Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Blaðsíða 33
föstudagur 15. október 2010 viðtal 33 og neitar. „Að sjálfsögðu geri ég það ekki. Ég get ekki gengist upp í þessu öllu. Stundum er ég góður eiginmaður og stundum er ég leiðin- legur. Ég vil ekki reyna að fegra mína ímynd. Ég er bara mannlegur, jafnbreyskur og geri jafnmörg mistök og aðrir. En mig langar til að lifa fallegu lífi og reyni að vanda mig svo ég haldi áfram að vaxa og þroskast.“ Hann er ekki einu sinni kvennagull. „Stundum verð ég pirraður yfir því að það sé aldrei reynt við mig.“ Hann hlær dátt. „Nei, ég meina það ekki þannig. En vinkona mín spurði mig einu sinni hvort ég væri ekki alltaf að lenda á séns og ég sagði eins og satt var að það bara gerðist aldrei. Þá sagði hún að það væri vegna þess að ég virkaði ósnertanlegur. Ég hváði og spurði hvað ég ætti þá að gera.“ Hann hlær enn. „Ég veit ekki hvernig ég ætti að vinna í því. Ég á erfitt með að feika sjálfan mig. Ég er allavega ekkert kvennagull. Samt verð ég að viðurkenna að ég hef gaman af því að hrósa, konum jafnt sem körlum, og línan á milli þess að hrósa einhverjum og daðra við hann er hárfín. Það er ekkert feimnismál fyrir mig en framkoma mín í garð annarra endurspeglar það hvernig mér líður. Líkamsburður, augnaráð, handahreyfingar. Allt er þetta bara tjáning.“ Frelsi og Fórnir í sambandinu Árið 1990 gekk hann í hjónaband. Þau hjónin hafa alla tíð staðið þétt við bakið hvort á öðru og stutt hvort ann- að með ráðum og dáð. „Okkar hjóna- band er farsælt af því að við leyfum hvort öðru að njóta okkar sem ein- staklingar. Hún gerir það sem hana langar til og ég geri það sem ég vil. Með því að virða skoðanir hvort ann- ars, þetta frelsi og elska skilyrðislaust höfum við haldið ástinni við. Stærsta ástin er að geta sleppt og ég held að konan mín upplifi sig frjálsa. Það sama geri ég. Svona hefur þetta alltaf verið. Hún var ekki nema átján þegar þau kynnt- ust. Hann var tíu árum eldri, 28 ára gamall. „Nokkrum mánuðum eftir að við kynntumst fór hún út sem skiptinemi í heilt ár. Mér fannst það ekkert mál. Af því að ég var tíu árum eldri en hún fannst mér að hún yrði að fá að gera allt sem hana langaði til að gera. Það hvarflar ekki að mér að stoppa hana í einhverri eigin- girni. Það er mér nauðsynlegt að festast ekki í viðjum vanans. Þess vegna reyni ég að leigja mér íbúð úti á landi á sumrin þar sem ég get verið í ró og næði. Einvera og þögn eru rithöf- undi jafnmikilvæg og saumavél saumakonu. Ég skrifa ekki bækur nema ég sé látinn af- skiptalaus. Kannski eru það fórnirnar sem ég þarf að færa.“ Ástin er mismikil Saman eiga þau þrjú börn. Kristófer sem er 18 ára, Kolfinnu sem er 14 ára og Þorlák Helga sem er 10 ára. „Við rekum heimili saman og eigum yndisleg börn. Við erum bara á okk- ar leið. Ég er ástfanginn af henni og hef allt- af verið það. Þetta orð er samt svolítið skrýtið, að vera ástfanginn. Ástin er ekkert sjálfgefin. Í hjónabandi er afar fín lína á milli traustrar og heiðarlegrar vináttu og þess að vera ást- fanginn. Ég held að það komi tímabil í lífi allra hjóna að ástin er mismikil og áhuginn sömuleiðis. Þá reynum við að sinna því sem skiptir mestu máli, að láta heimilið ganga og sinna börnunum, heimalærdómnum, skutl- inu og þessu öllu. Við höfum ekkert alltaf tíma til þess að setjast niður og haldast í hendur undir kertaljósum,“ segir hann og hlær létt. „Ég þarf ekkert að segja þér það. Líf mitt er ekki útópískt. En það skiptir þá höfuðmáli að bera virðingu fyrir maka sínum, virðingu fyrir áhugamálum hans, starfi og bara lífinu. Kon- an mín er mjög leitandi og hún er að mörgu leyti minn andlegi meistari. Það er mjög fal- legt.“ streitan bitnar Á börnunum Eins og hægt er að ímynda sér hefur Þorgrím- ur, sem hefur skrifað óteljandi barnabækur, einnig ákveðna sýn á foreldrahlutverkið. „Ég legg mig fram um að vera alltaf til staðar fyr- ir börnin mín. Ég legg mig líka fram um að vera vinur barnanna minna. Ég reyni að tala ekki niður til þeirra eða skamma þau. Eins og eðlilegt er missi ég mig samt stundum. Ég hef skammað þau að ósekju og þótt það óþægilegt. Oft- ast hefur það verið vegna þess að það hefur verið álag á mér, eins og er vænt- anlega á mörgum foreldrum sem basla við að láta enda ná saman í dag. Það bitnar á börnunum. Börn eru næm- ari á umhverfi sitt og tilfinningar for- eldra sinna en við viljum meina. Son- ur minn finnur það strax ef mér líður illa og kemur og tekur utan um mig. Ég þarf ekki að segja neitt. Ef ég hef einhvern tímann skamm- að þau fyrir að brjóta glas eða annað álíka þá skammast ég mín fyrir það. Oft hef ég spurt mig að því hvernig ég vilji að þau muni mig þegar þau fara að heiman. Þessi spurning virkar á mig eins og löðrungur og vekur mig til meðvitundar. Í kjölfarið vanda ég mig meira. Því ég held að okkur for- eldrum hætti til að velta okkur upp úr smámunum eins og því hvort skór eða skólatöskur séu á réttum stað í stað þess að leyfa börnum að vera börn. Leyfa þeim að gera mistök sem þau læra af. Hlusta á þau. Nálgast þau á jafnréttisgrundvelli. Kannski er ég góður pabbi, kannski ekki. Það er ekki mitt að leggja mat á það. Ég er allavega að reyna. Þegar sonur minn segir við mig að ég sé besti pabbi í heimi trúi ég honum. Ég vona að öll börn segi það sama um pabba sinn.“ Frí FrÁ heimilinu og sjÁlFum sér Eins og allir foreldrar talar Þorgrím- ur um að börnin hans séu það besta sem hefur komið fyrir hann. Vegna þess að ekkert er eins þroskandi og eins krefjandi og það að ala upp börn. „En það „Ég er ekkert kvennagull“ framhald á næstu sÍÐu Í hjónabandi er afar fín lína á milli traustrar og heiðarlegrar vináttu og þess að vera ástfanginn. Ég held að það komi tímabil í lífi allra hjóna að ástin er mismikil og áhuginn sömuleiðis. Á sama tíma og ég var fúli gæinn í tóbaks- vörnum var ég að reyna að selja bækur sem rithöfundur. Ég vann gegn sjálfum mér. Ef ég ætla mér eitthvað verð ég að treysta á sjálfan mig og engan annan. Þegar upp er staðið stend ég einn. m yn d ir s ig tr yg g u r a ri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.