Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Síða 6
Klettaklifrarinn Elísabet Birgis-
dóttir var heppin að ekki fór verr
þegar hún féll niður sex metra við
klettaklifur nærri bænum Adel-
eide í Ástralíu á þriðjudaginn. Hún
handleggsbrotnaði á báðum en að
mati lögreglunnar í Ástralíu var
mildi að ekki fór verr. Elísabet er
31 árs sjúkraþjálfari og lauk meist-
aranámi í Ástralíu fyrir stuttu. Hún
hefur verið búsett þar í nokkur ár
ásamt kærasta sínum Hilmari Ingi-
mundarsyni en þau eiga soninn
Tómas sem er fjögurra ára.
Reynd klifurkona
Í samtali við DV segir Birgir Bjarna-
son, faðir Elísabetar, að hún sé
mjög reynd klifurkona og hún hafi
verið að klifra bæði á Íslandi og í
Ástralíu undanfarin ár. „Hún var
búin að klifra þarna oft og mörgum
sinnum og þekkti mjög vel aðstæð-
ur,“ segir hann. Að sögn Birgis urðu
mannleg mistök til þess að Elísabet
féll. „Það gerist stundum að þegar
klifrarar detta þurfa þeir sem halda
um línuna niðri að vera viðbúnir
að halda línunni strekktri. Stelpan
sem var niðri náði því ekki,“ seg-
ir Birgir en tekur fram að slíkt geti
þó alltaf gerst og ekkert við hana
að sakast í þeim efnum. Lögregl-
an var kölluð á staðinn. „Það var
nokkuð bratt upp að klettunum þar
sem hún var og því líklega betra að
senda þyrlu þangað,“ segir Birgir.
Útivistarfíklar
Að sögn Birgis hefur hann ekki
fengið að vita tildrög slyssins í
þaula. Hann og móðir hennar hafa
verið í einhverju símasambandi
við hana. Elísabet sé búin að vera
á sterkum verkjalyfjum til að lina
sársaukann í höndunum. Birg-
ir segir að klifuráhugi Elísabetar
komi frá kærastanum Hilmari Ingi-
mundarsyni. „Hann er þaulvanur
fjallamaður. Hefur verið í björgun-
arsveit á Íslandi og klifrað í Nepal
svo fátt eitt sé nefnt. Þau hafa klifr-
að mikið saman,“ segir hann.
Fyrrverandi landsliðs-
kona í fimleikum
„Elísabet var í aðgerð í gær sem
heppnaðist vel. Hún verður í gifsi
næstu tvo mánuði en læknar segja
að Elísabet ætti að vera búin að
jafna sig í höndunum og geta náð
fullum bata eftir sex mánuði,“ segir
hann. Það sé mikilvægt fyrir hana
að ná sér fljótt til þess að geta sinnt
starfi sínu sem sjúkraþjálfari.
Að sögn Birgis fer kærasti henn-
ar fljótlega í vettvangsnám til Kína.
„Hann fer til Kína í hálfan mán-
uð. Það er spurning hvernig hún
spjarar sig á meðan. Það er verið
að meta það hvort við foreldrarnir
þurfum ekki bara að skella okkur til
Ástralíu til að hugsa um hana,“ seg-
ir hann.
6 FÖSTUDAGUR 12. mars 2010 FRÉTTIR
SKOTIÐ Á HANNES
n Áhrif skattahækkana á hagvöxt og
lífskjör heitir nýjasta bók Hannes-
ar Hólmsteins
Gissurarsonar.
Þar skoðar hann
skattamál og
metur reynsluna
af skattalækkun-
um. Laffer-kúrf-
an er í lykilhlut-
verki á kápu
bókarinnar og
ljóst að Hannes er mjög sannfærður
um ágæti þeirrar kenningar. Örfáum
dögum áður en bókin kom út skrifaði
flokksbróðir hans, Deiglupenninn og
hagfræðineminnn Hafsteinn Gunnar
Hauksson, pistil og taldi kenninguna
ofmetna. „Stóri feill okkar hægri-
manna felst hins vegar ekki í því að
tala fyrir kenningu sem gengur mis-
vel upp, heldur í því að halda að hún
skipti einhverju höfuðmáli.“ Pistlin-
um virðist beint til höfuðs Hannesi.
LÍK Í LESTINNI
n Benedikt Erlingsson leikari vakti
mikla athygli fyrir ræðu þegar hann
tók við Menningarverðlaunum DV
í leiklist fyrir
Jesúm litla ásamt
félögum sínum
Halldóru Geir-
harðsdóttur og
Bergi Þór Ingólfs-
syni. Benedikt
vakti kátínu þegar
hann sagði erfitt
að taka við verð-
launum úr hendi gagnrýnanda því
að með því væri hann að viðurkenna
vald gagnrýnandans. Öllu meiri at-
hygli vakti þó hörð gagnrýni hans á
Reyni Traustason, ritstjóra DV. Bene-
dikt sagðist vilja feta í fótspor Jesú litla
og velta um borðum í musterinu, það
gerði hann best með því að benda á
smákónga sem væri nóg af í samfé-
laginu. Einn þeirra væri Reynir sem
hann skammaði fyrir atlögu að heiðri
blaðamannsins Jóns Bjarka Magn-
ússonar þegar sá hætti á DV skömmu
fyrir jól 2008 og greindi frá samtölum
þeirra um hótanir í garð DV og frétt
sem ekki birtist.
ÞRJÚ GLÖS AF VÍNI
n Auglýsing frá starfsmannafélagi
Arion banka Finns Sveinbjörnssonar
hefur gengið manna á milli á netinu.
Verið er að auglýsa árshátíð félagsins
sem fram fer á næstunni. Í auglýs-
ingunni er farið
yfir matseðil
kvöldsins sem
er hefðbundinn
með tilheyr-
andi risarækj-
um, nautalund,
trufflumeðlæti
og desertmús.
Það sem vekur at-
hygli við auglýsinguna er hins vegar
ekki maturinn heldur drykkjarföng-
in sem í boði eru: Tekið er fram að
með matnum sé boðið upp á 3 glös af
víni. Einhverjir hafa haft orð á því að
þessi vínglasaskömmtun sýni betur
en margt annað að það er af sem áður
var í bönkunum.
BJÖRGÓLFUR THOR
FALLINN AF LISTANUM
n Kannski markar það endanleg lok
íslensku útrásarinnar að nú skuli ekki
lengur vera einn einasta Íslending að
finna á lista Forb-
es yfir ríkustu
menn heims. Það
þótti merkur við-
burður og margir
fögnuðu þegar
Björgólfur Thor
Björgólfsson
komst á listann
fyrstur Íslend-
inga. Ýmsum þótti það til marks um
að Ísland væri komið til að vera sem
hluti af viðskiptalífi heimsins. Nú er
hún Snorrabúð stekkur og Björg-
ólfur fallinn af listanum. Eitt sinn
átti Björgólfur Thor þrjá og hálfan
milljarð Bandaríkjadollara að því er
sérfræðingar Forbes mátu auð hans.
Nú er hins vegar ljóst að hann hefur
tapað meira en tveimur þriðju hlutum
eigna sinna því lágmarksupphæðin
til að komast inn á lista Forbes er einn
milljarður dollara í eignir.
SANDKORN
HRAPAÐI SEX
METRA Í KLIFRI
Sjúkraþjálfarinn Elísabet Birgisdóttir féll niður sex metra og brotnaði á báðum hönd-
um við klettaklifur. Atvikið átti sér stað nærri bænum Adeleide í Ástralíu þar sem hún
hefur verið búsett undanfarin ár ásamt kærasta sínum og syni þeirra. Faðir hennar
telur að Elísabet verði fljótlega farin að klifra aftur.
ANNAS SIGMUNDSSON
blaðamaður skrifar: as@dv.is
Skúli Skúlason, eigandi Capacent ráðinn til Orkuveitunnar:
Eftirsóttir starfsmenn Capacent
Skúli Skúlason, einn eigenda ráðn-
ingarfyrirtækisins Capacent, var
ráðinn í starf sviðsstjóra þjónustu-
sviðs Orkuveitu Reykjavíkur í byrjun
febrúar. Capacent sá um ráðninguna
í starfið og var Skúli starfsmaður og
einn eigenda Capacent þegar hann
var ráðinn í starfið. Heimildir DV
herma að um 280 hafi sótt um starfið
sem Skúli var ráðinn í. Hann er með
BS próf í viðskiptafræði og starfaði
áður hjá Reykjavíkurborg.
Á miðvikudaginn sagði DV frá
því að Capacent hefði séð um ráðn-
ingu kúlulánþegans Magnúsar
Bjarnasonar í starf framkvæmda-
stjóra markaðs- og viðskiptaþróun-
ar Landsvirkjunar sem tilkynnt var
um á mánudaginn var. Magnús starf-
aði líkt og Skúli hjá Capacent þeg-
ar hann var ráðinn í starfið. Magnús
skuldar skilanefnd Glitnis 640 millj-
ónir króna vegna kúluláns sem hann
fékk til hlutabréfakaupa í Glitni með-
an hann var framkvæmdastjóri hjá
bankanum.
„Það er ekkert óeðlilegt að starfs-
fólk Capacent sæki um störf sem
fyrirtækið auglýsir og fái þau,“ sagði
Gunnar Haugen, framkvæmdastjóri
ráðninga hjá Capacent, á miðviku-
daginn þegar hann var inntur eft-
ir því hvort eðlilegt væri að Magnús
hefði verið ráðinn til Landsvirkjunar.
Hann sagði að eina reglan sem gildi
við slíkar ráðningar sé að umsækj-
andi njóti fyllsta trúnaðar hjá þeim
sem sér um ráðninguna gagnvart yf-
irmönnum Capacent. Sagði Gunnar
fjölmörg dæmi þess að starfsmenn
hjá Capacent hafi sótt um störf sem
fyrirtækið sá um að ráða í og fengið
þau. Það vekur þó nokkra athygli að
nú þegar rúmlega tveir mánuðir eru
liðnir af árinu 2010 hafi Capacent
þegar ráðið tvo háttsetta starfsmenn
sína í störf sem fyrirtækið auglýsir og
sér um að ráða í. as@dv.is
Þaulvanur klettaklifrari
Elísabet er þaulvön klettaklifri
og hefur mikið klifrað á Íslandi
og í Ástralíu undanfarin ár.
MYNDIR ÚR EINKASAFNI
Það var nokk-uð bratt upp að
klettunum þar sem hún
var og því líklega betra
að senda þyrlu þangað.
Sjúkraþjálfari Elísabet er
menntaður sjúkraþjálfari. Það
verður því erfitt fyrir hana að
sinna starfi sínu næstu mán-
uði en talið er að hún verði
búin að ná sér í höndunum
eftir sex mánuði.
Vinsælir Tveir toppar hjá Capacent
hafa verið ráðnir í störf sem fyrirtækið
sá um ráðninguna í á fyrstu mánuðum
ársins 2010. MYND SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON