Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Page 69
12. mars 2010 FÖSTUDAGUR 69
Það verða tólf lið sem taka þátt í
Formúlunni í ár en fyrsta keppni
tímabilsins er á sunnudaginn í
Barein. Ný lið eru mætt til leiks á
þessu tímabili, Lotus er komið aft-
ur eftir margra ára fjarveru ásamt
öðrum nýliðum, HRT F1 frá Spáni
og Virgin Racing. Allt snýst samt
um endurkomu Michaels Schum-
acher sem ekur fyrir Mercedes. Það
lið varð meistari í fyrra undir nafn-
inu Brawn og gerði Jenson Button
að meistara.
STÆRSTA TÍMABILIÐ
Í ÁRARAÐIR
„Það eru fjórir meistarar að keppa,
Hamilton, Button, Alonso og
Schumacher. Svo eru gífurleg-
ar reglubreytingar þannig þetta
er stærsta tímabilið í Formúlu 1
frá því byrjað var að sýna það hér
á landi,“ segir Gunnlaugur Rögn-
valdsson, formúlusérfræðingur
á Stöð 2 Sport. Hann segir end-
urkomu Michaels eðlilega vera
stærsta saga tímabilsins til þessa.
„Endurkoma Schumachers
vekur heimsathygli og ekki síst hér
á landi. Þegar hann var að keppa
hélt helmingur allra áhugamanna
hér heima með honum. En mál-
ið er að hann er með þriggja ára
samning, hann er ekkert bara að
koma í eitt ár,“ segir Rögnvaldur en
hvað heldur hann um form kapp-
ans? „Schumacher hefur alltaf ver-
ið tröll að burðum og í toppfomi.
Hann hefur verið góður á æfingum
á Spáni og er því til alls líklegur,“
segir hann.
ÁHÆTTA HJÁ BUTTON
Nýju reglurnar, sem var farið ítar-
lega yfir í miðvikudagsblaði DV,
setja sinn svip á mótið. Ein sú
stærsta er þó bensíntankurinn sem
verður nú að rýma eldsneyti sem
dugar alla keppnina, bannað er að
fylla á. „Bílarnir taka mið af þessu
og eru því stærri og lengri. Þeir
byggjast þó allir á gamalli hefði,“
segir Gunnlaugur.
Núverandi heimsmeistari, Jen-
son Button, bauðst að vera áfram
í herbúðum Mercedes og aka við
hlið Michaels Shumacher, hann
ákvað þó að taka tilboði McLar-
en og aka með Lewis Hamilt-
on, meistaranum frá 2009. „ Þetta
er mikil áskorun fyrir Button, að
skipta yfir í búrið til Jenson Butt-
on þar sem hann þekkir alla frá
gólfi upp í topp. Hann vill þó láta
á þetta reyna og það verður spenn-
andi,“ segir Gunnlaugur sem tel-
ur þó Button ekki upp þegar lík-
legustu menn að hampa titlinum
eru nefndir. „Þeir líklegustu núna
eru Alonso, sem verður sterkur hjá
Ferrari held ég, Lewis Hamilton
og Vettel. Það er þó ómögulegt að
spá,“ segir hann.
EKKI HÆGT AÐ
BYRJA Á TOPPNUM
Þrjú ný lið taka þátt í ár en þau
hafa átt erfitt uppdráttar á æfing-
um, verið þremur til sex sekúnd-
um á eftir hinum liðunum. Hafa
sumir ökuþórar í Formúlunni lýst
yfir áhyggjum sínum af því, aðal-
lega vilja þeir að ökumenn þeirra
liða verði duglegir að færa sig frá
þegar þeir verða hringaðir. „Mér
finnst þessi gagnrýni ekki alveg
sanngjörn ef ég tala bara fyrir mig.
Menn geta náttúrlega ekki byrjað á
toppnum,“ segir Gunnlaugur sem
telur Lotus vera líklegast til árang-
urs af nýju liðunum.
Sem fyrr verður umfjöllunin á
Stöð 2 Sport frá Formúlunni glæsi-
leg. „Við verðum með föstudagsæf-
ingar, morgunæfingar á laugardög-
um, tímatökuna, kappaksturinn
sjálfan og endamarkið á sunnu-
degi, allt í beinni. Tímatakan og
kappaksturinn eru áfram í opinni
dagskrá,“ segir Gunnlaugur Rögn-
valdsson spenntur.
Tímabilið í Formúlu 1 hefst um helgina
þegar tólf lið aka af stað í Barein. Allt
snýst um endurkomu Michaels Schu-
macher en miklir umbrotstímar eru í
Formúlunni eftir stórar reglubreytingar.
Gunnlaugur Rögnvaldsson, formúlu-
sérfræðingur á Stöð 2 Sport, segir þetta
stærsta tímabilið í Formúlu 1 frá því
sýningar hófust hér heima.
EKIÐ AF STAÐí Barein
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
MEISTARINN Jenson
Button tók mikla áhættu og
er farinn til Lewisar Hamilton
og félaga í McLaren. MYND AFP
ÚRSLIT 2009
1. Jenson Button, Brawn
2. Sebastian Vettel, Red Bull
3. Jarno Trulli, Toyota
4. Lewis Hamilton, McLaren
5. Rubens Barrichello, Brawn
FREMSTUR Á RÁSPÓL 2009
n Jarno Trulli, Toyota 1:33:431
FLJÓTASTUR Í
EINSTÖKUM HRING
n Jarno Trulli, Toyota 1:34:556
BRAUTARMET
n Michael Schumacher, Ferrari
1:30:252
FYRRI SIGURVEGARAR
2009: Jenson Button, Brawn
2008: Felipe Massa, Ferrari
2007: Felipe Massa, Ferrari
2006: Fernando Alonso, Renault
2005: Michael Schumacher, Ferrari
Shakir-brautin
BÍLAR OG ÖKUMENN 2010
MCLAREN
1 Jenson Button, Bretlandi
2 Lewis Hamilton, Bretlandi
MERCEDES (Brawn í fyrra)
3 Michael Schumacher, Þýskalandi
4 Nico Rosberg, Þýskalandi
RED BULL
5 Sebastian Vettel, Þýskalandi
6 Mark Webber, Ástralíu
FERRARI
7 Felipe Massa, Brasilía
8 Fernando Alonso, Spáni
TORO ROSSO
16 Sebastien Buemi, Sviss
17 Jaime Alguersuari, Spáni
WILLIAMS
9 Rubens Barrichello, Brasilíu
10 Nico Hülkenberg, Þýskalandi
RENAULT F1
11 Robert Kubica, Póllandi
12 Vitaly Petrov, Rússlandi
FORCE INDIA
14 Adrian Sutil, Þýskalandi
15 Vitantonio Liuzzi, Ítalíu
VIRGIN RACING
24 Timo Glock, Þýskalandi
25 Lucas di Grassi, Brasilíu
BMW SAUBER
22 Pedro de la Rosa, Spáni
23 Kamui Kobayashi, Japan
LOTUS
18 Jarno Trulli, Ítalíu
19 Heikki Kovalainen, Finnlandi
HRT F1
20 Karun Chandhok, Indlandi
21 Bruno Senna, Brasilíu