Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR 15. október 2010 FÖSTUDAGUR
ENGINN BOÐAÐUR
Í ATVINNUVIÐTAL
FÉLAG MAGNÚSAR ÁRMANNS:
Risaskuldir –
engar eignir
Eignarhaldsfélag fjárfestisins Magn-
úsar Ármanns, MogS ehf., skuld-
aði rúmlega 6,7 milljarða króna í
lok síðasta árs,
samkvæmt árs-
reikningi félags-
ins. Engar eignir
eru hins vegar í
félaginu og það
stefnir því að
óbreyttu hrað-
byri í gjaldþrot. Í
skýrslu endur-
skoðanda félags-
ins segir raunar:
„Verulegur vafi
leikur á rekstarhæfi þess, en árs-
reikningurinn byggir á forsendum
um áframhaldandi rekstur og að
takast muni að ná samningum við
lánardrottna félagsins.“ Ekki liggur
hins vegar fyrir hverjir lánardrottnar
félagsins eru.
MogS ehf. er sagt vera fjárfest-
ingafélag, en það er í helmingseigu
Magnúsar sjálfs og helmingseigu
fjárfestingafélagsins Materia Invest.
Enginn starfsemi virðist hins vegar
hafa verið í félaginu síðustu tvö ár og
ekkert handbært fé. Aðeins skuldir.
Magnús Ármann
JÓN BJARNASON:
Íhugar að auka
veiðiheimildir
Jón Bjarnason, sjávarútvegsráð-
herra segist ætla að kanna til hlýtar
möguleika á að auka veiðiheim-
ildir. Þetta kom fram í ræðu hans
á aðalfundi Landssambands smá-
bátaeigenda.
„Fyrir liggur að viðskipti með
aflamark eru nú í lágmarki og
margar útgerðir eiga í erfiðleikum
með að fá nauðsynlegar aflaheim-
ildir til að geta stundað blandað-
ar veiðar. Þessi staða torveldar
veiðar og eykur líkur á brottkasti.
Jafnframt verður að líta til þess að
nú oftar en áður er nauðsynlegt að
tekjur þjóðarbúsins verði hámark-
aðar á öllum mögulegum sviðum
til þess að takast á við þá erfiðleika
sem framundan eru og allir þekkja.
Nokkra áhættu verður því að taka í
því sambandi,“ sagði Jón.
Breyta þarf lögum til þess að
auka kvóta og einnig er þörf á laga-
breytingum ef ætlunin er að fylgja
öðrum viðmiðum en nú gilda
innan kvótakerfisns við úthlutun
veiðiheimildanna. Sjávarútvegs-
ráðherra sagði í ræðu sinni að
markmiðið væri að auka mögu-
leika útvegsmanna til að kaupa
kvóta undir sérstökum reglum.
„Jóni finnst Bjarni greinilega sætari en ég,“ segir Kristján Þorvaldsson, einn 29 umsækj-
enda um ráðningu í stöðu upplýsingafulltrúa sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis.
Enginn umsækjenda var boðaður í viðtal vegna stöðunnar þrátt fyrir að þar á meðal
væri fjöldi hæfileikaríkra og vel menntaðra einstaklinga.
Bjarni Harðarson, fyrrverandi þing-
maður Framsóknarflokksins, var
ráðinn tímabundið í starf upplýs-
ingafulltrúa í sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytinu í byrjun vikunn-
ar. Ráðuneytið auglýsti stöðuna um
miðjan september. Enginn umsækj-
enda sem DV hefur rætt við var boð-
aður í atvinnuviðtal, heldur var Bjarni
ráðinn.
Hæfniskröfur voru að umsækjend-
ur hefðu reynslu af fjölmiðlum og al-
menna reynslu og þekkingu á verkefn-
um ráðuneytisins auk mikils áhuga á
málefnum sjávarútvegs og landbún-
aðar. Í auglýsingunni kemur fram að
sérstaklega er leitað eftir kraftmiklum
og reynslumiklum einstaklingi, eins
og það er orðað í auglýsingu frá ráðu-
neytinu.
Umsóknarfrestur var gefinn til 2.
október og ráðningin síðan kunngjörð
11. október. Í tilkynningu frá ráðuneyt-
inu segir að Bjarni hafi verið valinn
úr hópi 29 umsækjenda. Samkvæmt
heimildum DV var enginn þeirra boð-
aður í viðtal, hins vegar var hringt í
meirihluta þeirra sem sóttu um.
Tvær meistaragráður
Meðal umsækjenda eru reynslumikl-
ir ritstjórar sem hafa reynslu af skrif-
um um landbúnað og sjávarútveg,
búfræðingur og blaðamaður, fram-
kvæmdastjóri og fyrrverandi aðstoð-
armaður ráðherra með tvær meist-
aragráður og haldgóða reynslu af
blaðamennsku.
Bjarni hefur unnið sem bóksali síð-
an hann sagði af sér þingmennsku í
nóvember 2008 eftir að hafa fyrir mis-
tök sent fjölmiðlum bréf sem átti að
fara á aðstoðarmann hans. Í umræddu
bréfi var vegið að Valgerði Sverrisdótt-
ur, þáverandi varaformanni Fram-
sóknarflokksins, vegna afstöðu henn-
ar til Evrópusambandsins.
Vel orðuð auglýsing
Einn umsækjenda, Kristján Þorvalds-
son, blaðamaður og fyrrverandi rit-
stjóri, segist halda að Jón Bjarnason
hafi valið þann umsækjanda sem
honum hafi fundist sætastur. „Ég sá
að hann var að sækjast eftir einhverju
ákveðnu enda er þetta er ein best orð-
aða auglýsing sem ég hef séð lengi og
þess vegna fannst mér hún svo áhuga-
verð,“ segir Kristján. „Honum finnst
Bjarni greinilega sætari en ég. Ég hef
ekkert út á ráðningu Bjarna að setja en
tel að ráðuneytið megi temja sér betri
mannasiði. Reyndar finnst mér að ráð-
herra eigi að ráða til sína nánustu að-
stoðarmenn en þeir eiga líka að hætta
um leið þeir og óþarfi að setja þá spen-
ann.“
Líklegra að vinna í lottó
Annar umsækjandi sagðist enn bíða
eftir betri vinnubrögðum þessarar rík-
isstjórnar sem hafði lofað betrumbót-
um og sagðist ekki hafa átt von á svari
frekar en að vinna í lottóinu á laug-
ardaginn. Hann sagðist hafa fengið
svarumslagið, tveimur dögum eftir að
ráðning Bjarna var kynnt og spyr hvort
það megi ekki eyða fjármunum rík-
isins í eitthvað annað skemmtilegra.
Einn annar sagðist myndu biðja um
rökstuðning á þeim forsendum að
hann hlyti að vera hrikalega fyndinn
og því vert að eiga hann upp á punt.
Bindur vonir við stjórnlagaþing
Soffía Sigurgeirsdóttir, einn umsækj-
anda, segir það miður að sitjandi ríkis-
stjórn skuli viðhafa nákvæmlega sömu
vinnubrögð og hún gagnrýndi í mörg
ár í stjórnarandstöðu. Soffía hefur beð-
ið um að sjá lista umsækjenda og vill fá
rökstuðning. Hún segist sannfærð um
að enginn hafi verið boðaður í viðtal
nema þá kannski Bjarni sjálfur. Blaða-
maður fékk lista yfir umsækjendur
meðan Soffía fékk þau svör að verið
væri að vinna úr beiðni hennar. „Það
skín í gegn að þetta er ekki faglegt. Það
er einkennilegt í ljósi þess að í dag er
það er í hag flokkanna að byggja upp
traust og sýna gegnsæi í svona ráðn-
ingum.
„Þetta er miður, sér í lagi á þeim
tímapunkti þegar við erum öll í nafla-
skoðun sem þjóðfélag.“ Soffía seg-
ist binda vonir við að stjórnlagaþing
stuðli að betri stjórnsýslu og stjórnar-
skrá. Ljóst sé að það starf sé mikilvægt í
ljósi vinnubragða sitjandi ríkisstjórnar.
Soffía er MA-gráðu í alþjóðasamskipt-
um frá London School of Econom-
ics og fjallaði lokaritgerð hennar um
hvalveiðar. Hún íhugar nú að bjóða sig
fram til stjórnlagaþings.
Lélegur í bekkpressu
Bjarni hóf störf í ráðuneytinu á þriðju-
dag en honum var tilkynnt ráðningin
á mánudag. Hann var ekki boðaður í
viðtal. „Ég er ekki mjög handleggja-
sterkur og afar slæmur í bekkpressu,“
segir Bjarni Harðarson aðspurður um
hvort hann uppfylli þau skilyrði að
vera kraftmikill eins og krafist er í aug-
lýsingu ráðuneytisins.
„Þetta var flottur listi af fólki en ég
hef efasemdir um að nokkur á þess-
um lista hafi meiri reynslu í blaða-
mennsku en ég. Ég hef starfað sam-
fellt við blaðamennsku frá 1983 til
2007 og fjallaði þann tíma lengst af
um landbúnað og sjávarútvegsmál.
Ég var til dæmis með báða þá mála-
flokka á minni könnu á NT og þá voru
þau mál auðvitað aðalumfjöllunar-
efni Bændablaðsins sem ég stofnaði
1987.“
Lærði á tölvupóst og Lotus Notes
„Þetta er tímabundin ráðning til 12.
janúar og þetta er ekki óalgengt fyr-
irkomulag þegar ráðið er í svona
starf,“ segir Bjarni. Hann segir fyrsta
vinnudaginn hafa verið skemmtileg-
an. „Hluti af tímanum fór í að læra á
tölvupóstinn og svo hef ég aldrei not-
að Lotus Notes áður sem er pínulítið
öðruvísi umhverfi en ég er vanur en
mjög fullkomið.“
KRISTJANA GUÐBRANDSDÓTTIR
blaðamaður skrifar: kristjana@dv.is
Hluti af tíman-um fór í að læra á
tölvupóstinn og svo hef
ég aldrei notað Lotus
Notes áður sem er pínu-
lítið öðruvísi umhverfi
en ég er vanur en mjög
fullkomið.
Bjarni Harðarson Gekk
nýlegatilliðsviðVGoghefur
veriðráðinnístarfupplýs-
ingafulltrúaísjávarútvegs-og
landbúnaðarráðuneytinu.