Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.2009, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.2009, Side 16
Eignarhaldsfélagið Milestone eyddi tæpum 600 milljónum króna í að leigja einkaflugvélar frá fyrirtækjun- um Netjets og Closeair á árunum 2007 og 2008. Þetta kemur fram í skýrslu endurskoðendaskrifstofunnar Ernst & Young um viðskipti Milestone við tengda aðila sem unnin var að beiðni umsjónarmanns nauðasamninga Milestone, lögmannsins Jóhannesar Alberts Sævarssonar. Milestone ósk- aði eftir nauðasamningnum í júní. Félagið var í eigu bræðranna Stein- gríms og Karls Wernerssona. Milestone er eignarhaldsfélag sem átti miklar eignir á Íslandi, með- al annars tryggingafélagið Sjóvá að fullu og fjárfesingabankann Askar Capital. Eignir Milestone voru flutt- ar yfir í sænska félagið Moderna Fin- ance AB í ársbyrjun 2008 og hafa viðskiptin verið tortryggð mjög í op- inberri umræðu á Íslandi. Steingrím- ur og Karl eru með réttarstöðu grun- aðra í rannsókn sérstaks saksóknara á viðskiptum tengdum bræðrunum og Milestone. Skýrsla Ernst & Young var birt kröfuhöfum Milestone á miðviku- daginn ásamt skýrslu umsjónar- mannsins með nauðasamningun- um. Jafnframt kemur í skýrslu Ernst & Young að Milestone hafi eytt rúm- um 9 milljónum króna í leigu á go- kart-bíl, kerru og Benz sprinter á árinu 2007 og var kostnaðurinn skil- greindur sem: „vegna kynningarmála og boðsferðar“. Tæplega 80 milljarða kröfur Samkvæmt skýrslu umsjónarmanns- ins nema kröfurnar á hendur Miles- tone tæpum 80 milljörðum króna. Langstærsti kröfuhafinn er Glitnir banki, sem skilanefnd Glitnis fer fyr- ir, en krafa hans hljóðar upp á tæpa 44 milljarða króna. Þar á eftir koma Straumur-Burðarás og Moderna Fin- ance með kröfur upp á meira en 5 milljarða króna. Fjórði stærsti kröfu- hafinn er svo Sjóvá með kröfu upp á rúma 4 milljarða króna. Eignir félags- ins eru hins vegar metnar á rúma 5 milljarða samkvæmt skýrslu Jóhann- esar sem er rúmlega 6 prósent af úti- standandi skuldum félagsins. Í frumvarpinu til nauðasamn- ingsins segir umsjónarmaðurinn að kröfuhöfunum sé boðið að fá greidd- ar 6 prósent af kröfum sínum á hend- ur félaginu í formi hlutafjár í Miles- tone. Lánardrottnar Milestone munu því eignast allt hlutaféð í fé- laginu ef nauða- samningarnir verða samþykktir. Viðskipti við sjálfan sig Í skýrslu Jóhannesar er mestu púðri eytt í að ræða um tilfærslu eigna Mil- estone yfir til Moderna Finance árið 2008. Eins og hann rekur í skýrslunni áttu viðskiptin með eignir Milestone sér stað á milli félaga sem voru í eigu Milestone og því hafi eigendur Mil- estone verið að koma eignum frá fé- lögi sem þeir áttu og yfir í önnur félög sem einnig voru í þeirra eigu. Jóhannes kemst svo að orði í skýrslunni: „Viðskiptin með eignir Milestone áttu sér stað í gegnum keðju félaga sem Milestone réði í gegnum 100 % eign- arhluta sinn í Þætti eign- ar- haldsfélagi og síðan 100 % eignarhlut sinn í Racon I og síðan koll af kolli. Þannig réði Milestone ehf. í raun Moderna Finance AB í Svíþjóð þar sem eignirnar enduðu og sátu eft- ir að lokum... Það er mat umsjónar- manns að þessi félagakeðja skoðist sem aðilar nákomnir og tengdir Mil- estone ...” segir Jóhannes í skýrsl- unni og má túlka orð hans sem svo að eigendur Milestone hafi með við- skiptunum í reynd verið að eiga við- skipti við sjálfan sig. Riftanlegir gjafagerningar Jóhannes segir í skýrslu sinni að í öllum tilfellum hafi kaupverð eign- anna sem Milestone var að selja ver- ið greitt með hækkun hlutafjár í þeim félögum sem eignirnar voru fluttar í gegnum og að þetta hafi ekki verið eðlilegur greiðslumáti. Niðurstaðða Jóhannesar í skýrslunni er að eigend- ur Milestone hafi flutt eignirnar úr fé- laginu án þess að þeir hafi í reynd greitt fyr- ir þær en það var „yfirlýst markmið“ þeirra að flytja eignirn- ar til Svíþjóðar eins og segir í skýrsl- unni. Svo segir Jóhannes: „Það er því mat umsjónarmanns að eignir Mil- estone hafi verið færðar undan fé- laginu án raunverulegs endurgjalds og að um gjafagerning í skilningi 131 gr. hafi verið að ræða milli nákom- inna aðila. Slík ráðstöfun er riftanleg nema leitt sé í ljós að skuldari hafi ver- ið gjaldfær og það þrátt fyrir afhend- ingu gjafarinnar.“ Í orðum Jóhannesar felst að kröfu- hafar félagsins geti tekið ákvörðun um það hvort þeir höfða dómsmál á hendur fyrri eigendum Milestone og þeirra félaga sem eignuðust eign- ir Milestone, sem aftur voru í reynd í eigu sömu aðila og áttu Sjóvá, til að fá úr því skorið hvort hægt sé að rifta söl- unni á eignum félagsins til að fá meira upp kröfurnar. Dómsmál í höndum kröfuhaf- anna Samkvæmt heimildum DV mættu ekki nægilega margir af kröfuhöfun- um á fundinn á miðvikudaginn þar sem nauðasamningurinn var kynntur. Samningurinn var því ekki samþykkt- ur á fundinum og verður beðið með að afgreiða saminginn þar til nægi- lega margir kröfuhafar hafa lýst skoð- un sinni á honum. Enginn mætti til dæmis á fundinn fyrir hönd Straums, samkvæmt heimildum DV. Flest- ir af þeim kröfuhöfum sem mættir voru greiddu hins vegar atkvæði með samningnum en einhverjir munu þó hafa greitt atkvæði gegn honum, enn aðrir sátu síðan hjá. Kröfuhafarnir hafa tvær vikur til að greiða atkvæði með eða á móti samn- ingunum. Alveg sama hvernig at- kvæðagreiðslan um saminginn fer þá geta kröfuhafarnir ákveðið að höfða dómsmál, riftunarmál, á hendur þeim aðilum sem stjórnuðu félögunum sem áttu í viðskiptunum og auðguð- ust hugsanlega á þeim, meðal annars þeim Steingrími og Karli Wernersyni. Ekki liggur hins vegar ljóst fyrir að svo stöddu hvort eigendur Milestone og félaganna sem eignir þess runnu til hafi auðgast á viðskiptunum. Samkvæmt orðum umsjónar- manns Jóhannesar gæti slík máls- höfðun átt rétt á sér því niðurstaða hans er skýr: að viðskiptin með eign- ir Sjóvár séu riftanlegar því um gjafa- gerninga hafi verið að ræða. Nú er það kröfuhafanna að ákveða hvað þeir gera. Heimildarmaður DV sem lesið hef- ur gögnin sem DV hefur undir segist sjaldan hafa lesið annað eins. „Mið- að við annað sem maður hefur lesið þá virka stjórnendur annarra félaga eins og kórdrengir í samanburði við þetta. Þetta er með ólíkindum. Mér leist ekkert á það sem ég las,“ segir heimildarmaðurinn um efni skýrslu umsjónarmanns nauðasamninga Milestone. 16 föstudagur 4. september 2009 fréttir MILESTONE EYDDI UM 600 MILLJÓNUM Í LEIGU ÞOTNA Kröfur á hendur Milestone nema tæpum 80 milljörðum króna. Kröfuhafarnir fá hins vegar aðeins 6 prósent upp í kröfur sínar. Glitnir á kröfu á Milestone upp á tæpa 44 milljarða. Umsjónarmaður nauðasaminganna telur að viðskipti Milestone með eignir félagsins yfir til Moderna í Svíþjóð séu dæmi um riftanlega gjafagerninga því ekki hafi verið greitt fyrir eignirnar. Kröfuhafar Milestone þurfa því að ákveða hvort þeir höfði dómsmál á hendur fyrri eigendum þess, meðal annars Steingrími og Karli Wern- erssonum, til að láta rifta þeim. STæRSTu KRöfuhafaR MileSTone SaMKVæMT SKýRSlunni: Glitnir Rúmir 43,9 milljarðar Straumur Tæpir 5,8 milljarðar Moderna finance aB Tæpir 5,3 milljarðar Sjóvá Tæpir 4,3 milljarðar SJ2 ehf. Rúmur 4,1 milljarður „Miðað við annað sem maður hefur lesið þá virka stjórnendur ann- arra félaga eins og kór- drengir í samanburði við þetta. Þetta er með ólíkindum“ inGi f. VilhJálMSSon blaðamaður skrifar ingi@dv.is 80 milljarða kröfur Kröfur á hendur Milestone nema tæpum 80 milljörðum króna og á Glitnir tæplega 44 milljarða kröfu á félagið. Endurheimtur kröfuhafanna verð 6 prósent af nauðasamningarnir verða samþykktir. Skýrsla umsjónarmanns nauðasamninganna lætur aðra í viðskiptalífinu líta út eins og kórdrengi segir heimildarmaður DV. Milestone átti meðal annars fjárfestingabankann Askar Capital. Milestone kom eignum undan Umsjónarmaður nauðasamninga Milestone telur að eigendur félagsins hafi komið eignum þess undan og að viðskiptin séu riftanleg því um gjafagerning hefði verið að ræða. Út frá lestri skýrslunnar verður ekki annað séð en að kröfuhaf- arnir geti höfðað dómsmál á hendur fyrri eigendum félagsins, meðal annars þeim Steingrími og Karli Wernerssonum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.