Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 12. mars 2010 FRÉTTIR Skilningur í samfélaginu á alþjóð- legri glæpastarfsemi hefur aukist síðustu misseri. Lögregluyfirvöld sækja sér þekkingu um glæpahóp- ana og starfsaðferðir þeirra með samvinnu við erlend lögregluyfir- völd. Dómurinn í mansalsmálinu í byrjun vikunnar opnaði enn frek- ar augu almennings fyrir þessum heimi sem glæpahópar starfa í. Saga fórnarlambsins í mansals- málinu er sambærileg sögu þús- unda stúlkna úti um allan heim á hverju ári. Alþjóðlegir glæpahóp- ar hafa á síðustu árum lagt mikla áherslu á að neyða ungar stúlkur út í vændi og í langflestum tilfell- um eru stúlkurnar lokkaðar burt frá heimilum sínum með gylliboðum. Sumum er hreinlega rænt. Grein- ingardeildir lögreglu um allan heim hafa gefið það út að mansals- málum eigi eftir að fjölga í framtíð- inni, enda eru tekjurnar af þessari starfsemi glæpahópanna gífurlega miklar. Kókaíngrammið er selt einu sinni á götunni og byssan einu sinni. Fórnarlömb mansals er hins vegar hægt að selja mörgum sinn- um á dag til karlmanna, alla daga ársins. Mansal er í öðru sæti hvað varðar tekjulindir glæpasamtaka í heiminum í dag. Efst trónir vopna- sala, þá kemur mansal og í þriðja sætinu er smygl á fíkniefnum. Mikill vilji til aðgerða Helstu niðurstöður úttektar DV á alþjóðlegri glæpastarfsemi á Ís- landi eru þær að lögreglan hef- ur mikinn vilja til að berjast af alefli gegn þessari ógn við sam- félagið. Stofnanir sem koma að þessum málum hafa verið virkj- aðar til að grípa til aðgerða og má þar nefna Útlendingastofnun sem hefur hraðað vinnu við brottvís- un erlendra glæpamanna. Dóms- málaráðherra hefur einnig mikinn skilning á þessum málum og seg- ir íslensk lögregluyfirvöld standa sig vel í baráttunni gegn alþjóð- legri glæpastarfsemi. Dómsmála- ráðherra hefur hafið vinnu við gerð aðgerðaáætlunar sem hefur það að markmiði að koma með lausn- ir sem á að nýta í baráttunni gegn glæpahópum. „Í framhaldinu verði skoðað hvort það þurfi frekara fjár- magn. Það getur verið að nóg sé fyr- ir lögregluna að forgangsraða,“ seg- ir dómsmálaráðherra. Deilt um heimildir Samkvæmt orðum þingmanna sem DV hefur leitað til virðast ekki mikl- ar líkur á því að aukið fjármagn fáist til löggæslumála á þessu ári. Róbert Marshall, þingmaður Samfylking- arinnar, segir nauðsynlegt að skoða hlutverk stofnana sem hafa með höndum eftirlit og löggæslumál. Það hljóti að vera hægt að sameina embætti og stofnanir og gera kerfið með því bæði skilvirkara og ódýrara. „Við erum að skera niður á öllum sviðum. Gerðum það fyrir áramót um tugi milljarða og það munum við gera aftur í haust. Þess vegna er svo mikilvægt að þeir fjármunir sem fara í löggæslumál séu notaðir eins skynsamlega og kostur er. Núna er tækifæri til að fara í gegnum alla þessa hluti og sjá hvernig fjármun- um sé best varið og til hvaða að- Mansal er í öðru sæti hvað varðar tekjulindir glæpasam- taka í heiminum í dag. Efst trónir vopnasala, þá kemur mansal og í þriðja sætinu er smygl á fíkniefnum. TREYSTA Á ALÞINGI Sæmileg sátt virðist ríkja um tillögur lög- reglunnar um auknar hlerunarheimildir. Þrátt fyrir það má búast við mikilli um- ræðu um mannréttindi þegar málið verður tekið fyrir á Alþingi. Eftirlitsnefnd sé nauðsynleg. JÓHANNES KR. KRISTJÁNSSON blaðamaður skrifar: johanneskr@dv.is 4. hluti Róbert Marshall, þingmaður Sam- fylkingarinnar, situr í allsherjar- nefnd alþingis, en sú nefnd fer meðal annars með lögreglu- og dómsmál. Róbert segir að ef lit- ið sé til reynslu Norðurlandanna hvað varðar skipulagða og alþjóð- lega glæpastarfsemi sé mikilvægt að Íslendingar bregðist við með al- mennilegum hætti. „Nú er sá tímapunktur í okkar stjórnmálasögu að við förum í al- menna endurskoðun á stofnana- kerfi þjóðarinnar því allt snýst þetta um meðferð fjármuna. Stofnana- strúktúr löggæslu-, fangelsis og ör- yggismála á Íslandi er víðfeðmur og flækjustigið mjög hátt. Þessu hef ég kynnst í gegnum nefnd sem ég sit í og fjallar um framtíð Landhelgis- gæslunnar, hvernig ólíkir þættir eft- irlitsmála blandast inn í starfsemi gæslunnar.“ Vill leggja niður ríkislögreglustjóra Róbert hefur mjög ákveðnar skoð- anir á sameiningu embætta. „Við erum komin með of mikla yfirbygg- ingu og við þurfum að setja meiri peninga í rannsóknir og forvarnir og minni peninga í skrifstofuhald. Ég vil fækka yfirmönnum og leggja niður Ríkislögreglustjóraembættið. Við erum með tvær stofnanir þarna þar sem hlutverkaskörunin er mikil og það er einfaldlega hægt að nýta fjármunina mun betur með því að hafa þá alla á einum stað. Hvort sem sá staður er ríkislögreglustjór- inn með ákveðnum greini eða lög- reglustjórinn í Reykjavík er það lögreglan á Íslandi sem á að vera framúrskarandi og með það að markmiði að tryggja öryggi borgar- anna. Ég held að það sjái hver mað- ur sem hefur eitthvað komið nálægt rekstri að þetta er óskynsamlegt fyr- irkomulag og það er hægt að gera það betur. Ég vil taka þessa pen- inga eins mikið og hægt er úr þess- um yfirmannastabba og setja á göt- una – í rannsóknir. Ég held að þetta sé sjónarmið sem margir deila með mér á þingi,“ segir Róbert. Vill forvirkar heimildir Dómsmálaráðherra hefur sagt að hún vilji að sérstakur aðgerðapakki gegn skipulagðri glæpastarfsemi verði settur saman. Róbert seg- ist spenntur fyrir þeirri vinnu og styður tillögur lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og á Suður- nesjum um heimildir til forvirkra rannsóknaraðgerða. „Mansalsmál- ið í síðustu viku á að vekja okkur til umhugsunar um þá ótrúlegu hörku sem einkennir þennan neð- anjarðarheim. Við eigum að vera harðari í okkar landamæravörslu en við höfum verið og við eigum að nýta okkur forvirkar rannsókn- arheimildir eins og lögreglustjórar stærstu embættanna hafa bent á. Eins og þetta er sett fram þarf allt- af að sækja um heimild til rann- sóknar hjá dómara og síðan er það eftirlitsnefndar að fara yfir málið. Markmiðið hlýtur alltaf að vera það að tryggja öryggi borgaranna,“ seg- ir Róbert. Eftirlitsnefnd til staðar Þegar Róbert er spurður hvort hann sé ekki hræddur um að með þess- um heimildum sé gengið á rétt borgaranna svarar hann. „Við erum að tala um kerfi sem lýtur ákveðnu eftirliti, auk þess sem sótt er um heimild til að hefja rannsókn og ef að þetta er vel úr garði gert koma þessar auknu heimildir til með að gagnast borgurunum og eykur ör- yggi þeirra. Það eru öll kerfi þannig að það er hægt að misnota þau með einhverjum hætti og þess vegna er mikilvægt að einhvers konar eftir- litsnefnd fari yfir öll mál.“ Komi betri út Róbert segir mikilvægt að erlend- um glæpamönnum sem sitji í fang- elsi á Íslandi og tengist alþjóðlegri og skipulagðri glæpastarfsemi sé vísað frá landinu og telur að hlúa eigi að þeim sem eru hluti af ís- lensku samfélagi. „Við eigum að vera að fókusera á það að betra þá sem verða aftur hluti af okkur. Við eigum ekki að vera að setja þá inn í fangelsi með forhertum glæpa- mönnum frá öðrum löndum sem kenna þeim öll trixin í bókinni og hefja kannski samstarf við þá. Þetta skilar fólki enn verra á götuna aft- ur. Við höfum í gegnum tíðina sýnt glæpamönnum of mikla lin- kind. Sú tíð er bara liðin að hægt sé að segja að þeir sem fremji glæpi séu fyrst og fremst fórnarlömb fé- lagslegra aðstæðna. Við gerum þá kröfu til fullburða einstaklinga að þeir þekki muninn á réttu og röngu og hvað felist í því að vera hluti af mannlegu samfélagi. En leggjum áherslu á að þeir sem fari „inn“ komi betri út“. RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI VERÐI LAGÐUR NIÐUR Róbert Marshall alþingismaður vill að skoðað verði hvort hægt sé að sameina stofnanir samfélagsins: Ég held að það sjái hver mað- ur sem hefur eitthvað komið nálægt rekstri að þetta er óskynsam- legt fyrirkomulag og það er hægt að gera það betur. JÓHANNES KR. KRISTJÁNSSON blaðamaður skrifar: johanneskr@dv.is Vill sameiningar Róbert Marshall vill fækka yfirmönnum lögreglu og leggja niður embætti ríkislögeglustjóra. Hann segist halda að margir þingmenn séu sammála honum í þessu efni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.