Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2009, Qupperneq 45

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2009, Qupperneq 45
helgarblað 6. nóvember 2009 föstudagur 45 1. Sri Yukteswar Gigi (gúrú) 2. Aleister Crowley (dulfræðiiðkandi með meiru) 3. Mae West (leikkona) 4. Lenny Bruce (skemmtikraftur) 5. Karlheinz Stockhausen (tónskáld) 6. W.C. Fields (skemmtikraftur) 7. Carl Gustav Jung (sálfræðingur) 8. Edgar Allen Poe (rithöfundur) 9. Fred Astaire (leikari) 10. Richard Merkin (leikari) 11. The Varga Girl (e. Alberto Vargas) 12. *Leo Gorcey (málað yfir hann því hann krafðist þóknunar) 13. Huntz Hall (leikari) 14. Simon Rodia (hönnuður Watts-turnanna í Los Angeles) 15. Bob Dylan (tónlistarmaður) 16. Aubrey Beardsley (myndskreytir) 17. Sir Robert Peel (stjórnmálamaður) 18. Aldous Huxley (rithöfundur) 19. Dylan Thomas (ljóðskáld) 20. Terry Southern (rithöfundur) 21. Dion (söngvari) 22. Tony Curtiss (leikari) 23. Wallace Berman (listamaður) 24. Tommy Handley (skemmtikraftur) 25. Marilyn Monroe (leikkona) 26. William Burroughs (rithöfundur) 27. Sri Mahavatara Babaji (gúrú) 28. Stan Laurel (skemmtikraftur) 29. Richard Lindner (listamaður) 30. Oliver Hardy (skemmtikraftur) 31. Karl Marx (heimspekingur) 32. H.G. Wells (rithöfundur) 33. Sri Paramahansa Yogananda (gúrú) 34. Nafnlaus 35. Stuart Sutcliffe (listamaður/fyrrverandi Bítill) 36. Nafnlaus 37. Max Miller (skemmtikraftur) 38. The Pretty Girl (e. George Petty) 39. Marlon Brando (leikari) 40. Tom Mix (leikari) 41. Oscar Wilde (rithöfundur) 42. Tyrone Power (leikari) 43. Larry Bell (listamaður) 44. Dr. David Livingston (landkönnuður/læknir) 45. Johnny Weissmuller (sundkappi/leikari) 46. Stephen Crane (rithöfundur) 47. Issy Bonn (skemmtikraftur) 48. George Bernard Shaw (rithöfundur) 49. H.C. Westermann (myndhöggvari) 50. Albert Stubbins (knattspyrnumaður) 51. Sri Lahiri Mahasaya (gúrú) 52. Lewis Carrol (rithöfundur) 53. T.E. Lawrence (hermaður „Arabíu Lawrence“) 54. Sonny Liston (hnefaleikakappi) 55. The Pretty Girl (e. George Petty) 56. Vaxmynd af George Harrison 57. Vaxmynd af John Lennon 58. Shirley Temple (barnastjarna) 59. Vaxmynd af Ringo Starr 60. Vaxmynd af Paul McCartney 61. Albert Einstein (eðlisfræðingur) 62. John Lennon 63. Ringo Starr 64. Paul McCartney 65. George Harrison 66. Bobby Breen (söngvari) 67. Marlene Dietrich (leikkona) 68. Mohandas Ghandi (yfirskyggður að beiðni EMI) 69. Liðsmaður Buffalo-hersveitarinnar 70. Diana Dors (leikkona) 71. Shirley Temple (barnastjarna) 72. Tuskudúkka e. Jann Haworth 73. Shirley Temple-tuskudúkka e. Haworth 74. Mexíkóskur kertastjaki 75. Sjónvarp 76. Stytta af stúlku 77. Stytta 78. Stytta úr húsi Johns Lennon 79. Verðlaunagripur 80. Fjögurra arma indversk dúkka 81. Trommuskinn, hannað af Joe Ephgrave 82. Hookah (vatnspípa) 83. Flauelssnákur 84. Japönsk stytta 85. Stytta af Mjallhvíti 86. Garðálfur 87. Túba Fyrir ekki svo löngu síðan var fjallað um plötuum-slag Abbey Road-plötu The Beatles. Ástæðan var fjörutíu ára afmæli plötunnar. Að mörgu leyti voru Bítlarnir braut- ryðjendur í þróun plötuumslaga, sem með tíð og tíma urðu flókin listaverk og hluti af plötunni í stað þess að vera sviplaust hulstur utan um innihaldið. Eitt þeirra umslaga úr smiðju Bítlanna sem víðfrægt er orðið fyrir margt löngu er umslag Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band plötunnar sem kom út árið 1967. Þó hvorki standi á hálfum né heil- um áratug frá útkomu plötunnar er ekki úr vegi að líta nánar á um- slagið. Braut blað að mörgu leyti Til að byrja með er vert að minn- ast á þær nýjungar sem umslagið og innihald þess bryddaði upp á. Umslagið var með glansáferð sem hafði ekki tíðkast fyrr. Það var tvö- falt þannig að hægt var að opna það og þar blasti við mynd af fjór- menningunum. Ástæðan fyrir því var sú að Bítlarnir hugðust hafa plötuna tvöfalda, eins og sagt er, en það gekk ekki eftir. Á baki um- slagsins gat að líta texta allra laga plötunnar og var þar um enn eina nýjung að ræða. Innra umslag plötunnar var í fyrstu útgáfu henn- ar ekki hvítt eins og algengt var á þeim tíma heldur var það með of- skynjunarskotnu mynstri sem hol- lenskir listamenn, The Fool, hönn- uðu. Þess má geta að upphaflega hugðust Bítlarnir láta The Fool hanna umslagið, en horfið var frá þeirri hugmynd. „Brúnir pappírspokar fyrir Sgt. Pepper“ Síðast en ekki síst var að finna með plötunni útklippimyndir; yf- irvaraskegg, myndakort, strípur að hætti hermanna, merki sem líktust nælumerkjum og fleira. Reyndar hafði það verið upphafleg ætlun Bítlanna að láta fylgja með einkennismerki, blýanta og ann- að smávægilegt sem tengdist Sgt. Pepper, en það reyndist of kostn- aðarsamt þegar upp var staðið. Reyndar hugnaðist Brian Ep- stein umboðsmanni Bítlanna umslagið ekki betur en svo að hann lét Nat Weiss, sem hafði yf- irumsjón með varningi tengdum Bítlunum, hafa orðsendingu sem á stóð: „Brúnir pappírspokar fyrir Sgt. Pepper.“ Epstein voru í fersku minni lætin sem svonefnt „Butch- er Cover“ bandarísku útgáfunnar af plötunni Yesterday and Today olli árið áður. Heiður þeim sem heiður ber Listræn yfirumsjón yfir umslag- inu var í höndum Roberts Fraser sem var vel þekktur listaverkasali í Lundúnum og rak sitt eigið gall- erí. Robert taldi Paul McCartney hughvarf með að fá The Fool-hóp- inn til að hanna umslagið og taldi að hönnun hans myndi ekki verða langra lífdaga auðið. Þess í stað stakk Robert upp á „popp“-listamanninum Dav- id Blake, sem á endanum hann- aði umslagið í félagi við konu sína. Að sögn Davids Blake var fyrsta hugmyndin sú að búa til senu þar sem Sgt. Pepper-hljómsveitin léki í almenningsgarði, en hugmynd- in þróaðist síðan yfir í hina end- anlegu mynd; Bítlana í gervi Sgt. Pepper-hljómsveitarinnar í stór- um hópi þeirra sem töldust til hetja þeirra. Hetjur Bítlanna voru klipptar út í fullri líkamsstærð, en vaxmynd- ir af Bítlunum, að láni fengnar hjá vaxmyndasafni Madame Tuss- auds, standa til hliðar við hinar raunverulegu fyrirmyndir. Fólk sem við kunnum við Hópmyndin sem prýðir umslagið gekk undir nafninu „Fólk sem við kunnum við“ og var listinn feng- inn frá Bítlunum. Flestar tillög- urnar komu frá John Lennon, Paul McCartney og George Harrison, en Ringo Starr lét þetta sig litlu varða og sagði að hann væri sáttur við hvaðeina sem hinir vildu. Eins og við var að búast komu gúrúarnir frá George Harrison og mörgum af hugmyndum Lennons var hafnað. Á meðal þeirra sem Lennon vildi fá, en fékk ekki, voru Adolf Hitler og kannski ekki und- arlegt að sú hugmynd fengi lítinn hljómgrunn, reyndar gekk hug- myndin svo langt að klippt var út mynd af Hitler í fullri líkamsstærð. Einnig vildi Lennon sjá Jesúm á umslaginu, en Epstein fannst ekki nægilega fennt yfir nýleg ummæli Lennons þegar hann sagði að Bítlarnir væru stærri en Jesús. Mahatma Gandhi var einnig fórnað á þeirri forsendu að platan fengist ekki útgefin á Indlandi, en útgáfufélagið var með útibú þar. Lögfræðileg áhyggjuefni Eins og gefur að skilja var ekki ein- falt mál að ganga frá öllum lausum endum varðandi lokahugmynd- ina. Lögfræðingar EMI þurftu að hafa samband við alla sem voru á lífi og fá leyfi fyrir notkun af mynd af þeim á umslaginu. Leikkonan Mae West var í fyrstu ekki ginnkeypt fyrir hugmyndinni og neitaði með orðunum: „Hvaða erindi á ég í félagsskap einmana hjartna?“ En eftir að Bítlarnir sendu henni persónulegt bréf sá hún að sér. Einn þeirra sem leit- að var til var leikarinn Leo Gorcey, en eftir að hann fór fram á þóknun fyrir vikið var hann fjarlægður hið snarasta. Mexíkóski leikarinn Tin-Tan fór þess á leit við Ringo Starr að sér yrði skipt út fyrir mexíkóskt tré og varð Ringo við beiðninni. Kveðja til Rolling Stones Á umslaginu getur að líta Shir- ley Temple-dúkku sem klædd er í röndótta peysu. Á peysunni stend- ur „Welcome the Rolling Stones“, sem eins konar kveðja til Rolling Stones sem var helsti keppinautur Bítlanna á þessum tíma. Meðlimir Rolling Stones svör- uðu kveðjunni með því að vera með litlar felumyndir af Bítlunum á næstu plötu sinni Their Satan- ic Majesties Request, sem kom út síðar það ár. Á bakhlið umslagsins eru text- ar laganna á plötunni og mynd af Bítlunum. Þrír Bítlanna snúa fram, en Paul McCartney snýr baki í myndavélina. Þetta tókst sum- um að túlka sem staðfestingu á dauða McCartneys, en orðrómur þar að lútandi hafði lengi verið á sveimi. Önnur skýring sem kom til greina var sú að um staðgengil hefði verið að ræða því McCartney hafi einfaldlega verið fjarverandi. En myndir frá myndatökunni sýna svo ekki verður um villst að mað- urinn með bakið í myndavélina er í raun Paul McCartney, og ekkert dularfullt í gangi. Platan var tilnefnd til sjö Grammy-verðlauna á sínum tíma og vann til fjögurra, þeirra á meðal sem besta plötuumslag. hljómsveit PiPars liðþjálfa vinir bítlanna Umslag Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band plötu Bítlanna er eitt hið frægasta í sögu popptónlistarinnar. Með umslaginu var bryddað upp á nokkrum nýjungum sem síðar urðu algengar. Á meðal þess sem taldist til nýjunga var að texta lag- anna á plötunni var að finna á bakhlið umslagsins. Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band Umslagið var meira en sviplítið hulstur utan um plötuna. Hver er hvar? Flestar tillögurnar komu frá Harrison, Lennon og McCartney.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.