Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Page 26
Satanískt vond bíómynd
Þar sem guð hefur fengið leið á
syndumspilltu mannfólkinu er
heimsendir næst á dagskrá. Hann
sendir englaher af stað í þeim til-
gangi að koma endalokunum til
leiðar. Erkiengillinn Mikael hefur
allt aðrar hugmyndir um framhald-
ið og ákveður að há lokaorrustuna á
einmanalegri bensínsjoppu í miðri
eyðimörkinni. Þar nýtur hann fé-
lagsskapar og aðstoðar görótts
hóps af ferðalöngum sem eru nú
strandaglópar á sama stað. Björgun
mannkyns er í þeirra höndum.
Landslið b-myndaleikara er hér
mætt með nokkrum undantekn-
ingum á borð við Paul Bettany sem
leikur hinn lítt englalega engil sem
fer mikinn með gríðarlegu vopna-
búri sínu. Sögusviðið er einnig
vont. Það er alltaf jafnkjánalegt þeg-
ar spádómar miðausturlandatrú-
arbragða á borð við kristni ganga í
uppfyllingu í Bandaríkjunum. Það
er ekki nógu mikill hasar og geð-
veiki til að hún myndi sleppa sem
skítsæmileg zombie-mynd á trúar-
legu nótunum. Og hér er síðan eng-
in dýpt til að lifa upp í flókna trúar-
bragðaræmu en grunnhugmyndin
er í sjálfu sér ekkert alslæm. Brell-
urnar fá ekki að lifa til enda, það er
klippt undarlega á hasaratriðin sem
þar að auki eru alltof fá. Síðan eru
sögupersónurnar á trúnó meðan
beðið er eftir endalokunum, hverju
öðru verra. Sýnu verst samt þegar
englarnir Mikael og Gabríel taka
hómóerótískt Hamletstrúnó með
breskum hreim.
Útkoman er eins og lélegur þátt-
ur á lélegri sjónvarpsstöð. Mynd-
ir á trúarlegum grunni er marg-
ar hverjar mjög kraftmiklar óháð
því hverju menn trúa síðan þegar
menn yfirgefa bíósalinn. Angel He-
art, Exorcist, Stigmata, Dekalogue,
Anti Christ, Devils Advocate o.s.frv.
eru allt snilldardæmi um slíkt. Paul
Bettany er auðvitað góður leikari
en í öðru eins syndaflóði af vondri
mynd er erfitt að haldast á floti. Það
er ekkert guðlegt við þessa mynd.
Hún er bara ekki að virka, er hall-
ærisleg og maður vill bara að guð
klári þennan heimsendi svo maður
komist út sem fyrst.
Erpur Eyvindarson
SÝNING HÖRPU
DAGGAR
Harpa Dögg Kjartansdóttir opn-
aði á dögunum einkasýninguna Úr
mynd í Gallerí Crymo, Laugavegi
41a. Harpa útskrifaðist úr mynd-
listardeild Listaháskóla Íslands árið
2007 og lauk kennsluréttindum frá
sama skóla vorið 2009. Hún hefur
verið virk í listsköpun sinni og tekið
þátt í fjölda sýninga víða um land og
erlendis. Harpa vinnur verk sín með
blandaðri tækni og í ólíka miðla, svo
sem innsetningar, myndbandsverk
og ljósmyndir. Undanfarin ár hef-
ur hún einbeitt sér að gerð klipp-
imynda og hefur þróað sína eigin
tækni í vinnslu og framsetningu.
UM HELGINA
FJALLABRÆÐUR Á FLATEYRI Vestfirski karlakórinn
Fjallabræður hefur tekið höndum saman við Krabbameinsfélagið
Sigurvon og ætlar að halda styrktartónleika í íþróttahúsinu á Flateyri
á laugardaginn. Um leið eru þetta útgáfutónleikar Fjallabræðra á
Vestfjörðum. Forsala aðgöngumiða er hjá Birki ehf. og í Bókahorninu
á Ísafirði. Einnig geta þeir sem búa á Flateyri, eða eiga leið hjá, tryggt
sér miða á N1 þar í bæ. Miðaverð er 1.500 krónur og hefjast tónleikarnir
klukkan 20.
Í BARNASTÆRÐUM
Í barnastærðum er yfirskrift sýn-
ingar sem opnar í Hafnarborg í
Hafnarfirði á laugardaginn. Sýn-
ingargestir á öllum aldri kynnast
leikföngum og húsgögnum sem
sérstaklega eru hönnuð fyrir börn
og sækja innblástur í leiki þeirra
og hugmyndaheim. Bæði verður
sýnd íslensk og alþjóðleg hönn-
un. Eldri hluti sýningargripanna
hefur ekki verið mikið sýndur
opinberlega og er sýningin því
einstakt tækifæri til að kynn-
ast lítt þekktum verkum annars
þekktra höfunda. Þeirra á meðal
má nefna Gunnar Magnússon
húsgagnahönnuð, Manfreð Vil-
hjálmsson arkitekt og myndlist-
armanninn Dieter Roth.
26 FÖSTUDAGUR 12. mars 2010 FÓKUS
TÓNLISTARHLAÐ-
BORÐ Á SÓDÓMU
Tónleikastaðurinn Sódóma Reykja-
vík er eins árs um þessar mundir
og af því tilefni verður boðið upp
á girnilegt tónlistarhlaðborð þar í
kvöld, föstudag. Hljómsveitirnar
sem koma eru Jeff Who?, Lights on
the Highway, Ultra Mega Techno-
bandið Stefán, Sudden Weather
Change, Hudson Wayne, Morð-
ingjarnir, Reykjavík!, Cynic Guru,
Franz og Jenni, Árstíðir, Nolo og 13.
Ókeypis inn og guðaveigarnar á af-
mælistilboði. Húsið opnar klukk-
an 20.
LEGION
Leikstjóri: Scott Stewart
Aðalhlutverk: Paul Bettany, Dennis
Quaid, Tyrese Gibson, Jon Tenney
KVIKMYNDIR
Legion „Maður vill bara að guð klári
þennan heimsendi svo maður komist
út sem fyrst.“
„Ég er engin viðtalskona því mér
dettur aldrei neitt í hug nema þegar
enginn hlustar. Þá dettur manni voða
mikið í hug. Tónlistin er eiginlega
mitt mál,“ segir Jórunn blaðamanni
þegar hann kíkir í stutta heimsókn
til hennar á Droplaugarstaði, daginn
eftir að hún hlaut heiðursverðlaun
Menningarverðlauna DV 2009 sem
afhent voru síðastliðinn miðvikudag.
„Það eina sem vekur athygli fólks er
eitthvað fáránlegt,“ heldur Jórunn
áfram. „En ég er nefnilega svo óskap-
lega hversdagsleg.“
Hún segir þó fleiri kosti fylgja því
að vera svona hversdagsleg. „Mað-
ur þekkir fólk betur á eftir því það
geta allir talað um hversdagsleika.
Til dæmis nefið á mér, hvort það sé
stórt eða lítið. Og hvort tennurnar í
mér séu skakkar,“ segir Jórunn og þá
lætur Katrín, dóttir hennar sem sit-
ur með blaðamanni og tónlistarkon-
unni fræknu, í sér heyra.
„Þær verða að passa mig stelp-
urnar,“ segir Jórunn og hlær. „Ég er
nefnilega svo óskaplega ófeimin. Það
er það sem gengur að mér.
En ef þeir sem að búa til mús-
ík eru feimnir kemur ekkert út. Al-
veg eins og ef þú ert að segja einhver
spakmæli og þau eru svo hversdags-
leg þá tekur enginn eftir þeim. Þetta
geta samt verið spökustu mæli fyrir
því.“
Söng eigin texta 3 ára
Jórunn skilgreinir tónlist sína þó
ekki sem hversdagslega. „Hún er það
ekki. Ég hef aldrei gert tón sem ein-
Glöð Jórunn glöð á svip þegar
mannfjöldinn í Iðnó fagnar
henni síðastliðinn miðvikudag.
MYNDIR SIGTRYGGUR ARI
Jórunn Viðar, tónskáld og píanóleikari, hlaut heiðursverðlaun Menningarverðlauna
DV 2009 í Iðnó síðastliðinn miðvikudag. Tónlistarferill hennar spannar hátt í sjö ára-
tugi en hún er meðal annars höfundur lagsins Það á að gefa börnum brauð og tónlist-
arinnar við kvikmyndina Síðasti bærinn í dalnum.
ER óskaplega HVERSDAGSLEG