Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Blaðsíða 64
Hjónin Margrét Hrafnsdóttir og Jón Óttar Ragnarsson sem hafa gert það gott hér á landi við að selja Íslend- ingum Herbalife-vörurnar, hafa fengið mikinn liðsstyrk fyrir auglýs- ingaherferðir sínar. Besti fótbolta- maður heims, Lionel Messi, hefur nefnilega undirritað risastóran samning um að kynna vörur Her- balife á heimsvísu. Spánarmeistarar Barcelona hafa einnig gert samning við Herbalife. Messi verður vænt- anlega ein aðalstjarnan á HM sem hefst í næstu viku og það má búast við því að hann muni koma hjón- unum vel. Maja átti lítið lamb! Messi til liðs við Möggu Halla Gunnarsdóttir, talskona Femínistafélags Íslands, skrifar grein á vefritið Smuguna þar sem hún gagnrýnir hart gagnrýni Þor- leifs Gunnlaugssonar, varaborgar- fulltrúa vinstri-grænna í Reykjavík. Halla segir Þorleif þurfa að kynna sér stefnu flokksins betur, þar sem femínismi sé partur af stefnu VG en Þorleifur segir í grein í Morgunblað- inu að hann hafi rætt við fólk sem ekki ætlaði að kjósa flokkinn vegna þess hvernig „týpa“ af femínisma væri sett fram af forystu VG í Reykjavík. Í at- hugasemdakerfi á Smugunni er Höllu svarað fullum hálsi og skotið hörðum skotum á hana til baka. gagnrýnir gagnrýni Magnús Jónsson leikari sagði frá því á Facebook-síðunni sinni á fimmtudag að hann væri farinn að semja diskótónlist og ætlaði með henni að stuðla að heimsfriði. Magnús gerði það gott á sínum tíma sem liðsmaður Gus Gus en hefur að undanförnu einbeitt sér að tónlist- arferli undir nafninu Blake í bandinu BB & Blake. Þar syngur hann og spilar á móti Veru Sölvadótt- ur. Magnús Jónsson lætur sig málefni samfélags- ins varða og tilkynnti einn- ig um það á síðunni sinni í vikunni að hann ætlaði að sniðganga allar vörur frá Ísrael. Diskófriður DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar. Áskriftarsíminn er 512 70 80 Fréttaskot 512 70 70 sólarupprás 03:16 sólsetur 23:38 „Nei, ég hef ekki séð svona áður. Menn hafa reyndar séð svona lít- ið lamb en ekki ég,“ segir Jón Þór Dagbjartsson, bóndi á Garði 2 skammt frá Kópaskeri. Fyrir um hálfum mánuði kom agnarsmátt lamb í heiminn á sveitabænum og þegar meðfylgjandi mynd var tekin var það sex daga gamalt. Lambið ber nafn með rentu; Trítla. Við hlið Trítlu er eins dags gam- alt lamb í eðlilegri stærð. „Þetta var bara smáhnoðri og við þurft- um að byrja á því að gefa henni að drekka með 10 millilítra sprautu og slöngu í tvo daga. Þegar hún var fjögurra daga gömul náði hún rétt að að teygja sig upp til að totta spenann. Ég vigtaði hana reyndar ekki, en það má segja að hún hafi verið á stærð við kanínuunga eða vikugamlan hvolp,“ segir Jón Þór. Trítla var svo lítil þegar hún kom í heiminn að það var hægt að láta hana standa undir eins dags gömlu lambi. Hún hefur hins veg- ar braggast vel síðustu daga, en er enn ekki komin í eðlilega stærð. „Hún mun spjara sig vel. Ég átti nú ekki von á því að hún myndi lifa en maður er svo aumingja- góður í sér og varð hvort eð er að vaka á næturnar að ég var með hana í vasanum fyrstu dagana. Ég var í svona smíðabuxum með stór- um vasa og ég var eins og kengúra með afkvæmið mitt,“ segir Jón Þór og hlær. „Svo var ég með lítinn dall og sprautaði uppi í hana ærmjólk með sprautu.“ valgeir@dv.is Bóndinn Jón Þór Dagbjartsson gat geymt örlítið lamb í vasanum: laMBið trÍtla spJarar sig vel Trítla Hér er Trítla sex daga gömul og stendur við hlið eins dags gamals lambs. Meistarar í Samtökum iðnaðarins eru með Ábyrgðasjóð sem tryggir þér vel unnið verk. Hver ábyrgist þinn meistara? Það er trygging fyrir gæðum og réttum vinnubrögðum að skipta við meistara og fagmenn sem hafa tilskilin réttindi. Innan raða Samtaka iðnaðarins er starfandi Meistaradeild sem hefur á að skipa löggiltum fagmönnum til hvers kyns framkvæmda. Félag skrúðgarðyrkjumeistara www.meistari.is málarameistarafélagið www.malarar.is meistarafélag suðurlands www.mfs.is meistarafélag iðnaðarmanna í Hafnarfirði www.si.is/mih meistarafélag byggingarmanna á norðurlandi www.mbn.is Félag blikksmiðjueigenda www.blikksmidjur.is Kynntu þér málið á www.si.is ert þú með skriflegan samning og tryggingu um fagleg vinnubrögð frá þínum meistara?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.