Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Blaðsíða 37
á landinu,“ segir hún og hlær sínum smitandi hlátri. „Við fengum virkilega huggulega íbúð á Laugarvatni með þremur herbergjum og eld- húsi undir súð. Ég gekk um vistina og sá um hreingerningu og bauð stelpunum, sem sumar voru eldri en ég, góða nótt.“ Sama ár, í desember, kom fyrsti sonurinn, Rúnar, í heiminn. „Ég varð fljótt fullorðin og var farin að spekúlera snemma í lífinu og til- verunni. Ég var því tilbúin fyrir foreldrahlut- verkið, þótt ung væri. Svo stoppaði ég bara og hef lítið þroskast síðan,“ segir hún og hlær. Einu og hálfu ári síðar fæddist Einar og stuttu síðar Unnar. „Það eru ekki þrjú ár á milli Rúnars og Unnars svo þetta var hitt þrístökkið hans Vil- hjálms,“ segir hún hlæjandi og bætir við að svo hafi hinir synirnir þrír, Garðar, Hjálmar og Sig- mar komið í heiminn. „Garðar var litla barnið í átta ár. Ég var komin með fjögur börn 23 ára og hélt alltaf að það kæmi stelpa. Við vorum að pæla í að reyna við stelpuna og það hefði verið gaman að sjá hvort hún hefði verið 16. eða 18. barnið. Annars segist Vilhjálmur vanda sig við eina sort.“ Draumur á Bifröst Eftir einn vetur á Laugarvatni fluttu ungu hjón- in til Reykjavíkur. Gerður segir að ekki hafi verið um auðugan garð að gresja þegar kom að húsakynnum. „Við fengum loksins íbúð á Lynghaganum. Leigusalinn þekkti Vilhjálm úr íþróttunum og vissi hvar væri hægt að ná á hann ef við myndum ekki borga. Villi fór að kenna og var með 2.900 krónur í laun en leigan fyrir kjallaraíbúðina var 1.500 krónur og við urðum að borga eitt ár fram í tímann. Við urð- um því að selja bílinn og áttum ekki krónu af- gangs. Svo buðust honum afleysingar við Sam- vinnuskólann á Bifröst og þar fékk hann íbúð og hærri laun. Þar vorum við í fimm ár og gát- um safnað okkur pening, sem er eitthvað sem ungt fólk gerir ekki í dag,“ segir Gerður og bætir við að henni hafi þótt erfitt að fara frá fjölskyldu og vinum í Reykjavík. „Á þessum tíma var mað- ur ekkert að þvælast á milli og við fórum aðeins tvisvar, þrisvar suður. En á Bifröst er fallegt og yndislegt að vera með börn svo þessi tími var algjör draumur.“ Næst hélt fjölskyldan til Reyk- holts þar sem Vilhjálmur réð sig sem skóla- stjóra. „Þar vorum við í 15 ár og svo losnaði staðan hér á Egilsstöðum og hér erum við búin að vera í 32 ár. Við byggðum okkar eigið hús og höfum unað okkur vel,“ segir hún en bætir við að hún líti samt sem áður á sig sem Reykvíking. Fjölskyldan skiptir öllu Synirnir sex nældu sér allir í maka annars stað- ar frá svo nú eru hjónin ein eftir á Egilsstöð- um. „Ég á sex yndislegar tengdadætur og hef sem betur fer alveg sloppið við að hafa skipti á þeim. Þær eru voðalega góðar og elskulegar og það er hamingja fyrir hverja móður að börn- in manns elski lífsförunaut sinn. Það sýnir að maður hefur verið einhvers virði fyrir börnin. Það er svo dýrmætt þegar vel gengur og ég hef aldrei fundið fyrir afbrýðisemi í þeirra garð. Ég er bara glöð yfir því að þeir hafi fundið sér konu, enda finnst mér sjálfri mikið öryggi í að eiga mann,“ segir hún og bætir við að fjölskyldan haldi góðu sambandi. „Barnabörnin eru orðin 19 talsins og eru á mismunandi aldri. Það kom ekki til greina að þau þekktu ekki hvert ann- að svo við ákváðum að koma á fót fjölskyldu- móti þar sem ég og systkini mín hittumst með maka, börn og barnabörn um hverja verslunar- mannahelgi. Fjölskyldan skiptir mig öllu, hún er undirstaðan sem allt byggir á. Við erum dug- leg að skiptast á skoðunum og erum öll góð- ir vinir og knúsumst og kyssumst. Strákarnir hafa líka verið duglegir að koma með sínar fjöl- skyldur til okkar en eftir því sem börnin stækka því uppteknari verða foreldrarnir á íþróttamót- um og öðru sem börnin stunda,“ segir hún en bætir við að þeim Vilhjálmi þyki ekki einmana- legt í kotinu þótt börnin séu farin að heiman. „Það er svo skrítið að við finnum alls ekki fyrir einmanaleika. Við erum í heil miklum tengsl- um við þá og fjölskyldur þeirra og skiptumst á að vera hjá þeim á jólum. Svo fer maður í skírn- ir, fermingar og afmælisveislur svo við erum á talsverðum faraldsfæti. Annars erum við voða- lega heimakær.“ Saknar fjörsins Hún segir ekki mikið í boði fyrir fullorðið fólk á Egilsstöðum og að hún sakni stundum þess sem höfuðborgin hafi upp á að bjóða. „Hér er hvorki bíó né leikhús og voða lítið við að vera, nema maður sé í kvenfélagi eða slíku. Ég vil ekki binda mig þannig heldur vil ég geta farið og notið og verið laus við allar kröfur. Stundum sakna ég fjörsins og upplifi mig fasta. Ég er með frjálsan, villtan vilja, sem er skrítið því ég hef alltaf ver- ið svo bundin. Í Reykjavík er ég samt eins og út- spýtt hundskinn. Ég er skíthrædd í umferðinni og hef aldrei þorað að keyra þar. Samt þykir mér alltaf vænt um borgina. Hagamelurinn, Tjörn- in og miðbærinn – þetta eru yndislegir staðir. Ég held samt að ég yrði að eiga sumarhús til að halda það út í Reykjavík. Ég er orðin svo góðu vön og þyldi ekki við í íbúð. Hér þekkja allir alla en samt erum við út af fyrir okkur í einbýlis- húsinu okkar og getum þess vegna sett plötu á fóninn á hæsta styrk. Ætli maður sé ekki orðinn óhæfur til að búa innan um annað fólk?“ Kýta reglulega Vilhjálmur kenndi til 73 ára aldurs en er í dag hættur að vinna. Gerður segir kosti og galla að hafa hann heima. „Við erum alltaf jafn góðir vinir en kýtum samt reglulega. Oft spyr ég hann hvernig þetta verði eiginlega þegar ég verð líka hætt að vinna. Ég hef stundum áhyggjur af því að honum leiðist einum heima og eins finnst mér stundum gott að geta verið í friði þegar ég kem heim. Ég nýt mín best þegar ég get lagt mig þegar ég vil og lesið bók þegar mér hentar. Að sama skapi er yndislegt að sjá hvað hann er feg- inn að fá mig heim.“ Aðspurð segir Gerður andrúmsloftið á Egils stöðum ágætt. „Andinn í skólanum er góður en það eru margir daufir hér í samfélag- inu. Hér er gott fólk en margir eiga erfitt vegna hörmunganna. Vonandi tekst ríkisstjórninni að koma þessu í lag. Það er algjör glæpur að svipta fimmtuga karlmenn vinnunni. Við konurnar getum bjargað okkur betur. Við tölum við vin- konur okkar og fáum þannig útrás fyrir tilfinn- ingar okkar. Við erum sterkari að því leytinu. Þeir brotna niður og veikjast. Það er ekki hægt að bjóða þeim upp á þetta.“ Sviðsljósið stundum slæmt Gerður og Vilhjálmur hafa verið gift í 52 ár en hún var aðeins 15 ára þegar þau trúlofuðu sig. „Þetta er búið að endast ansi vel. Á þessum tíma var ég rétt að byrja að hugsa um stráka og því hefur þetta bara átt að fara svona. Við bara elskum hvort annað,“ segir hún brosandi og bætir við: „Auðvitað rífumst við og þrösum annað slagið enda gerir það ekkert til, ef það endar vel. Við erum gjörólík en komum til móts við hvort annað.“ Aðspurð segir hún leyndar- málið að svo löngu og farsælu hjónabandi það að vera dugleg að ræða saman. „Hjón verða að tala saman, reyna að skilja hvort annað, fyrir- gefa hvort öðru og segja hlutina eins og þeir eru.“ Síðan þau Vilhjálmur fóru að vera saman hefur nánast alltaf einhver í fjölskyldunni verið í sviðsljósinu. „Ég er ofsalega stolt af fjölskyldu minni og það hefur ekkert með athyglina sem hún hefur fengið að gera. Ég vil bara að þeir séu ánægðir. Það getur líka verið slæmt að vera í sviðljósinu. Einar fékk t.d. mikla athygli þegar hann var að keppa en er aldrei nefndur í dag og þó á hann örugglega ennþá Íslandsmetið í spjótkasti. Vilhjálmur studdi hann í íþróttinni en ýtti honum aldrei áfram enda hafa dreng- irnir fengið að ráða sinni för sjálfir. Við höfum verið of upptekin af okkur sjálfum til að skipta okkur of mikið af.“ Aðspurð segir hún velgengni Sigmars ekki hafa komið sér á óvart. „Það kom snemma í ljós að hann þurfti að láta taka eftir sér og það hefur hann frá mér. Sjálf var ég alltaf syngjandi og dansandi.“ Heimavinnandi í 23 ár Gerður hefur alltaf verið óhrædd við að viðra skoðanir sínar, sem hún segir ekki alltaf vin- sælar, meðal annars á meðal tengdadætranna. Til að mynda finnst henni fæðingarorlof feðra óþarft og íslenskar konur vinna of mikið. „Kon- ur fara alltof snemma að vinna og það er synd hvað börnin eru sett lítil á leikskóla. Tengda- dætrum mínum finnst ég fanatísk og þær koma með þau rök á móti að það sé ekki hægt að setja börnin út á götu eins og í gamla daga. En þær vita hvernig ég er og þótt ég reiti þær stundum til reiði þykir þeim vænt um mig. Ég hef ekkert á móti leikskólum en finnst börn of lítil þegar þau geta ekki sagt til þegar þau þurfa að pissa. En þetta er bara mín skoðun. Það liggur öllum á að fara að vinna svo hægt sé að kaupa dýra hluti. Börnum er alveg sama um peninga og lúxus. Mínum börnum fannst ágætt að vera saman í herbergi. Það eru þá frekar stelpur sem vilja vera út af fyrir sig. Það er óskaplegt vinnu- álag á ungu fólki. Það kaupir sér strax dýr hús í stað þess að safna fyrir draumaíbúðinni. Mér finnst ég hafa haft það óskaplega gott að geta verið svona lengi heima. Ég var heima í 23 ár og byrjaði að vinna 38 ára. Þá var ég líka tilbúin að komast út og hitta annað fólk,“ segir Gerð- ur sem einnig hefur sterkar skoðanir á hjóna- skilnuðum. Skilnaðarfaraldur í samfélaginu „Fólk er alltof fljótt að hlaupa til og skilja. Það er eins og það sé einhver faraldur í gangi. Svo framarlega sem makinn hefur ekki gert neitt ljótt af sér er um að gera að staldra aðeins við og muna hvað það var sem gerði það að verk- um að við heilluðumst af þessari manneskju til að byrja með. Varla voru það foreldrarnir sem píndu ykkur til að giftast. Hvað hefur gerst sem er svona svakalegt að það sé ekki hægt að laga hlutina?“ spyr hún og bætir við að konur séu orðnar mun frjálsari en þær voru og því ekki jafnháðar mönnum sínum fjárhagslega. „Eins held ég að það sé ekki gott að vera í of miklu vinkonustandi. Allt slíkt hefur áhrif. Ef vinkon- an er að skilja getur það smitað út frá sér. Það er alltaf hægt að finna einhver vandamál og gera úlfalda úr mýflugu.“ Fylgir sínum manni Gerður hefur helgað líf sitt Vilhjálmi og son- unum. „Draumurinn var að verða leikkona en þegar ég óx úr grasi vildi ég verða íþrótta- kennari. Ég var komin inn í skólann og búin að borga inn á námið en fór ekki. Þarna var ég komin með þrjú börn. Mamma og tengda- mamma ætluðu að sjá um börnin fyrir mig en námið tók níu mánuði og ég hefði bara kom- ið heim um jólin. Eitt kvöldið horfði ég í augu þeirra og sagði við þá að nú þyrfti mamma að fara til að mennta sig. Þeir störðu á mig til baka og ég vissi að ég gæti ekki farið frá þeim. Ég gat ekki látið einhvern annan sjá um börn- in mín og ég hefði aldrei haldið þetta út,“ seg- ir hún en bætir við að hún horfi sátt til baka. „Þetta var mitt val og ég sé ekki eftir neinu. Auðvitað hefði verið gott að vera með kenn- arapróf en ég hef alltaf fylgt mínum manni. Svoleiðis hefur það þurft að vera og ég sé ekki eftir neinu.“ indiana@dv.is FÖSTUDAGUR 15. október 2010 VIÐTAL 37 Við bara elskum hvort annað Stelpurnar sem ég vann með voru eldri en ég og sögðu að þessi maður væri allt- af að horfa á mig. Ég skildi ekki hvað þessi gamli maður væri að glápa. Ég hef stundum áhyggjur af því að honum leiðist ein- um heima og eins finnst mér stundum gott að geta verið í friði þegar ég kem heim. Hamingjusöm Gerður og Vilhjálmur trúlofuðu sig þegar hún var 15 ára. MYNDIR KOX
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.