Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2009, Síða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2009, Síða 49
lífsstíll 6. nóvember 2009 föstudagur 49 umhverfisvænn vefur Náttúran.is er vefur með umhverfisvitund sem þeir sem hafa áhuga á umhverfisvernd eða vilja kynna sér umhverf- isvernd og vistvæna lífshætti ættu að kíkja á. Á vefnum er að finna fróð- leik um allt milli himins og jarðar sem snýr að náttúrunni sama hvort það tengist ræktun, barnavörum, endurvinnslu, tækni, grænum borgarkortum, uppskriftum eða fræðsluefni. Á Facebook-síðunni Umhverfisvæn og hag- sýn 2010 er einnig að finna skemmtilegan fróðleik um umhverfisvernd svo nú duga engan afsakanir lengur. 1 gæs smjörúði salt og nýmalaður pipar fyrir 4 Þerrið gæsina að innan sem utan og setjið fyllinguna inn í hana. Úðið smjörúða yfir gæsina og kryddið með salti og pipar. Steikið gæsina í 180°C heitum ofni í 60–80 mín. Kasjúhnetu- og apríkósufylling: 8 kasjúhnetur, gróft saxaðar 6 skorpulausar brauðsneiðar í ten- ingum 8 þurrkaðar apríkósur, skornar í bita ½ mangó, skrælt og skorið í bita börkur af ½ sítrónu, rifinn safi úr 1 appelsínu 1 msk. engiferrót, smátt söxuð 2 msk. mynta, smátt söxuð 2 msk. steinselja, smátt söxuð 2 egg salt og nýmalaður pipar Setjið allt í skál og blandið vel saman. Í boði Gestgjafans: fyllt gæs með kasjúhnetum, apríkósum og mangó UmsjóN: iNdíaNa Ása hreiNsdóttir, indiana@dv.is Ráð handa foReldRum vaRðandi einelti Trúðu barninu þínu og stattu með því. Það er afar mikilvægt að halda ró sinni og hugsa málið áður en eitthvað er gert. Ekki vera kaldi karlinn sem seg- ir: Þú skalt ekki ergja þig út af þessu. Ekki vera fórnarlambið sem seg- ir: Þetta er ekkert, þegar ég var í skóla, þá ... Ekki vera yfirheyrandinn sem segir: Ég vil vita allt. Ekki vera bjargvætturinn sem segir: Ég bjarga þessu fyrir þig. Ekki vera töframaðurinn sem segir: Ég redda þessu í hvelli. Hlustaðu frekar af þolinmæði og rannsakaðu málið af athygli. Reyndu að fá eins sannar upp- lýsingar frá barninu og hægt er án þess að beita löngum yfir- heyrslum. Það er mikilvægt að þú látir barnið vita að þú sért ánægð/ur með að það skuli hafa sagt þér frá erfiðleikum sínum. Heimild: doktor.is himneskt bRauð 300 g spelt 3 msk. ólífuolía 1 msk. vínsteinslyftiduft 1 tsk. sjávarsalt 2 dl vatn Blandið saman þurrefnunum og bætið vatninu og olíunni út í. Blandið varlega saman og eins stutta stund og hægt er. Uppskriftin er af vefnum himneskt.is Vinkonurnar Hafdís Heiðarsdóttir og Vilborg Ragnarsdóttir stofnuðu nýlega fyrir- tæki sem sérhæfir sig í hönnun á plexígleri. Hafdís og Vilborg hræðast ekki kreppu en segja svolítið púsl að sameina móðurhlutverkið og fyrirtækjareksturinn. Þær stöllur mæla endregið með því að fólk láti drauma sína rætast og bara kýli á hlutina. Það veRða alliR að bjaRga séR Glæsileg gæs með kasjúhnetum, apríkós- um og mangó. „Hugmyndin vaknaði í fermingar- veislu síðastliðið vor, en þá fórum við að velta því fyrir okkur hvað köku- diskar tækju alltaf mikið skápapláss og það varð kveikjan að hugmynda- fræðinni á bak við vörulínu Arca,“ segir Hafdís Heiðarsdóttir en hún, ásamt vinkonu sinni, Vilborgu Aldísi Ragnarsdóttur, stofnaði nýlega fyrir- tækið Arcadesign Iceland. „Upp frá því fórum við að hanna kökudiskinn og í framhaldi komu fleiri hugmynd- ir á teikniborðið og áður en við viss- um af vorum við búnar að teikna upp heila vörulínu,“ segir Hafdís en fyrir- tækið sérhæfir sig í hönnun úr plexí- gleri en það er síðan fyrirtækið Lóg- óflex sem annast framleiðsluna. Að sögn Hafdísar heitir vörulínan Alfa og samanstendur af kökudiski á fæti, servíettustandi, þrískiptum köku- diskum, kertastjaka og jólatrjám en alla hlutina er hægt að taka í sundur og eru þeir því þægilegir í geymslu. Stelpurnar voru báðar að sinna öðr- um málum þegar hugmyndin að fyrir- tækinu kviknaði. Hafdís, sem er lærður snyrtifræðingur, var í fæðingarorlofi og Vilborg að vinna sem auglýsingastjóri. Þær segjast ekki hefðu getað ímyndað sér fyrir nokkrum vikum að þær yrðu fljótlega komnar á fullt með eigið fyr- irtæki. „Ég var ekkert á leiðinni út að vinna, enda með þrjú börn og þar af eina tíu mánaða stelpu. Þetta vatt bara allt upp á sig og gerðist mjög hratt,“ segir Hafdís og bætir við að maður geti aldrei vitað hvað lífið bjóði upp á handan við hornið. Aðspurð segir Vil- borg að þær stöllur óttist ekki ástandið í þjóðfélaginu. „Í kreppunni verða allir að bjarga sér og við ákváðum strax að hafa vöruna eins ódýra og mögulegt er, enda er fólk ekki tilbúið að borga eins mikið fyrir hönnunarvöru nú eins og fyrir tveimur árum. Við höldum verðinu niðri með því að halda þessu í heimakynningum auk þess sem við seljum í gegnum Facebook en draum- urinn er að koma þessu í verslanir er- lendis á næstunni.“ Hafdís og Vilborg eiga fimm börn til samans og aðspurð segir Vil- borg að þeim gangi vel að sameina fyrirtækjareksturinn og móðurhlut- verkið. „Þetta er púsluspil en, sem betur fer, eigum við góða að. Börn- in hennar Vilborgar eru líka töluvert eldri en mín svo hún getur komið til móts við mig, enda vinnum við mik- ið heima hjá mér,“ segir Hafdís og bætir við að hún óttist ekki að starfa með vinkonu sinni. „Samstarfið hef- ur gengið afskaplega vel og við erum mjög líkar í lund en höfum samt ólík- an smekk en það gerir það að verkum að við eigum auðveldara með að kasta mismunandi hugmyndum á milli en náum alltaf að komast að samkomu- lagi. Það hafa ekki komið upp neinir árekstrar enn þótt ýmislegt hafi geng- ið á og stressið hafi verið mikið,“ segir Vilborg og bætir við að vinnan í kring- um fyrirtækið hafi verið gífurleg. „Við stofnuðum þetta núna í september og erum strax komnar á fleygiferð. Ferlið hefur tekið stuttan tíma og ver- ið miklu erfiðara en ég bjóst við en á móti kemur að vinnan er einstaklega skemmtileg og fjölbreytt. Við mælum eindregið með því fyrir alla sem ganga með einhverja hugmynd í magan- um slá til en það gerist ekkert nema þú farir af stað,“ segir þær að lokum. Facebook-síða Hafdísar og Vilborgar er facebook.com/arcadesign. Vinkonur „samstarfið hefur gengið mjög vel og við erum mjög líkar í lund en höfum samt ólíkan smekk en það gerir það að verkum að við eigum auðveldara með að kasta mismunandi hugmyndum á milli en náum alltaf að komast að samkomulagi.“ mynd RóbeRt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.