Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Side 35
Netkosning „Þessi verðlaun hafa mikla merkingu fyrir okkur og sér- staklega að fá netverðlaunin,“ segir Helgi Svavar Helga- son, trommari í hljómsveitinni Hjálmar. „Þetta er val fólksins í landinu, því sem við erum að spila fyrir og leggja okkur alla fram við.“ Hljómsveitin Hjálmar gaf út sína fjórðu plötu, plötuna IV, á síðasta ári og þótti hún ekki síðri en þær þrjár sem komu á undan. „Þetta segir okkur bara að halda áfram.“ Helgi er ánægður með síðasta ár hvað tónlist varðar: „Það var frábært ár og það sem mér finnst helst standa upp úr er að plötuútgáfa skuli hafa haldið áfram að vera eins sterk og hún er. Salan var ágæt og það gerir okkur kleift að halda áfram að gera fleiri plötur.“ Sú er raunin hjá þeim félögum því þeir eru strax byrjaðir að vinna efni á næstu plötu. „Við erum að fara taka upp bara á morgun (í dag). Það er búið að gera nokkur lög nú þegar og stefnum að því að gera eins konar „döbb“-plötu. Þá plötu stefnum við að gefa út á vínyl en það er ekki al- veg komið á hreint. Það er allavega stefnan,“ segir Helgi Svavar, ánægður með lífið. Rökstuðningur dómnefndar: Hjálmar hafa verið að gera frábæra hluti í mörg ár og virðast bara bæta sig. Eftir að hafa gefið út þrjár góðar plötur á ferli sínum kom sú fjórða á árinu og heitir hún einmitt IV. Platan var sú mest selda á landinu árið 2009 og fékk einróma lof gagnrýnenda. Að margra mati besta plata ársins og sennilega besta plata Hjálma til þessa. Sveitin hélt fjölda frábærra tónleika á árinu og fór sínar eigin leiðir með því að vera með í stofnun útgáfufyrir- tækisins Borgin sem hefur það að leiðarljósi að bæta hlut tónlistarmanna. asdisbjorg@dv.is Hjálmar hafa verið að gera frábæra hluti í mörg ár, þar á meðal á síðasta ári, og varð hljómsveitin hlutskörpust í netkosningu Menningarverðlauna DV 2009. Segir okkur að halda áfram Menningarhátíð í Iðnó Margmenni Vel var mætt í Iðnó á miðvikudag. Svartar og sætar Svart er alltaf klassískt. Það vita þessar fögru konur sem skemmtu sér vel í Iðnó. Barnaleikur Una Margrét Jónsdóttir, í miðjunni, var tilnefnd í fræðaflokknum fyrir bók sína Allir í leik - söngvaleikir barna. Ávarp Reynir Traustason, annar ritstjóra DV, ávarpaði samkomuna áður en verðlaunaafhendingin sjálf hófst. Tvö á toppnum Jón Proppé var í forsvari fyrir dómnefndina í flokki myndlistar og afhenti því verðlaunahafanum viðurkenningu sína. Áður spjallaði hann við þessa brosmildu konu. HELGARBLAÐ 12. mars 2010 FÖSTUDAGUR 35 Gleði Helgi Svavar Helgason, trommari Hjálma, tekur glaðbeittur við viðurkenningarskjali og blómvendi úr hendi Sverris Arngrímssonar, framkvæmdastjóra DV og Birtíngs, á sviði Iðnó á miðvikudaginn. MYND SIGTRYGGUR ARI Vinningshafi Yean Fee Quay, lengst til hægri, er sýningarstjóri sýningaraðarinnar í D-sal Listasafns Reykjavíkur sem fékk verðlaunin í flokki myndlistar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.