Uppeldi og menntun - 01.07.2015, Blaðsíða 39

Uppeldi og menntun - 01.07.2015, Blaðsíða 39
UPPELDI OG MENNTUN/ICELANDIC JOURNAL OF EDUCATION 24(2) 2015 39 GERÐUR ÓLÍNA STEINÞÓRSDÓTTIR, AMALÍA BJÖRNSDÓTTIR OG BÖRKUR HANSEN hluta en að öðru leyti var spurningalistinn þýddur og staðfærður af aðstandendum rannsóknarinnar. Auk spurninga sem eru í CBI-mælitækinu voru lagðar fyrir nokkr- ar spurningar til að kanna starfsanda í skólunum, svo og spurningar um bakgrunn skólastjóranna. CBI-mælitækið mælir kulnun eftir þremur kvörðum en fyrsti mælikvarðinn, persónutengd kulnun, er metinn með sex spurningum til að greina að hve miklu leyti starfsmenn upplifa líkamlega og andlega þreytu og örmögnun. Starfstengd kulnun er mæld með sjö spurningum til að meta að hve miklu leyti þeir upplifa andlega og líkamlega þreytu og örmögnun í starfi sínu. Sex spurningar eru um kulnun tengda skjólstæðingum til að meta að hve miklu leyti starfsmenn upplifa andlega og líkam- lega þreytu og örmögnun gagnvart viðskiptavinum eða samstarfsfólki. Spurningunum var svarað á fimm punkta Likert-kvarða en notaðir voru tvenns konar svarmöguleikar. Annars vegar formið alltaf, oft, stundum, sjaldan og aldrei/ næstum aldrei og hins vegar að mjög miklu leyti, að miklu leyti, að einhverju leyti, að litlu leyti og að mjög litlu leyti. Miðað var við sömu stig kulnunar og mælt er með í erlendri útgáfu listans (Borritz og Kristensen, 2004). Stigagjöf allra mælikvarðanna er á bilinu 0–4 stig. Fyrsti flokkur (alltaf eða að mjög miklu leyti) gaf 4 stig, annar flokkur (oft eða að miklu leyti) gaf 3 stig, þriðji flokkur (stundum eða að einhverju leyti) gaf 2 stig, fjórði flokkur (sjaldan eða að litlu leyti) gaf 1 stig og fimmti flokkur (aldrei/næstum aldrei eða að mjög litlu leyti) gaf 0 stig. Ef þátttakandi svaraði færri en þremur spurningum á mælikvörðum um einstaklings- miðaða kulnun eða kulnun tengda skjólstæðingum eða færri en fjórum spurningum á starfstengda kulnunarmælikvarðanum var litið svo á að hann hefði ekki svarað. Hægt er að túlka niðurstöður stigagjafar fyrir hvern og einn mælikvarða um sig og út frá útkomu stigagjafarinnar er hægt að meta hvort starfsmaður eigi við kulnun að stríða. Við túlkunina er farið eftir stigagjöf sem skiptist í fjóra flokka, sjá töflu 2. Tafla 2. Viðmiðun fyrir túlkun mælikvarðanna Persónutengd kulnun Starfstengd kulnun Kulnun tengd skjólstæðingum Einstaklingurinn ber engin merki um kulnun 0–5 0–6 0–5 Það eru nokkur atriði sem einstakling- urinn ætti að vera meðvitaður um 6–11 7–13 6–11 Einstaklingurinn er með kulnunarein- kenni sem hann ætti að bregðast við 12–17 14–20 12–17 Einstaklingurinn er svo örmagna og út- brunninn að hann ætti að leita sér tafar- laust hjálpar til að breyta stöðu sinni 18+ 21+ 18+ (Borritz og Kristensen, 2004)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.