Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Page 50
UMSJÓN: KJARTAN GUNNAR KJARTANSSON, kgk@dv.is
Þórður Harðarson
YFIRLÆKNIR OG PRÓFESSOR
Þórður fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp í gamla Vesturbænum, fyrst við
Vesturgötuna og síðan við Öldugötu.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1960,
embættisprófi í læknisfræði frá HÍ
1967, stundaði sérfræðinám í hjarta-
sjúkdómum við Royal Postgradu-
ate Medical School og við Hammer-
smith Hospital í London 1971-74, var
jafnframt rannsóknarlæknir hjá Brit-
ish Heart Foundation 1972-74, var
sérfræðingur í hjartasjúkdómum við
Fondren Brown Cardiovascular Res-
earch Center, Methodist Hospital og
Baylor College of Medicine í Hous-
ton í Texas 1974-75, og við háskóla-
sjúkrahúsið í San Diego í Kaliforníu
og kennari við læknadeild Kaliforn-
íuháskóla 1975-76.
Þórður var yfirlæknir við lyflækn-
ingadeild Borgarspítalans frá 1977,
hefur verið yfirlæknir á lyflækninga-
deild Landspítalans frá 1982, hefur
verið prófessor í lyflæknisfræði við
HÍ frá 1982 og starfrækir eigin lækna-
stofu.
Þórður var formaður Félags ís-
lenskra lækna í Bretlandi 1973-74,
í stjórn Hjartaverndar frá 1977, var
formaður Vísindaráðs Hjartavernd-
ar, ritari Hjartasjúkdómafélags ís-
lenskra lækna 1977-79 og formað-
ur þar um skeið, var ritari Félags
íslenskra lyflækna, trúnaðarlækn-
ir Flugmálastjórnar og var forseti
læknadeildar HÍ.
Þórður er meðlimur fjölda er-
lendra og alþjóðlegra samtaka um
hjartarannsóknir, hefur skrifað fjölda
greina um sitt sérfræðisvið og hefur
verið meðritstjóri Journal of Internal
Medicine, Tímarits Hjartaverndar og
Tímarits HÍ.
Fjölskylda
Þórður kvæntist 4.2. 1962, Sólrúnu
Björgu Jensdóttur, f. 22.7. 1940, sagn-
fræðingi og fyrrv. skrifstofustjóra í
menntamálaráðuneytinu. Hún er
dóttir Jens Steindórs Benediktsson-
ar, prests og blaðamanns í Reykjavík,
og k.h., Guðríðar Guðmundsdóttur
verkstjóra.
Börn Þórðar og Sólrúnar eru
Hörður, f. 23.10. 1965, veðurfræð-
ingur á Nýja-Sjálandi, en kona hans
er Tomoko Gamo og er dóttir þeirra
Sólrún Maya; Steinunn, f. 6.7.1977,
læknir í framhaldsnámi í Svíþjóð en
maður hennar er Árni Grímur Sig-
urðsson læknir og eru börn þeirra
Nína Þorbjörg Árnadóttir og Þórð-
ur Árnason; Jens, f. 14.2. 1982, verk-
fræðingur og deildarstjóri hjá Ice-
landair en kona hans er Erna Kristín
Blöndal lögfræðingur og er sonur
þeirra Lárus Jensson Blöndal.
Systir Þórðar er Anna, f. 12.6.
1943, skrifstofustjóri læknadeildar
HÍ.
Foreldrar Þórðar: Hörður Þórð-
arson, f. 11.12. 1909, d. 6.12.1975,
sparisjóðsstjóri i Reykjavík, og k.h.,
Ingibjörg Oddsdóttir, f. 31.10. 1909,
d. í desember 1999, húsmóðir.
Ætt
Hörður var bróðir Úlfars augnlækn-
is, Agnars rithöfundar og Gunn-
laugs hrl. Hörður var sonur Þórðar,
yfirlæknis á Kleppi Sveinssonar, b. á
Geithömrum í Svínadal Pétursson-
ar, b. á Refsstöðum, bróður Kristjáns,
afa Jónasar Kristjánssonar læknis,
afa Jónasar Kristjánssonar, fyrrv. rit-
stjóra DV. Pétur var sonur Jóns, b.
á Snæringsstöðum Jónssonar, b. á
Balaskarði Jónssonar „harðabónda“,
í Mörk Jónssonar.
Móðir Þórðar var Steinunn Þórð-
ardóttir, b. í Ljótshólum Þórðarson-
ar, b. á Kúfustöðum Þórðarsonar, af
Guðlaugsstaðaætt.
Móðir Harðar var Ellen Johanne,
dóttir Jens L.J. Kaaber, stórkaup-
manns og forstjóra í Kaupmanna-
höfn, bróður Ludvigs Kaaber, banka-
stjóra Landsbankans. Móðir Ellenar
var Sara frá Suður-Jótlandi.
Ingibjörg var systir Bjarna skurð-
læknis og Önnu, móður Flosa Ólafs-
sonar. Ingibjörg er dóttir Odds, skó-
smiðs í Reykjavík, sonar Bjarna, b.
á Hömrum, Sigurðssonar, og Ingi-
bjargar Oddsdóttur, b. á Brennistöð-
um, bróður Jóns, langafa Sigmund-
ar Guðbjarnasonar, fyrrv. rektors HÍ.
Oddur var sonur Bjarna, ættföður
Vatnshornsættar Hermannssonar.
Móðir Odds skósmiðs var Ingibjörg
Jónsdóttir, b. í Vatnshorni, Ísleifs-
sonar og Guðrúnar Sigurðardóttur,
systur Jóns, afa Jóns forseta. Móðir
Ingibjargar var Helga Böðvarsdóttir,
b. í Skáney Sigurðssonar og Ástríðar
Jónsdóttur, ættföður Deildartungu-
ættar Þorvaldssonar.
Móðir Ingibjargar var Andrea
Kristjánsdóttir, trésmiðs á Eyrar-
bakka Teitssonar, b. í Vatnahjáleigu
Jónssonar, á Hamri Árnasonar, pr. í
Steinsholti, bróður Ögmundar, afa
Tómasar Fjölnismanns. Annar bróð-
ir Árna var Böðvar, langafi Þorvalds,
afa Vigdísar Finnbogadóttur. Árni
var sonur Presta-Högna Sigurðsson-
ar. Móðir Teits var Helga Ólafsdóttir
frá Eystri-Loftsstöðum, af Bergsætt.
70 ÁRA Á SUNNUDAG 65 ÁRA Á SUNNUDAG
Ingimar Pálsson
TÓNLISTARMAÐUR, SÁLGÆTIR OG RÁÐGJAFI
Ingimar fæddist á Akureyri en ólst
upp í Vestmannaeyjum frá fimm
ára aldri. Hann stundaði tónlistar-
nám á harmoníum, píanó, orgel,
fiðlu og klarinett, bæði hérlendis og
erlendis. Kennarar hans voru m.a.
Guðjón Pálsson, Oddgeir Kristjáns-
son, Leifur Þórarinsson, Árni Arin-
bjarnarson, Haukur Guðlaugsson
og James E. Geottsche, fyrsti organ-
isti við Péturskirkjuna í Rómaborg.
Ingimar stundaði nám við fé-
lagsvísindadeild HÍ með sálarfræði
sem aðalgrein og félagsráðgjöf sem
aukagrein, stundaði nám við guð-
fræðideild HÍ í rúmlega fimm ár, á
að baki þriggja ára nám í sálgæslu-
fræðum og tengdu námi við End-
urmenntun- og guðfræðideild HÍ
ásamt eins árs námi í hugrænum
atferlisfræðum.
Ingimar stundaði sjómennsku
og ýmis verslunar-, skrifstofu- og
stjórnunarstörf framan af. Auk þess
sinnti hann kórstjórn og kennslu
og lék einnig með hljómsveitum.
Hann var skólastjóri Tónlistar-
skóla Skagafjarðarsýslu 1975-82 og
stjórnaði á þeim tíma Karlakórnum
Heimi í nokkur ár, Karlakór Sauðár-
króks, söngfélaginu Hörpu, ásamt
barna- og unglingakór. Hann var
kennari við Bændaskólann á Hól-
um í tvö ár og var organisti Hóla-
dómkirkju, Viðvíkurkirkju og Hofs-
staðakirkju í sjö ár. Þá kenndi hann
orgelleik á Sauðárkróki við Tón-
skóla Þjóðkirkjunnar 1978-79.
Ingimar sinnti hjálpar- og þró-
unarstörfum, ásamt tónlistarstörf-
um í Afríku 1981-91, starfaði m.a.
við bókakristniboð, var yfirmað-
ur söng- og tónlistardeildar Per-
forming Arts í Jóhannesarborg
um þriggja ára skeið og stjórnandi
The Johannesburg Conservatoire
of Music í um þrjú ár. Hann var
gestalektor við tónlistardeild Wits
University í Jóhannesarborg 1986-
87 og lék í kirkjulegum athöfnum,
ýmist á orgel eða píano, hjá ýms-
um kirkjudeildum. Einnig lék hann
kvöldverðartónlist m.a. á Holiday-
inn hótelum og á veitingastöðum
í Jóhannesarborg og víðar í Suður
Afríku og í öðrum löndum á ferða-
lögum sínum við dreifingu á kristi-
legum les-myndabókum á 15 mál-
lýskum og tungumálum. Ingimar
þjálfaði staðarhljómsveit á Hilton
hóteli í Naíróbí þegar hann dvaldi
þar á ferðum sínum í Austur-Afr-
íku og lék einnig með hljómsveit-
inni.
Með leyfi og skriflegu um-
boði skiptaráðanda og utanríkis-
ráðuneytisins höfðaði Ingimar og
rak dómsmál í Afríku í tengslum
við andlát föður síns sem var þar
kristniboði. Málið sem var hugs-
að og rekið sem þróunaraðstoð við
Afríkubúa, var prófmál og beind-
ist að tryggingalöggjöf í landinu.
Leyfi yfirvalda var skilyrt við per-
sónulega ábyrgð Ingimars á rekstri
þess og umframkostnaði, þ.e. bæri
málið sig ekki sjálft. Málinu lauk
eftir átta ára baráttu með fullum
sigri í hæstarétti Swazilands og
hefur haft fordæmisgildi sem al-
menn réttarbót Afríkubúa.
Fjölskylda
Synir Ingimars eru Gunnlaugur
Ingi Ingimarsson, f. 19.10. 1965,
starfsmaður Hólagarðs, búsettur
í Reykjavík; Páll Lúther Ingimars-
son, f. 15.8. 1974, verslunarmað-
ur, búsettur í Kaupmannahöfn og
er dóttir hans Jóhanna Marín Páls-
dóttir, f. 22.8. 2002.
Systkini Ingimars eru Elín Páls-
dóttir, f. 11.2. 1949, húsmóðir og
leikskólakennari, búsett í Hafnar-
firði; Arnbjörg Pálsdóttir, f. 17.3.
1951, húsmóðir og starfsmaður
Landsbankans, búsett í Kópavogi;
Lúther Pálsson, f. 2.6. 1953, leigu- og
langferðarbílstjóri, búsettur í Kópa-
vogi; Pála Björg Pálsdóttir, f. 7.10.
1957, húsmóðir og starfsmaður við
Sjúkrahús Vestmannaeyja; Sesselja
Kristín Pálsdóttir, f. 28.7. 1965, hús-
móðir og starfsmaður Rimaskóla,
búsett í Reykjavík; Páll Elfar Páls-
son, f. 27.11. 1962, bassaleikari og
offetprentari og starfsmaður Húsa-
smiðjunnar í Reykjavík.
Foreldrar Ingimars: Páll Lúth-
ersson, f. á Eskifirði 20.10. 1926, d.
25.5. 1981, klæðskerameistari og
síðar kristniboði í Afríku, og Að-
albjörg Stefanía Ingólfsdóttir, f. á
Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði
11.11. 1924, húsmóðir, búsett í
Reykjavík.
Ingimar verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Harpa fæddist á Akureyri og ólst
þar upp. Hún var í Lundarskóla,
Gagnfræðaskóla Akureyrar, lauk
stúdentsprófi frá MA 2000, stund-
aði söngnám við Tónlistarskólann
á Akureyri á árunum 2000-2006 og
stundar nú nám í ensku og íslensku
við Háskóla Íslands.
Harpa vann við Landsbank-
ann á Akureyri í sex sumur, starfaði
við veitingahúsið Friðrik V á Akur-
eyri um skeið og vann í ísbúðinni
Brynju.
Harpa hefur sungið með Lund-
arskólakórnum, MA kórnum og
kvennakórnum Emblunum. Þá
stundar hún blak með Þrótti í
Reykjavík.
Fjölskylda
Unnusti Hörpu er Ólafur Freyr Birk-
isson, f. 5.8. 1988.
Systkini Hörpu eru Kristrún Lind
Birgisdóttir, f. 1971; Jón Víðir Birgis-
son, f. 1972.
Foreldrar Hörpu eru Birgir
Sveinbjörnsson, f. 1945, kennari og
dagskrárgerðarmaður, og Rósbjörg
H. Jónasdóttir, f. 1948, starfsmaður
Vegagerðarinnar.
KJARTAN GUNNAR KJARTANSSON rekur
ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma
viðburði liðinna ára og minnist horfinna
merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn
tilkynningar um stórafmæli á netfangið
kgk@dv.is
30 ÁRA Á FÖSTUDAG
Harpa Björk Birgisdóttir
HÁSKÓLANEMI Í REYKJAVÍK
50 FÖSTUDAGUR 12. mars 2010 ÆTTFRÆÐI
Sveinbjörg fæddist í Norð-
urfirði á Ströndum og
ólst þar upp til fimmt-
án ára aldurs. Hún var í
Finnbogastaðaskóla og
Grunnskólanum á Ísafirði
og stundar nú nám við
Menntaskólann á Ísafirði.
Sveinbjörg ólst upp
við öll almenn sveitastörf
í Norðurfirði II, vann í fiski á Ísfirði
á unglingsárunum og starfaði við
leikskóla á Ísafirði.
Sveinbjörg hefur stundaði bocc-
ia með íþróttafélaginu
Ívari frá 1995.
Fjölskylda
Bróðir Sveinbjargar er
Skúli Sveinbjörnsson, f.
7.8. 1972, starfsmaður hjá
Ósafli við Bolungarvíkur-
göngin.
Foreldrar Sveinbjargar:
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, f. 15.10.
1944, fyrrv. bóndi í Norðurfirði II, og
Ingibjörg Skúladóttir, f. 16.5. 1944,
d. 25.12. 2003, húsmóðir og bóndi.
30 ÁRA Á FÖSTUDAG
Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir
NEMI VIÐ MENNTASKÓLANN Á ÍSAFIRÐI