárhluthafi í sparisjóðunum átta
á næstunni og hafi þar af leiðandi
eigendavald yfir þeim, líkt og yfir
stóru viðskiptabönkunum þremur
og nokkrum öðrum fjármálafyrir-
tækjum, þó svo að
alls ekki verði
um beina yf-
irtöku Fjár-
málaeftirlits-
ins að ræða
líkt og í tilfelli
þeirra.
ingi F. VilHjálmSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
SpaRiSjóðiRniR SEm bEðið
HaFa um FyRiRgREiðSlu:
sparisjóðurinn í Keflavík
BYr sparisjóður
sparisjóður Bolungarvíkur
sparisjóður svarfdæla
sparisjóður Höfðhverfinga
sparisjóður Þórshafnar
sparisjóður Norðfjarðar
sparisjóður Vestmannaeyja
dökk framtíð ráðgjafi steingríms J.
sigfússonar fjármálaráðherra segir að
það sé ljóst að framtíð sparisjóðanna
verði vart tryggð án inngrips ríkisins.
á stutt eftir í núverandi mynd
sparisjóðurinn í Keflavík á einungis
nokkrar vikur eftir áður en hann
verður „yfirtekinn“ af ríkinu ásamt
sjö öðrum sparisjóðum.