Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2009, Side 28
um helgina
nýdönsk á nasa Hinir síungu
meðlimir hljómsveitarinnar Nýdönsk ætla að
senda þakið af Nasa á laugardagskvöldið. Kapp-
arnir hafa komið saman við og við síðustu mánuði
til að gleðja fólk með gömlu efni í bland við nýtt
við góðar undirtektir. Húsið er opnað á miðnætti
og er aldurstakmark 20 ár. Miðasala á staðnum.
stuttmyndir
stórlaxa
Í tengslum við sýningu Andrés
Kertész, Frakkland – landið mitt (Ma
France), sem stendur yfir í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur, býður safn-
ið og Alliance Française gestum upp
á aukaglaðning. Hann er að koma á
safnið og sjá 25 stuttmyndir og eina
aðeins lengri mynd um París. Allar
myndirnar eru með enskum texta.
23 stuttmyndanna verða sýndar á
laugardaginn, Les dites Cariatides
og Les fiancées du Pont Mac Donald
eftir Agnès Varda og Paris, je t’aime
sem sýnir París og ástina með aug-
um 21 kvikmyndagerðarmanns. Á
meðal leikstjóra eru: Gus Van Sant,
Coen-bræður og Wes Craven. Sýn-
ingin hefst klukkan 15 og er frítt inn.
safnanótt í
eyjum
Hin árlega Nótt safnanna fer fram
í Vestmannaeyjum um helgina
. Að vanda stendur mikið til og
má þar nefna setningarhátíðina
í Stafkirkju á föstudeginum, tón-
leika Todmobile á föstudag og
laugardag í Höllinni, afmælistón-
leika Lúðrasveitar Vestmanna-
eyja í Betel á laugardaginn og
tónleika Magnúsar Eiríkssonar
og Pálma Gunnarssonar á Vul-
cano Café á laugardagskvöldið.
Hátíðin er hluti af Safnahelgi á
Suðurlandi. Nánar um hátíðina á
sofnasudurlandi.is.
facebook-
myndir af jónum
Bergþór Morthens opnar sýninguna
Jón um Jón frá Jóni til Jóns á Café
Karólínu á Akureyri á laugardaginn,
klukkan 15. Sýningin samanstend-
ur af portrettmyndum unnum með
blandaðri tækni. Verkin eru byggð
á prófílmyndum þeirra sem heita
Jón Sigurðsson á Facebook og hafa
ýmsar skírskotanir til atburða, per-
sóna eða aðstæðna úr samtíma
okkar. Þjóðerniskennd, sjálfstæði og
hetjudýrkun. Bergþór útskrifaðist
frá Myndlistaskólanum á Akureyri
árið 2004 og hefur notað undanfar-
in ár eftir útskrift til að byggja upp
myndlistarstefnu sína og hefur verið
duglegur við að sýna, bæði á einka-
og samsýningum. Sýningin stendur
til 4. desember.
Sýning tileinkuð Högnu Sigurðardóttur opnuð á Kjarvalsstöðum:
Fyrsta einkasýning frumkvöðuls
28 föstudagur 6. nóvember 2009 fókus
Högna Sigurðardóttir arkitekt
ánafnaði Listasafni Reykjavíkur ný-
lega öllu teikningasafni sínu. Í tilefni
af þeirri rausnarlegu gjöf og því að
Högna fagnaði áttræðisafmæli sínu
á dögunum verður opnuð á Kjar-
valsstöðum á laugardaginn sýning á
byggingarlist hennar með áherslu á
íslensk verk, byggð sem óbyggð, en
þetta er fyrsta einakasýning á verk-
um Högnu hér á landi.
Högna er vel þekkt sem frum-
kvöðull á sviði byggingarlistar á Ís-
landi. Hún hefur með verkum sínum
haft mikil áhrif á sjónrænt umhverfi
okkar og þróun íslenskrar bygging-
arlistar, ekki síst með listrænni til-
vísun í byggingarlistararfinn, dirfsku
í notkun náttúrulegra efna auk
skúlptúrel formsköpun bygginga
sinna. Hún var fyrst kvenna til að
starfa sem arkitekt hérlendis og hef-
ur verið óhrædd við að fara frumleg-
ar leiðir að verkum sínum þar sem
finna má tilvísun í þekkta arkitekta
20. aldarinnar, svo sem Le Corbusi-
er, Louis Kahn og Tadao Ando.
Högna útskrifaðist sem arkitekt
frá École Nationale Supérieure des
Beaux-Arts í París árið 1960 og hlaut
sérstaka viðurkenningu skólans fyr-
ir lokaverkefni sitt Garðyrkjubýli í
Hveragerði. Högna hefur búið og
starfað í Frakklandi allt frá náms-
árunum en jafnframt því skapað
mörg bestu verka sinna hérlendis.
Henni hefur hlotnast fjöldi alþjóð-
legra viðurkenninga fyrir verk sín,
og tók meðal annars sæti í hinni
virtu Frönsku Byggingarlistaraka-
demíu árið 1992, auk
innlendra viðurkenn-
inga svo sem menn-
ingarverðlauna DV í
byggingarlist 1994 og
heiðursorðu Sjónlista-
verðlauna Listasafns
Akureyrar 2007. Þess
má enn fremur geta að
íbúðarhús sem Högna
teiknaði að Bakkaflöt
í Garðabæ hefur ver-
ið valið sem ein af 100
merkustu byggingum
20. aldarinnar í Evr-
ópu.
Högna Fyrsta konan til
að starfa sem arkitekt hér
á landi.
Við Páll Kristinn Pálsson vorum búnir að ákveða að gera mynd saman og á þrettándanum árið 2005
hittumst við heima hjá honum til að
ákveða um hvað hún ætti að vera.
Fljótlega kom í ljós að við höfðum
báðir nýverið séð heimildarmynd í
Sjónvarpinu sem dró upp allt aðra
mynd af ástandinu á Íslandi en fjöl-
miðlar gerðu á þeim tíma. Hún fjall-
aði um fólk sem hélt sín jól í boði
Mæðrastyrksnefndar og Hjálpræð-
ishersins. Það varð okkur svolít-
ið sjokk og okkur fannst öfugsnúið
að á þessum góðæristímum skyldi
vera fólk sem var ekki í óreglu en
náði hreinlega ekki endum saman.
Við fundum þannig út að þetta var
eitthvað sem við vildum gera mynd
um. Við vildum gera mynd sem
sýndi fólki að það væri til fátækt á
Íslandi.“
Svona lýsir Hilmar Oddsson
kvikmyndaleikstjóri því hvernig það
kom til að hann réðst í gerð kvik-
myndarinnar Desember sem frum-
sýnd verður í dag, föstudag. Myndin,
sem áðurnefndur Páll Kristinn skrif-
aði handritið að, fjallar um poppar-
ann Jonna sem snýr heim til Íslands
í byrjun desember eftir að hafa yfir-
gefið vini og vandamenn nokkuð fyr-
irvaralaust nokkrum árum áður og
haldið til Argentínu. Hann dreymir
um að ná gamla bandinu sínu sam-
an á nýjan leik, endurnýja kynnin
við kærustuna sína og hlakkar til að
halda jól í faðmi fjölskyldunnar. En
Jonni uppgötvar fljótlega eftir heim-
komuna að allt hefur breyst. Hans
nánasta fjölskylda glímir við veikindi
og fjárhagserfiðleika og ástin hans
hefur tekið saman við vel stæðan út-
fararstjóra. Jonni leggur allt undir og
gerir övæntingarfullar tilraunir til að
redda málunum með misjöfnum og
jafnvel grátbroslegum árangri.
Horfði til breskra gamanmynda
„Það sérstaka við myndina er að
þetta átti að vera viss ádeila,“ segir
Hilmar. „En þegar hrunið varð í fyrra
gjörbreyttust allar forsendur mynd-
arinnar. Þá varð þetta sérstaka al-
mennt og í stað þess að standa fyr-
ir utan viðfangsefnið og horfa á það
þá vorum við allt í einu orðin hluti af
því. Ég segi ekki að mér hafi liðið eins
og ég væri allt í einu að gera heimild-
armynd, en ekkert langt frá því.“
Hilmar hefur gert þekktar myndir
á borð við Eins og skepnan deyr, Tár
úr steini og Kaldaljós. Með Desem-
ber kveðst leikstjórinn hafa viljað
Stjörnurnar Lovísa Elísabet
Sigrúnardóttir, eða Lay Low,
leikur stórt hlutverk í myndinni.
Hilmar hrósar vinnu hennar en
Lovísa hafði enga reynslu af
leiklist fyrir gerð myndarinnar.
Fyrsta íslenska jólamyndin, Desember, er frumsýnd um helgina. Leikstjórinn, Hilm-
ar Oddsson, segir hugmyndina að myndinni hafa kviknað eftir að hann og handrits-
höfundurinn urðu fyrir svolitlu sjokki við áhorf heimildarmyndar um fátækt fólk á
Íslandi fyrir nokkrum árum. Þegar hrunið varð í fyrra stefndi í að myndin yrði ekki
kláruð, en með samstilltu átaki og áhættu hafðist það að lokum.
Urðu hluti af viðfangsefninu