Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Blaðsíða 68
68 FÖSTUDAGUR 12. mars 2010
DV-zlatanbarca2.jpg
DV12225041007_riorobin_1.jpg
DV15657020108_fla_0_dúlla.jpg
RIO FERDINAND
- MANCHESTER UNITED
Treystir um of á félaga sína. Fær yfirleitt
gagnrýni á sig þegar hann er án Nem-
anjas Vidic eða Johns Terry í landslið-
inu og þarf að vinna vinnuna einn.
MATHIEU FLAMINI
- AC MILAN
Hann átti eitt gott tímabil með
Arsenal. Það síðasta. Þangað til
var hann farþegi. Komst á samn-
ing hjá AC Milan þar sem hann
hefur verið enn meiri farþegi.
Til eru frábærir leikmenn í fótbolta, en það eru líka til ömurlegir leikmenn. Sumir eru taldir góðir, jafnvel
frábærir. Það getur verið fyrir eitt tímabil sem þeir stóðu sig vel með einhverju liði einhvers staðar. Það þýðir
ekki að þeir séu góðir í dag. Sumir leikmenn standa því miður ekki undir umsögnum og athyglinni sem þeir fá.
MIGUEL VELOSO
- SPORTING LISSABON
Frábær í Football Manager og eru fjölmiðlar að
litast af því. Sagður frábær, nánast stórkostleg-
ur og alltaf orðaður við stóru liðin - samt 24 ára
er hann enn bara hjá Sporting.
SERGIO BUSQUETS
- BARCELONA
Virðist komast langt á því að pabbi hans var
einhver goðsögn hjá Barcelona og í spænska
landsliðinu. Klárlega veikasti hlekkur Barce-
lona og var oft valinn fram yfir Eið Smára.
SHAUN WRIGHT PHILLIPS
- MANCHESTER CITY
Er að berjast fyrir því að fá 100 þúsund pund
á viku og hann hefur ekkert sýnt í nokkur ár.
Reyndar skorar
hann reglulega með
enska landsliðinu
en hann er ekki þess
virði.
GAEL CLICHY
- ARSENAL
Gríðarlega fljótur
en er með slakar
fyrirgjafir, er lengi
að snúa úr sókn
í vörn og er ekki
nógu sterkur varnarlega. Hefur staðnað í sín-
um þroska.
JAVIER MAS-
CHERANO
- LIVERPOOL
Merkilegt nokk er hann
yfirleitt rót vandans í
mörkum sem Liver-
pool fær á sig. Eltir illa
mennina sína inn í teig
en hleypur mikið. Kúd-
os fyrir það.
JOHN OBI MIKEL
- CHELSEA
Enginn sérstakur tæk-
lari, gefur alltaf til baka og virðist ekki passa inn
í glamúrlið Chelsea.
ROBINHO
- MANCHESTER
CITY
Að borga 32 milljón-
ir punda fyrir hann
er náttúrlega bara
geðveiki. Ekki fljót-
ur, ekki með góðar
fyrirgjafir en getur
tekið sjö skæri á sex
sekúndum.
LUCAS
- LIVERPOOL
Það hlýtur að vera að Liverpool hafi keypt vit-
lausan Brassa. Einhvers staðar er annar miðju-
maður að brillera sem heitir Lucas. Hefur pott-
þétt ekki fengið að vera með þegar allir voru að
leika sér í strandboltanum.
LASSANA DIARRA
- REAL MADRID
Hann hefur besta umboðsmann í heimi sem
hefur komið hon-
um til Chelsea,
Arsenal og Real
Madrid. Virðist
ekki hafa neitt -
hvað þá að vera
númer 10 í Real
Madrid.
NANI
- MANCHESTER UNITED
Ekki alveg nógu góður. Með slakar fyrirgjafir,
ekki góður að taka menn á og hefur ekki enn
lært á hraðann í Englandi. Er kannski óhepp-
inn að vera Portúgali og eiga að taka við af Ron-
aldo. Spilar samt í gulum skóm.
OFMETNIR
LEIKMENN
ZLATAN IBRAHIMOVIC
- BARCELONA
Hann er kannski ekki ofmetinn í þeim
skilningi að hann er frábær í fótbolta
en í stórleikjum þegar hann á að skila
einhverju floppar hann alltaf. Tölfræð-
in í stóru leikjunum talar sínu máli.