Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2009, Síða 11
fréttir 6. nóvember 2009 föstudagur 11
DÝRKUÐ OG DULARFULL
MAJÓNESDROTTNING
skil alls ekki tilgang hennar innan
fyrirtækisins. Hún kemur sjálf ekk-
ert nálægt rekstrinum og hefur ekki
til þess neina þekkingu. Hún kann
engin skil á fjármálum og ég skil
ekki hvernig hún leyfir sér að kalla
sig forstjóra. Hún er ekki einu sinni
starfandi í húsinu og sumir starfs-
menn hafa ekki einu sinni séð for-
stjóra fyrirtækisins. Þetta er bara
brandari og það er hlegið að þessu
úti um allan bæ, ekki bara innan
fyrirtækisins. Fólk er alveg gáttað
á þessu og fólkið í fyrirtækinu skil-
ur þetta ekki,“ segir starfsmaðurinn
fyrrverandi.
Eitrað með lygum
Núverandi starfsmaður Gunnars
Majoness, sem ekki vill láta nafns
síns getið af ótta við að missa starf
sitt, undrast einnig uppgang for-
stjórans. Hann segir fólkið í fyrirtæk-
inu ekki skilja hvers vegna Kleopatra
var ráðin. „Það er alls ekki slæmt að
vinna hjá fyrirtækinu en þetta með
forstjórann skilur fólk ekki. Það virð-
ist vera stór klíka í kringum forstjór-
ann. Uppgangur hennar hjá fyrir-
tækinu er mjög einkennilegur. Þetta
virðist næstum því vera einhvers
konar sértrúarsöfnuður í kringum
hana. Ég skil þetta eiginlega ekki en
þetta er alveg stórmagnað. Það get-
ur vel verið að hún sé voðalega góð
manneskja en forstjóri er hún ekki,“
segir starfsmaðurinn.
Kleopatra svarar fullum hálsi.
Hún vísar því á bug að hún stýri ein-
hverjum sértrúarsöfnuði. „Ég hef ver-
ið að taka til innanhúss og slíkt er allt-
af óvinsælt. Ég vinn á skrifstofu niðri
bæ og get ekkert gert að því að starfs-
fólk sjái ekki mikið af mér. Það þarf
reglulega að hreinsa til í fyrirtækjum
og ég hélt að það væri búið hjá okk-
ur en greinilega leynast ennþá pödd-
ur hérna. Sumt fólk á bara svo mik-
ið bágt og reynir að eitra fyrir manni
með lygum,“ segir Kleopatra ákveðin.
Enginn glæpur
„Ég hef aldrei verið í neinum trúar-
söfnuði en þó svo að ég væri í slík-
um söfnuði er það enginn glæpur
og ég sé ekkert athugavert við það.
Ég er trúuð og það er enginn glæp-
ur. Við trúum vonandi flest á Guð en
það er engin skylda. Ef að vera vinur
er að vera andlegur leiðtogi þá er ég
það. Ég held utan um þá sem ég hef
hjálpað og læt annað slagið vita af
mér. Við vinirnir dýrkum bara hver
annan,“ bætir Kleopatra við.
Helen Gunnarsdóttir, einn eig-
enda Gunnar Majoness og meðlim-
ur í „fjölskyldu Kleopötru“, vísar allri
gagnrýni á bug og segir Kleopötru
sinna starfi sínu af alúð og elju-
semi. Hún telur fyrirtækið hepp-
ið að hafa fengið hana í forstjóra-
stólinn. „Kleopatra vinnur mjög vel
sína vinnu og við höfum aldrei haft
betri forstjóra. Hún hefur allt til að
bera, er heiðarlegasta kona sem til
er, hlý, góð og gáfuð. Hún er ofsa-
lega vel gefin og mælsk og síðustu
þrjátíu ár hefur hún fengið fólk til
að sjá ljósið. Kleopatra er rosalega
vinsæl en kannski eru til einhverjir
sem eru reiðir og afbrýðisamir út í
hana. Mér dettur það í hug að óvild-
armenn hennar séu að skapa þessa
umræðu,“ segir Helen.
Djammað á Players
Majónessysturnar, Helen og Nancy,
eru góðar vinkonur Kleopötru og
samkvæmt heimildum DV eru þær
reglulegir gestir á skemmtistaðnum
Players í Kópavogi. Kleopatra segir
fjölskylduna hittast reglulega til að
skemmta sér. „Það eru ekki endi-
lega allir í fjölskyldunni út af skoð-
unum, sumir eru bara á djamminu
með okkur. Systurnar dýrka bók-
ina mína, Hermikrákuheim, eins
og margir fleiri, og dýrka mig sem
höfund hennar. Margir góðir vinir
mínir hafa verið ofboðslega hrifn-
ir af bókinni minni og hafa þannig
styrkt auglýsingar fyrir mig. Það má
segja að ég hafi stuðningsaðila að
þessu leyti. Ég get ekkert að þessu
gert en þetta er bara svona,“ segir
Kleopatra.
Helen ítrekar hversu heppið fyr-
irtækið sé að hafa Kleopötru sem
forstjóra og bendir á að forstjórinn
sé verulega hæfileikaríkur rithöf-
undur. „Í kringum hana er engin
klíka en hún er með styrktaraðila í
kringum sig. Að hún sé í einhverjum
söfnuði er haugalygi en hún hefur
hjálpað þúsundum einstaklinga hér
á landi. Bókin hennar er besta bók
sem til er og það er ekki til gáfaðri
kona á landinu. Við erum ofboðs-
lega ánægð með hana. Hún er bara
besti forstjóri sem við höfum átt,“
segir Helen.
Draumur Kleopötru
Kleopatra ítrekar að nauðsynlegt hafi
verið að taka til hjá Gunnars Majon-
esi, ella hefði getað endað illa hjá fyr-
irtækinu. Undir hennar stjórn hefur
launakostnaður fyrirtækisins verið
lækkaður og hagrætt eins og kost-
ur er. Þá hefur einnig verið tekið til
utandyra og tók Kleopatra við lóða-
verðlaunum Hafnarfjarðarbæjar fyrir
tveimur árum. Lóð fyrirtækisins þótti
til fyrirmyndar í bænum.
Majones og sósur eru aðalsmerki
Gunnars Majoness sem var stofn-
að árið 1920. Stofnandinn, Gunn-
ar Jónsson, helgaði fyrirtækinu alla
sína krafta en síðar var búist við því
að önnur hvor dætra hans, Helen eða
Nancy, tæki alfarið við fyrirtækinu.
Sú varð ekki raunin því Kleopatra var
ráðin forstjóri. Sem forstjóri hefur
hún kynnt til sögunnar að minnsta
kosti eina nýja afurð, ídýfu sem hlaut
nafnið Draumur Kleopötru.
Fá á baukinn
Sem rithöfundur hefur Kleopatra
vakið bæði reiði og aðdáun. Það
er einna helst sjálfshjálparbókin
Hermikrákuheimur sem vakið hefur
athygli þar sem hún deilir hart á ís-
lenskt samfélag. Karlmenn, alkóhól-
istar, geðsjúkir, ofvirkir og kvenfólk
sem aðhyllist peninga karlmanna fá
hressilega á baukinn í skrifum Kleo-
pötru. Sjálf segist hún á móti öll-
um öfgum en segir skrif sín byggð á
staðreyndum. „Alkóhólismi, geðsýki
og ofvirkni eru veruleg vandamál
samfélagsins, það er erfitt að þola þá
staðreynd en það er heilagur sann-
leikur. Orð mín hafa vakið athygli
og það varð allt vitlaust þegar aug-
lýsingin birtist. Ég er ekki hrædd því
annars hefði ég ekki sagt þetta. Þetta
er bara mín skoðun og þetta eru bara
staðreyndir. Mér finnst furðulegt að
ég megi ekki segja sannleikann um
alkóhólisma og andlega veikt fólk,“
segir Kleopatra.
„Ég er ekki á móti ofvirkum, geð-
sjúkum og alkóhólistum, þetta fólk
er bara veikt og hægt er að hjálpa því.
Ég hef fengið hringingar og fjölda
blóma þar sem fólk þakkar mér fyrir
þessi orð. Þá fékk ég líka viðvaran-
ir um að fara ekki niður í bæ því þar
yrði hreinlega ráðist á mig.“
Gott samstarf
Síðustu ár hefur Kleopatra Kristbjörg
gefið út fjórar bækur á vegum bóka-
útgáfunnar Skjaldborgar. DV hef-
ur fyrir því heimildir að hjá Gunn-
ars Majonesi liggi lager af óseldum
bókum hennar og þá voru starfsfólki
fyrirtækisins gefnar bækur í jóla-
gjöf. Helgi Magnússon, útgáfustjóri
Skjaldborgar, gefur aðspurður ekki
upp sölutölur bóka hennar en seg-
ir samstarfið hafa verið ágætt. „Ég
þekki Kleopötru og okkar kynni eru
ágæt. Hún er ósköp þægileg og alúð-
leg að hitta. Ég hef ekki yfir neinu að
kvarta en bækur hennar hafa geng-
ið upp og ofan, eins og aðrar bæk-
ur. Rithöfundar eru meira og minna
sér á parti og hún fellur vissulega
þar undir. Hún virðist vera með hóp
stuðningsmanna, líkt og margir lista-
menn,“ segir Helgi.
Aðspurð er Kleopatra virkilega
snortin yfir því hvernig henni hefur
verið tekið sem rithöfundi. Hún tel-
ur að öfund hafi orðið til þess að fólk
talar illa um hana. „Fólk þakkar mér
mikið fyrir bókina mína, Hermik-
rákuheim, og auglýsingarnar líka.
Auglýsingarnar hafa hins vegar farið
fyrir brjóstið á sumum. Ég hef fengið
alls konar kjaftasögur og ég veit ekki
hvað ég hef gert fólki til að verðskulda
það. Þetta sýnir mér bara hvað er til
mikil öfund og ég virðist vera svona
rosalega öfunduð,“ segir Kleopatra.
Föðmuð alls staðar
„Eftir að bókin mín kom út byrjaði
þessi mikla öfund og það eru svo
margir sem segja mér að ég hafi
bjargað lífi þeirra. Það er bara stað-
reynd og sannleikur, ég get bara ekk-
ert að því gert. Ég veit ekki hvort ég
hafi sjálf skrifað þessa bók eða hvort
hún hafi verið skrifuð í gegnum mig,
stundum held ég það.“
Kleopatra segist vera lítið fyrir at-
hygli en gleðst yfir því að vera föðm-
uð hvar sem hún kemur. Hún vill lít-
ið gefa út á andlega hæfileika sína.
„Fólk stekkur á mig hvar sem er og
faðmar mig og faðmar mig. Það er
alltaf verið að faðma mig og þakka
mér fyrir. Þetta finnst mér ofsalega
fallegt og sýnist mér vera til fullt af
fallegu fólki sem er alltaf að faðma
mig. Ég er enginn ægilegur sjáandi
en ég er á andlegu sviði en vil sem
minnst tala um það. Ég viðurkenni
það samt. Ég fæ hvergi frið þar sem
fólk faðmar mig alls staðar. Mér þyk-
ir ofsalega vænt um það.“
„Eftir að bókin mín kom út byrjaði þessi mikla öf-
und og það eru svo margir sem segja mér að ég
hafi bjargað lífi þeirra. Ég veit ekki hvort ég hafi
sjálf skrifað þessa bók eða hvort hún hafi verið
skrifuð í gegnum mig, stundum held ég það.“
Til fyrirmyndar Fyrir hönd fyrirtækisins tók Kleopatra Kristbjörg á móti lóðaverðlaunum Hafnarfjarðarbæjar árið 2007.
Fimmtug drottning Margir góðir
gestir heiðruðu Kleopötru Kristbjörgu á
fimmtugsafmæli hennar.