Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2009, Qupperneq 43

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2009, Qupperneq 43
föstudagur 8. maí 2009 43Sport umsjón: tómas þór þórðarson, tomas@dv.is SigurSælaStir Kr-ingar hafa fagnað íslandsmeistaratitli oftar en nokkurt annað lið. Oftast Íslandsmeistarar: 24 Kr 20 Valur 18 fram 18 ía 5 Víkingur Sigra leikina skagamenn hafa unnið flesta leiki í efstu deild, aðeins fleiri en Valur og Kr sem hófu keppni rúmum 30 árum fyrr en þeir. Flestir sigurleikir: 418 ía 416 Kr 413 Valur 358 fram 260 Keflavík Skora og Skora Kr-ingar hafa skorað flest mörk allra liða á íslandsmóti Flest mörk: 1637 Kr 1568 Valur 1553 ía 1419 fram 1028 Keflavík Öruggur á toppnum Birkir Kristinsson heldur toppsætinu næstu árin. Leikjahæstu menn: 321 Birkir Kristinsson 294 gunnar oddsson 267 sigurður Björgvinsson 265 Kristján finnbogason 254 Heimir guðjónsson enn á uppleið tryggvi guðmundsson getur komist í annað sæti á lista yfir mestu markaskorara. Mestu markaskorarar: 126 Ingi Björn albertsson 101 guðmundur steinsson 100 tryggvi guðmundsson 95 Hermann gunnarsson 94 matthías Hallgrímsson Heimild: Íslensk knattspyrna 2008 ungur Kristinn Jónsson – Breiðablik Fæddur: 1990 – Leikir: 24 Mörk: 0 þó hann sé afar fullorðinslegur í útliti er vinstri bakvörðurinn, Krist- inn jónsson, aðeins á nítjánda aldursári. frammistaða hans í fyrra og á undirbúningstímabilinu fór ekki fram hjá neinum og var hann verðlaunaður með landsliðssæti gegn færeyjum. Kristinn verður öllum vængmönnum erfiður í sumar en hann er einnig frábær í sókn þannig að bakverðir annarra liða þurfa að vara sig. miðaldra Þórarinn Brynjar Kristjánsson – Grindavík Fæddur: 1980 – Leikir: 165 Mörk: 50 þórarinn Brynjar er fæddur til að skora mörk. Hann hefur setið rólegur síðustu ár á bekknum hjá Keflavík en komið inn á og bjargað þeim oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. nú hefur þór- arinn fært sig yfir til grindavíkur og verður þar byrjunarliðsmað- ur. nú fær hann tuttugu og tvo leiki til að raða inn mörkum, ekki tuttugu og tvær mínútur í leik. Sagan öll Alls mega 24 leikmenn og einn þjálf- ari sætta sig við að horfa á fyrsta leik síns liðs af áhorfendasvæðinu vegna fyrri synda sinna. Þetta eru þeir sem eiga enn eftir að afplána refsing- ar frá síðasta sumri. Alls eru fimm leikmenn sem byrja á tveggja leikja banni og eru þeir allir úr neðri deild- um. Tuttugu eru svo í banni í fyrsta leik, tvær konur og tveir leikmenn úr efstu deild karla. Tveggja leikja bann Andri Heiðar Sigurþórsson, KFG; Guðmundur Óli Steingrímsson, Völsungur; Gunnar Freyr Róberts- son, Berserkir; Jón Benjamín Sverr- isson, KFG; Sveinbjörn Már Stein- grímsson, Völsungur. Eins leiks bann Alfreð Elías Jóhannsson, Víkingur Ó.; Ágústa Jóna Heiðdal, Grindavík; Bjarni Þórisson, Hamrarnir; Boban Jovic, Selfoss; David Michael Venn, Huginn; Davíð Halldórsson, Ber- serkir; Einar Bragi Bragason, Hug- inn; Ellen Þóra Blöndal, Haukar; Friðrik Ragnar Friðriksson, Magni; Guðfinnur Þórir Ómarsson, ÍR; Guðmundur Kristjánsson, Breiða- blik; Halldór Steinar Kristjánsson, Sindri; Ingólfur Þórarinsson, Sel- foss; Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari, Þór; Markús Darri Jónasson, Dalvík; Ólafur Guðmundsson, Berserkir; Ólafur Ingi Stígsson, Fylkir; Sigurjón Jónsson, Hvöt; Stefán Helgi Einars- son, Hamar; Uchechukwu Michael Eze, Afríka. tuttugu og fimm byrja í banni Rekinn af velli gömul brot fylgja mörgum leikmönnum milli tímabila. en með komu Kristjáns Haukssonar er varnarlínan aftur orðin sterk undir stjórn Auðuns Helgasonar. Framarar verða jafnvel enn varnarsinnaðri í ár en það má enginn vanmeta Framara. Lykilmaður: auðunn Helgason Fylgist með: jóni guðna fjólusyni 7. Fylkir Ólafur Þórðar- son byrjar ágæt- lega í Árbænum og kom ungu Fylkis- liði í undanúrslit Lengjubikarsins. Fylkir er afar fámannað og hefur sama liðið verið að byrja meira og minna í hverjum leik. Það má ekkert út af bregða hjá Fylkismönnum hvað varð- ar meiðsli því breiddin er engin. Fyl- kir spilar fast og fer ekkert á milli mála hver þjálfar liðið. Það gæti farið í taug- arnar á mörgum liðum í ár. Menn vita hvað býður þeirra sem ekki berjast eins og vanalega þegar Ólafur Þórð- arson á í hlut en þetta tímabil verður uppskeran rýr í Árbænum. Lykilmaður: Valur fannar gíslason Fylgist með: Ingimundi níels óskarssyni 8. Breiðablik Breiðablik er gífur- legt spurningamerki fyrir tímabilið. Það hefur misst alla sína útlendinga, félagið er í vondum málum fjárhagslega og út af því einmitt hvarf Marel Baldvinsson á brott fyrr á árinu. Breiðablik státar þó af heilu liði uppaldra leikmanna sem grænliðar í Kópavogi geta verið stoltir af. Það er Arnars Grétarssonar að stýra þessum græna ungliðaher í sumar og gæti Kópavogsandinn fleytt liðinu hærra. Það er hins vegar of lítil breidd í Breiðabliks-liðinu og margir of ungir og óreyndir. Í framlínu liðs- ins eru ungir strákar sem geta skorað og hafa sýnt það í yngri flokkum. En þetta er úrvalsdeildin. Lykilmaður: arnar grétarsson Fylgist með: alfreð finnbogasyni 9. Fjölnir Spútniklið síðasta árs mun þurfa að glíma við annars tímabils heil- kennið í ár. Í raun tók það út smá rassskell í fyrra því eftir ótrúlega fyrri umferð vann það ekki hvern leikinn á fætur öðrum og þok- aðist á tímabili nálægt fallinu. Koma markahróksins Jónasar Grana Garð- arssonar gerir mikið fyrir framlínuna en liðið er ekki jafnsterkt og í fyrra og breiddin enn minni. Heimavöllurinn verður að vera sterkur í Grafarvog- inum og Káramenn verða að öskra sem aldrei fyrr. Ásmundur Arnarsson, þjálfari liðsins, er eins og trúin, hann flytur fjöll, og Fjölnismenn munu rétt sleppa við fallið í ár. Lykilmaður: gunnar már guðmundsson Fylgist með: Illuga gunnarssyni 10. Þróttur Þróttarar gerðu vel í að halda sæti sínu í fyrra og buðu meira að segja upp á að hætta tveimur um- ferðum á undan öðrum liðum þeg- ar sætið var tryggt. Liðið hefur misst Sigmund Kristjánsson sem er gífur- leg blóðtaka og gæti verið það sem skilur á milli falls og ekki falls þegar á hólminn er komið. Gunnar Oddsson þjálfari verður að stilla upp í þéttan varnarleik með aðstoðarþjálfarann Dennis Danry í fararbroddi og berja sér leið áfram. Þróttur getur stillt upp sæmilegu byrjunarliðið en breiddin, eins og hjá mörgum öðrum, er lítil og verða menn að haldast heilir í Laug- ardalnum. Lykilmaður: dennis danry Fylgist með: skúla jónssyni 11. Stjarnan Stjörnumenn fóru hamförum á undir- búningstímabilinu og spiluðu á köfl- um fantafótbolta. Steinþór Freyr Þor- steinsson, fyrrverandi Bliki, hefur ver- ið magnaður og verður að halda því áfram inn í mót. Það er hreinlega eins gott fyrir Stjörnuna að hann og lið- ið sjálft hafi ekki toppað of snemma. Stjarnan hefur allt sem þarf til að verða spútnikliðið í ár en í Garðabæn- um er hefðin engin, hópurinn lítill og lítið má út af bregða. Bjarni Jóhanns- son er eldri en tvævetur í bransanum en það mun þó líklega ekki duga í ár. Lykilmaður: steinþór freyr þorsteins- son Fylgist með: Halldóri orra Björnssyni 12. ÍBV Vestmannaey- ingar eru mætt- ir aftur á meðal þeirra bestu eft- ir að hafa rúllað upp 1. deildinni í fyrra. Þeir, eins og Stjarnan, gætu vel komið á óvart en ÍBV hefur fengið til sín þriðja Úganda- manninn og Breta ofan á það. Komi útlendingarnir vel út getur ÍBV vel haldið sæti sínu í deildinni en til þess verður það auðvitað að verja heima- völlinn afar vel í sumar. Útivallagrýlan er þó enn til og sér ekkert fyrir endann á henni. Hún er það fyrsta sem Eyja- menn þurfa að vinna bug á ætli lið- ið að eiga möguleika á að halda sér í deildinni. Lykilmaður: andri ólafsson Fylgist með: Viðari Erni Kjartanssyni Keflvíkingum er spáð þriðja sæti hjá DV en Fylkismönnum því sjöunda. Keflvíkingar misstu af íslandsmeistaratitlin- um á lokasprettinum síðasta sumar og hafa misst nokkra sterka leikmenn. MynD STEFán
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.