Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Blaðsíða 12
12 föstudagur 4. júní 2010 fréttir „Íslendingar þurfa ekki að óttast sameiginlega sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Með reglunni um hlutfallslegan stöðugleika verður íslenskum útvegsfyrirtækjum tryggð- ar áframhaldandi veiðiheimildir á Íslandsmiðum, vegna sögulegrar veiðireynslu,“ segir embættismaður í sjávarútvegsstjórn framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins í Brus- sel í samtali við DV á dögunum. Annar embættismaður stingur upp á að Íslendingur myndi gegna, fljótlega eftir inngöngu í ESB, emb- ætti framkvæmdastjóra sjávarút- vegsmála hjá ESB, sem er valda- mesta embætti geirans í Brussel. Hann nefndi að fordæmi séu fyrir að ríki fái við inngöngu úthlutað emb- ættum sem snúa að þeim málaflokk- um sem hafi verið umdeildir og erf- iðir í landinu. Úlfar Hauksson stjórnmálafræð- ingur skrifaði bókina „Gert út frá Brussel“ árið 2002 þar sem hann rannsakaði íslensk sjávarútvegsmál út frá hugsanlegri aðild Íslands að ESB. Hann segir að reglan um hlut- fallslegan stöðugleika muni tryggja að hefðbundnir nytjastofnar á borð við þorsk og ýsu myndu falla ein- göngu Íslendingum í skaut. Úlf- ar segir mjög líklegt að Íslendingar fengju sjávarútvegsstjórastólinn við inngöngu í ESB, enda hafi Evrópu- þjóðir almennt lítinn áhuga á mála- flokknum. Fræðilegur möguleiki Þeir sem eru andsnúnir aðild Íslands að ESB benda stundum á að þó um- rædd regla um hlutfallslegan stöðug- leika tryggi Íslendingum í núverandi landslagi veiðiheimildir, sé allt eins líklegt að reglunum verði breytt eft- ir nokkur ár, sem hefði mjög slæmar afleiðingar á Íslandi. Úlfar Hauksson segir að þó fræðilegur möguleiki sé fyrir hendi á að reglunni verði breytt sé það ekki mjög líklegt. „Það er alveg rétt að enginn geti sagt að hlutfallslegur stöðugleiki sé kominn til að vera til eilífðar, ekki frekar en að ég geti fullyrt að Þýska- land muni aldrei ráðast á Frakkland aftur. Það er fræðilegur möguleiki á að hlutfallslega stöðugleikanum verði kollvarpað. Ef maður hugsaði of mikið um fræðilega möguleika færi maður aldrei fram úr rúminu á morgnana, af ótta við að lenda í bíl- slysi.“ Engin dæmi um slíkar ákvarð- anir Úlfar segir að enginn vilji sé í ESB til að breyta reglunum. Hann tel- ur það enn ólíklegra ef Íslendingar kjósa að ganga í ESB. „Enda myndu menn ekki ganga gegn hagsmunum eins ríkis, og ég tala nú ekki um ríkis á borð við Ísland sem á allt sitt und- ir í sjávarútvegi,“ segir Úlfar. Hann bendir á að lagalega leiðin að breyt- ingu eða afnámi hlutfallslegs stöðug- leika væri erfið. „Ef menn ætluðu að fara hefð- bundnu leiðina með auknum meiri- hluta í ráðherraráðinu þyrfti að koma tillaga þess efnis frá fram- kvæmdastjórninni. Málið þyrfti að fara í gegnum allt nefndakerfið, sem er mjög flókið ferli. Það þyrfti að rök- styðja sérstaklega að nú yrði nauð- synlegt að breyta hlutfallslega stöð- ugleikanum og ganga á hlut Íslands. Framkvæmdastjórnin þyrfti að skila tillögu sem síðan færi í gegnum ráð- herraráðið,“ segir Úlfar Hauksson. „Ef lagabreytingin yrði gerð án framkvæmdastjórnarinnar myndi ráðherraráðið eitt fjalla um málið. Hún þyrfti að fá samhljóða samþykki en þar hefði Ísland neitunarvald, svo breytingin færi ekki í gegn. Það eru engin dæmi þess að svona ákvarð- anir hafi verið teknar, enda myndu þær fljótt grafa undan sambandinu, ef menn hjóluðu í grunnstoðir efna- hags eins ríkis,“ segir Úlfar. Makríll bitbein En hvað myndi hlutfallslegur stöðug- leiki þýða fyrir Ísland? „Við myndum sitja einir að þessum staðbundnu Úlfar Hauksson stjórnmálafræðingur segir ólíklegt að reglunni um hlutfallslegan stöðugleika í sjávarút- vegsmálum í ESB verði breytt á næstunni. Hann segir að hún tryggi að þorskurinn falli í skaut Íslendingum þó að landið gangi í ESB. Úlfar segir líklegt að Íslendingar fengju embætti sjávarútvegsstjóra ESB óskuðu þeir eftir því. ÍSLENDINGAR STJÓRNI SJÁVARÚTVEGSMÁLUM HElgi HraFn guðMundsson blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is Mönnum finnst embættið ekki skipta neinu máli og það væri því mjög auð- sótt fyrir Íslendinga. „Íslendingar, óttist ekki“ Embættismenn hjá sjávarútvegsstjórn ESB telja að Íslendingar þurfi ekki að óttast sjávarútvegsstefnu sambandsins. Íslenskur stjóri Rætt er um að Íslendingur muni gegna embættinu við inngöngu í ESB. Samkvæmt heimildum DV hefur nafn Þorsteins Pálssonar, fyrrverandi forsætis- ráðherra, borið á góma í því sambandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.