Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2009, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2009, Blaðsíða 16
16 föstudagur 6. nóvember 2009 fréttir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís- lands, hefur verið gagnrýndur tölu- vert á opinberum vettvangi eftir efnahagshrunið vegna tengsla sinna við íslensku útrásina á liðnum árum. Gagnrýnin var reyndar komin fram fyrir hrunið að einhverju leyti en hún hefur ágerst nokkuð eftir það í því uppgjöri við útrásina og hrunið sem átt hefur sér stað í landinu á síðasta ári. Sem dæmi má nefna að í skoð- anakönnunum um þessar mundir segjast mun færri bera traust til for- setans en fyrir hrun. Í könnun MMR í september á þessu ári kemur fram að Ólafur Ragn- ar Grímsson nýtur mikils trausts hjá tæplega 23 prósentum Íslendinga en tæplega 48 prósent segjast bera lítið traust til hans. Þetta er nokkur breyting frá því sem var fyrir hrun en um 80 prósent þjóðarinnar vildu hafa Ólaf áfram í embætti forseta Ís- lands sumarið 2008 þegar hann var sjálfkjörinn til að gegna því áfram til næstu fjögurra ára þar sem enginn bauð sig fram á móti honum, líkt og rakið er í bók Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings um forsetann. Frumforsendan í þessari gagn- rýni á forsetann er sú að þeir auð- menn sem Ólafur studdi svo við bak- ið á beri að miklu leyti ábyrgð á því að íslenskt efnahagslíf hafi hrunið til grunna. Meginástæðan fyrir þeirri niðurstöðu er svo aftur að auðmenn- irnir hafi, í krafti eignarhalds síns yfir bönkunum og helstu fyrirtækja og félaga, skuldsett þjóðina til ólífis í út- löndum. „Staða Ólafs Ragnars, eins og þeirra stjórnmálamanna sem voru við völd fyrir hrun, hefur veikst mjög. Hins vegar hefur það vakið athygli mína að ekki hafi verið rætt meira um þennan þátt Ólafs Ragnars í útrásinni fyrr en á síðustu vikum. Að sjálfsögðu hefur verið rætt mik- ið um tengsl hans við hina svoköll- uðu útrásarvíkinga og hvernig hann reyndi að liðka til fyrir viðskiptum þeirra erlendis en virkilegur mótbyr í hans garð hefur ekki komið fyrr en upp á síðkastið. Honum hefur í raun og veru verið hlíft miðað við hvað margir stjórnmálamenn hafa mátt þola í umræðunni,“ segir Baldur Þór- hallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, þegar hann er spurður um stöðu Ólafs Ragnars í dag. Baldur telur því að gagnrýnin á Ólaf Ragnar vegna útrásartengsl- anna sé fyrst nú að ná nýjum hæð- um. Gagnrýnin á Ólaf Ragnar er reyndar að verða það hávær að margir einstaklingar, úr hinum ýmsu hornum samfélagsins, telja að Ólafi sé ekki sætt í embætti lengur vegna þess stuðnings sem hann sýndi ís- lenskum auðmönnum í orði og ekki síður á borði. Slíkar skoðanir koma meðal annars fram í máli sumra þeirra álitsgjafa sem DV leitaði til. Aðrir tóku ekki eins djúpt í árinni. Einkaþotur og útrás Eftir því sem lengri tími líður frá hrun- inu bætast fleiri og fleiri atriði við út- rásarsögu forset- ans. Þannig hef- ur Fréttablaðið að minnsta kosti í tví- gang á síðustu mánuð- um sýnt fram á aðkomu forsetans að út- rásinni. Í fyrra skiptið greindi blaðið frá því í mars að Ólafur Ragnar hefði flog- ið níu sinnum í einkaþotum á veg- um stórfyrirtækja, eignarhaldsfélaga og fjármálastofnana á árunum 2005 til 2008. Um var að ræða flugvélar sem voru í eigu eða í leigu hjá Glitni, Novator, FL-Group, KB-banka, Acta- vis og Eimskipafélagi Íslands. Í seinna skiptið sagði Fréttablaðið frá því nú í byrjun október að rann- sóknarnefnd Alþingis hefði sautj- án bréf sem forsetinn hefði skrifað í þágu íslensku bankanna á síðustu árum til rannsóknar. Forsetaemb- ættið vildi ekki láta blaðið fá bréfin en gerði þau opinber fyrir skömmu í kjölfar fréttar blaðsins. Meðal annars var bréf til Bill Clintons, fyrrver- andi Bandaríkjafor- seta, þar sem sagði við hann að Landsbanki Íslands væri reiðubúinn að greiða honum hið venjulega upp- setta verð forsetans fyrrverandi, um 10 milljónir króna, fyrir fyrirlestur á vegum bankans. Við lestur bréfanna fær lesand- inn það því á tilfinninguna að Ólafur Ragnar hafi í reynd verið eins konar umboðsmaður íslensku útrásarinn- ar og fjármálageirans á árunum fyr- ir hrunið enda eru til fjölmörg dæmi um stuðning Ólafs við íslenska auð- menn á liðnum árum. Auðmenn þjónustaðir Til að mynda fór forsetinn til Kaup- mannahafnar til að vera viðstaddur opnun skrifstofu FL Group þar í landi árið 2006 og haustið 2007 fór hann í fræga ferð til New York á vegum Glitnis þar sem útibú bankans þar í borg var opnað. IngI F. VIlhjálmsson blaðamaður skrifar ingi@dv.is ÓLAFUR RAGNAR RANNSAKAÐUR Ólafur Ragnar grímsson, forseti Íslands, aðstoðaði íslensku auðmennina og naut aðstoðar þeirra á árunum fyrir íslenska efnahagshrunið. Forsetinn hefur verið gagnrýndur mikið fyrir aðkomu sína að útrásinni og hefur verið kallaður klappstýra hennar. Hann flaug í einkaþotum auðmanna og bauð banka- stjórnendum og ýmsum auðmönnum meðal annars til Bessa- staða og bað þá um að styrkja ýmis verkefni. Álitsgjafar DV um forsetann telja að hann hafi beitt sér um of fyrir útrásina og að hugsanlega sé komið að skuldaskilum Ólafs Ragnars við hana. Ekki lengur á friðarstóli Alveg ljóst er að Ólafur Ragnar Grímsson situr ekki lengur á friðarstóli á Bessastöðum. Ástæðan er sú að tengsl hans við útrásina þykja of mikil, að margra mati og að margra mati er honum ekki lengur sætt í embætti. Beðnir um fé Sigurjón Árnason, Lárus Welding og Hreiðar Már Sigurðsson, bankastjórar stóru viðskipta- bankanna þriggja, voru meðal þeirra sem Ólafur Ragnar bauð í mat á Bessastaði og bað þá um peninga fyrir verkefni sem hann hafði áhuga á, innanlands sem utan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.