Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Síða 49
VIÐTAL 12. mars 2010 FÖSTUDAGUR 49
Lifir sem prinsessa
Kristrún segir vinnuna á elliheimilinu
hjálpa sér við að halda sér á jörðinni
og það sé gaman og gefandi að hugsa
um gamla fólkið. „Ætli ég sé samt ekki
með smá dívustæla þegar ég er nýlent
heima eftir að hafa dvalið úti í prins-
essulífinu mínu. Annars er ég algjör
prinsessa heima líka,“ segir hún hlæj-
andi og bætir við að hún skilji stundum
ekkert í af hverju leigubílstjórar opni
ekki fyrir hana bíldyrnar.
„Ég er hoppandi á milli þessara
tveggja heima og er oft hneyksluð á að
fá ekki betri þjónustu. Ég reyni samt að
fela það nema heima fyrir en mamma
og pabbi eru vön þessum stælum enda
kunna þau á mig.“
Lét hann ganga á eftir sér
Kristrún vissi ekki hver Yorke væri þeg-
ar hann gaf sig á spjall við hana á veit-
ingahúsi í litlum bæ á Englandi. „Við
vinkonurnar vorum á leiðinni yfir á
annan stað þegar hann og félagar hans
komu og þeir eltu okkur yfir og buðu
okkur í glas. Ég lét hann ganga á eftir
mér og ekki batnaði það þegar stelp-
urnar sögðu mér hver hann væri. Þeg-
ar við erum saman þarf hann nánast að
slá kvenfólkið af sér en ég hef alltaf ver-
ið mjög róleg og yfirveguð yfir honum
og hans frægð og það er kannski það
sem hann hrífst af,“ segir hún.
Yorke á barn með glamúrmódel-
inu Katie Price, öðru nafni Jordan. Þau
tvö hafa rifist mikið í fjölmiðlum um
drenginn en Jordan sakar hann um af-
skiptaleysi en hann hana um að leyfa
sér ekki að hitta soninn. Kristrún seg-
ist aldrei hafa hitt Jordan. „Yorke talar
voðalega lítið um hana og hló bara þeg-
ar hún gifti sig um daginn. Hann talar
hins vegar reglulega um son sinn og
sagði mér frá honum fyrsta kvöldið sem
við hittumst. Ég heyri náttúrulega bara
hans hlið en ég held að hann vilji vera
í sambandi við barnið sitt. Jordan er
bara erfið við hann. Þau eru ekki vinir.“
Afþakkaði háar upphæðir
Í fyrra tók Kristrún tók þátt í Ungfrú
Norðurland og hafnaði í fimmta sæti.
Hún afþakkaði keppnisrétt í Ungfrú Ís-
land og ákvað að slík keppni væri ekki
fyrir hana. „Ég hefði viljað ná lengra
en þar sem það tókst ekki ákvað ég að
láta gott heita. Ég hef setið mikið fyrir
fáklædd og það fór kannski fyrir brjóst-
ið á einhverjum og útskýrir ef til vill út-
komuna. Kannski þótti ég ekki góð fyr-
irmynd. Ég hef líka meiri áhuga á að
verða glamúrfyrirsæta,“ segir hún en
bætir við að hún eigi engar sérstakar
fyrirmyndir í bransanum.
„Ætli Ásdís Rán sé ekki sú eina hér á
landi sem hefur náð langt. Hún er dug-
leg að koma sér áfram og mér finnst
hún mjög flott. Öfund og baktal fylgir
þessum bransa en slæm umfjöllun er
betri en engin,“ segir Kristrún sem voru
boðnar háar fjárhæðir fyrir að opna sig
um samband þeirra Yorkes af slúður-
blaðinu News of the World.
„Þeir vildu að ég myndi segja frá
mjög persónulegum hlutum sem mér
fannst ekki við hæfi. Mér hefur líka
verið boðið að vera Page 3 stelpan hjá
The Sun sem ég afþakkaði líka því mér
fannst ég ekki tilbúin. Þá hefði ég þurft
að vera ber að ofan og í það var ég ekki
tilbúin 18 ára. Sem betur fer. Í dag gæti
ég vel hugsað mér þetta enda eru miklir
peningar í þessum bransa og til dæm-
is Jordan byrjaði sinn feril þarna,“ segir
hún og bætir við að Yorke sé ekki á móti
því að hún gerist glamúrmódel.
„Eini gallinn við Yorke er hvað hann
er afbrýðisamur og það getur farið í
taugarnar á mér en hann setur sig ekki
á móti því að ég sitji fyrir. Ég vil bara
vinna að mínum ferli á mínum hraða
og gera hlutina rétt en ekki heimsku-
lega.“
Afbrýðisemi heillar ekki
Aðspurð um dæmi um afbrýðsemi
knattspyrnumannsins segir hún að
Yorke og Cole hafi eitt skiptið setið á
fundi í glerherbergi með útsýni yfir
sundlaugina. „Ég og konan hans Coles
vorum í sólbaði niðri og spjölluðum við
einhverja karlmenn sem undu sér að
okkur. Yorke var ekki ánægður og starði
á okkur og gat ekkert einbeitt sér að
fundinum en ég hló bara að honum.“
Sjálf segist hún stundum verða afbrýði-
söm en að henni takist þá að fela það.
„Ég reyni alltaf að halda kúlinu,“ segir
hún og brosir.
Þolir baktalið
Ævintýri Kristrúnar hafa ekki komið
íslenskum vinkonum hennar á óvart.
„Þær þekkja mig og vita að svona er ég
einmitt. Ég hafði meira að segja grínast
með það áður en ég fór út að ég myndi
ekkert koma heim aftur því ég ætlaði að
ná mér í moldríkan knattspyrnumann.
Það var sagt í gríni en svo var það raun-
in,“ segir hún og bætir við að Íslending-
ar séu mjög forvitnir um Yorke og líf-
erni þeirra frægu og ríku í Englandi.
„Afi er mikill Liverpool-maður og
sagði að ég ætti nú frekar að ná mér í
einhvern í þeirra röðum,“ segir hún
brosandi og bætir við að vinkonur
hennar hafi alveg rétt fyrir sér, þessi
heimur eigi afar vel við hana.
„Þetta er búið að vera mikið ævin-
týri en er að sama skapi erfitt líka. Það
hafa allir skoðun á manni og það er ekki
alltaf auðvelt. Ég hef vanið mig á að vera
ekkert að spá í þetta og á mína vini sem
ég veit að baktala mig ekki og hef beð-
ið þá um að segja mér ekkert af þess-
um sögum sem ganga. Hins vegar gerði
ég einu sinni þau mistök að flakka um
netið og lesa það sem þar hefur verið
skrifað um mig. Það mun ég aldrei gera
aftur og ég reyni að hugsa sem minnst
um slíkt. Ég er mjög ákveðin, sjálfstæð,
með bein í nefinu og ég þoli þetta,“ segir
hún og tekur dæmi um baktal sem hún
hafi orðið fyrir þegar hún hafi fjallað um
heilsuvörur sem hún sé að selja.
„Ég skil ekki fólk sem þarf að smjatta
á því sem aðrir eru að gera og sjálf reyni
ég að tala ekki illa um fólk. Auðvitað
baktala allir einhvern tímann en ég geri
það þá við bestu vini mína sem ég veit
að fara ekki með hlutina lengra. Ég er
ekki góð með mig og lít ekkert stórt á
mig þótt sumir haldi það kannski út af
því hvernig ég ber mig. Ég er bara vön
að bera mig tignarlega og hef alltaf gert
en er ekkert að sýnast vera eitthvað.“
Þekkir ástina
Kristrún segist spennt að eignast frænd-
systkini og að hún stefni á að eignast
börn í framtíðinni. Sem au pair hafi hún
passað þrjú börn og hafi líkað barn-
fóstruhlutverkið vel. „Sumar vinkon-
ur mínar eru komnar með börn og ein
meira að segja búin að gifta sig svo slík-
ar hugsanir hafa alveg hvarflað að mér.
Ég ætla samt ekki að plana neitt,“ segir
hún og bætir við að hún verði að verða
ástfangin þegar hún ákveði að eyða
restinni af ævinni með einhverjum. „Ég
ætla ekki að fara mér of hratt og gera
einhver mistök. Annars væri ég löngu
flutt út og komin í fast samband. Ég vil
bara vera alveg viss áður en ég tek slíkar
ákvarðanir. Ég hef einu sinni verið ást-
fangin þegar ég var yngri en við vorum
saman í fjögur ár. Þar til ég kynnist öðru
voru það mín kynni af ástinni.“
Íslenskir karlar dónar
Aðspurð segir Kristrún íslenska karl-
menn eiga séns í sig en hún segir að
til þess verði þeir að kunna sig. „Ég var
bara 18 ára þegar ég fór út og nýbyrj-
uð að deita svo mín fyrsta reynsla var af
mjög kurteisum karlmönnum. Íslenskir
karlmenn heilla mig ekki og mín reynsla
er sú að ef þér er boðið í glas hér heima
þá ætlast þeir til þess að þú farir í rúmið
með þeim. Svoleiðis hugsa þeir bresku
ekki. Minn maður verður að vera góð-
ur við mig og hann verður að hugsa vel
um sig og líta vel út. Ég hef alltaf heillast
af íþróttamönnum en þeir verða að eiga
sitt líf. Ég hef nóg að gera og vil hafa mitt
„space“ og ætla ekki að breyta því þótt
ég fari að vera með einhverjum manni.“
Nekt lítið mál
Hún segir umfjöllun slúðurblaðanna
ekki hafa farið fyrir brjóstið á foreldrum
hennar og að þau kaupi alltaf Séð og
heyrt þegar hún sé á forsíðunni. „Þau
skilja samt lítið í þessu og finnst skrít-
ið að það sé ekki eitthvað merkilegra að
gerast en eitthvað sem snýr að mér en
umfjöllunin hefur verið mikil síðustu
tvö árin og þau eru orðin vön þessu.“
Aðspurð segist hún ekki óttast að
sitja fyrir nakin og jafnvel ekki þótt
fjölskyldan eigi eftir að sjá myndirnar.
„Fyrir mig er nekt ekki mikið mál og
ég er vön að spranga um á nærbuxun-
um heima hjá mér. Ég er sátt við líkama
minn og veit ekki hvað feimni er,“ seg-
ir hún og viðurkennir fúslega að hafa
farið í brjóstastækkun. Ekki af því að
bransinn hafi krafist þess heldur af því
að hún hafi sjálf valið það.
„Ég ákvað það einn daginn og eins og
með flest sem mér dettur í hug verður
það að gerast í dag svo ég lét strax verða
af því og sé ekki eftir því. Ég vil líta vel
út og á eflaust eftir að láta lappa upp á
eitthvað meira í framtíðinni. Ég er mjög
hrædd við að eldast og helst vildi ég vera
tvítug í tíu ár og þrítug í tíu ár. Ég er bæði
hrædd við dauðann og svo vil ég halda
útliti mínu sem lengst. Til þess þarf að
hugsa vel um sig og þótt ég geri það fylg-
ir þessu líferni mínu mikið áfengi og
djamm.“
Glamúrinn heillar
Kristrún Ösp ætlar sér langt og hef-
ur fulla trú á sjálfri sér. Hún stefnir til
Bretlands í nánustu framtíð því þar
segir hún að glamúrinn sé að finna.
„Mér líkar ofsalega vel í Bretlandi og
þegar kemur að því að flytja kem-
ur ekkert annað land til greina. Þar er
bókstaflega búist við manni að sitja
fyrir og peningarnir freista. Hver vill
ekki græða? Ég veit samt að með því að
velja þessa braut er ég að gefa ákveðið
skotleyfi á mig en það verður þá bara
að hafa það. Allir sem koma sér á fram-
færi lenda í aðkasti og það er bara fylgi-
fiskur frægðarinnar. Það talar enginn
um ómerkilegt fólk svo ég ætti kannski
bara að vera ánægð með þetta baktal,“
segir hún hlæjandi að lokum.
indiana@dv.is
HRÆDD VIÐ AÐ ELDAST
Ekki hrædd við nektina Kristrún segist vön að spranga um heima hjá sér á nærbuxun-
um einum fata og óttast ekki að pabbi hennar eða aðrir í fjölskyldunni rekist á nektar-
myndir af henni. MYND ÞÓRHALLUR PEDRÓMYNDIR
Flott par Kristrún
segir Yorke vilja að hún
flytji út til hans. Hún sé
hins vegar ekki nógu
ástfangin og ætli sér að
taka sér nægan tíma til
að hugsa sig um.