Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.2009, Page 37
helgarblað 4. september 2009 föstudagur 37
Stórkostleg fyrirmynd
og kvenskörungur
Álitsgjafar:
Gerður Kristný rithöfundur
Inga Lind Karlsdóttir fjölmiðlakona
Svava Johansen verslunarkona
Halldór Gylfason leikari
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarfulltrúi
Anna Kristine Magnúsdóttir blaðamaður
Heiðar Jónsson snyrtir
Sigríður Arnardóttir fjölmiðlakona
Nonni Quest hárgreiðslumaður
Sigríður Klingenberg spákona
Garðar Örn Hinriksson knattspyrnudómari
Vésteinn Gauti Hauksson markaðsstjóri
Hjörtur Hjartarson knattspyrnumaður
Ingibjörg Reynisdóttir leikkona
Guðni Már Henningsson útvarpsmaður
Bergljót Arnalds rithöfundur
Þórunn Högnadóttir stílisti
Umsjón: Indíana Ása Hreinsdóttir
Vigdís finnbogadóttir
fyrrVerandi forseti
„Á líklega brot í hjarta allrar þjóðarinnar. Samein-
ingartákn, hvatning, þjóðernisvitund, kvenfrelsi og
menntun eru bara nokkur hugtök sem við tengjum
við þessa einstöku konu.“
„Hefur lagt mikið til samfélagsins.“
„Hinn fullkomni alþýðuleiðtogi en jafnframt svo
vönd að virðingu sinni að aldrei féll skuggi á.
Íslensk þjóð elskar þessa manneskju umfram alla
aðra. Af henni skín góðmennska, viska og hlýja.
Hugsanlega eina manneskjan í heiminum sem gæti
komið á friði fyrir botni Miðjarðarhafs.“
„Glæsilegur fulltrúi þjóðarinnar þau 16 ár sem hún
sat á stóli forseta Íslands.“
„Elskulegasta mannvera Íslands fyrr og síðar. Stolt
þjóðarinnar, hefur alltaf verið til fyrirmyndar.“
„Mikill skörungur og fer ótroðnar leiðir. Kemur alltaf
vel fyrir sig orði.“
„Vel gefin og vel upplýstur kvenskörungur.“
„Svo elskuleg og ömmuleg þegar maður sér hana
kaupa sjálfa í matinn í Melabúðinni. Mann langar
strax til að bera pokana hennar fyrir hana heim og
helst fá bræðurna sem eiga búðina til að bera hana
í gullstól alla leið heim á Aragötuna.“
„Stórkostleg fyrirmynd. Átti ómetanlegt framlag í
kvenréttindabaráttunni.“