Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Blaðsíða 50
50 tækni umsjón: páll svansson palli@dv.is 15. október 2010 föstudagur Stephen Fry og Windows Phone 7 Breski leikarinn og þáttastjórnandinn stephen Fry er ekki síður þekktur í heimalandi sínu fyrir að vera tækja- og tæknifrík. Fry er meðal annars þekktur fyrir ást sína á vörum Apple-fyrirtækisins en lætur sig svo sem litlu varða hvaðan gott kemur og kom fram á kynningu microsoft í vikunni þegar Windows Phone 7-stýrikerfið var kynnt. Fry, sem hafði fengið að prófa hugbúnaðinn í vikutíma, lofaði nýja stýrikerfið fyrir einfaldleika og hugkvæmni og sagðist vera að íhuga að taka símkortið úr iPhone-símanum sínum og setja það í nýja símann – að minnsta kosti í einhvern tímann. meðal annarra munu samsung, HTC, LG og Dell bjóða upp á síma með Windows Phone 7. Michael Jackson í sýndarveruleika og þrívídd: Planet Michael næsta ár 360° örygg- ismyndavél svokallaðar 360 gráðu linsur ryðja sér nú til rúms í heimi öryggismyndavéla fyrir heimili og fyrirtæki. Í stað þess að myndavélin nemi aðeins afmark- aðan hluta þess svæðis þar sem hún hefur verið staðsett geta hinar nýju 360 gráðu myndavélar fangað svæði sem nær frá vegg í vegg, frá gólfi til lofts. mobotix er þýskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í gerð slíkra myndavéla sem byggja einnig á VoIP/sIP- fjarskiptastaðli og H.264-staðli fyrir myndskerpu. Fyrirtækið hefur nú sett á markað T24-öryggisstöðina en með henni er hægt að senda myndir úr vélinni yfir net og vera með fjarstýrða aðgangsstýringu þannig að hægt sé að hleypa öðrum inn í húsnæði þrátt fyrir að sjálfur sé maður staddur annars staðar. Þegar dyrabjallan hringir tengist myndavélin við myndsíma eða heim- ilistölvu í gegnum netið. Bæði mynd og hljóð er sent frá stöðinni, og með aðgangsstýringarkerfi búnaðarins er hægt að hleypa gestum inn, hvar svo sem húsráðandi er staddur í heimin- um – hinum megin á hnettinum eða einfaldlega inni í sófa. Þá er hægt að stilla kerfið þannig að hægt er að slá inn PIn-kóða svo dyrnar opnist. með öflugri rafhlöðu er tryggt að kerfið læsist ekki þó svo að rafmagni slái út. Þeir sem eiga von á gestum á meðan þeir eru fjarverandi geta skilið eftir annað hvort hljóðskilaboð eða hljóð- og myndskilaboð í dyrasímanum, sem eru spiluð um leið og bjöllunni er hringt. Aðdáendur poppgoðsins Mic- h aels Jackson geta glaðst þeg- ar Planet Michael verður fullgert næsta vetur. Planet Michael er svokallað MMOG (massive multi- player online game) en dánarbú Jacksons og leikjaframleiðand- inn SEE Virtual Worlds standa að gerð þessa sýndarheims/leiks um ævi goðsins. Notendur munu meðal annars getað skoðað end- urgerð tónlistarmyndbönd frá ferli Jacksons, heimsótt Never- land-búgarðinn og skoðað í þrí- vídd ýmis konar þemu sem byggð eru á ævi hans. Þessi þemu kallast lönd og má til dæmis skoða Bad- land, Neverland, Thrillerland eða heimsækja Billy Jean-borg. Not- endur geta einnig verið í sam- bandi á ýmsa vegu innbyrðis við aðra notendur sýndarheimsins. Gert er ráð fyrir að hægt verði að sækja leikinn frítt fyrir almenning en tekjur verði í formi svokallaðra sýndarpeninga sem notendur greiði fyrir með raunverulegum peningum. Sýndarpeningana er síðan hægt að nota til að eignast alls kyns hluti eða varning innan leiksins, breyta ásýnd notandans (Avatar) og öðlast meiri stjórn yfir stillingum. planet Michael Popp- goðið michael jackson verður hægt að heimsækja í sýndarveruleika og þrívídd á næsta ári. Sjónvarpstæki eins og við þekkj-um þau eru að ganga í gegn-um hálfgerða byltingu þessa dagana enda hafa þær leiðir sem al- menningur nýtir sér til að nálgast afþreyingu breyst, nútíminn býður upp á að þú getir verið þinn eigin dagskrárstjóri. Ýmsar áhugaverðar vélbúnaðar- útfærslur til að nálgast efni yfir net- ið og yfir á sjónvarpsskjá heimilisins hafa litið dagsins ljós undanfarin ár, má þar sem dæmi nefna AppleTV sem tengist iTunes-versluninni þar sem hægt er að leigja sjónvarps- þætti og kvikmyndir í háskerpu auk þess að tengjast Netflix, YouTube og Flickr. Boxee Box sem kom á markað á þessu ári er annað dæmi en Boxee er frír hugbúnaður sem gerir not- andanum kleift að nálgast fríar kvik- myndir og sjónvarpsþætti alls staðar að af netinu. Margir nýta sér einnig hefð- bundnar tölvur eða jafnvel leikjatölv- ur sem tengdar eru við sjónvarpið til að nálgast afþreyingarefni. Það er þó ekki fyrr en nú að sjónvarpstækja- framleiðendur hafa þróað sjónvörp með innbyggðum vél- og hugbúnaði sem geta tengst hinum ýmsu þjón- ustum gegnum netið. sony Internet Tv Sony ríður á vaðið en í vikunni kynnti fyrirtækið nokkrar útgáfur háskerpu- tækja (Sony Internet TV) með inn- byggðu Google TV en það er hugbún- aður byggður á Android-stýrikerfinu frá Google og gerir kleift að kaupa eða leigja kvikmyndir og sjónvarps- þætti í gegnum netið sem síðan er streymt til viðkomandi. Hvert það fyrirtæki sem nýtir sér hugbúnað- inn getur bætt við eigin forritum eða samhæft hann við vöru sína. Sjónvarpstækin frá Sony koma á markað vestanhafs í ýmsum stærð- um seinna í mánuðinum og eiga það öll sameiginlegt að hafa 1080p upplausn (native resolution), fjögur USB-tengi, WiFi, Intel-örgjörva og stóra innrauða fjarstýringu sem þeg- ar hefur vakið mikla athygli því hún minnir helst á stjórntæki fyrir flug- vélamódel. Verð á þessum tækjum er heldur hærra en á hefðbundnum háskerputækjum en þó ekki mikið, um 600 Bandaríkjadalir fyrir minnsta tækið og 1.400 fyrir það stærsta. Samhliða sjónvarpstækjunum mun Sony einnig setja á markað svo- kallaðan Internet TV Blu-ray spilara til að tengja við sjónvörp en eins og nýju sjónvörpin hefur spilarinn inn- byggt Google TV. apple Tv ný og endurbætt útgáfa Apple TV leit dagsins ljós síðla sumars. Boxee Box Kom á markað fyrr á árinu. netsjónvörp koma á markað sony Internet Tv Fjarstýringin minnir helst á stjórntæki fyrir flugvélamódel. Þrívídd og nettengdar þjónustur verða brátt órjúfanlegur hluti af upplifun hins hefðbundna sjónvarpsáhorfanda. Toshiba-fyrirtækið hefur til að mynda lyft hulunni af nýrri gerð þrívíddarsjónvarpa þar sem engra sérstakra gleraugna er þörf og Sony setur á markað fyrstu netsjónvörpin síðar í mánuðinum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.