Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2009, Blaðsíða 12
12 föstudagur 6. nóvember 2009 fréttir
HVERS VEGNA VELUR ÞÚ ICELANDAIR?
• 70% erlendra ferðamanna sem koma til Íslands fljúga með Icelandair.
• Í ár nema gjaldeyristekjur vegna erlendra ferðamanna, sem fljúga
til Íslands með Icelandair, 98 milljörðum króna.
• Mörg þúsund störf verða til um allt land í þjónustu við þessa ferðamenn.
HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ
BERÐU SAMAN VERÐ OG ÞJÓNUSTU
– OG ÁVINNING FYRIR ÍSLENSKT SAMFÉLAG –
NÆST ÞEGAR ÞÚ FLÝGUR
ísland í tölum
Tölur yfir Icesave, hallarekstur ríkisins, skattahækkanir, nefskatt og afskriftir hinna
og þessara fyrirtækja dynja á okkur frá degi til dags. Ekki líður sá fréttatími að ekki
sé talað um milljónir og milljarða. DV tók saman og setti í samhengi nokkrar af
þeim upphæðum sem lita daglegt líf landans um þessar mundir.
Verg landsframleiðsla
1.476 milljarðar kr.
Allar vörur og öll þjónusta sem
Íslendingar framleiddu árið 2008.
icesaVe
729 milljarðar kr.
Upphæðin sem við þurfum að endurgreiða Hollendingum og Bretum
vegna Icesave. Vextir bætast við. Talið er að eignir Landsbankans dekki allt
að 90 prósent kostnaðarins. Miðast við núverandi gengi evru og punds.
Okkar kOstnaður Vegna icesaVe
200 milljarðar kr.
Kostnaðurinn sem talinn er að við þurfum á endanum að greiða
vegna Icesave, þegar búið er að selja eignir Landsbankans upp í
skuldina. Miðast við núverandi gengi evru og punds.
Heilbrigðiskerfið
121 milljarður kr.
Áætlaður kostnaður vegna
heilbrigðismála á þessu ári.
skuldir Haga
60 milljarðar kr.
Skuldir Haga og móðurfélagsins 1998 ehf., sem reka meðal annars Bónus og Hagkaup, eru taldar vera um 60 milljarðar króna.
lín
7,3 milljarðar kr.
Áætluð útgjöld ríkisins
vegna Lánasjóðs íslenskra
námsmanna.
afskriftir ÁrVakurs
3 milljarðar kr.
Íslandsbanki afskrifaði að lágmarki þrjú
þúsund milljónir króna vegna skulda
Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins.