Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.2009, Blaðsíða 34
34 föstudagur 4. september 2009 helgarblað
verður bara að slá í band þar,“ segir Björn og
skellihlær þegar blaðamaður stingur upp á
hljómsveitarnafninu Icesave.
Afbrigðilegur áhugi á pólitík
Þrátt fyrir 36 ára sjómennsku einbeitir Björn
Valur sér nú að Alþingi þar sem hann situr
fyrir Vinstri-græna en hann komst inn í kosn-
ingunum í vor. Hann segist alla tíð hafa haft
gaman af pólitík, áhuginn hafi jafnvel ekki
þótt eðlilegur.
„Ég hef alla tíð frá því ég var krakki haft
mikinn áhuga á pólitík og stjórnmálum - það
þótti stundum afbrigðilegt. Ég hef alltaf vilj-
að fylgjast með og stundaði mikið fundi þegar
ég var yngri. Tvisvar fór ég í framboð fyrir Al-
þýðubandalagið og komst inn sem varamað-
ur 1990. En nánast við hverjar einustu kosn-
ingar hef ég verið viðloðinn einhverja vinnu
við kosningabaráttu. Ég hef jafnvel tekið mér
frí frá vinnu vegna þess, ég hef haft svo gam-
an af því. Þetta hefur alltaf verið hluti af lífinu
hjá mér og ég hef gaman af rökræðunni,“ segir
Björn sem sat meðal annars í bæjarstjórn Ól-
afsfjarðar í tólf ár.
ÞingmennskAn mikil breyting
„Ég í sjálfu sér hafði ekkert miklar vonir um
það að komast á þing í upphafi,“ segir Björn
um kosningabaráttuna. „Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur alltaf haft svo mikla maskínu til að
setja í gang þegar þess hefur þurft en núna
virtist eins og enginn vildi vilja kenna sig við
flokkinn, skiljanlega. Þar að auki gekk okkur
mjög vel og málflutningur okkar féll í góðan
jarðveg. Þegar fór að líða á baráttuna fann
maður fyrir því að það gæti orðið að veruleika
að Vinstri-grænir gætu komið þremur mönn-
um inn,“ segir Björn og viðurkennir að sætið
á Alþingi hafi komið honum svolítið á óvart.
„Þetta kom að sumu leyti flatt upp á mig.
Þetta er mikil breyting á lífi manns sem býr
úti á landi að vera suður í Reykjavík alla
daga. Það hefur nánast ekki verið nokkurt frí
- kannski einn og einn dagur sem maður hef-
ur getað skotist norður. Svo er þetta ekki bara
breyting fyrir mig heldur fjölskylduna líka,“
segir hann.
mikill tekjumissir
Að verA á AlÞingi
Það er ekkert leyndarmál og hefur aldrei verið
að skipstjórar þéna vel og hafa ætíð gert. Eins
er vanalega gott frí á milli túra sem hentar
fjölskyldumönnum ágætlega þó fjarvistirnar
geti auðvitað verið erfiðar. Það segir sig samt
sjálft að tekjur Björns Vals hafa rýrnað veru-
lega með veru hans á Alþingi. Það viðurkenn-
ir hann fúslega.
„Þetta er mikill tekjumissir. Ég fer nið-
ur um allavega helming og á móti bætist við
ríflega helmingi lengri vinnutími. Þetta eru
mikil viðbrigði á margan hátt. Þetta er óheil-
brigð djöfulsins vinna frá morgni til kvölds og
nánast allar helgar eins og þetta hefur verið
í sumar. Tímakaupið sem slíkt er því ekkert
svakalega hátt. Maður er nú samt að vona að
þetta sumarþing sé eitthvað afbrigðilegt,“ seg-
ir Björn en hefur hann hreinlega efni á því að
vera á Alþingi? „Það er bara spurning. Í alvöru
talað,“ segir hann.
kemur í ljós hvort ÞettA hentAr
Björn Valur býr eins og áður segir á Akureyri og
þar býr fjölskylda hans. Eins á hann enn hús í Ól-
afsfirði og þá þarf hann einnig að halda úti íbúð í
Reykjavík. „Þessu fylgir auðvitað dálítill kostnað-
ur að halda úti tveimur heimilum. Ég fæ greitt frá
Alþingi húsnæðisstyrk sem dugar nú varla fyrir
leigu. Ég held heimili á Akureyri og svo þarf ég
að leigja fyrir sunnan og reka mig þar. Þessu fylg-
ir eðlilega mikill kostnaður. En þessu fylgja líka
fjarvistir að heiman og þær eru talsvert meiri en
þegar ég var úti á sjó,“ segir Björn en það á eftir
að koma í ljós hvort hann leggi þingmennskuna
alveg fyrir sig.
„Það á eftir að koma í ljós hvort þetta henti
mér. Ég tók mér árs frí frá minni ágætu útgerð og
ég ætla bara að nota þann tíma til reynslu. Það
getur vel verið að bara eins og þegar fólk skipt-
ir um vinnu líki því ekki vinnan eða þetta henti
ekki. Ég er hins vegar á Alþingi af mikilli ein-
lægni og ver öllum mínum kröftum í þetta starf
og hef mjög gaman af því,“ segir hann.
á sjónum ræður einn mAður
Aðspurður um þingmennskuna segir Björn
vinnulagið á Alþingi allt annað en hann sé van-
ur. Hann spyr blaðamann hvort hann hafi nokk-
urn tíma stundað sjóinn. Þegar blaðamaðurinn
af malbikinu viðurkennir reynsluleysi sitt í þeim
efnum útskýrir Björn hið einfalda „lýðræði“ sem
er í gildi á sjónum.
„Á sjónum er einfalt kerfi. Lýðræðið þar felst
í því að þar ræður einn maður og ef menn hlýða
ekki því sem hann segir brýnir hann raustina og
þá er málið leyst. Ég er alinn upp við þetta eins
og allir aðrir sjómenn. Maður gerir bara það sem
fyrir liggur þó það sé ekkert alltaf með bros á vör.
Samstillt áhöfn úti á sjó er gulls ígildi og þó menn
séu fúlir út í hver annan þá ganga menn í verkin
og klára þau. Ég hef verið beggja vegna borðsins.
Bæði þurft að hlýða skipunum og þurft að láta
hlutina ganga upp. Þetta er allt öðruvísi vinnulag
en ég er starfandi í núna,“ segir Björn.
ÞettA hefur verið
undArlegur tími
Þegar talið berst að Alþingi og Icesave-umræð-
unni verður Birni meira niðri fyrir eftir annars
hresst spjall. „Þetta er búinn að vera undarleg-
ur tími,“ segir hann og heldur áfram ómyrkur í
máli. „Mér finnst mjög afbrigðilegt að sjá full-
trúa stjórnmálaflokka sem eru dauðasekir um
ástandið hér á Íslandi í dag láta eins og þeir séu
eins og nýstraujað og samanbrotið lín og aldrei
hafi fallið kusk á. Á örskömmum tíma hefur um-
ræðan snúist frá því hver leiddi þessa vesalings
þjóð í þessar ógöngur yfir í það hverjir eru að
reyna að leysa málin og allt í einu er allt þeim
að kenna. Mér finnst mjög sérstakt að sjá þessa
þingmenn og formenn þessara stjórnmálaflokka
tala eins og þeir séu algjörlega pólitískt óspjall-
aðir,“ segir hann en honum finnst verst hvað tím-
anum á sumarþingi hefur verið illa varið. Niður-
staðan eftir allt þetta japl, jaml og fuður í sumar
varð sú sama og hún var í júní.
„Niðurstaðan eftir allt sumarþingið varð svo á
endanum sú að Alþingi staðfesti samninga sem
undir var skrifað fimmta júní í sumar. Þeir voru
samþykktir af stjórnarmeirihlutanum. Stjórn-
arandstaðan, sérstaklega Sjálfstæðisflokkurinn,
sem þóttist ætla að koma að málum bognaði
á endanum og vék sér undan ábyrgðinni. Allt
sumarið hefur því farið fyrir lítið. Það er að segja,
það hefur engin breyting orðið á því sem lagt var
upp með í upphafi, að við ætlum að standa okk-
ar plikt, reyna að vera þjóð meðal þjóða og borga
þessar skuldir. Það hefur ekkert breyst í því,“ seg-
ir skipstjórinn, alþingismaðurinn og rokkarinn
Björn Valur Gíslason.
tomas@dv.is
„Ég hÉlt því fram að þeg-
ar svo væri komið fyr-
ir þessari ágætu þjóð
okkar að menn tækju
ekki eftir því að höggið
væri inn í grunnatvinnu-
veginn, þá væru menn
einfaldlega að mæla
einhverja vitleysu. mæli-
stokkurinn væri bara
rangur. og það hefur
komið í ljós núna.“
sendur í tónlistarskóla þegar hann
var lítill „Vissulega hætti ég því eftir
að ég fór á sjóinn en ég hélt því við og
samdi tónlist.“ mynd pedromyndir
skipstjórinn Björn Valur hefur
verið sjómaður í 36 ár og skipstjóri á
Kleifarberginu í tvö ár. mynd pedromyndir
góður afli Afar vænt ufsaholl.
Aftast á myndinni má sjá sáttan
skipstjóra með þumalinn hátt á lofti.