Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2009, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2009, Blaðsíða 2
Bogi Jónsson, veitingamaður og frumkvöðull á Hliði á Álftanesi, stendur frammi fyrir því að neyðast til að selja húsið sitt og veitingastað eftir að kreppan fór hörðum hönd- um um hann. Fyrir nokkrum árum lét Bogi draum sinn rætast og byggði upp veitingastaðinn á Hliði af mynd- arskap. Hann segir það auðvitað svekkjandi að standa frammi fyrir því að missa allt, en er þó alls ekki af baki dottinn. „Ég átti 70 prósent í þessu fyrir bankahrun, nú á maður varla neitt í þessu,“ segir hann. Bogi fer ekki leynt með að hann er í fjárhagsvandræðum. „Ég sé fram á að selja allt, hitt væri bara að lengja í snörunni. Spottinn kippir ekki í heldur bregst maður við með því að smella í jörðina.“ Grunsamleg grafa Frægt varð í sumar þegar nágranni hans á Álftanesi reif niður einbýl- ishús sitt með gröfu í stað þess að láta það falla í hendur bankanna. Áhyggjufullir nágrannar Boga veittu því athygli á dögunum að stærð- arinnar grafa var komin fyrir utan húsið hans. Hann segir að óvenju- mikil umferð hafi verið við Hlið á meðan grafan stóð þar, enda ein- hverjir áhyggjufullir yfir því að hann ætlaði að feta í fótspor nágranna síns og rústa Hliði. „Menn voru að koma og kíkja hvað væri í gangi hérna, eðli- lega. Einhverjir héldu að ég ætlaði að beita Álftanesaðferðinni. Manni er nú trúandi til þess að taka upp á alls kyns vitleysisgangi, en ekki þessu,“ segir Bogi skellihlæjandi. „Mér þykir of vænt um húsið til þess að fara að rústa því, jafnvel þó ég eigi það ekki er ég samt montinn af því.“ Gröfunni var þó aldrei ætlað að rústa húsinu, heldur var Siglingastofnun að gera sjóvarnargarð fyrir framan húsið. „Það var nú ekki alvarlegra en það,“ segir Bogi. „Shit happens“ Þetta er alls ekki í fyrsta skipti sem Bogi lendir í ógöngum. Hann er hins vegar bjartsýnismaður að eðlisfari og er sannfærður um að í hvert skipti sem einar dyr lokist opnist þúsund aðrar. „Það er nú með áföll eins og þetta, að þurfa að láta húsið af hendi, það bara kemur eitthvað annað í staðinn. Í síðustu kreppu missti ég hús sem ég byggði. Það átti að vera eina húsið sem ég myndi byggja um ævina. En hefði ég ekki misst það, þá hefði ég ekki fengið tækifæri til að láta þennan draum rætast. Ég ætla ekkert að festast í einhverju þung- lyndi og sjálfsvorkunnsemi. Það er ekki til neins. „Shit happens,“ sagði Forrest Gump.“ Bogi segir að vel hafi gengið fram- an af með veitingareksturinn á Hliði, en skömmu eftir bankahrunið hafi allt gjörbreyst. Síminn hafi varla hringt nema þegar fólk afboðaði pantanir fyrir hópa. „Eftir kreppuna skekktist mórallinn enda margir búnir að missa vinnuna. Þá ákváðum við að taka 90 gráðu beygju, hætta með taílenska matinn og vera þjóð- ernissinnuð. Við breyttum þessu í íslenskt kaffihús í sumar og seldum kjötsúpu en svo fór botninn úr þegar fór að kólna.“ Seldi smokka með kínarúllum Bogi segist ekki vita nákvæmlega hvað hann tekur sér fyrir hendur í framtíðinni, en hann hefur ekki set- ið aðgerðalaus hingað til. Hann opn- aði meðal annars fyrsta taílenska skyndibitastaðinn á Íslandi. „Síð- an var ég með Kínarúlluvagninn og var fyrsti almenni smokkasalinn. Þá þurfti maður annaðhvort að fara á Núllið eða í apótekin til að kaupa smokka. Ég ákvað hins vegar að selja þá í Kínarúlluvagninum. Það var mikil umfjöllun um þetta og marg- ir hneykslaðir, eins og manni finnst þetta eðlilegt í dag.“ Í ljósi hinnar miklu viðhorfsbreyt- ingar til smokkasölu á síðustu ára- tugum, lítur Bogi þá ekki á sig sem brautryðjanda? „Jú, ég á allavega erfitt með að fara troðnar slóðir. Við skulum bara segja það.“ hitt málið Þetta helst - þessar fréttir bar hæst í vikunni „barnalán“ valda usla Barnalán Glitnis til stofnfjárkaupa í sparisjóðnum Byr fóru einkum til barna systkinanna úr Nóa- túnsfjölskyldunni. Fjárfest- ingafélag fjölskyldunnar, Sax- hóll, var stór hluthafi í Glitni og Byr. Einn bræðranna segir að þáttur Glitnis megi ekki gleymast og að hann hefði ekki skuldsett börn sín ef hann hefði vitað að það væri ólöglegt. Hann segir að það hafi verið freistandi að taka lán fyrir börnin þar sem Glitnir hafi kynnt lánveitingarnar sem áhættu- lausar. Hann sér ekki siðleysið í því að skuldsetja börn sín. Í nær öllum tilfell- um er stofnfjáreign barnanna sú sama: rúmlega 14 milljónir króna. Öll áttu börnin stofnfjárbréf fyrir stofn- fjáraukninguna í Byr en höfðu einungis rétt á að kaupa ákveðið magn bréfa til viðbótar, upp að ákveðinni upphæð, og skýrir það þá stað- reynd að flest þeirra eiga jafnmikið af stofnfjárbréfum. björn byggir Björn Leifsson, kenndur við World Class, byggir rúmlega 150 fermetra sumarbú- stað við Þing- vallavatn. Bústaðurinn er skráður á Laugar ehf. og er í landi Kárastaða, einu dýr- asta og vinsælasta sumarhúsahverfi landsins. Laugar ehf. tapaði tæpum 300 milljónum árið 2008 en Björn greiddi sér sex milljóna króna arð fyrir árið. Í ársreikningi Lauga ehf. kemur fram að áætlað markaðsverðmæti sumarbústaðarins sé fimmtíu milljónir króna. Iðnaðarmaður sem DV talaði við áætlaði að kostnaður við byggingu sumarbústaðarins vær eitthvað á milli hundrað og tvö hundruð milljónir. Nágrannar Björns eru heldur ekki af verri endanum, forsetaframbjóðandinn fyrrverandi Guðrún Pétursdóttir, borgarfulltrúinn Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og maður hennar, Sigríður Snævarr, fyrrverandi sendiherra, og maður hennar. deilt um haga Hart er deilt um framtíð Haga og þá einkum eignarhald á félaginu sem rekur fjölda verslana hérlendis. Nýja Kaup- þing hefur gefið Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og aðilum honum tengdum tvo mánuði til að útvega 7,5 milljarða króna í nýtt hluta- fé. Vilhjálmur Bjarnason, lektor og formaður Félags fjárfesta, telur hins vegar eðlilegt að Hagar fari í almenna gjaldþrotameðferð. Guð- mundur Franklín Jónsson fjárfestir segist fara fyrir 100 fjársterkum aðilum sem hyggjast leggja fram tilboð í 60 prósenta hlut í Högum. Jóhanna Sigurðardóttir for- sætisráðherra sagði í vikunni að ef til mikilla afskrifta kæmi hjá fyrir- tækjum væri óeðlilegt að fyrri eigendur kæmu að stjórn þeirra. 2 3 1 F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð Foreldrarnir sjá ekki eFtir barnalánunum: FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ íTREkAÐ STOPPAÐ AF dv.is MÁnudAguR Og þRIÐJudAguR 2. – 3. nóveMBeR 2009 dagBlaðið vísiR 146. tBl.99. áRg. – veRð kR. 395 STEIndI Á STÖÐ 2 nTók góÐu TILbOÐI MAJÓNES- FORSTJÓRI SLÆR Í GEGN FRéTTIR n „þAÐ ER EkkITIL gÁFAÐRI kOnA Á LAndInu“ 10 HÆTTUR Á HEIMILINU kAnAdíSkuR bLAÐAMAÐuR: „bLóÐ FYLgIR ALLTAF HELLS AngELS“ AMERÍSK UNDANRENNA FRéTTIR jón Viðar dæmir Fjölskylduna: FRéTTIR n FLESTIR úRSkuRÐIR FME vORu ógILTIR FRÁ 1998 TIL 2006 SYKRAÐASTI DRYKKUR ÍSLANDS nEYTEnduR vIÐTAL vIÐ FORELdRI: „ÁkAFLEgA FREISTAndI AÐTAkA SLík LÁn“ „MEnn TÖLdu EkkI MIkLA ÁHæTTu í þESSu“ nóATúnSFJÖLSkYLdAn vAR STóR HLuTHAFI í gLITnI Og bYR bÖRnIn FEngu STOFnFé uPP Á 14 MILLJónIR HvERT NÓATÚNS- BÖRNIN VEÐSETT 6 miðvikudagur 4. nóvember 2009 fréttir Ætlar að standa í lappirnar Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son, formaður Framsóknarflokks- ins, spurði Kristján Þór Júlíusson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, á þingfundi í gær út í afstöðu hans til frumvarps um ríkisábyrgð vegna Icesave. „Getur þingmað- urinn staðfest að hann mun sýna staðfestu í þessu máli?“ spurði Sigmundur. Hann vísaði til orða Lilju Mósesdóttur, þingmanns vinstri-grænna, sem sagði að óvissa um afstöðu sjálfstæðis- manna hefði ruglað suma þing- menn vinstri-grænna. Kristján sagðist ekki ætla að styðja frumvarpið. „Ég mun standa í lappirnar í þessu máli og treysti á að þið gerið það líka, framsóknarmenn,“ sagði hann. Dómari víkur sæti Sigríður Ingvarsdóttir, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, vík- ur sæti í máli Guðmundar Kristjánsson- ar gegn Árna Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráð- herra, og ís- lenska ríkinu. Guðmundur sótti um embætti héraðsdóm- ara við Héraðsdóm Norðurlands eystra og Héraðsdóm Austur- lands. Sérstök matsnefnd mat Guðmund hæfari en Þorstein Davíðsson, en Þorsteinn var engu að síður skipaður í embættið. Guðmundur ákvað því að stefna íslenska ríkinu og Árna Mathiesen sem var settur dómsmálaráðherra við skipunina. Stefndu kröfðust þess að Sigríður viki sæti vegna ummæla hennar í útvarpsviðtali um málið og var á það fallist í gær. Íslensku gúrkurn- ar bestar „Allt þinghúsið myndi rúma um 300 tonn af agúrkum. Þetta er spurning um að horfast í augu við möguleik- ana,“ sagði Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, í þingumræð- um um hátt raforkuverð til garð- yrkjubænda. Við þessi orð sín dró Árni síðan upp agúrku. Hann sagði miður að við garðyrkju- bændum blasti að hætta að rækta agúrkur. „Þær bestu í heiminum,“ eins og Árni komst að orði. Húsleitir vegna erlendra korta Farið var í nítján húsleitir á vegum efnahagsbrotadeildar ríkislög- reglustjóra í gær. Skattrannsókn- arstjóri hefur kært til deildar- innar fjórtán mál þar sem erlend greiðslukort eru notuð hérlendis en skuldfærð erlendis, einkum í Lúxemborg. Með því komast við- komandi hjá því að greiða skatta af tekjum sínum. Húsleitirnar fóru aðallega fram á höfuðborg- arsvæðinu en ein húsleit var gerð á Ísafirði og tóku um fimmtíu manns þátt í þeim. Jón Ásgeiri Jóhannessyni Vilhjálmur Bjarnason Guðmundur Franklín Jónsson Átök um Haga „Er ekki eðlilegt að félagið fari í al- menna gjaldþrotameðferð?“ segir Vilhjálmur Bjarnason, lektor við við- skiptafræðideild Háskóla Íslands og formaður Félags fjárfesta, um hvað honum finnist um þær hugmyndir að Jóni Ásgeiri og aðilum honum tengd- um verði gefinn kostur á að koma með 7,5 milljarða króna hlutafé til að bjarga Högum. Honum finnst eðlilegt að Hagar verði sett í útboð með svip- uðum hætti og gert var með Árvak- ur. Hann sagðist ekki hafa kynnt sér reikninga eignarhaldsfélagsins 1998. Því gæti hann ekki tjáð sig um hvort fé- lagið væri meira virði en 12,5 milljarða króna. Annað tilboð Rúmlega eitt hundrað fjársterkir að- ilar ætla að gera ríkisbankanum Nýja Kaupþingi tilboð í 60 prósenta hlut í Högum. Miklar umræður hafa verið um málefni fyrirtækisins undanfarna daga. Hagar eru í eigu eignarhalds- félagsins 1998. Fréttastofa Stöðvar 2 sagði frá því á sunnudag að áform væru um að Jón Ásgeir Jóhannesson og aðil- ar honum tengdir fengju að halda 60 prósenta hlut í Högum. Til þess þyrftu þeir að leggja fram 7,5 milljarða króna í nýtt hlutafé innan tveggja mánaða. Nýja Kaupþing myndi síðan eiga 40 prósent í félaginu. Þannig metur Nýja Kaupþing Haga á 12,5 milljarða króna. Margir telja þó að verðmat félagsins liggi nær 18 til 22 milljörðum króna. Skuldirnar við Kaupþing nema hins vegar 48 milljörðum króna. Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra sagði á blaðamannafundi í gær að ef til mikilla afskrifta kæmi væri óeðlilegt að fyrri eigendur kæmu að stjórn fyrirtækja. Steingrímur J. Sigfús- son fjármálaráðherra sagðist treysta því að bankar og bankasýsla fylgdu verklagsreglum við meðferð fyrir- tækja. Milljarða afskriftir Guðmundur Franklín Jónsson fjárfest- ir er einn talsmanna hópsins sem ætlar að gera tilboð í 60 prósenta hlut í Hög- um. Í samtali við DV segir Guðmund- ur að tilboð hópsins sé nokkuð hærra en það sem Jón Ásgeir og aðilar tengd- ir honum hyggjast leggja fram. Miðað við að 60 prósenta hlutur fáist fyrir 7,5 milljarða króna metur Kaupþing Haga á 12,5 milljarða króna. „Ríkið ætlar að fella niður 45 milljarða króna skuld Haga. Ég held að Kaupþing viti vart hvað eigi að gera. Í öllu þessu gegn- sæi er mikil þoka,“ segir Guðmundur Franklín. Aðspurður hvort verið sé að reyna að láta Jón Ásgeir Jóhannesson fá fyr- irtækið aftur áður en kröfuhafar yfir- taka það segir hann að það sé engin spurning. „Það vita það náttúrlega all- ir að hann hefur ágætis tök inn í Sam- fylkinguna,“ segir Guðmundur Frank- lín. Hann segir hópinn vera kominn með upphæðina fyrir hlutnum í Haga en hann segir skynsamlegt að fá sem flesta inn í hópinn til að eignarhlutur- inn dreifist á sem flesta. Auglýst verð- ur eftir fleirum í hópinn í blaðaauglýs- ingu á næstunni. Varð gjaldþrota Guðmundur Franklín þekkir það af eigin raun að tapa peningum á fyr- irtækjarekstri á Íslandi. Árið 1999 aðstoðaði hann Lífeyrissjóð Austur- lands með því að kaupa verðbréfa- fyrirtækið Handsal. Var nafni Hand- sals í kjölfarið breytt í Burnham International. Árið 2001 var starfs- leyfi verðbréfafyrirtækisins Burnham International á Íslandi afturkallað og í kjölfarið var fyrirtækið tekið til gjaldþrotaskipta. Burnham tapaði meðal annars miklu vegna kaupa á hlutafé í bresku netfyrirtæki. Lífeyrissjóður Austurlands tap- aði miklum peningum á gjaldþroti Burnham. Þurfti sjóðurinn að skerða lífeyrisréttindi sjóðfélaga vegna taps- ins. Tryggingarsjóður innstæðueig- enda varð einnig fyrir tjóni. Voru lýstar 300 milljóna króna kröfur í Tryggingarsjóðinn vegna málefna Burnham. Sjóðurinn borgaði hins vegar einungis 40 milljónir króna. Má segja að þetta sé stærsta tjón Tryggingarsjóðs innstæðueigenda þar til krafan um Icesave kom til. Guðmundur Franklín hefur undan- farin sjö ár rekið Bellagio-hótelið í Prag en sneri nýverið heim. 30 prósenta eigið fé 2008 Samkvæmt ársreikningi Haga fyrir árið 2007 námu heildareignir félags- ins þá um 28 milljörðum króna. Skuld- ir námu 19 milljörðum króna og var eiginfjárhlutfall 32 prósent. Hagar áttu á þeim tíma 43 prósent í Húsasmiðj- unni. Hlutafé Húsasmiðjunnar var fært niður í núll í byrjun október 2009. Í maí 2008 var eignarhaldsfélagið 1998 stofnað. Í byrjun júlí 2008 tilkynnti Baugur um miklar breytingar á starf- semi sinni. Hagar var þá fært frá Baugi undir félagið Gaum. FL Group breytt- ist í Stoðir. Þar með hafði Baugur losað sig við allar eignir sínar á Íslandi. 1998 var skráð í 82,3 prósenta eigu Gaums, 8,9 prósent voru í eigu Ingibjargar Pálmadóttur og 8,8 prósent í eigu fé- lagsins Bague SA. Eigendur Bague SA eru Hreinn Loftsson, Guðrún Péturs- dóttir og börn Péturs Björnssonar sem kenndur er við Vífilfell. Samkvæmt lánabók Kaupþings sem lak á vefsíðuna Wikileaks skuld- aði félagið 1998 Kaupþingi 260 millj- ónir evra í lok september 2008. Það eru um 48 milljarðar króna miðað við gengi evrunnar gagnvart krónu. Í dag sitja tveir fulltrúar Nýja Kaupþings í stjórn Haga. Sigurjón Pálsson og Reg- inn Freyr Mogensen, lögmenn hjá Nýja Kaupþingi, skipa nýja stjórn fé- lagsins auk Jóhannesar Jónssonar. Á Jón Ásgeir fjármagn? Ekki liggur ljóst fyrir hvaðan Jón Ás- geir og aðilar honum tengdir ætla að fá 7,5 milljarða króna til að setja inn í Haga. Í lok ágúst sagði Jón Ásgeir frá því í viðtali við Viðskiptablaðið að félag í eigu þriggja fjárfesta hefði skrifað undir viljayfirlýsingu um að koma með nýtt hlutafé inn í Haga. Átti það að nema 75 milljónum punda eða 16 milljörðum íslenskra króna. Vonaðist hann til þess að samningur yrði gerður um málið innan nokkurra mánaða. Nokkrum dögum áður hafði hann sagt í viðtali við Morgunblaðið að breskir fjár- festar kæmu með hlutafé inn í Haga innan tveggja ára. Í byrjun október tilkynnti Hag- ar um að samið hefði verið um sjö milljarða króna endurfjármögnun félagsins. Var það háð fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki lánanefnda bankanna. Helstu við- skiptafélagar Jóns Ásgeirs í Bret- landi hafa verið þeir Kevin Stanford, Sir Tom Hunter og Don McCarthny, stjórnarformaður House of Fras- er. Bæði Kevin Stanford og Sir Tom Hunter hafa misst mikið af auði sín- um. Don McCarthny er þó talinn eiga 90 milljónir punda eða um 18 milljarða íslenskra króna. AnnAs siGMundsson blaðamaður skrifar: as @dv.is Óvíst með fjármagn Ekki liggur ljóst fyrir hvaðan Jón Ásgeir Jóhannesson ætlar að fá 7,5 milljarða. króna. Mynd steFÁn KArlsson Haga í gjaldþrot Vilhjálmur Bjarnason, lektor og formaður Félags fjárfesta, telur að Hagar eigi að fara í almenna gjaldþrotameðferð. Mynd GunnAr GunnArsson Vill kaupa Fjárfestirinn Guðmundur Franklín Jónsson er einn talsmanna hóps sem vill kaupa 60 prósenta hlut í Högum. Mynd rÓBert reynisson Óvissa með Haga Nýja Kaupþing hefur gefið Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og aðilum honum tengdum tvo mánuði til að útvega 7,5 milljarða króna í nýtt hlutafé. Mynd rÓBert reynisson 2 föstudagur 6. nóvember 2009 fréttir Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf Laugavegi 178, 105 Rvk sími 551-3366 www.misty.is opið mán-fös 10-18, lau 10-14 Teg. 42228 - mjög fallegur og léttfylltur í BC skálum á kr. 3.950,- boxer buxur í stíl á kr. 1.950 Teg. 16944 - létt fylltur og saumlaus í BC skálum á kr. 3.950,- boxer buxur í stíl á kr. 1.950 Teg. 11003 - flottur og haldgóður í CDE skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á kr. 1.950,- Teg. 42228 Teg.16944 Teg. 11003 2 miðvikudagur 4. nóvember 2009 fréttir Björn Leifsson, kenndur við líkams- ræktarveldið World Class, byggir nú 156,1 fermetra sumarbústað á Val- hallarstíg syðri nr. 8 í landi Kárastaða á Þingvöllum. Fyrir var þar tæplega sextíu fermetra sumarhús sem byggt var árið 1948. Björn lét rífa þann bú- stað í fyrra að sögn byggingarfulltrúa Bláskógabyggðar og hófst bygging á nýja bústaðnum í byrjun þessa árs. Bústaðurinn er skráður á Laugar ehf. Eins og fram hefur komið í DV færði Björn rekstur World Class í það félag fyrir stuttu sökum greiðsluþrots fyr- irtækisins. Í viðtali í helgarblaði DV sagðist Björn óttast gjaldþrot. Milljóna bústaður Í ársreikningi Lauga ehf. kemur fram að áætlað markaðsverðmæti sum- arbústaðarins sé fimmtíu milljónir króna. Iðnaðarmaður sem DV talaði við áætlaði að kostnaður við bygg- ingu sumarbústaðarins vær eitt- hvað á milli hundrað og tvö hundruð milljónir. Húsið skiptist í 73,3 fermetra kjall- ara og 88,7 fermetra hæð. Aðeins er búið að steypa kjallarann. Lóðin er alls sex þúsund fermetrar. Á vinnusvæðinu er lítil grafa sem samkvæmt heimildum DV var keypt sérstaklega fyrir verkið. Á lóðinni er einnig prammi sem notaður er til að ferja byggingarefni yfir vatni sam- kvæmt heimildum DV. Á besta stað Bústaðurinn stendur við Þingvalla- vatn, inni í sjálfum þjóðgarðinum, og er útsýnið frá honum vægast sagt dásamlegt. Stutt er í Vinaskóg sem Vigdís Finnbogadóttir lagði grunn að þar sem margir þjóðhöfðingjar hafa komið og gróðursett tré. Til að bæta útsýnið enn fremur verður húsi Björns lyft um um það bil þrjá metra frá gunnfleti bústað- arins sem var þar fyrir og lá mjög lágt í landinu. Neðri hæð bústaðar- ins verður því að mestu grafin inn í brekkuna sem húsið stendur í og er að mestu gluggalaus á þrjá vegu. Jarðhæðin myndar vinkil utan um sólpall til að verja bústaðinn og gesti hans fyrir ríkjandi norðan- og aust- anáttum. Arinn og hiti í gólfum Ljóst er að bústaðurinn verður hinn glæsilegasti þegar byggingu hans lýk- ur. Harðviðarklæðning verður á sól- pallinum og handrið úr hertu gleri. Þá verða útveggir kjallara og svefn- álma jarðhæðar klædd með stein- flísum og úthagatorf verður á þaki svefnálmu. Gluggar og hurðir verða með tvöföldu einangrunargleri. Inni verður munaðurinn ekki minni. Í stofunni verður arinn tengd- ur einangruðum reykháf úr ryðfríu stáli og hiti í gólfum. Arkitekt bústaðarins er Ari Már Lúðvíksson, sá hinn sami og hannaði heilsumiðstöðina Laugar fyrir Björn. DV hafði samband við Björn til að spyrjast fyrir um hvort byggingu sumarbústaðarins yrði hætt sökum fjárhagserfiðleika Björns. Hann vildi ekkert tjá sig um málið og taldi skrif fjölmiðla um hans mál líkjast ofsókn- um. Nafntogaðir nágrannar Land Kárastaða hefur verið geysi- vinsælt til fjölmargra ára og er þetta eitt dýrasta sumarbústaðaland sem finnst á Íslandi. Nágrannar Björns eru heldur ekki af verri endanum. Meðal þeirra sem eiga bústað við Valhallarstíg er eignahlutafélagið GT2 en þar í stjórn situr Ágúst Guð- mundsson, kenndur við Bakkavör. DV sagði frá því seint á síðasta ári að Audi í Afmælisgjöf Birgitta Líf, dóttir World Class-hjónanna Dísu og Björns, varð sautján ára 19. október. Í afmælisgjöf frá foreldrum sínum fékk hún glæsilega Audi TT-bifreið af árgerðinni 2004 eins og kemur fram í nýjasta tölublaði Séð og Heyrt. Bíllinn er svartur, tveggja dyra og 180 hestöfl. Bíllinn er skráður á Dísu og var keyptur í september. DV ræddi við bílasala sem áætlaði að slíkur bíll kostaði 3,5 milljónir á markaðinum í dag. BYggiR BÚsTAÐ í sKuggA TAPs LiLjA KAtríN GuNNArsdóttir blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is Ágúst Guðmunds- son, Bakkavarar- bróðir. sigríður snævarr og Kjartan Gunnarsson. Guðrún Pétursdóttir, fyrrverandi forseta- frambjóðandi. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi og eiginmaður hennar, Hallbjörn Karlsson fjárfestir. Þorsteinn step- hensen, forsprakki iceland Airwaves. ólafur ísleifsson, lektor í hagfræði við Háskólann í reykjavík. NágRANNAR BjöRNs á VAlhAllARsTíg: „Til að bæta útsýnið enn fremur verður húsi Björns lyft um sirka þrjá metra.“ Kjallarinn kominn Sumarbústaðurinn er í byggingu og er aðeins búið að steypa kjallarann. MyNd HeiðA HeLGAdóttir Ferjað yfir vatn Hér sést sérstakur prammi se m samkvæmt upplýsingum DV er notaður til að ferja byggingarefni yfir vatn ið. MyNd HeiðA HeLGAdóttir Ágúst hefði notað þyrlu til að flytja steypu að grunni 250 milljóna króna sumarhúss síns við Þingvallavatn. Vakti þetta mikla gremju meðal gesta og nágranna hans í þjóðgarðinum. Aðrir nafntogaðir einstaklingar sem hafa hreiðrað um sig við Val- hallarstíg eru forsetaframbjóðand- inn fyrrverandi Guðrún Pétursdótt- ir, borgarfulltrúinn Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og maður hennar, fjár- festirinn Hallbjörn Karlsson, Sigríður Snævarr og Kjartan Gunnarsson og Árni Pétur Jónsson, forstjóri Teymis. Þá á félagið V86 ehf. bústað í land- inu en í stjórn þess situr Þorsteinn Stephensen, forsprakki Iceland Air- waves-tónlistarhátíðarinnar. Ólafur Ísleifsson hagfræðingur á einnig bú- stað í landi Kárastaða sem og Garðar Gíslason hæstaréttardómari. fréttir 4. nóvember 2009 miðvikudagur 3 Byggt eftir 300 milljóna tap Að sögn bygg ingarfulltrúa Bláskógabyggðar hófst bygg ing á bústaðnum í byrjun árs. Í fyrra tapað i Laugar ehf. tæpum þrjú hundruð milljónu m. mynd Kristinn magnússon Björn greiddi sér arð Í ársreikningi Lauga ehf. fyrir árið 2008 kemur fram að tap ársins var 268.527.434 krónur. Þá var óráðstaf- að eigið fé neikvætt um 240.483.317 krónur. Samt ákvað stjórn félagsins að úthluta sex milljóna króna arði á árinu 2008 en Björn situr einn í stjórn félagsins. Hagnaður ársins á undan var tæpar ellefu milljónir. Vilhjálmur Bjarnason, lektor í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, segir það brjóta á rétti kröfuhafa að greiða út arð með óráðstafað eigið fé í mínus. „Það gengur ekki. Það gengur á rétt kröfuhafa og er andstætt við tólfta kafla hlutafélagalaga. Undir vissum kringumstæðum getur verið hægt að greiða arð þrátt fyrir tap fyrirtækis. Það er hins vegar skilyrði fyrir arðgreiðslu að fyrirtækið eigi óráðstafað eigið fé þannig að ef það er tap eitt árið og hagnaður einhver ár á undan þá er hægt að nota hagnað fyrri ára til að greiða arð. Það er ekki hægt að lækka hlutafé með því að greiða út arð. Ef skilyrði hlutafélagalaganna eru fyrir hendi þá er þetta heimilt.“ Í ársreikningnum kemur einnig fram að skuldir árið 2008 voru 907.620.616 krónur en 638.937.407 krónur árið 2007. Lán félagsins eru samtals tæpar átta hundruð millj- ónir. Þar af eru rúmar 740 milljónir í erlendum lánum og tæpar fjörutíu milljónir í verðtryggðum lánum. Til samanburðar voru lán félagsins rúmar fimmtíu milljónir árið 2007, rúmar sextán milljónir í erlendum lánum og rúmar 36 milljónir í verðtryggðum lánum. Ekkert til sparað Eins og sést á teikningunum verður bústaðurinn með glæsilegasta mó ti, á besta stað á Þingvöllum. Keypti gröfu Samkvæmt heimildum DV festi Björn kaup á gröfunni sem notuð er við b yggingu bústaðarins í staðinn fyrir að leigja hana. mynd HEiða HElgadóttir Engin önnur börn en þau úr Nóa- túnsfjölskyldunni virðast hafa fengið lán frá Glitni í desember árið 2007 til að fjármagna stofn- fjárkaup sín í sparisjóðnum Byr. Fjöldinn allur af börnum átti stofn- fjárhluti í Byr, enda hefur það tíðk- ast hér á landi í gegnum árin að foreldrar og aðstandendur barna gefi þeim stofnfjárhluti í skírnar- gjöf og við önnur slík tækifæri, og áttu þar af leiðandi rétt á að taka þátt í stofnfjáraukningunni. Heimildir DV herma hins vegar að einungis foreldrar sjö barna úr Nóatúnsfjölskyldunni hafi nýtt sér þann möguleika að taka lán hjá Glitni fyrir börn sín. Þar á meðal eru þrjú börn Jóns Þorsteins Jóns- sonar, stjórnarformanns í Byr, og tvö af börnum bróður hans, Ein- ars Arnar Jónssonar, sem og börn tveggja systkina þeirra. Þessi stað- reynd setur barnalánsmálið í Glitni í nokkuð nýtt samhengi. Fjárfestingafélag systkinanna, Saxhóll, átti um 7,5 prósenta hlut í Byr og félag sem var að hluta til í eigu þess, Saxbygg, keypti 5 pró- senta hlut í Glitni í apríl 2007 fyrir um 20 milljarða króna. Systkinin voru því stórir hluthafar í báðum fjármálafyrirtækjum og má nánast fullyrða að Jón Þorsteinn hafi ver- ið maðurinn á bak við þá ákvörð- un að leitað var til Glitnis til að fjármagna stofnfjáraukninguna. Jón Þorsteinn sendi bréf og kynnti aukninguna Stofnfjáreigendur í Byr sem DV hefur rætt við segja að Jón Þor- steinn hafi sömuleiðis verið sá sem kynnti stofnfjáraukninguna í Byr fyrir öðrum stofnfjáreigend- um. Þetta gerði Jón Þorsteinn í bréfi til stofnfjáreigendanna en stjórn Byrs hafði þetta hlutverk og var Jón í forsvari fyrir hana. Í bréfinu sagði Jón meðal ann- ars að ef stofnfjáreigendurnir tækju ekki þátt í útboðinu myndi eign þeirra í sparisjóðnum þynn- ast út um 86 prósent. Enn fremur benti hann stofnfjáreigendunum á að hafa samband við höfuðstöðvar Glitnis á Kirkjusandi ef þeir þyrftu að fá lánafyrirgreiðslu fyrir stofn- fjáraukningunni en búið var að ganga frá samningum við Glitni um að bankinn fjármagnaði hana. Margir af stofnfjáreigendunum nýttu sér þessa lánafyrirgreiðslu frá Glitni - meira en 100 þeirra hyggjast stefna Glitni út af lán- veitingunum - en hins vegar voru einungis örfáir þeirra sem einnig tóku lán fyrir börn sín hjá bank- anum. Þeir sem tóku lán fyrir börn sín hjá Glitni voru því einungis, að því er virðist, foreldrar úr einni fjölskyldu sem var stór hluthafi í báðum fjármálafyrirtækjunum og stýrði stofnfjáraukningunni. óljóst hvort FmE lækkaði atkvæðavægið Sú staðreynd að sjö af börnum Nóatúnsfjölskyldunnar fengu lán frá Glitni en engin önnur börn stofnfjáreigenda, svo vitað sé, vek- ur upp spurningar um hver ástæð- an fyrir því sé. Enn sem komið er hefur enginn úr fjölskyldunni tjáð sig um það. Hækkun stofnfjáreignar fjöl- skyldunnar með barnalánunum gerði það hins vegar að verkum að samanlagt áttu börnin stofn- fjárbréf í Byr fyrir um 100 milljónir króna því flest þeirra eiga bréf fyrir meira en 14 milljónir króna. Þetta hefur því getað aukið atkvæðavægi fjölskyldunnar á fundum stofnfjár- eigenda í Byr. Lögum samkvæmt má einn aðili og tengdir aðilar ekki vera með meira en 5 prósenta atkvæðavægi á fundum stofnfjár- eigenda í sparisjóðum. Tilgangurinn með þessari reglu um dreift eignarhald og takmark- andi atkvæðavægi er að tryggja að enginn einn stofnfjáraðili geti haft ráðandi áhrif innan sparisjóða í landinu. Ef einn aðili ræður yfir meira en 5 prósentum stofnfjár ber Fjármálaeftirlitinu að lækka atkvæðavægi hans á fundum nið- ur að 5 prósenta markinu. Að svo stöddu er hins veg- ar ekki vitað hvort atkvæðavægi Nóatúnsfjölskyldunnar á stofn- fjárfundum var meira en 5 pró- sent eftir stofnfjáraukninguna, meðal annars út af stofnfjáreign barnanna, en ef svo var hefði Fjármálaeftirlitið átt að sjá til þess að atkvæðavægi hennar væri minnkað. Ef fáir vissu hins vegar að börn Nóatúnsfjölskyldunnar tóku þátt í stofnfjáraukningunni fyrir tilstuðlan foreldra sinna er ekki óeðlilegt ef svo hefur ekki verið Þau fengu Barnalán hjá glitni árið 2007: Börn Jóns Þorsteins Jónssonar = 3 Börn Einars Arnar Jónssonar = 2 Barn Júlíusar Þórs Jónssonar = 1 Barn Rutar Jónsdóttur = 1 Óþekkt = 3 ingi F. VilHJálmsson blaðamaður skrifar ingi@dv.is nÓatÚnsBörnin fengu ein lán Potturinn og pannan Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnarformaður Byrs og hluthafi í sparisjóðnum og Glitni, var potturinn og pannan í stofnfjár- aukningu Byrs. Hann og systkini hans virðast hafa verið einu stofnfjáreigend- urnir sem tóku lán fyrir börn sín hjá Glitni. Bogi Jónsson, veitingamaður á Hliði á Álftanesi, stendur frammi fyrir því að missa húsið og veitingastaðinn í hendur bankanna. Stór grafa við húsið vakti athygli nágranna hans og minntust þeir þess að annar íbúi á Álftanesi rústaði húsi sínu í stað þess að láta það falla í hendur bankanna. ÞYKIR OF VÆNT UM HÚSIÐ TIL AÐ RÚSTA ÞVÍ „Í síðustu kreppu missti ég hús sem ég byggði.“ Bogi á Hliði Hefur brasað ýmislegt í gegnum tíðina og þrátt fyrir yfirvofandi gjaldþrot ætlar hann ekki að hengja haus. valGeir örn raGnarSSon blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Álftanes-aðferðin Einhverjir höfðu áhyggjur af því að Bogi ætlaði að rústa húsinu sínu með gröfu. Það var þó ekki svo slæmt. Mynd/ BoGi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.