Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.2009, Side 43
Sport 4. september 2009 föStudagur 43
Alþjóðaknattspyrnusambandið til-
kynnti á fimmtudag að enska úrvals-
deildarliðinu Chelsea væri bannað
að kaupa leikmenn næsta árið eða
fram í janúargluggann 2011. Getur
það því ekki einu sinni spilað með
á sumarmarkaðnum eftir tímabil-
ið. FIFA segir það hafa hvatt ungan
Frakka til þess að rifta samningi sín-
um við sitt gamla félag, Lens, áður
en hann gengi í raðir Chelsea.
Lens kvartaði yfir því að Chelsea
hefði reynt að fá Gael Kakuta til að
rifta samningi sínum við félagið og
fara til London og mun Chelsea hafa
brotið gegn 17. grein félagaskipta-
laga en hún hljóðar svo: „Gert verð-
ur ráð fyrir, ef annað telst ekki full-
sannað, að félag sem gerir samning
við leikmann sem hefur slitið samn-
ingi sínum við annað lið án heimild-
ar, hafi unnið að því að hvetja leik-
manninn til að gjöra svo.“
Kakuta sem leikur með varaliði
Chelsea og unglingaliðinu í fyrra
er gert að greiða Lens 680 þúsund
pund í bætur og Chelsea greiðir
Lens enn fremur önnur 114 þúsund
pund í uppeldisbætur. Til að bæta
gráu ofan á svart hefur Kakuta ver-
ið útilokaður frá knattspyrnu í fjóra
mánuði.
Hver er Gael Kakuta?
Þessi drengur á bak við stærstu fót-
boltafrétt ársins er átján ára gam-
alt undrabarn frá Frakklandi. Hann
ákvað að yfirgefa franska liðið Lens,
eins og áður hefur komið fram, fyr-
ir Chelsea árið 2007. Á sinni fyrstu
leiktíð með unglingaliði Chelsea
var Kakuta allt í öllu hjá liðinu og
leiddi það til sigurs í unglingabik-
arnum - bikar sem margar stjörnur
dagsins í dag lyftu eitt sinn. Hæfi-
leikar hans með boltann eru engu
líkir og þá er hann afskaplega góð-
ur í að klára færin. Hann leikur mest
á vinstri vængnum en er duglegur
að að koma sér í færi og skjóta. Það
hefur líka borið árangur því hann
var markahæsti leikmaður Chelsea
á sínu fyrsta ári og valinn besti leik-
maður unglingaliðsins. Frammi-
staða hans tryggði honum sæti í
franska U17 ára landsliðinu á loka-
keppni Evrópumótsins síðastliðið
sumar þar sem hann sló í gegn.
Dýrt í toppbaráttunni
Gæti Chelsea verið að missa af
möguleikanum á Englandsmeistara-
titlinum vegna Kakuta? Það er ekki
hægt að útiloka það. Aldeilis ekki. Í
byrjun annars hvers ár fer fram ein
mest hataða knattspyrnukeppni
meðal þjálfara um allan heim, Afr-
íkukeppnin. Hún er alltaf haldin á
miðju tímabili stórru deildanna og
missa þá liðin góða leikmenn í tvær
vikur til mánuð.
Innan raða Chelsea eru fjór-
ir mjög sterkir leikmenn frá Afríku.
Michael Essien frá Gana, Saloum-
on Kalou og Didier Drogba frá Fíla-
beinsströndinni og Jon Obi Mikel frá
Nígeríu. Landslið þessara landa eru
líkleg til þess að ná langt og verður
því Chelsea án þessara leikmanna í
allt að mánuð. Það getur heldur ekki
fengið neina leikmenn til sín í jan-
úarglugganum til að styrkja lið sitt.
Svo gæti farið að einn óþekktasti
leikmaður ensku úrvalsdeildinnar,
leikmaður sem aldrei hefur spilað í
henni, gæti kostað Chelsea titilinn -
þótt það eigi nú stóran hluta af sök-
inni sjálft.
Á Sama tíma - tveimur
Árum Seinna
Gael Kakuta er ekki þekktasti knattspyrnumaður heims. En framferði hans gegn sínu gamla liði, Lens, gæti
leikið lykilhlutverk í toppbaráttunni á Englandi. Hann rifti samningi sínum við liðið til að ganga í raðir
Chelsea en Lundúnaliðinu hefur verið bannað að kaupa sér leikmenn í eitt ár. Chelsea missir fjóra sterka
leikmenn á Afríkumótið í byrjun árs og getur ekki fengið neina til að leysa þær stöður á meðan.
ríður KaKuta bagga-
muninn Á toppnum?
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Gael Kakuta Rifti samningi sínum við
Le Mans og mun kosta Chelsea helling,
fjárhagslega og í toppbaráttunni.
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | www.veggsport.is
KETILBJÖLLUR
KARFA
GOLFHERMIR
SPINNING
LYFTINGAR
SKVASSGUF
UBAÐ