Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Side 21
HELGARBLAÐ 12. mars 2010 FÖSTUDAGUR 21
Eitt mesta leyndarmál popp-sögunnar og tilefni vanga-veltna er lagið You’re So Vain eftir söngkonuna Car-
ly Simon. Lagið kom upphaflega út
árið 1972 og fjallar um sjálfhverfan
elskhuga sem Carly Simon segir að
sé „svo hegómlegur“ að hann „haldi
sennilega að lagið sé um hann“.
Síðan lagið kom út hefur spurn-
ingin um hvern lagið fjallar brunnið
á fólki og hefur Carly sjálf kynt und-
ir með því að gefa litlar vísbendingar
um svarið.
Í nýrri útgáfu lagsins sem kom
út í ár á plötunni Never Been Gone
er að sögn Carly að finna vísbend-
ingu um elskhugann hégóm-
lega. „Ég ætla bara að segja þér
þetta. Svarið er að finnaí nýrri
útgáfu You’re So Vain. Það er
smá hvísl – og í því liggur svar-
ið,“ sagði Carly Simon í viðtali
við tímaritið Uncut.
Spilað afturábak
En málið er flóknara en svo því
það er nauðsynlegt að spila
hvíslið afturábak til að heyra
hvað raunverulega er hvísl-
að. Árið 1972, á tímum gömlu
góðu hljómplötunnar sem
hægt var að spila báðum meg-
in, hefði það ekki verið mik-
ið mál, en í dag er það eilítið
snúnara.
Hvað sem því líður heyr-
ist nafnið David þegar hvíslið
er spilað afturábak. En David
hver? Áður en lagt er upp í leit
að því svari er vert að líta á þá
sem nefndir hafa verið til sög-
unnar.
Kyntröllið og leikarinn
Warren Beatty hefur oftar
en ekki verið talinn umfjöll-
unarefni lagsins. Og í viðtali
árið 1989 viðurkenndi Carly
að lagið væri að litlu leyti um
hann, en bætti við að í raun
væri um að ræða umfjöllun
um þrjá karlmenn frá dögum
hennar í Los Angeles um það
leyti sem lagið var sam-
ið. Sjálfur virðist Warren
ekki velkjast í vafa því í
viðtali árið 2007 sagði
hann: „Verum ærleg.
Þetta lag var um mig.“
Sjálf hefur Carly látið
hafa eftir sér að Warr-
en hafi hringt í hana og
þakkað henni fyrir lagið.
Jagger og Geffen
Árið 1983 sagði Car-
ly að lagið fjallaði ekki
um Mick Jagger, sem
reyndar lagði til sinn
skerf í bakröddum þess.
Árið 1993 sagði Angela
Bowie, fyrrverandi eig-
inkona Davids Bowie,
í bók sinni Backstage
Passes að hún væri ná-
inn vinur þess sem lag
Carly fjallaði um, og að
Mick Jagger hefði haft Carly á heil-
anum á tímabili. Í ljósi fullyrðingar
Carly kemur Mick Jagger þó varla til
greina.
Í ljósi þess að nafnið David er
hvíslað afturábak í nýrri útgáfu lags-
ins hafa augu beinst að David Geff-
en. Geffen var á sínum tíma yfirmað-
ur hjá Elektra, útgáfufyrirtæki Carly
Simon og samkvæmt einni kenn-
ingu byggðist lagið á afbrýðisemi
Carly Simon í garð annarrar söng-
konu, Joni Mitchell, sem var einnig
á mála hjá útgáfufyrirtækinu, sem
naut meiri athygli af hálfu David
Geffen en Carly hugnaðist.
Enginn frægur
Skömmu áður en Carly samdi lagið
giftist hún tónlistarmanninum Jam-
es Taylor, en hún hefur fullyrt að
hann sé „örugglega ekki“ umfjöll-
unarefnið. Hins vegar hafa tónlistar-
mennirnir Kris Kristofferson, David
Bowie, Cat Stevens (nú Ysuf Islam)
og David Cassidy allir verið nefnd-
ir í sömu andrá og lagið. Reyndar
sagði fyrrverandi eiginmaður Carly
Simon, Jim Hart, árið 2005 að hann
væri þess fullviss að lagið fjallaði
ekki um neinn frægan.
Fjölmiðlamaðurinn Howard
Stern sagði árið 2008 að Carly hefði
trúað honum fyrir sannleikanum
um yrkisefnið í You’re So Vain, og
það ætti sér örlítið skrítna hlið því
náunginn sem um ræddi væri „ekki
svo hégómlegur“.
Enginn skyldi velkjast í vafa um
að Carly leiðast ekki vangavelturnar
sem lagið hefur valdið. Með nánast
reglulegu millibili gefur hún upp vís-
bendingar sem leiða eiga fólk í sann-
leikann. Árið 2003 upplýsti Carly um
að bókstafurinn „E“ væri í nafninu.
Fyrir hafði hún gefið upp stafinn „A“
og árið 2004 bættist þriðji stafurinn
við - „R“. Ef ummæli Jims Hart frá
2005 eiga við rök að styðjast þá er lít-
il hjálp í vísbendingum Carly Simon.
Leiðist ekki vangavelturnar
Í viðtali við CNN árið 2002 sagði
Carly Simon að viðfangsefni henn-
ar í You’re So Vain kæmi fyrir í fleiri
lögum. „Það eru alltaf vísbendingar í
öðrum lögum. Náunginn kemur oft
fyrir í lögunum mínum,“ sagði Carly.
Ljóst má telja að Carly leiðist
ekki sá áhugi sem lagið hefur búið
að í nánast fjóra áratugi og áhuginn
nú hefur mikið auglýsingagildi. Ný
plata Carly er nýkomin út og á vef-
síðu sinni hefur Carly tilkynnt um
keppni þar sem aðdáendum og kvik-
myndagerðarfólki er boðið að nota
lagið, í gömlu eða nýju útgáfunni, í
tónlistarmyndband.
Carly hyggst fara sjálf yfir afrakst-
urinn, velja og hitta sigurvegarann,
auk þess sem vinningsmyndbandið
verður sýnt á Tribeca-kvikmyndahá-
tíðinni í ár.
Í hartnær fjörutíu ár hefur fjöldi tónlistaráhugamanna velt fyrir sér hvaða karlmaður væri yrkisefni Carly
Simon í laginu You’re So Vain. Í nýrri útgáfu lagsins er að sögn Carly að finna falda vísbendingu um sann-
leikann í málinu, en það er viðbúið að svarið verði leyndarmál enn um sinn
Fjörutíu ára
RÁÐGÁTA
Fjölmiðlamaður-inn Howard Stern
sagði árið 2008 að Carly
hefði trúað honum fyrir
sannleikanum um yrk-
isefnið í You’re So Vain,
og það ætti sér örlítið
skrítna hlið því náung-
inn sem um ræddi væri
„ekki svo hégómlegur.“
Carly Simon Leiðist
ekki áhuginn sem
You’re So Vain nýtur.
Gamla brýnið Mick
Jagger var víst með Carly
á heilanum í eina tíð.
Ysuf Islam Hefur verið nefnd-
ur til sögunnar sem mögulegt
yrkisefni Carly Simon.
Tónlistarmaðurinn Joni Mitchell
Afbrýðisemi í hennar garð hugsan-
lega tilefni lags Carly Simon.