Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2009, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2009, Side 30
30 föstudagur 6. nóvember 2009 helgarblað dómnefnd Ásgeir H. Ingólfsson, ritstjóri kistan.is Eiríkur Ómar Guðmundsson, umsjónarmaður Víðsjár Grímur Atlason, sveitarstjóri í Dalabyggð Guðríður Haraldsdóttir, ritstjóri Vikunnar Óskar Guðjónsson, safnstjóri Árbæjarbókasafns Óttarr Proppé, bóksali og tónlistarmaður Karen D. Kjartansdóttir, blaðamaður Kolbrún Bergþórsdóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu Silja Aðalsteinsdóttir, bókmenntafræðingur Símon Birgisson, skáld Svanur Már Snorrason, blaðamaður á Séð og heyrt Þórarinn Þórarinsson, fréttastóri DV skemmtilegustu Rithöfundar eru jafnmisjafnir og þeir eru margir. Það sama gildir um verk þeirra. DV fékk vel mannaða dóm- nefnd til að velja þá núlifandi íslensku rithöfunda sem henni fannst hvað skemmtilegast að lesa eftir og að sama skapi þá leiðinlegustu. Einar Kárason og Guðrún Eva Mínervudóttir virðast hvað klárust að skrifa skemmtilega texta en Ólafur Jóhann Ólafsson er ekki jafnvinsæll. Jón Kalman StefánSSon: „Algjörlega dásamlegur rithöfundur. Næmnin fyrir söguefninu og myndirnar sem birtast manni við lesturinn eru einstakar. Það eitt að Páll Baldvin hafi verið með hortugheitakrítík í Kiljunni í vikunni sannfærir mig um að Kalman hafi skrifað enn eitt meistaraverkið.“ ármann ÞorvaldSSon „Fallna og veruleikafirrta bankastjarnan er efni í frábæran rithöfund. Frumraun hans, Ævintýra- eyjan, er bráðskemmtileg lesning og það getur aðeins góður rithöfundur gert bankavafstur og hlutabréfakaup að skemmtilestri. Ármann er mikill húmoristi með léttan stíl sem fangar mann frá fyrstu setningu. Vil skáldsögu næst!“ BergSveinn BirgiSSon „Lúmskur höfundur. Einstaklega laginn við að banka upp á undirmeðvitundina.“ auður HaraldS „Fyndnari en allir sem eru að reyna að vera fyndnir og tekst að segja eitthvað í leiðinni. Skrifar allt of lítið.“ guðBergur BergSSon „Guðbergur er mistækari en leyfilegt er. Margt af því sem hann skrifar er leiðindaraus. En þá sjaldan honum tekst vel upp ber hann af flestum öðrum eins og gull af bulli.“ „Merkilegasti höfundur Íslands eftir stríð.“ davíð oddSSon „Er Morgunblaðið ekki örugglega konseptlista- verk?“ guðmundur andri „Alltaf skemmtilegur. Svo mikil músík í textanum. Honum tekst alltaf einhvern veginn að gleðja mann þótt hann sé að skrifa um sorglega hluti.“ Bragi ólafSSon „Ég verð alltaf svo óumræðilega kát þegar ég les texta eftir hann.“ Þórarinn leifSSon „Skrifar svo hugmyndaríkar og óforskammaðar barnabækur að ég er feginn að eiga ekki börn – þau gætu reynt að hnupla þeim af mér.“ miKael torfaSon „Beittur, ósvífinn og þrælskemmtilegur.“ AÐRIR SEM NEFNDIR VORU: Einar Kárason „Ekkert minna en Rithöfundur Íslands í dag. Alltaf að verða betri og betri, en samt hefur hann verið að í meira en aldarfjórðung. Með Óvinafagnaði og Ofsa gerði hann Sturlungaöld aðgengilega hverjum sem er, og það sem meira er, svo áhugaverða að mann þyrstir í meira. Stórkostlegur rithöfundur, magnaður sögumaður.“ „Sívaxandi og kemur alltaf á óvart. Tekst að skrifa texta sem maður þarf ekki að setja sig í sparistellingar til þess að njóta.“ „Frábær í alla staði. Allir þeir sem komast í tæri við Óvinafagnað og Ofsa hrífast. Mann hefði seint grunað að maður ætti eftir að leggjast í rannsóknir á Sturlungu eftir að hafa lesið íslenskar spennusögur í hæsta gæðaflokki með stórkostlegum mannlýsingum.“ „Fjölbreytnin í fyrirrúmi og lítilmagninn fær alltaf að njóta sín.“ Guðrún Eva Mínervudóttir „Áhuginn vex með árunum í takt við slípun höfundarins. Hún er stór þessi litla kona og fer bara stækkandi.“ „Guðrún Eva Mínervudóttir er dásamleg. Hún er ekki bara ótrúlegur stílisti sem útbýr miklar undra- veraldir með orðum í hverri bók heldur skrifar hún líka skemmtilegar bækur. Yosoy er langbest en Sagan af sjóreknu píanóunum er einnig mögnuð. Hún er ein af þeim höfundum sem tekst svo vel til að lesandinn finnur lykt, bragð og kulda við lesturinn.“ „Hún er langbesti rithöfundur Íslands af yngri kynslóðinni. Skrifar undurfagran texta og er svo gáfuð að maður roðnar við lesturinn.“ „Einfaldlega snilldarhöfundur.“ Gyrðir Elíasson „Hvernig getur maður talist einn af merkari rithöfundum þjóðarinnar frá upphafi án þess að skrifa nokkurn tímann eitthvað krassandi og spennandi, eitthvað flókið og mikið? Jú, með því að vera einn mesti stílisti allra tíma; ljóðrænn og dreyminn og hver setning er íhuguð í langan tíma. Að lesa texta eftir Gyrði er róleg upplifun sem skilur mikið eftir sig, og mann langar alltaf í meira.“ „Gangandi íkorni breytti lífi mínu.“ „Eyðir ekki orðum í óþarfa. Frábær stílisti og dásamlega næmur.“ Steinar Bragi „Hann rótar svo rækilega upp í tilfinningalífi mínu.“ „Stílsnilld Steinars Braga er sér á parti. Það tekst engum öðrum að búa til martröð í bókarformi eins og bókin Konur var. Eins og flestar martraðir eru þá hrekkur maður ekki upp heldur kemst ekkert. Hrollurinn situr svo lengi lengi eftir í manni. Yfirþyrmandi og óhugnanlegir hæfileikar.“ „Er skemmtilega á skjön. Gerir eitthvað allt annað en hinir með ótrúlegum stæl.“ Sigurður Pálsson „Sama hvað hann gerir… bene, bene.“ „Verður bara yngri með árunum og ástríðan fyrir bókmenntunum fylgir hverju orði.“ Þórarinn Eldjárn „Alltaf traustur. Mjög sjaldan leiðinlegur þótt hann eigi sín slysaskot eins og aðrir.“ „Ekki til betri kvöldlesning fyr- ir ljóðelsk afa- og pabbabörn. Fjörugar umræður en minni svefn. Guðrún H, ómissandi eftirréttur.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.