Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Side 77

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Side 77
SVIÐSLJÓS 12. mars 2010 FÖSTUDAGUR 77 NJARÐARBRAUT 9 - REYK JAN ES BÆ FIS KIS LÓÐ 3 - REYKJAVÍK www.birkiaska.is Birkilauf- Betulic Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). KOMIÐ ÚT Ég er búinn að vera hálfviti, fáviti, asni,“ segir Take That-stjarnan Mark Owen sem ákvað að játa framhjáhald sitt í viðtali við The Sun. Mark er giftur Emmu Owen en þau gengu í það heilaga síðastliðinn október. Þau hafa verið saman í ein fimm ár en Owen segist hafa haldið við margar konur á þeim tíma. „Þær voru kannski tíu. Flest- ar þeirra voru bara einnar nætur gaman á ferðalögum með hljóm- sveitinni,“ en Owen átti í lengra sambandi við eina konu. Hina 24 ára gömlu Nevu Hanley en hún var aðeins 19 ára þegar samband þeirra hófst. Owen segist harma hversu illa hann hefur farið með eiginkonu sína en þau eiga tvö börn saman, þriggja og eins árs. Owen kennir alkóhólisma sínum og veiku geði um framhjáhaldið og vill bæta fyrir mistök sín. Tíðindin komu aðdáendum Owens í opna skjöldu en hann hefur hingað til verið álitinn „góði strákurinn“ í strákasveitinni. „Þetta eru mín mistök og það er engum öðrum um að kenna.“ Ástæðan fyr- ir því að Owen játaði syndir sínar er sögð vera sú að ein af hjákonum hans hafi ætlað að selja sögu sína en hann hafi ákveðið að verða fyrri til. Leikarinn Brad Pitt ferðaðist um Feneyjar á miðvikudag í báts- leigubíl með myndavél með- ferðis. Leikarinn myndaði nokkrar sögufrægar byggingar og fræg kenni- leiti en hann var einn á ferð. Eins og vanalega voru ljósmyndarar ekki langt undan og áður en langt um leið höfðu þeir fundið Pitt og voru farn- ir að mynda hann. Leikarinn tók eftir þessu og beindi því myndavél sinni að þeim og smellti af. Næsta stóra mynd sem Pitt leik- ur í heitir The Tree of Life en í henni leikur einnig Sean Penn. Að þessari mynd undanskilinni er Pitt með ein 25 verkefni í gangi sem hann annað- hvort tengist eða er sagður tengjast. MYNDAR Á MÓTI VIÐURKENNIR FRAMHJÁHALD Mark Owen ásamt hljómsveitinni. Mark og Emma Mark segist sjá eftir öllu saman en þau eiga tvö börn. Mark Owen úr Take That: Brad Pitt í Feneyjum: Brad Pitt Hefur mikinn áhuga á ljósmyndun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.