Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Blaðsíða 4
GAMALL DRAUMUR RÆTIST n Ólafur Stephensen vann nokk- urt afrek þegar hann réð Halldór Baldursson skopmyndateiknara af Morgunblaðinu yfir á Frétta- blaðið. Frægt varð á sínum tíma þegar hinn þá nýráðni rit- stjóri Morgun- blaðsins réð Halldór á blaðið en þá hafði Hall- dór teiknað í Blaðið/24 stundir og Viðskiptablaðið um nokkurra ára skeið. Færri vita hins vegar að áður hafði Fréttablaðið gert atlögu að því að fá Halldór til liðs við sig. Þá fannst honum best að vera áfram á Blaðinu og það þótt fjárhags- legur ávinningur hans hefði ef til vill verið meiri af því að skipta um vinnustað. En nú verður sem sagt gamall draumur Fréttablaðsmanna að veruleika. KEPPINAUTARNIR TVEIR n Vistaskipti Halldórs Baldursson- ar teiknara vekja athygli enda hafa myndir hans löngum verið það besta sem íslenskir fjölmiðlar hafa upp á að bjóða þegar kemur að skop teikningum. Nú bregður hins vegar svo við að fyrir er á fleti á Fréttablaðinu Gunnar Karlsson sem hefur boðið upp á Skopið, spurning hvort hann þurfi ekki að víkja núna. Annars setur þetta til- nefningar til Blaðamannaverðlauna Íslands í nýtt samhengi. Þar voru þeir Halldór og Gunnar nefnilega tilnefndir saman í flokknum Blaða- mannaverðlaun ársins, þrátt fyrir að vera hvor á sínum miðlinum og því í raun í samkeppni hvor við annan. GUÐFRÆÐINGAR SVARA VANTRÚUÐUM n Reynir Harðarson og fleiri for- svarsmenn Vantrúar hafa undan- farnar vikur gagnrýnt kennslu við guðfræðideild Háskóla Íslands, sér- staklega þegar kemur að því hvern- ig fjallað hefur verið um Vantrú og forsvarsmenn félagsins í nám- skeiði um nýtrú- arhreyfingar þar sem hefur verið fjallað um félag þeirra Vantrú- armanna. Hafa þeir kvartað undan því að ummæli þeirra hafa verið tekin úr samhengi og málstaður þeirra afbakaður. Lengi vel bárust engin viðbrögð frá guðfræðideild en nú hafa Vantrúar- menn fengið svar frá Pétri Péturs- syni, forstöðumanni guðfræðideild- ar. Lofar hann að mið verði tekið af athugasemdum félagsins ef nám- skeiðið verður kennt aftur. AUGLÝSINGAR OG FRÉTTIR n Þátttaka Steingríms Sævars Ól- afssonar, fréttastjóra Pressunnar, í gerð myndbanda fyrir iðnþing Sam- taka iðnaðar- ins vekur upp spurningar um mörk fréttaskrifa og auglýsinga- gerðar. Stein- grímur Sæv- arr les textann í myndskeiðun- um, þar sem er lýst framtíðarsýn Samtaka iðnaðar- ins og hvernig forsvarsmenn sam- takanna vilja sjá þjóðfélagið þróast og ríkisvaldið beita sér. Samtök iðnaðarins eru auðvitað hagsmuna- samtök sem hafa beitt sér til að móta umræðuna og efla stuðning við ýmis stefnumál sín. Spurning hvernig það fer saman að vinna fyrir hagsmunasamtök og á sama tíma fyrir óháðan vefmiðil. SANDKORN 4 FÖSTUDAGUR 12. mars 2010 FRÉTTIR Ríkissjóður greiðir nærri hálfa milljón króna í málskostnað: Meiðyrðamál SS dregið til baka Þegar mest lætur þiggja um eitt þúsund fjölskyldur mataraðstoð hjá Fjölskylduhjálp Íslands og Mæðrastyrksnefnd Íslands. Þeim sem þurfa hjálp hefur fjölgað jafnt og þétt frá hruni að sögn Ragnhildar Guðmundsdóttur, formanns Mæðrastyrksnefndar. „Við úthlutum mat á miðvikudögum og hingað koma allt frá 350 til 550 manns á hverjum úthlutunardegi,“ segir Ragnhildur Guðmundsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar Ís- lands. DV heimsótti Fjölskylduhjálp Íslands og Mæðrastyrksnefnd í vik- unni og varð vitni að því góða starfi sem unnið er á þessum stöðum og þeirri miklu þörf sem er fyrir aðstoð sem þessa. Biðröð út á götu Þegar DV bar að garði að Fjölskyldu- hjálp Íslands í Eskihlíð var mikið um að vera. Biðröðin fyrir utan var löng og náði nánast út á götu eins og sést á meðfylgjandi mynd. Inni unnu sjálf- boðaliðar hörðum höndum við að úthluta mat en áður en afhending fer fram þarf fólk að sýna fram á þörf fyr- ir mataraðstoð og gera grein fyrir að- stæðum sínum. Það vakti athygli blaðamanns og ljósmyndara að þrátt fyrir mikið ann- ríki og langa biðröð lá vel á fólki, bæði sjálfboðaliðum og þeim sem höfðu beðið úti í rigningunni jafnvel tím- unum saman. Afhendingin gekk eins og vel smurð vél og enginn fór tóm- hentur heim en til marks um þörfina fyrir þessa aðstoð má nefna að um 550 þáðu mat síðasta miðvikudaginn í febrúar. Því má áætla að samtals um 1.000 fjölskyldur þiggi mat þær vikur sem aðsóknin er hvað mest. Hundruð fjölskyldna þiggja hjálp Hjá Mæðrastyrksnefnd Íslands fer mataraðstoðin fram með svipuð- um hætti. Þegar DV bar að garði var engin röð eins og fyrir utan Fjöl- skylduhjálpina en aðsóknin var engu að síður mikil á þeim tíma sem DV ræddi við Ragnhildi. Hún segir aðspurð að aðsóknin í mataraðstoð sé mjög misjöfn frá viku til viku; þörfin sé töluvert meiri síðla mánaðar. Hún segir að þörfin hafi aukist jafnt og þétt frá hruni. „Fyrir hrunið voru þetta allt aðrar tölur, það er ólíku saman að jafna,“ segir hún. Spurð hvers kyns bakgrunn fólk hafi sem þurfi á mataraðstoð að halda segir Ragnhildur að fólk sé af öllum stærðum og gerðum. „Bæði fólk með vinnu og án, láglaunafólk, fólk sem á í tímabundnum erfið- leikum eða stríðir við veikindi. Við sjáum hér margar útgáfur af erf- iðleikum lífsins,“ segir Ragnhildur en Mæðrastyrksnefnd Íslands veit- ir fólki ekki bara mataraðstoð. „Við erum líka með fataúthlutun sem fer fram fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði. Það koma mjög margir í það og ásóknin eykst jafnt og þétt,“ útskýrir Ragnhildur en þeim sem koma til að þiggja aðstoð er flett upp í tölvukerfi Mæðrastyrksnefnd- ar þar sem fjölskyldustærð hvers og eins er skráð. Þannig fá þeir sem eiga stórar fjölskyldur meiri mat en hinir sem búa einir eða eru með lítil heimili. Okkar gestir Ragnhildur segir að virðing og traust séu þau gildi sem nefndin hefur að leiðarljósi og því séu til að mynda allar myndatökur bannaðar í og við húsnæði Mæðrastyrksnefndar við Hátún. „Fólk sem kemur hingað er okkar gestir og við viljum gera vel við það,“ segir hún. Aðspurð hvernig nefndin fjár- magni matarinnkaupin segir hún að maturinn sé eingöngu keyptur fyr- ir söfnunarfé en styrkur frá borginni dugi til að reka húsnæðið. Ragnhild- ur vill nota tækifærið og koma kær- um þökkum á framfæri til þeirra sem styrkt hafa Mæðrastyrksnefnd í gegnum tíðina. ÞÚSUND ÞIGGJA MAT Fólk sem kemur hingað er okkar gestir og við viljum gera vel við það. BALDUR GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar baldur@dv.is Margir hjá Mæðrastyrksnefnd Ragnhildur Guð- mundsdóttir formaður segir þörfina aukast jafnt og þétt. MYND RAKEL ÓSK SIGURÐARDÓTTIR Biðu eftir mat Margir höfðu beðið lengi þegar þeir fengu mat hjá Fjölskylduhjálp Íslands í gær. Enginn fór þó tóm- hentur heim, frekar en vanalega. MYND RAKEL ÓSK SIGURÐARDÓTTIR Ríkissaksóknari dró til baka ákæru á hendur Oddi Eysteini Friðrikssyni, fyrrverandi starfsmanni Sláturfélags Suðurlands, SS. Hann var ákærður fyrir að halda úti áróðurssíðu gegn fyrri vinnuveitendum sínum en sak- sóknari dró málið til baka á fimmtu- daginn. Um er að ræða vefsíðuna slat- urfelagid.com en snemma árs 2008 tóku að birtast þar umdeild ádeilu- skrif, fyrst á hendur Steinþóri Skúla- syni, forstjóra SS, og síðar fjöl- mörgum yfirmönnum fyrirtæksins. Forstjórinn var þar sagður vera að slátra fyrirtækinu með stjórnun- arstíl sínum en á síðunni var hann niðurlægður á ýmsan hátt og birt- ar myndir af mörgum yfirmönn- um sem kallaðir voru rassasleikjur Steinþórs. Hann fékk nóg og kærði til lögreglu en rannsókn leiddi síðar til ákæru. Sjálfur vísaði Oddur Eysteinn því á bug í samtali við DV að tengj- ast síðunni á nokkurn hátt og hef- ur boðað kæru til Persónuverndar á hendur Steinþóri forstjóra fyrir að hafa komist yfir persónuleg gögn sín í leyfisleysi. Í málsvörninni sakaði Oddur forstjórann um að hafa beitt sér fyrir því að sökinni yrði komið á hann. Eftir að ljóst varð að ríkissaksókn- ari dró ákæruna til baka fór lögmað- ur Odds fram á að allur málskostn- aður, þar á meðal laun verjandans, yrði greiddur úr ríkissjóði. Sú beiðni var samþykkt og greiðir ríkissjóður því hátt í hálfa milljón króna vegna málsins. trausti@dv.is Fékk nóg Steinþór kærði níðskrif um sig á vefsvæðinu slaturfelagid. com sem leiddi til ákæru á hendur fyrrverandi starfsmanni. Sú ákæra hefur nú verið dregin til baka.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.