Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Page 23
Hver er maðurinn? „Patrekur Jóhannesson, íþróttafulltrúi Garðabæjar.“ Hvaðan ertu? „Uppalinn í Garðabæ.“ Hvað drífur þig áfram? „Það er bara metnaður í starfi og gaman að lifa.“ Hver er fyrsta minning þín úr æsku? „Það var þegar litli bróðir minn fæddist.“ Hver er þín fyrirmynd? „Móðir mín náttúrlega í lífinu. Ég átti líka margar góðar í íþróttunum.“ Hver eru þín áhugamál? „Íþróttir númer eitt, tvö og þrjú.“ Fylgistu með öllum íþróttum? „Ég reyni það. Ég fylgist náttúrulega mikið með handbolta og hef gert í gegnum árin en eftir að ég tók við sem íþróttafulltrúi hér í Garðabæ fylgist ég með nánast öllu.“ Hvaða bók er á náttborðinu? „Eftir hann Karl Ágúst, hamingjubókin. Hún var helvíti góð. Ég var ánægður með hana.“ Hver er besta kvikmynd sem þú hefur séð? „Þær eru margar góðar.“ Var kominn tími á að bjóða upp á betri mat í íþróttamiðstöðvum? „Já, mér finnst það. Allavega að hafa þennan möguleika. Að fólk geti valið á milli – þannig að það sé ekki bara hægt að borða sælgæti.“ Er mataræði ungra krakka ábótavant? „Samkvæmt þeim rannsóknum sem hafa verið gerðar og fræðimenn tala um í dag. Ég hef verið mikið á mörgum fyrirlestrum um mataræði íslenskra barna og við erum alltaf að fitna og það þarf að huga að þessum þáttum. Ég er svo heppinn að starfa í þessum geira og geta haft áhrif á þetta svo mig langaði að gera þetta.“ Er þetta komið til að vera? „Alveg pottþétt.“ Heldur Stjarnan sæti sínu í efstu deild? „Það er markmiðið og ég er sannfærður um að við náum því. Það er jafnpottþétt og með ávextina.“ Hvað er fram undan? „Ég er að fara á fund hjá Golfklúbbi Garðabæjar um afreksstefnu og svo er leikur fram undan við Akureyri og þar er stefnan sett á tvö stig.“ UM HVAÐ VERÐUR KOSIÐ Í NÆSTU ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU? „Við erum búin að kjósa stjórnir til að taka þessar ákvarðanir og því ekki að láta þær taka þær?“ BRAGI ÓSKARSSON, 74 ÁRA ELDRI BORGARI „Það er ég ekki með á hreinu. Málin verða að fá að þróast.“ SIGURBERGUR HAUKSSON, 62 ÁRA SJÓMAÐUR „Um næsta Icesave-samning.“ GUÐMUNDUR BÖÐVARSSON, 52 ÁRA BÍLSTJÓRI „Um inngöngu í Evrópusambandið, held ég.“ STEINMAR GUNNARSSON, 45 ÁRA NEMI DÓMSTÓLL GÖTUNNAR PATREKUR JÓHANNESSON, íþróttafulltrúi Garðabæjar, hefur tekið áskorun frá Lýðheilsustöð um að bjóða upp á hollari mat í íþróttamiðstöðvum. Þá verður hægt að kaupa ávexti, heilsusamlokur, bláberja- og jarðar- berjabúst, pastabakka og ávaxtabakka í íþróttamiðstöðinni við Ásgarð. Á AÐ VERA HÆGT AÐ VELJA Á MILLI „Um Evrópusambandið, hlýtur að vera.“ SIGURLAUG O. STURLAUGSDÓTTIR, 74 ÁRA ELDRI BORGARI Það hlýtur að vera erfitt að vera sat- íristi á Íslandi í dag. Raunveruleik- inn er fáránlegri en nokkurt abs- úrdistaleikhús gæti komið til skila. Ég er líklega orðinn jafn leiður á að skrifa um Icesave-málið og þú, kæri lesandi, ert orðinn leiður á að lesa um það. Eigi að síður er þetta það mál sem enn þarf að leysa og því þarf víst að ræða það enn um stund. Flestum er kunnugt um hversu mikill viðsnúningur flokkanna hef- ur orðið eftir því hver situr í stjórn og hver í stjórnarandstöðu. Samt er talsverður munur á þessum við- snúningi. Þegar Steingrímur J. Sig- fússon var í stjórnarandstöðu sagði hann að helst ætti að skila láninu frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og töldu margir að hann hefði þá talað af sér. Slíkt myndi enginn ábyrgur stjórn- málamaður leggja til. Þegar hann hins vegar komst í stjórn og hafði aðgang að þeim gögnum sem fjár- málaráðuneytið býr yfir skipti hann snarlega um skoðun. Endalaus- ar deilur við umheiminn gera eng- um gagn, nema þá helst óvinsælum stjórnmálamönnum sem vilja höfða til þjóðernishyggju frekar en skyn- semi til að bæta fylgi sitt. Heilindi eða klókindi Viðsnúningur Sjálfstæðisflokksins er annars eðlis. Hann hafði sjálfur samið um lausn Icesave-deilunn- ar, en skipti síðan um skoðun þegar hann missti völdin. Sjálfstæðismenn mátu það svo að Icesave-deilan væri besta leiðin til að koma höggi á ríkisstjórnina. Þeir mátu þá stöðu rétt. Það var fyrst þegar þeim virtist í raun ætla að takast að koma í veg fyrir Icesave-samning í byrjun árs að þeir fóru að draga í land, enda óttast þeir að lenda í stjórn með óleysta Icesave-deilu á herðum sér. Þá vita þeir, rétt eins og ríkisstjórn- in nú, að deiluna þarf að leysa með samningum, og mun þá verða enn annar viðsnúningurinn. Steingrímur starfar af heilind- um, en ekki endilega af miklum pólitískum klókindum. Hann fékk Icesave-málið í arf og hefur lagt mikið undir til að leysa það, enda telur hann hag þjóðarinnar best borgið með slíku. Ef til vill hefði verið betra fyrir pólitískt líf hans ef hann hefði frá upphafi stjórn- arsetu hafnað því að borga Icesa- ve. Það er lítill vafi á því að ef hann hefði gert það hefðu sjálfstæðis- menn skorið upp herör gegn rík- isstjórninni, krafist þess að samið yrði um Icesave og lýst því yfir að vinstrimenn væru ótækir í stjórn þar sem þeir virða ekki alþjóðlegar skuldbindingar. Andúð sjálfstæð- ismanna var alltaf gefin, það var bara spurning um hvaða rökum þeir myndu beita. Ef ríkisstjórnin væri með Icesave yrðu þeir á móti, ef ríkisstjórnin væri á móti yrðu þeir með. Hægri og vinstri í hring Með því að hafna Icesave hefði vinstrimönnum þó tekist að þétta sínar eigin raðir. Steingrímur hefði staðið uppi sem eldheitur hug- sjónamaður, frekar en sá prakt- íski stjórnarmaður sem hann hef- ur reynst. Þetta hefði styrkt bakland hans, á meðan óvinirnir hefðu haldið áfram að vera óvinir hvort eð er. Núna er hins vegar sú undarlega staða komin upp að sumir af helstu gagnrýnendum stjórnarinnar eru þeir sem eru lengst til vinstri og beita fyrir sig nánast nákvæmlega sömu rökum og þeir sem eru lengst til hægri. Niðurstaðan af þessu er augljós. Vinstrimönnum hefur mistekist að standa saman og Sjálfstæðisflokk- urinn mun fyrr eða síðar, líklega frekar fyrr, komast aftur til valda. Það eina sem getur breytt stöðunni er rannsóknarskýrslan, sem engin leið er að sjá fyrir hvaða áhrif muni hafa. Líklegt er þó að eini flokkur- inn sem komi nokkuð klakklaust út úr því sé Vinstri-grænir, sem er eini flokkurinn sem ekki getur talist bera ábyrgð á hruninu. Það er einn- ig líklegt að sjálfstæðismenn, sem bera höfuðábyrgðina, muni reyna hvað þeir geta að koma stjórninni frá áður en hin raunverulega til- tekt byrjar. Þeir hafa þó ekki þing- meirihluta fyrir því, enn sem kom- ið er. Til þess að geta fellt stjórnina þurfa þeir fyrst að kljúfa Vinstri- græna, og fá þannig meirihluta fyr- ir vantrauststillögu. Mögulega mun næsta lota Icesave-deilunnar, sem enn er óleyst, gefa færi á slíku. Icesave og absúrdisminn MYNDIN Vaknað við þoku Veðrið var ægifagurt þegar höfuðborgarbúar vöknuðu á fimmtudaginn. Kristinn Magnússon, ljósmyndari DV, tók þessa fallegu mynd af af tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu, sem iðnarðarmenn vinna nú hörðum höndum að því að reisa. Stefnt er að því að taka húsið í notkun í maí á næsta ári. MYND KRISTINN MAGNÚSSON KJALLARI UMRÆÐA 12. mars 2010 FÖSTUDAGUR 23 VALUR GUNNARSSON rithöfundur skrifar „Með því að hafna Icesave hefði vinstrimönnum þó tekist að þétta sínar eigin raðir.“ MAÐUR DAGSINS DV03112010_2. jpg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.