Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 12. mars 2010 FRÉTTIR Björgólfur Guðmundsson, fyrrver- andi stjórnarformaður og aðaleig- andi Landsbankans, er í biðstöðu um þessar mundir og sleikir enn sár sín eftir bankahrunið mikla árið 2008. Björgólfur er dapur í bragði yfir örlögum sínum og yfir bankahrun- inu. Hann er í biðstöðu og bíður eftir því að skýrsla rannsóknarnefndar Al- þingis komi út en ráðgert er að það verði síðar í þessum mánuði. Björgólfur ræddi við nefndina um nokkur mál og er nokkuð ljóst að framtíð hans veltur um margt á því að ekki verði felldur áfellisdómur yfir honum og störfum hans í Lands- bankanum í skýrslunni. Björgólfi hefur alltaf verið mikið í mun að vera með gott orðspor á Íslandi og sanna sig hér á landi og var það meðal annars þess vegna sem hann keypti Landsbankann til að byrja með. Hann fór frá því að vera umdeild- ur og dæmdur maður í Hafskipsmál- inu á níunda áratugnum og til þess að vera einn dáðasti maður þjóð- arinnar á dögum íslenska efnahag- sundursins þegar menn kepptust við að vera vinir hans. Nú er staða hans aftur orðin svipuð og hún var á dög- um Hafskipsmálsins og fyrir upp- gang þeirra Björgólfsfeðga í gegn- um eignarhaldsfélagið Samson árið 2002. Staða Björgólfs í skýrslunni er hins vegar erfið: Björgólfur tók auð- vitað þátt í kaupunum á Landsbank- anum þegar hann var einkavæddur árið 2002 og stýrði stjórn bankans fram að hruninu og Icesave-reikn- ingarnir voru meðal þeirra afurða sem Landsbankinn bauð upp á fyrir hrunið. En skýrsla rannsóknarnefnd- arinnar nær auðvitað frá einkavæð- ingarferli bankanna sem þeir Björ- gólfsfeðgar hófu með því að falast eftir Landsbankanum 2002 og fram að hruninu. Hefur nær horfið af vettvangi Staða Björgólfs í dag er, líkt og staða margra annarra auð- og áhrifa- manna í íslensku viðskiptalífi á ár- unum fyrir hrun, dálítið tragísk og ýmsar smáfréttir hafa verið sagðar af persónulegum högum hans síð- ustu mánuði. Nú síðast kom fram að meðlimir samtakanna Nýtt Ís- land hefðu bankað upp á hjá hon- um í Laugarneshverfinu en að kven- maður hefði svarað dyrasímanum og sagt að Björgólfur væri ekki sekur um glæpi tengda bankahruninu og að það ætti eftir að koma í ljós á næst- unni. Þar áður sást Björgólfur í búð- inni á horninu á fallegum Benz en við nánari eftirgrennslan kom í ljós að bíllinn var í eigu konu hans Þóru. Björgólfur hefur hins vegar nær horfið úr opinberu lífi á Íslandi eftir hrunið og lítið hefur verið fjallað um þá feðga í fjölmiðlum á síðustu mán- uðum og vikum. Þar er undanskil- in umfjöllun um málefni Björgólfs Thors, sonar hans, og Actavis og um- fjöllun um fjármögnun þeirra feðga á Landsbankakaupunum árið 2002 sem hangið hefur yfir þeim eins og mara á liðnum mánuðum. Hefur DV fengið það staðfest úr traustri átt að það sé rétt sem fram kom í fjölmiðlum í vikunni: Að þeir Björgólfsfeðgar hefðu greitt að fullu lán upp á rúmlega 50 milljónir doll- ara sem tekið var í Búnaðarbanka Ís- lands árið 2002 til að kaupa Lands- bankann. Lánið greiddu þeir upp árið 2005 og er því ekki rétt það sem sagt hefur verið í fjölmiðlum, að lán í þeirra nafni sem er útistandandi við Arion banka sé lánið sem þeir fengu til að kaupa Landsbankann. Þar er um að ræða annað lán sem þeir tóku síðar. Sú gagnrýni sem þeir feðgar hafa orðið fyrir vegna þess að þeir skuldi enn þá Búnaðarbankalánið vegna Landsbankakaupanna á því ekki rétt á sér. Æðrulaus Björgólfur Björgólfur eldri mun hafa dvalið mikið heima hjá sér síðustu mánuði og unnið mikið í sjálfum sér og mál- um tengdum því uppgjöri sem hann stendur nú frammi fyrir. Margir fjöl- miðlar hafa reynt að ná tali af Björ- gólfi á síðastliðnu ári en hann hefur ekki veitt þeim viðtöl frá því hann ræddi við Kastljós Ríkissjónvarpsins og Morgunblaðið í hruninu haustið 2008. Hann hefur nánast lokað sig af samkvæmt því sem heimildir DV herma. Þetta kann þó að breytast eft- ir að skýrsla rannsóknarnefndarinn- ar kemur út á næstunni en rætt hefur verið um að flóðgáttirnar muni opn- ast þá þegar þeir sem fjallað verður um á neikvæðan hátt í skýrslunni vilja tjá sig. Björgólfur mun gera mikið af því að hitta fjölskyldu, vini og kunningja sem hann hefur kynnst á lífsleiðinni og ræða við þá um daginn og veginn og stöðuna í samfélaginu og útskýra sína hlið á þeim málum í hruninu sem tengjast honum. Björgólfur mun vera nokkuð eftir sig vegna hrunsins og má ætla að hann sé smeykari við skýrslu rannsóknarnefndarinnar en margir aðrir auðmenn um þessar mundir. Þetta ræðst af því að hann var bæði eigandi og stjórnarformað- ur Landsbankans og ber því meiri formlegri ábyrgð en til dæmis Björ- gólfur sonur hans. Hann mun hins vegar vera nokkuð æðrulaus þrátt fyrir þau vandamál sem að honum steðja og líf hans er í nokkuð föstum skorðum. Björgólfur hefur ekki verið í laun- aðri vinnu frá hruninu og er ólíklegt að hann ætli sér að rísa upp aftur til að taka þátt í viðskiptalífinu aftur enda er hann orðinn 69 ára. Framtíðin óviss eftir uppgjörið Mikið af tíma Björgólfs fer í að vinna að og fylgjast með málum tengd- um því uppgjöri við fortíðina sem hann stendur nú frammi fyrir, með- al annars í rannsóknarskýrslunni og þrotabúum þeirra félaga sem hann átti fyrir hrunið: Samson, Gretti og svo eigin þrotabúi - Björgólfur er einungis annar af tveimur þekktum auðmönnum sem orðið hafa per- sónulega gjaldþrota eftir hrunið. Heimildir DV herma að Björgólfur Björgólfur Guðmundsson er einn þeirra auðmanna sem bíða í ofvæni eftir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Hann fer sér hægt þessa dagana, dvelur mikið heima við, vinnur í sjálfum sér og hefur nánast horfið úr opinberri umræðu upp á síðkast- ið. Á meðan er verið að gera upp fortíð hans í skýrslunni og í þrotabúum þeirra félaga hans sem farið hafa á hausinn. UPPGJÖR BJÖRGÓLFS INGI F. VILHJÁLMSSON blaðamaður skrifar ingi@dv.is n Samson 112 milljarðar n Grettir eignarhaldsfélag 31 milljarður n Grettir fjárfestingafélag 23,5 milljarðar n Þrotabú Björgólfs 101 milljarður Kröfur í þrotabú tengd Björgólfi: Björgólfur eldri mun hafa dvalið mikið heima hjá sér á síð- ustu mánuðum og unnið mikið í sjálfum sér ... Fallið var hátt Fall Björgólfs er þeim mun tragískara vegna þess hversu hátt það var. Hann fór frá því að vera dáður fyrir hrun og yfir í að vera einn af óvinsælustu sonum landsins eftir hrun. Björgólfur sést hér með konu sinni og aðstoðarmanni, Ásgeiri Friðgeirssyni, á leik með West Ham og með Sigurjóni Árnasyni, bankastjóra Landsbankans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.