Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 12. mars 2010 FÖSTUDAGUR 11 KOMIÐ ÚT Hátíðardagskrá í Hátíðarsal Háskóla Íslands afmælisdaginn 18. mars 2010, kl. 13:00 – 17:30 Fundarstjóri: Örn Bjarnason yfirlæknir 13:00 – 13:30 Setningarathöfn Ávarp Álfheiðar Ingadóttur heilbrigðisráðherra Afmæliskveðja Margrétar Björnsdóttur, s. forstjóra Lýðheilsustöðvar 13:30 – 14:00 Fyrsti landlæknirinn og umhverfi hans Erla Doris Halldórsdóttir, hjúkrunar- og sagnfræðingur 14:00 – 14:30 Tveir landlæknar á 19. öld og ólíkar áherslur þeirra Ólöf Garðarsdóttir sagnfræðingur 14:30 – 15:00 Georg Schierbeck, landlæknir og garðyrkjumaður Óttar Guðmundsson geðlæknir 15:00 – 15:20 Hlé Fundarstjóri: Sigurður Guðmundsson, fyrrum landlæknir 15:20 – 15:40 Landlæknisembættið og sóttvarnir Þórólfur Guðnason yfirlæknir 15:40 – 16:10 Þróun Landlæknisembættisins í 250 ár Jón Ólafur Ísberg sagnfræðingur 16:10 – 16:15 Afmæliskveðja Ólafur Ólafsson, fyrrum landlæknir 16:15 – 16:30 Lokaorð Geir Gunnlaugsson landlæknir 16:30 – 17:30 Veitingar Málþingið er haldið í samvinnu við Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar og Lækningaminjasafnið og er opið öllum. LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ Directorate of Health 250 ára afmæliLandlæknisembættisins A ug l. Þó rh . 1 23 6. 70 UPPGJÖR BJÖRGÓLFS reikni með að þetta uppgjör á fortíð hans og eignum taki um það bil sex mánuði til viðbótar. Björgólfur mun því þurfa að bíða í einhvern tíma til viðbótar áður en uppgjörinu lýkur. Hvað tekur við hjá honum eftir það er óljóst enda mun hann ekki hafa hugsað mikið um framtíðina upp á síðkastið: Fókusinn hefur fyrst og fremst verið á fortíðina og hrunið. Stærsta gjaldþrotið Meðal þess sem verið er að gera upp í tengslum við Björgólf er þrota- bú hans sjálfs en kröfulýsingar í það nema meira en 100 milljörð- um króna. Langstærsti hluti þess- ara krafna er vegna persónulegra ábyrgða sem Björgólfur gekkst í og er Landsbankinn stærsti kröfuhafinn með 70 milljarða króna kröfu. Kröfurnar í þrotabú Samsonar nema svo um 80 milljörðum króna, en nokkrar stefnur hafa verið gefnar út á hendur Björgólfi úr þrotabúinu og eru þau mál til meðferðar í dóms- kerfinu. Kröfurnar í önnur tvö félög sem tengjast Björgólfi, Grettisfélög- in tvö, nema samtals tæpum 55 millj- örðum króna. Björgólfur bíður því meðal ann- ars eftir uppgjöri þessara þrotabúa og annarra mála sem honum tengj- ast á meðan hann veltir fyrir sér for- tíð sinni á liðnum árum og þeim mistökum sem hann hefur gert. Nið- urstaða hans úr þeim bollalegging- um mun hins vegar vart fyrir koma fyrir augu almennings í viðtölum í fjölmiðlum fyrr en eftir að rannsókn- arskýrslan kemur út. Aðeins þá fyrst er líklegt að Björgólfur rjúfi þögnina og tjái sig um stöðu sína og líðan eft- ir bankahrunið og uppgjörið við það sem nú er í algleymingi. Á meðan liggur Björgólfur undir feldi og hugs- ar sinn gang. Bíður og bíður Björgólfur Guðmundsson bíður nú átekta eftir því sem verða vill þegar skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis kemur út. Hann hefur hægt um sig þessa dagana, sleikir sárin og reynir að aðstoða skiptastjóra þeirra fjögurra þrotabúa sem hann tengist við uppgjör þeirra. Björgólfur sést hér með Þóru Hallgrímsson konu sinni. Frá Samson til hruns Björgólfur bíður nú eftir skýrslunni þar sem fjallað verður um árin frá einkavæðingu Landsbankans og Búnaðarbankans og fram að hruni þeirra. Björgólfur sést hér ásamt syni sínum Björgólfi Thor og Magnúsi Þorsteinssyni um það leyti sem þeir keyptu Landsbankann árið 2002.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.