Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2009, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2009, Blaðsíða 8
Sandkorn n Líflegar umræður hafa spunnist um þá kenningu Páls Theodórs- sonar að búseta hér hafi hafist 200 árum áður en almennt hefur verið talið. Ekki síst á það við um sagnfræðinga og á heimasíðu og Facebook- síðu Stefáns Pálssonar sagnfræðings er mikið rætt um kenning- una. Eitt fer fyrir brjóstið á Stefáni, sem virðist ekki ginnkeyptur fyrir kenningunni, og það er að honum finnst of mikið gert úr að menn bindi sig við skrif Ara fróða. Finnst honum litið fram hjá alls kyns rannsóknum, bæði sagnfræðinga og raunvís- indamanna, og þannig gert lítið úr þeim sem leyfa sér að efast um kenninguna. n Höskuldur Þórhallsson, þing- maður Framsóknarflokksins, virðist hafa skotið sig aðeins í fótinn þegar hann skrifaði grein í Fréttablaðið á fimmtudag um óbeit vinstri-grænna og sumra samfylk- ingarmanna á stórfyrirtækjum og einkum stóriðju. Hann segir fyrir- myndirnar vera augljósar því Len- ín hljómi í eyrum á ný. Sjónvarps- maðurinn Egill Helgason fann sig hins vegar knúinn til að svara Höskuldi á bloggi sínu. Egill, sem löngum hefur verið áhugasamur um Sovétríkin benti á að þar eystra hefði verið lögð gríðarleg áhersla á stóriðju og margt annað mátt sitja á hakanum. „Stundum er betra að lesa söguna áður en maður fer að flagga henni,“ segir Egill og beinir orðum sínum til Höskuldar. n Þingmenn fengu tækifæri til að bauna á ráðherra í fyrirspurnatíma á Alþingi á fimmtudag. Þar var um að ræða óundirbúnar fyrirspurn- ir þar sem þingmenn geta spurt út í stefnu og afstöðu ráðherra auk þess að reyna á þekkingu þeirra. Athygli vakti að þegar Þórunn Sveinbjarnar- dóttir, þingmaður Samfylking- arinnar, spurði flokksformann sinn, Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, um afstöðuna til þess að ríkisstjórnin í heild tæki ákvarðanir í stað einstakra ráðherra, rýndi Jóhanna um skeið niðursokkin í blað sem hún hafði fyrir framan sig. Blaðið hafði hún með sér í ræðupúlt og leit tvívegis á það meðan hún svaraði Þórunni. Spurning hvort hún hafi átt von á hinni óundirbúnu spurningu eða einfaldlega verið svo fjölhæf að geta svarað Þórunni og lesið um eitthvað allt annað á sama tíma. 8 föstudagur 6. nóvember 2009 fréttir Jóhannes Jónsson, stjórnarformaður Haga, verst allra fregna af gangi við- ræðna eigenda Haga við Kaupþing. Hann segir í samtali við DV að hann hafi engu við greinina sem hann skrifaði í Morgunblaðið á miðviku- daginn að bæta. Þar greindi hann frá því að fjölskyldan væri í viðræðum við Kaupþing um framtíð Haga og að ekkert óeðlilegt væri við það að bank- inn ynni með núverandi eigendum sem þekktu félagið. „Þetta mál er í vinnslu, við erum með samning við bankann um að klára þetta innan ákveðins tímaramma,“ segir hann. Aðspurður vill hann ekki nefna nein- ar upphæðir í tengslum við hversu mikið fé fjölskyldan þurfi að koma með inn í félagið til þess að halda yf- irráðum sínum. Þegar hann er spurð- ur hvort það sé rétt sem kemur fram í fréttum RÚV að upphæðin sé miklu hærri en 5–7 milljarðar svarar hann: „RÚV veit örugglega ekki hver upp- hæðin er.“ 70 milljarða skuldir? Framtíð eignarhalds á Högum hefur verið í lausu lofti síðan um mitt síð- asta ár þegar stefndi í óefni hjá Baugi Group, sem nú er gjaldþrota. Síð- asta haust keypti félagið 1998 Haga frá Baugi að kröfu Kaupþings. Strax komu upp háværar raddir um riftun kaupanna. Kaupverðið var 30 millj- arðar króna og lánaði Kaupþing 25 milljarða fyrir kaupunum. Þar af fóru 10 milljarðar til að borga skuldir við Kaupþing, 5 milljarðar til Glitnis og 15 milljarðar fóru í að kaupa hluti af eigendum Baugs, meðal annars af hjónunum Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Ingibjörgu Pálmadóttur. Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsr- ar verslunar, telur að þessi skuld sé líklega komin upp í 48 til 50 milljarða króna, enda var um gengistryggt lán í evrum að ræða. Talið hefur verið að skuldir Haga nemi í heildina 20 millj- örðum og því geta skuldirnar í heild verið allt að 70 milljarðar. „Þetta merkir að hagnaður Haga þarf að standa undir bæði skuldum Haga og líka undir skuldum eigenda Haga,“ segir Jón. Aðspurður hvort hann telji að núverandi eigendur geti haldið yfirráðum í félaginu, án þess að til verulegra afskrifta komi, segir Jón: „Mitt mat er að Hagar þurfi að hagnast ansi vel til að geta staðið undir þessu. Það er hægt að draga þá ályktun að bankinn hafi mikl- ar áhyggjur af stöðunni. Bankinn er kominn með tvo stjórnarmenn inn í Haga.“ Nefnir engar tölur 1998 ehf. er að langstærstum hluta í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu hans, eða að 82 pró- sentum. Félagið ISP sem Ingibjörg Pálmadóttir á og Bague SA, sem Hreinn Loftsson stýrir, eiga sín 9 pró- sentin hvort í 1998. Skuldir gömlu eigenda Haga við Kaupþing eru miklu meiri en virði félagsins og þeir eiga félagið því varla nema að nafninu til. Þeir hafa hins vegar sagst vera í viðræðum við er- lenda fjárfesta um að koma með nýtt hlutafé inn í Haga og fullyrða að eng- ar afskriftir verði. Jóhannes Jónsson vill ekki tjá sig um hvaða erlendu fjárfesta þeir séu í viðræðum við eða hversu mikið fé þeir geti komið með inn í Haga. „Ég ætla ekki að nefna neinar tölur. Þetta er í vinnslu og við klárum það ekki í fjölmiðlum.“ Hann segist hins vegar vera bjartsýnn á að samningar náist: „Annars værum við ekki að þessu.“ Brotlegur risi Hagar er langstærsta verslunarfyr- irtæki á Íslandi. Félagið rekur mat- vöruverslanirnar Bónus, Hagkaup, 10-11 og tólf tískuvöruverslanir hér á landi. Jafnframt eiga Hagar inn- kaupafyrirtækin Aðföng, Hýsingu, Banana og Ferskar kjötvörur. Öll fyr- irtækin undir Högum eru rekin sem sjálfstæð fyrirtæki en Hagar hafa um- sjón með því að finna sameiginlega fleti sem geta leitt til hagræðingar og aukið samkeppnisstyrk þeirra. Sam- kvæmt Frjálsri verslun er Hagar 15. stærsta fyrirtækið á Íslandi með 61 milljarð í ársveltu. Fyrirtækið varð til þegar Bónus- feðgar keyptu Hagkaup árið 1998. Nokkrum árum áður hafði Hagkaup keypt helmingshlut í Bónus, en með þessum kaupum, sem voru fjár- mögnuð af FBA og Kaupþingi, eign- uðust Bónus-feðgar báðar verslan- irnar. Félagið hélt síðan áfram næstu ár að kaupa og stofna verslanir. Félagið hefur í nokkur skipti gerst brotlegt við samkeppnislög og verið sektað um mörg hundruð milljónir. Fyrr á þessu ári voru Hagar sektaðir um 20 milljónir eftir að Samkeppnis- eftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að samruna Haga og BT í nóvember á síðasta ári hefði verið hrint af stað áður en eftirlitinu gafst tækifæri til að meta áhrif samrunans. Í desember í fyrra voru Hagar svo dæmdir til að greiða 315 milljóna króna sekt fyrir að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína. Það mál snerist um verðstríð á milli Bónuss og Krónunnar í febrúar 2005. Krónan hafði þá lækkað verð á helstu nauð- synjavörum um fjórðung í því skyni að koma á virkri samkeppni. Bónus brást við með gríðarlegum verðlækk- unum, einkum á mjólkurvörum og á tímabili fékkst lítrinn af mjólk ókeyp- is. Skuldir eigenda Haga hafa hækkað gríðarlega frá því þeir keyptu félagið út úr Baugi Group fyrir 30 milljarða á seinasta ári. Jóhannes í Bónus vill ekkert gefa upp hvaða er- lendu fjárfesta hann á í viðræðum við, en segist vera bjartsýnn. Baráttan um að halda yfirráðum í Högum hófst síðasta sumar þegar félaginu var kippt út úr Baugi. Hagar er 15. stærsta félag landsins en 20 fyrirtæki heyra undir það. Skuldir hækkuðu um 20 milljarða á einu ári „Mitt mat er að Hagar þurfi að hagnast ansi vel til að geta staðið undir þessu.“ valgeir örN ragNarssoN blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Jóhannes Jónsson „Ég ætla ekki að nefna neinar tölur. Þetta er í vinnslu og við klárum það ekki í fjölmiðlum.“ verslanir í eigu Haga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.