Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 12. mars 2010 FRÉTTIR
Almenningsþjónusta og samgöngur
á Grikklandi lágu niðri á fimmtudag
vegna þriðju lotu allsherjarverkfalls
í mótmælaskyni við harkalegar að-
gerðir ríkisstjórnarinnar.
Flug lá niðri og skólar og sjúkra-
stofnanir voru lokuð vegna sól-
arhrings vinnustöðvunar innan
tveggja stærstu stéttarfélaganna.
Ríkisstjórnin lýsti yfir skilningi á
reiði almennings vegna skattahækk-
ana og launalækkana, en hyggst ekki
hvika frá ákvörðunum sínum. For-
maður vinnuveitendasambandsins
sakaði verkfallsmenn um tilraun til
að gera Grikkland að góðgerðarmáli,
en viðskiptahalli landsins er 12,7
prósent eða fjórum sinnum meiri en
reglur innan evrusvæðisins leyfa.
Ríkisstjórn landsins hefur heit-
ið að minnka viðskiptahallann nið-
ur í 8,7 prósent á þessu ári og lækka
að auki þjóðarskuldirnar með því
að lækka laun í opinbera geiranum,
hækka eftirlaunaaldur og hækka
virðisaukaskatt. Skuldir þjóðarinnar
nema nú um 300 milljörðum evra.
Helmingur vinnandi fólks
Síðan aðgerðir ríkisstjórnarinnar
voru tilkynntar í fyrra mánuði hafa
mótmæli og verkföll litað grískt sam-
félag og í síðustu aðgerðum fóru
flugumferðastjórar í sólarhrings
verkfall og ferjur voru við festar í
höfnum því stéttarfélög sjómanna
fóru í verkfall. Gert var ráð fyrir því
í gær að lögreglan, slökkviliðsmenn
og tollverðir slægjust í hóp mótmæl-
enda.
Verkföllin eru skipulögð af tveim-
ur stærstu verkalýðsfélögum lands-
ins, GSEE í einkageiranum og syst-
urfélagi þess, ADEDY í opinbera
geiranum, en innan vébanda þeirra
er um helmingur vinnandi fólks í
Grikklandi og innan þeirra er ríkj-
andi sú skoðun að aðhaldsaðgerðir
ríkisstjórnarinnar, sem njóta stuðn-
ings Evrópusambandsins, muni fyrst
og fremst bitna á hinum fátæku og
auka á fjárhagsvanda þjóðarinnar.
„Á milli gjaldþrots og kreppu,
á milli steins og sleggju, er eng-
inn annar kostur í stöðunni,“ sagði
Dimitris Daskalopoulos, fram-
kvæmdastjóri vinnuveitendasam-
bands Grikklands. Daskalopoulos
fordæmdi götumótmælin og sagði
verkfallsmenn vilja viðhalda hinu
sorglega ástandi sem neytt hefur
Grikki til að leita ölmusu hjá öðrum
þjóðum.
Stuðningur frá
Evrópusambandinu
Leiðtogar Evrópusambandsland-
anna hafa heitið Grikkjum aðstoð,
en hafa þó ekki gefið upp hvernig sú
aðstoð verður í framkvæmd.
„Ef Grikkland þarf fjárhagsaðstoð
mun evrusvæðið styðja það,“ sagði
Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti á
sunnudaginn, og bætti við að til þess
væru félagar.
Annað var uppi á teningnum hjá
Angelu Merkel, kanslara Þýskalands,
fyrir viku þegar hún hitti George Pap-
andreou. Við það tækifæri forðaðist
hún að gefa Papandreou skuldbind-
andi heit um fjárhagsaðstoð. „Þýska-
land getur lýst yfir samstöðu. Við
erum hér til að hjálpa, sýna skilning,“
sagði Angela Merkel.
Tveir þýskir þingmenn stungu
upp á því að Grikkir seldu eyjar sín-
ar og forna gripi til að laga viðskipta-
hallann og í mótmælaskyni hafa
Grikkir sniðgengið þýskar vörur.
Skoðanakannanir í Þýskalandi
sýna að yfirgnæfandi andstaða er á
meðal Þjóðverja gegn fjárhagsleg-
um björgunaraðgerðum af hálfu
Þýskalnds Grikkjum til handa.
Í slæmum málum
Lítill vafi leikur á umfangi spillingar
í Grikklandi og samkvæmt skýrslu
Transparency International-stofn-
unarinnar er að minnsta kosti 780
milljónum evra, um 150 milljörðum
króna, árlega varið í mútur í opin-
bera geiranum til að liðka fyrir hlut-
um.
Velta svarta hagkerfis landsins
er áætluð 30 prósent af vergri þjóð-
arframleiðslu. Árlegur kostnaður
grísku stjórnsýslunnar ku vera um
átján milljarðar evra á ári, en henni
hefur ekki verið hampað fyrir skil-
virkni innan OECD. Árið 2008 taldist
Alþjóðavinnumálastofnuninni til að
1.022.100 manns ynnu hjá hinu op-
inbera, sem svarar til um 22 prósenta
alls vinnuafls landsins. Hjá öðrum
ríkjum er hlutfallið um 14 prósent.
Í Grikklandi er algengt að opin-
berir starfsmenn hafi fengið starfið
vegna tengsla og í könnun sem gerð
var fyrir Information Society kom í
ljós að mikill fjöldi þeirra býr að tak-
markaðri tölvuþekkingu. Engu að
síður hækkuðu laun og eftirlaun um
30 prósent og launakostnaður hins
opinbera hækkaði um 88 prósent frá
2001.
Á vormánuðum þarf Grikkland að
endurfjármagna stóran hluta skulda
þjóðarinnar eða eiga á hættu að geta
ekki greitt af lánunum. Eins og mál-
um er nú háttað gera gríðarmiklar
skuldir Grikkja að verkum að mun
dýrara er fyrir Grikki að taka lán mið-
að við aðrar Evrópuþjóðir.
Forsætisráðherrann hefur leitað
aðstoðar annarra þjóða innan evru-
svæðisins svo Grikkir geti fengið
ódýrari lán á alþjóðlegum fjármála-
mörkuðum og leiðtogar Evrópu-
sambandsins hafa heitið að hjálpa
Grikkjum, en ekki upplýst nánar um
beinar aðgerðir.
George Papandreou fór til fund-
ar við Barack Obama Bandaríkjafor-
seta fyrr í vikunni og fór þess á leit að
hann beitti sér gegn spákaupmönn-
um sem, að sögn Papandreous,
reyndu að grafa undan Grikklandi.
FARIÐ FYRR Á FÆTUR!
Mótmæli og verkföll hafa sett svip sinn á grískt samfélag síðan
ríkisstjórnin tilkynnti um aðgerðir til að vinna bug á miklum
viðskiptahalla og bágum fjárhag landsins í fyrri mánuði. Skatta-
hækkanir og launalækkanir fara fyrir brjóstið á landsmönnum
sem hafa sýnt andstöðu sína í verki.
n Í kjölfar tillögu þingmannanna tveggja um að Grikkir seldu eyjar sínar, sögu-
frægar byggingar og listmuni birtist í þýska tímaritinu Bild opið bréf til George
Papandreou forsætisráðherra Grikklands.
„Kæri forsætisráðherra.
Ef þú ert að lesa þetta þá ertu kominn í land ólíku þínu. Þú ert í Þýskalandi.
Hér vinnur fólk til 67 ára aldurs og ekkert sem heitir fjórtándi launamánuðurinn
fyrir opinbera starfsmenn. Hér þarf enginn að greiða 1.000 evra mútur til að fá
sjúkrahúspláss tímanlega.
Á bensínstöðvum eru afgreiðslukassar, leigubílstjórar gefa kvittun og bændur
svindla ekki á styrkjakerfi Evrópusambandsins með milljónum ólífutrjáa sem
fyrirfinnast ekki.
Þýskaland skuldar mikið en við stöndum undir þeim skuldum. Það er vegna þess
að við förum snemma á fætur og vinnum allan daginn.
Við viljum vera vinir Grikkja. Þess vegna hefur Þýskaland, síðan þið tókuð upp
evruna, gefið ykkar landi 50 milljarða evra.“
Opið bréf til til Grikkja
Þýskaland get-ur lýst yfir sam-
stöðu. Við erum hér til
að hjálpa, sýna skilning,“
sagði Angela Merkel.
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Evrópusambandsfáninn með
Akropolis í baksýn Þýskir þingmenn
hvöttu Grikki til að selja sögufrægar
byggingar. MYND AFP
Óeirðalögreglan tekst á við
mótmælendur Tvö stærstu
verkalýðsfélög Grikklands standa að
baki verkföllum í landinu. MYND AFP