Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Blaðsíða 62
Fyrirsætan Bryndís Gyða Michelsen í Las Vegas:
HLAÐIN BYSSA
Í MYNDATÖKU
62 FÓLKIÐ 15. október 2010 FÖSTUDAGUR
MAGNI OG EYRÚN:
Hemmi braut
SVEPPA
n Sprelligosinn og sjónvarps-
maðurinn Sverrir Þór Sverris-
son, betur þekktur sem Sveppi,
játar á Pressunni að hafa rifbeins-
brotnað á þriðjudagskvöldið
þegar hann reyndi sig í sjómanni
gegn Eyjamanninum Hermanni
Hreiðarssyni. Eftir landsleikinn
gegn Portúgal lyftu landsliðs-
menn sér upp í heimahúsi þar
sem Sveppi var einnig á gestal-
ista. Tókust menn á í sjómanni.
Vikan hefur því ekki verið sú
besta hjá hinum síkáta Sveppa
sem var kærður fyrir athæfi sitt í
þætti sínum og Auðuns Blöndal
síðastliðið föstudagskvöld en þá
keyrði hann upp Laugaveginn. Er
lögreglan búin að kæra Sveppa
fyrir það grín og taka af honum
skýrslu.
EKKI SPÉ-
HRÆDDUR
n Grétar Rafn Steinsson er ekki
spéhræddur maður né hefur hann
nokkra ástæðu til að vera það.
Grétar var fyrstur allra í íslenska
landsliðinu til að láta sjá sig í svo-
kölluðu „mixed zone“ þar sem
fjölmiðlar ræða við leikmenn eftir
leik Íslands og Portúgals á þriðju-
dagskvöldið. Áður en Grétar fór í
video-viðtöl hjá íþróttavefmiðlum
landsins reif hann sig úr treyjunni
og rétti Ólafi Páli Snorrasyni hana
en Ólafur Páll var leikmaður utan
hóps á þriðjudagskvöldið. Stóð
því Grétar ber að ofan í viðtölun-
um fyrir framan tugi fréttamanna
og sýndi þar „húðflúrsermarn-
ar“ sem hann skartar. Neðst á
hægri handleggnum er hann
með flúraða mynd af konu sinni,
Manuelu Ósk Steinsson, er orðr-
ómur var uppi um daginn að þau
væru skilin. Grétar sagði það rugl í
viðtali við DV.
„Ég var þarna í alls konar tökum,“
segir fyrirsætan Bryndís Gyða Mich-
elsen um veru sína í borg syndanna,
Las Vegas, þar sem hún lét mynda sig
fyrir hin ýmsu tímarit. „Ég hef ver-
ið þarna úti áður og það eru sam-
bönd sem hafa myndast. Svo er ég
á skrá hjá skrifstofu þarna úti. Þetta
var alveg rosalega gaman að vinna
með svona atvinnumönnum,“ seg-
ir Bryndís Gyða sem keppti fyrir Ís-
lands hönd í tveimur fegurðar- og
módelkeppnum á árinu, í Tyrklandi
og Þýskalandi.
Tökurnar gengu vel segir hún.
„Það virðist vera sem Ameríkanarn-
ir séu ánægðir með íslenska útlitið.
Það er mikil eftirspurn eftir því í Las
Vegas og Los Angeles þannig ég mun
líklega fara út aftur,“ segir Bryndís, en
eitt var þó skrýtið við tökurnar. „Ein
stelpan gekk með bleika skamm-
byssu á sér, hlaðna. Henni fannst
mjög skrítið að við íslensku stelp-
urnar gerðum ekki það sama,“ segir
Bryndís og hlær.
Las Vegas, borgin sem aldrei sef-
ur, er ólýsanleg segir Bryndís. „Það
voru geðveikir klúbbar þarna sem
við fórum á og svo spilaði maður
náttúrulega slatta. Þetta er eitthvað
svo ótrúlega spes að það er ekki hægt
að lýsa þessari borg. Það er engu líkt
að sjá hana og svo er alltaf eitthvað í
gangi þarna.“
Bryndís, sem er einnig pistlahöf-
undur á Pressunni, er mikill aðdáandi
þáttanna Bullshit þar sem töframenn-
irnir Penn Jillett og Raymond Teller
fara á kostum. Á flugvellinum í Seatt-
le sá hún einmitt strigakjaftinn Penn
Jillett sötra Starbucks. „Það var gaman
að sjá hann. Hann virkaði alveg ósköp
venjulegur gaur. Ég þorði samt ekki að
fara og tala við hann, það hefði verið
svo týpískt íslenskt eitthvað,“ segir
Bryndís Gyða Michelsen.
tomas@dv.is
FÖGUR Bryndís Gyða ásamt einni karlfyr-
irsætunni sem hún vann með úti. Þessi
hefur boðað komu sína hingað til lands.
Rokkarinn Magni Ásgeirs-son og Eyrún Hulda Har-aldsdóttir unnusta hans til 13 ára giftu sig á Eg-
ilsstöðum 9.október síðastliðinn. Frá
þessu er greint í nýjasta tölublaði Séð
og Heyrt. Samkvæmt blaðinu hófst
samband þeirra Magna og Eyrúnar
einmitt á þeim degi árið 1997. Brúð-
kaupið fór fram á Egilsstöðum í við-
urvist fjölskyldu og nánustu vina en
Eyrún er frá Egilsstöðum og Magni frá
Borgarfirði eystri.
Sambandið hefur þó ekki geng-
ið átakalaust fyrir sig og
skildi leiðir þeirra hjóna í
byrjun árs 2007. Þá birtist
sameiginleg yfirlýsing frá
þeim í DV þar sem þau til-
kynntu sambandsslitin. Í
henni sagði meðal ann-
ars: „Ástæðan er sú að við
höfum fjarlægst hvort ann-
að tilfinningalega í kjöl-
far mikilla breytinga sem
urðu á högum Magna á
nýliðnu ári,“ en þar vís-
uðu þau til þess mikla
umróts sem varð í lífi Magna þeg-
ar hann sló í gegn um allan heim í
raunveruleikaþættinum Rock Star:
Super nova. Í þáttunum var leitað
að söngvara fyrir ofurhljómsveit-
ina Supernova þar sem rokkhund-
urinn Tommy Lee var fremstur á
meðal jafningja. Magni hreppti
fjórða sætið í keppninni.
Magni dvaldi lengi í Bandaríkj-
unum á meðan þættirnir stóðu yfir
og ferðaðist hann víða bæði inn-
anlands sem utan til þess að fylgja
vinsældunum eftir. Vinsældunum
fylgdi einnig mikil athygli fjölmiðla
og var einkalíf þeirra beggja oft til
umfjöllunar.
„Við munum vinna í sameiningu
að uppeldi sonar okkar, Marinós,
með heill hans og hamingju að leið-
arljósi,“ sagði einnig í yfirlýsingunni
en sá stutti sat einmitt á milli for-
eldra sinna þegar þau óku burt frá
kirkjunni á glæsilegum fornbíl.
Það var því ástin sem sigraði að
lokum þar sem Magni og Eyrún tóku
saman aftur og hafa nú gengið í það
heilaga þrettán árum eftir að þau
kynntust.
Magni Ásgeirsson og Eyrún Hulda
Haraldsdóttir giftu sig um síðustu
helgi eftir 13 ára samband. Mikið
reyndi á samband þeirra þegar
Magni sló í gegn í Rock Star: Super-
nova og birtu þau yfirlýsingu í DV
þegar þau slitu samvistum um stund.
En ástin leiddi þau saman á ný.
ÁSTIN
SIGRAÐI
SJÓÐHEITUR Magni var
óstöðvandi í þáttunum
Rock Star: Supernova.
MAGNI OG EYRÚN
Giftu sig á Egilsstöðum.