Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Blaðsíða 13
Bæjarlind 6, Kópavogi, sími 517 6067. Opið mán. - fös. 10 -18, laugard. 11-16. MILAN sturtuhorn 90x90 cm með botni 27.900 NAPOLI hitastýrt sturtusett 29.900 VEMAR blöndunartæki 4.290 Ótrúlegt úrval flísa, hreinlætistækja og fylgi- hluta fyrir baðherbergið í 700 m2 sýningarsal Vegghengt salerni með setu: 15.195 ADELL sturtusett 2.995 EURO handklæðaofn króm 50x120 cm (sveigður) 19.490 einnig fáanlegir í hvítu á enn lægra verði. Margar stærðir. NAPOLI hitastýrð blöndunartæki fyrir sturtu 12.945 Cearastyle handlaug á vegg 55cm 4.900 KRANAR OG HITASTILLAR FRÁ stofnum – sem eru þorskur, ýsa og ufsinn að mestu leyti. Þessir hefð- bundnu nytjastofnar sem eru kvóta- bundnir á Íslandsmiðum myndu falla eingöngu okkur í skaut, vegna reglunnar um hlutfallslegan stöðug- leika. Kolmunni, síld, loðna og karf- inn á Reykjanesi eru dæmi um deili- stofna sem við deilum með ESB á alþjóðlegu hafsvæði sem þegar er búið að semja um. Á þeim samning- um yrði auðvitað byggt. Makríllinn er eini stofninn sem myndi standa fyrir utan. Við höfum takmarkaða veiði- reynslu af makríl og það yrði klárlega bitbein í aðildarviðræðunum,“ segir Úlfar. Breytir ekki stjórnunarkerfinu Mörgum Íslendingum finnst tilhugs- unin um að gangast undir sameigin- lega sjávarútvegsstefnu ESB óþægi- leg. Margir telja að Íslendingar missi með því forræði yfir auðlindinni. „Það hefur borið við í umræðunni að hlutunum sé ruglað saman. Við getum haft hvaða fiskveiðistjórnun- arkerfi sem er. Við myndum fá út- hlutað samkvæmt hlutfallslegum stöðugleika ákveðnum hámarks- afla á Íslandsmiðum. Við gætum svo tekið þann afla upp með hvaða kerfi sem er. Við gætum verið með óbreytt kvótakerfi, einhvers konar veiðileyfa- gjöld eða stundað ólympískar veiðar þangað til hámarksaflanum er náð. Fiskverndarkerfið sem við myndum beita yrði því óháð því hvort við vær- um í ESB eða ekki,“ segir Úlfar. Skilur hræðsluna við Brussel Úlfar Hauksson segist þó vel skilja hræðsluna við Brussel. „Ég hef líkt þessu við fyrirkomulagið í byrjun 20. aldar þegar við vorum í sambandi við Dani þar sem ákvarðanir um Ís- land voru teknar í ríkisráði Dana. Þar þurfti íslenskur ráðherra að bera upp íslensk mál í ríkisráðinu danska – þar sem ákvarðanir voru endanlega ákveðnar. En dæmin sýna að Danir hringluðu þar ekki í íslenskum mál- um heldur var meira um formlega staðfestingu að ræða. Líklegast er að ákvarðanir um íslensk sjávarútvegs- mál yrðu bara stimplaðar í Brussel,“ segir Úlfar. „Íslenski sjávarútvegsráðherrann myndi bera upp tillögur í ráðherra- ráði ESB. Þar hefði enginn annar neinna hagsmuna að gæta og færi ekki að hringla í okkur – nema ef Ís- lendingar ætluðu sér hámarksafla sem færi gríðarlega langt fram yfir ráðleggingar vísindamanna. Rann- sóknir á smáríkjum innan ESB hafa sýnt að þau eru stíf á sínum sérhags- munum og sveigjanleg í öðrum mál- um. Evrópulöndin vita vel að sjávar- útvegurinn er mikilvægur á Íslandi og það verður að teljast mjög ólík- legt að þau færu að amast út í okk- ur vegna smámála. Það er miklu lík- legra að ESB-löndin vilji hafa okkur sem hauk í horni í öðrum málum, sem eru þeim mikilvæg.“ Íslendingur sjávarútvegsstjóri? Embættismaður sem DV ræddi við í höfuðstöðvum ráðherraráðsins í Brussel stakk upp á að Íslendingur myndi gegna, fljótlega eftir inngöngu Íslands í ESB, embætti sjávarútvegs- stjóra framkvæmdastjórnarinnar. Núverandi fulltrúi eða fiskistjóri er Grikkinn Maria Damanaki. Úlfar Hauksson segir afar lík- legt að Íslendingar fengju embættið. „Talað var um að Norðmönnum hafi verið lofað að fá sjávarútvegsstjór- ann, þegar þeir sóttu um aðild að ESB á sínum tíma. Það er nú reyndar ekki hægt að lofa slíku, það er auðvit- að ráðið í þá stöðu með formlegum leiðum. Það er hins vegar morgun- ljóst að það að vera sjávarútvegsstjóri í framkvæmdastjórn ESB er ekki eft- irsóttasta embættið. Það vill enginn taka þetta embætti að sér,“ segir Úlf- ar. Yrði ýtt til okkar um leið „Emma Bonino var frægur sjávar- útvegsstjóri á sínum tíma og gerði marga góða hluti. En embættinu var þvingað upp á hana. Hún var með tvö embætti, var með neytenda– og sjávarútvegsmál sem var blandað saman. Þá voru sjávarútvegsmál- in olnbogabarn, sem enginn vildi. Mönnum finnst embættið ekki skipta neinu máli og það væri því mjög auð- sótt fyrir Íslendinga. Þessu yrði ýtt til okkar um leið. Það leggur ekkert ríki áherslu á að fá þetta embætti. Embættið er auðvitað valdamikið í þessum mála- flokki, en málaflokkurinn er ekkert mikilvægur í ESB. Sjávarútvegsmál- in eru hvergi pólítísk stórmál nema í ákveðnum svæðum, ákveðnum hér- uðum í nokkrum ríkjum,“ segir Úlfar Hauksson stjórnmálafræðingur. Úlfar Hauksson „Evrópulöndin vita vel að sjávarútvegurinn er mikilvægur á Íslandi og það verður að teljast mjög ólíklegt að þau færu að amast út í okkur vegna smámála.“ Fiskistjóri Ítalinn Emma Bonino var framkvæmdarstjóri sjávarútvegsmála í ESB á tíunda áratugnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.