Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Side 30
30 FÖSTUDAGUR 12. mars 2010 VIÐTAL
að það er aldrei að vita hvort þessum vini mín-
um sem er svona vel tengdur inn á blöðin verði
að ósk sinni.“
ÍMYNDIN AF VÍKINGUM
EKKI ALVEG RÉTT
Þær hafa verið ófáar víkingamyndirnar sem hafa
verið gerðar hér á landi. Þær eru jafnmisjafnar
eins og þær eru margar en bera það svolítið með
sér oft að vera eilítið kjánalegar. Eru víkingar ein-
faldlega nógu töff? „Mér finnst þeir ógeðslega
töff,“ svarar Baltasar um hæl. „Ég verð bara að
gera þetta flott. Það er verið að leggja rosalega
vinnu í það að búa til heiminn eins trúverðug-
an og hægt er. Ég held að ímynd fólks af þessum
tíma sé í gegnum bíómyndir sem hafa ekki ver-
ið með nóg af peningum til þess að gera þenn-
an heim almennilega. Maður sér alþingi fyrir sér
sem nokkur tjöld og kalla talandi saman undir
kletti. En þarna hljóta hafa verið hundruð ef ekki
þúsundir manna og fleiri þúsundir hesta. Þarna
voru menn að kaupa og selja, þarna voru allir,
það var ekkert annað partí í gangi,“ segir Baltasar
sem hallar ser nú fram af ákafa þegar hann talar
um myndina.
„Hús þessara manna voru heldur engin smá-
smíði eins og sást við uppgröftinn niðri í Aust-
urbæ. Svo má ekki gleyma bátunum, víkingabát-
arnir eru þeir flottustu sem hafa verið byggðir.
Gæinn sem sigldi þessu til New York um alda-
mótinn sagði að þetta væri eins og spíttbát-
ur. Þetta er svo vel byggt að það tekur ekki á sig
neinar öldur. Menn sem gátu gert svona báta
voru ekki á lágu menningarstigi,“ segir hann en
ekki hefur verið ákveðið hvort myndin verði á ís-
lensku eða ensku. „Kannski þarf ég að fórna ís-
lenskunni, kannski ekki, en mig langar að búa
til þennan heim. Mig langar samt ekki að gera
hann með nokkrum indjánatjöldum, ég vil fara
alla leið.“
SPARK Í PUNG
Á fjölum Þjóðleikhússins má þessa dagana sjá
leikritið Gerplu sem byggt er á skáldsögu nób-
elsverðlaunahafans Halldórs Laxness. Leikhús-
rýnir DV, Jón Viðar Jónsson, vægast sagt slátr-
aði sýningunni í dómi sínum í DV og gaf verkinu
eina og hálfa stjörnu. Rak hann Baltasar og leik-
arana á gat í dómnum. „Ég les dóma og reyni að
fá út úr þeim eitthvað sem getur orðið mér að
gagni. Oft eru í dómum góðir punktar en oft er
líka bara skítkast og það hjálpar engum,“ segir
Baltasar sem talaði um dóminn í Spjallinu hjá
Sölva á Skjá Einum.
„Þú ert að koma mér í aðstöðu núna sem ég
er samt alveg sáttur við. Þegar ég svaraði fyrir
mig hjá Sölva kom á DV: „Baltasar kjökrar,““ segir
hann og vitnar til sandkorns sem birtist á DV.is.
„Þarna berjið þið mig í hausinn með Jóni Viðari
og meðan ég ber fyrir mig hendurnar hjá Sölva
sparkið þið í punginn á mér.“
JÓN VIÐAR STUNDUM ÆRUMEIÐANDI
„Fyrir mína parta finnst mér Jón Viðar mjög
skemmtilegur gagnrýnandi þó ég sé ekki alltaf
sammála honum,“ segir Baltasar. „Hann segir oft
hluti sem aðrir þora ekki að segja og það finnst
mér áhugavert. Jón Viðar er óvenju vel að sér í
íslenskri leiklistarsögu. Hann getur rakið aftur-
ábak alla leiklistarsögu Íslands og þannig sett
hluti í samhengi, sem er frábært. Það er ekkert
gaman að lesa dóma sem fólk skrifar sem veit
ekkert hvað var fyrir fimm árum í leikhúsinu.
Stundum finnst mér hann aftur á móti detta í
það að vera ærumeiðandi við fólk, og það finnst
mér fyrir neðan hans virðingu. Hef ég það á til-
finningunni að hann geti ekki setið á strák sínum
að vekja á sér neikvæða athygli, svolítið eins og
Simon Cowel í American Idol. Nú er ég komin
út á hálan ís því að það eru fáir sem taka gagn-
rýni verr en þeir sem vinna við að skrifa hana,“
segir hann.
„Meirihluti dómsins fór þó í að rakka bókina
niður,“ segir Baltasar. „Hann hefst á því hversu
ógeðfelldur Jóni Viðari þótti Halldór Laxnes.
Eftir þessi upphafsorð vissi ég að ekki var von á
góðu.“
Baltasar segir stjörnugjöfina í dómum vera
orðna meiri óvinur þess sem dæmir heldur en
þess sem er dæmdur. „Fólk sér bara stjörnun-
ar og sleppir því sem kannski mestu máli skipt-
ir sem er greining gagnrýnandans. Stjörnugjöfin
er það eina sem skiptir orðið máli. Stundum les
maður einhverja dóma og stjörnugjöfin er ekki í
neinu samhengi við það sem skrifað er.“
Þannig er þó mál með vexti að Jón Viðar er
almennt mjög hrifinn af Baltasar og hans verk-
um. Baltasar segir þó frá öðru augnabliki þegar
Jón Viðar hakkaði hann í sig í beinni útsendingu.
„Ég var í þættinum Á elleftu stundu og þurfti að
sitja undir myndbandi frá honum að jarða mig
sem leikara. Ég þurfti bara að sitja með mynda-
vélarnar á mér og hlusta á það. Þarna átti bara að
grilla mig, ég veit ekki til þess að margir leikar-
ar hafi fengið þessa meðferð. Jón Viðar tók ekki
bara þarna eitt verk heldur haugaði yfir allan fer-
ilinn minn sem leikari. Honum varð kannski að
ósk sinni síðar þegar ég hætti að leika á sviði. En
hann hafði það í sér að biðja mig afsökunar eft-
ir þetta sem ég virði mjög mikið við hann,“ segir
Baltasar.
GRÁTBAÐ UM FRESTUN
Daginn sem leikdómurinn var birtur í DV var
forsíðutilvitnun framan á blaðinu með fyrirsögn
dómsins frá Jóni Viðari: „Misheppnuð Gerpla
– Jón Viðar gefur Gerplu eina og hálfa stjörnu.“
„Að setja Misheppnuð Gerpla sem fyrirsögn
utan á blaðið er ákveðin sölumennska og ég fer
ekki ofan af því. Enda þótt það hafi verið aðrir
dómar sem voru mjög jákvæðir er þetta sá dóm-
ur sem flestir tóku eftir,“ segir Baltasar og heldur
áfram:
„Þá komum við aftur að þessu. Ég er þekkt-
ur og er ákveðin stærð í þessu samfélagi þannig
að það vekur athygli það sem ég geri. Menn eru
ekkert að fara í tvær og hálfa stjörnu eða þrjár,
það er bara farið alla leið niður og á forsíðuna
með það. Það þarf ekki alltaf að vera sanngjarnt
því ég er ekki sá eini sem kem að þessu verki,“
segir hann.
„Að segja að eitthvað sé misheppnað er mjög
harður stimpill á eitthvað sem mjög margir aðrir
eru hrifnir af. Eða að fullyrða að Björn Thors hafi
ekki sviðsjarma, meðan aðrir ganrýnendur hæla
honum á hvert reipi og konur kikna í hnjánum,“
segir Baltasar.
„Það verður samt að virða það við Jón Viðar
og aðra gagnrýnendur að sýningin var ekki alveg
tilbúin sem var mjög sárt fyrir mig. Ég fékk bara
tvær og hálfa viku á sviði sem er mjög lítið með
svona flókna sýningu. Þessi sýning var ekki æfð
lengur en gengur og gerist sérstaklega þegar litið
er til þess að við vorum að vinna upp leikverk úr
bókinni á sama tíma. Ég bað einni og hálfri viku
fyrir frumsýningu um að fá frest því ég sá ekki
fram á að ná þessu. Það var ekki hægt. Þremur
dögum fyrir frumsýningu grátbað ég svo Tinnu
[Gunnlaugsdóttir, leikhússtjóra] um frest því ég
vissi að þetta myndi ekki nást, ég var að kála leik-
urunum. Svo var litið á það eins og glæpamál í
DV að ég hafi leyft mér að laga verkið eftir frum-
sýningu. Mér finnst stundum ekki gerður greina-
munur á því hvort menn séu að klífa Everst eða
rölta upp í Öskjuhlíð hvorki af leikhúsinu né
þeim sem fjalla um það. En þess má geta að
margir hafa litið á Gerplu sem ókleifan hamar.
Stundum þegar fólk tekst á við hluti sem eru ekki
fyrirsjáanlegir, tekur áhættu fær það oft verstu
útreiðina ef það gengur ekki allt upp. En svo gera
menn kassastykki og þá eru allir í skýjunum. Ég
er ekki viss um að það sé það sem menn vilja
þegar upp er staðið En nú er Gerplan komin á
flug, mikið hlegið á sýningum og ég vona bara að
Jón Viðar komi að sjá hana aftur, en skrifi helst
ekki annan dóm,“ segir Baltasar.
MÁ EKKI VIÐ MARGNUM
Baltasar segist yfirleitt ekki kippa sér upp við
umföllun um sig en sé hún mjög ósanngjörn að
hans mati bregst hann við. „Einstaka sinnum
þegar mér finnst vegið að mér með ósanngirni
í umfjöllun þá er ég ekki að tala um gagnrýni .
Þegar borin eru upp á mig hrein ósannindi, þá
tek ég upp símann. Annars læt ég flest bara sem
vind um eyru þjóta,“ segir hann og minnist á orð
leiklistagagnrýnandans Maríu Kristjánsdóttur
sem sagði eftir að upplýst var að Baltasar hefði
æft daginn eftir frumsýningu: „Vonandi ger-
ir Þjóðleikhúsið þetta fyrir fleiri en þá sem eru
taldir heimsfrægir á þjóðleikhúsheimilinu.“
Þetta líkar Baltasar ekki. „Hvernig á þessi
manneskja að skrifa heiðarlega um mig? Þarna
sést að hún getur ekki horft á mig bara sem leik-
stjóra þessara sýningar því ég er svona ,,heims-
frægur á þjóðleikhúsheiimilinu” eins og hún
segir. Maður má náttúrulega ekki við margnum
ef fólk ætlar að fjalla um allt sem maður gerir á
þessum forsendum,“ segir hann.
NIÐURSKURÐURINN EINS OG
AÐ DETTA ÚR SKÍÐALYFTU
Kvikmyndargerðarmenn og fólk sem starfar í
kringum bransann eru ríkinu ævareið þessa
dagana fyrir mikinn niðurskurð sem hamlar gerð
nýra kvikmynda og þátta svo um munar. Baltas-
ar var kynnir á Edduverðlaunahátíðinni um dag-
inn og nýtti tækifærið til að skjóta á stjórnvöld,
þar sem hann tók Katrínu Jakobsdóttur mennta-
málaráðherra sérstaklega fyrir. „Það er nú samt
þannig að mér finnst Katrín klár og viðkunnan-
leg og ég held með henni! En það má líka taka
fram að Þorgerði Katrínu ber að þakka fyrir sitt
framlag. Það hefur kannski svolítið gleymst í allri
umræðunni. Þegar ég var formaður íslenskra
kvikmyndaframleiðanda átti ég í miklum sam-
skiptum við hana og hún tvöfaldaði sjóðinn. Þá
hafði lengi ekkert verið gert og í raun hafði sjóð-
urinn minnkað miðað við kostnað,“ segir Baltas-
ar sem er jafnvel enn reiðari Ríkissjónvarpinu.
„Ég er líka rosalega ósáttur við yfirlýsing-
ar Páls Magnússonar um að hætta að kaupa og
sýna íslenskar kvikmyndir í sjónvarpinu. Á með-
an Stöð 2 heldur í sér lífinu með íslensku efni
ætlar RÚV að skera það niður. Það hlýtur að vera
tilgangur RÚV að framleiða íslenskt efni, hvort
sem það sé fréttatengt eða leikið. Á endanum
gerir RÚV sig tilgangslaust sem er mjög leiðinlegt
finnst mér því ég er fylgjandi ríkissjónvarpi. Þessi
hávaði í mér er samt ekkert fyrir sjálfan mig. Ég
er að fara að gera verkefni í Bandaríkjunum sem
kemur þessu ekkert við. Það eru næstu menn
sem ég hef áhyggjur af. Það er líka grátlegt upp á
að horfa að loksins þegar við erum komin af stað
með sjónvarpsefni er löppunum kippt undan
okkur. Þetta er eins og að vera komin langleiðina
upp brekkuna í skíðalyftu en missa skíðin af sér
og þurfa að labba niður brekkuna,“ segir Baltas-
ar að lokum. Hann kveður svo snögglega, borgar
fyrir kaffið, og hleypur út. Það er hálftími í næsta
flug hjá leikstjóranum. Fjölskyldan bíður norðan
heiða. tomas@dv.is
„Þarna berjið þið mig í
hausinn með Jóni Viðari
og meðan ég ber fyrir
mig hendurnar hjá Sölva
þá sparkið þið í punginn
á mér.“
Flakkar mikið á milli
Þreytan getur sagt til
sín hjá Baltasar og þá
vill hann komast heim í
Skagafjörðinn.
MYND BRAGI ÞÓR JÓSEFSSON
Hjón til fjórtán ára
Hjónabandið getur
orðið erfitt þegar
annar aðilinn er svo
mikið í burtu en Baltas-
ar og Lilja Pálmadóttir
eru sæl saman.
Sáttur við Þorgerði Baltasar er óánægður með niður-
skurð stjórnvalda í kvikmyndaiðnaði. Hann hrósar Þorgerði
Katrínu, fyrrverandi menntamálaráðherra, fyrir að tvöfalda
Kvikmyndasjóð á sínum tíma. MYND GUNNAR GUNNARSSON