Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Side 27
hver annar hefur gert,“ segir hún og hlær á ný. „Ég byrjaði að syngja þegar ég var þriggja ára. Með mínum eigin texta.“ Meðal þekktustu verka Jórunn- ar eru jólalögin Jól og Það á að gefa börnum brauð, Kall sat undir kletti, Únglíngurinn í skóginum við texta Halldórs Laxness og tónlist við ball- ettinn Eldur sem var fyrsta íslenska balletttónlistin. Þá er ónefnd tónlist- in sem Jórunn samdi við myndina Síðasti bærinn í dalnum og var hún þar einnig að feta slóð sem ekki hafði verið farin áður á tónlistarsviðinu. Jórunn hefur sótt mikið í íslenskan tónlistararf, bæði sem innblástur og við útsetningar á íslenskum þjóðlög- um. Menntun í nokkrum löndum seg- ir Jórunn hafa hjálpað sér mikið á ferli sínum, að hafa lært víða. Þýska- land er henni ofarlega í huga í þeim efnum. „Það var alveg dásamlegt að læra við þýskan háskóla. Það ligg- ur við að þeir tali íslensku, þeir eru svo klárir. Það fara engir vitleysingar í þýska háskóla. En svo urðum við að flýja þaðan.“ Flúði Þýskaland vegna stríðsins Jórunn lærði tónsmíðar við Tónlist- arakademíuna í Berlín í tvö ár, frá 1937 til ´39. Þau fluttu til Íslands í júlímánuði, einungis nokkrum vik- um áður en Þjóðverjar réðust inn í Pólland sem varð upphafið að síðari heimsstyrjöldinni. „Það var minnir mig útgerðarmaður sem lánaði skip sem kom og sótti okkur,“ segir hún og virðist ekki vilja gera mikið úr þessari sérstöku lífsreynslu. Kannski hvers- dagslegt eðli hennar hafi með það gera. Katrín skýtur inn í að Jórunn hafi sagt nokkuð ítarlega frá dvölinni í Berlín í heimildamyndinni Orðið tónlist sem fjallar um ævi og störf listakonunnar. Myndin er eftir Ara Alexander Ergis Magnússon og var sýnd í Ríkissjónvarpinu um síðustu páska. Blaðamaður nóterar það hjá sér til að hafa uppi á gripnum seinna meir. Nema hún verði endursýnd hjá RÚV fyrst ekki lengur eru keyptar nýjar, íslenskar myndir? „Vissi ekki hvað ég hefði af mér gert“ Náminu í Berlín þurfti Jórunn því að hætta í miðjum klíðum en fram að Þýskalandsförinni hafði hún lært hjá móður sinni, Katrínu Viðar, og svo Páli Ísólfssyni og Árna Kristj- ánssyni í Tónlistarskóla Reykjavíkur. Árin 1943 til ´46 lærði hún tónsmíð- ar við Julliard-skólann í New York og seinna var hún eitt vetur við nám í Vínarborg. Jórunn er fljót til svars þegar blaðamaður spyr hvernig Jórunni hafi orðið við þegar dætur henn- ar koma þeim skilaboðum til henn- ar að hún fengi heiðursverðlaun Menningarverðlaunanna í ár. „Ég trúði því bara ekki. Ég hélt að þetta væri ekki tilfellið. Ég vissi ekki hvað ég hefði af mér gert.“ Og tár mátti sjá á hvarmi hennar þegar hún hafði tekið við viðurkenn- ingunni úr höndum Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. „Þetta voru held ég gleðitár. Þetta var mik- il stund. En hann Ólafur hefur breyst svo mikið. Hann er orðinn svo mildur. Hann var ekki svona mildur áður fyrr. Ég held að músíkin hafi haft góð áhrif á hann.“ kristjanh@dv.is ... Loftkastalanum sem hrundi Engin mis- tök. Frábær lokakafli í þríleik Larssons. ... leikritinu Hænuungarnir Hver leikarinn öðrum betri í þessu frábæra verki. ... Precious Gríðarlega vel leikin mynd um hrikalegt líf ungrar stúlku. ... tölvuleiknum Heavy Raina Einstakur leikur þar sem þú ræður ferðinni. ... tölvuleiknum Handball Manager Misheppnaður leikur og of flókinn. FÓKUS 12. mars 2010 FÖSTUDAGUR 27 FÖSTUDAGUR n Alþýðu - og heimstónlistarhátíðin Samtals koma 14 sveitir fram á hátíðinni. Fjórar hljómsveitir koma fram á föstudegi og laugardegi. Hverju atriði er ætlaður 45 mínútna spilatími. South River Band, Varsjárbandalagið, Narodna Musika og Ljótu hálfvitarnir. n Elvis á Akureyri Friðrik Ómar ásamt landsliði hljóðfæra- leikara og söngvara hefur slegið í gegn í Salnum í Kópavogi með frábærum tónleikum þar sem fluttar eru helstu perlur Elvis Presley. Tónleikarnir verða í Sjallanum og kostar 3.500 krónur inn. n Cornelis Vreeswijk í Norræna húsinu Guðrún Gunnarsdóttir og Aðalsteinn Ásberg flytja úrval úr verkum söngva- skáldsins vinsæla Cornelis Vreeswijk í tali og tónum. Gunnar Gunnarsson spilar á píanó og Jón Rafnsson á kontrabassa. Tónleikarnir verða í Norræna húsinu og kostar 2500 krónur inn. LAUGARDAGUR n Páll Óskar á NASA Páll Óskar heldur upp á fertugsafmæl- ið sitt með risapartíi á laugardag. Kostar aðeins þúsund krónur inn og lofar Páll Óskar dúndur- stuði - pásulaust. n Wacken Metal Battle 2010 Alvöru þungarokkskeppni sem hefur vaxið jafnt og þétt frá 2004 og í ár munu 26 þjóðir halda undankeppnir í sínu landi og verður Ísland þar á meðal í annað sinn. Sigursveitin í hverju landi fyrir sig hlýtur að launum þátttökurétt í lokakeppninni á Wacken. Tónleikarnir verða á Sódóma og opnar húsið klukkan 20:00. Gone Postal, Carpe Noctem, Gruesome Glory, Wistaria, Universal Tragedy, Severed Crotch og Atrum munu berjast um laust sæti á Wacken. n Ljósmyndasýning Myndlistaskólans í Reykjavík Nemendur úr fornámi Myndlistaskóla Reykjavíkur sýna ljósmyndir og myndverk í Gallerí Tukt. Opnun er á laugardaginn klukkan 16. Hvað er að GERAST? Menningarvika Grindavíkur verð- ur haldin 13. til 20. mars undir yf- irskriftinni Menning er mannsins gaman. Þetta er í annað sinn sem menningarvikan er haldin og er dagskráin fjölbreytt og skemmti- leg. Um fjörutíu metnaðarfull atriði eru á dagskrá. Tónleikar, skemmt- anir, frásagnir, sýningar og uppá- komur verða alla dagana í Saltfisk- setrinu, Bryggjunni, Flagghúsinu, Mömmu míu, Salthúsinu og víðar. Forsetafrúin Dorrit Moussaieff verður viðstödd setningarhátíðina í Saltfisksetrinu á laugardaginn og ætlar hún að taka í prjóna þegar hafist verður handa við að prjóna lengsta trefil í heimi. Athygli er vakin á því að ókeypis aðgangur er að flestum viðburðum menningarvikunnar. ... From Paris With Love Einföld spennu- flétta sem allir strákar ættu að hafa gaman af. Lin Design • Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið • sími 533 2220 • www.lindesign.is Fermingargjöfin er íslensk hönnun PRJÓNIPRJÓN Dorrit Moussaieff Prjónar í Grindavík á laugardag. Hamingjuóskir Forseti Íslands óskar Jórunni til hamingju með viðurkenninguna eftir að hafa afhent henni heiðursverðlaunin. ER óskaplega HVERSDAGSLEG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.