Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIR 15. október 2010 FÖSTUDAGUR Mæðgurnar Jussanam da Silva og dóttir hennar Jaqueline da Silva Luquez hafa mætt miklu mótlæti þau ár sem þær hafa dvalið hér á landi. Í kjölfar skilnaðar Jussanam hefur henni verið vísað úr landi og bíður hún nú að eigin sögn upp á von og óvon eftir því að dómsmálaráðherra taki fyrir mál hennar. Dóttir hennar þarf að fara með henni úr landi, verði það niðurstaðan. Áður hafði dóttur hennar verið neitað um háskólavist. Mæðgurnar Jussanam da Silva og Jaqueline da Silva Luquez hafa báðar mætt miklu mótlæti hér á landi þann tíma sem þær hafa dvalið hér. Jussanam var neitað um dvalar- leyfi af Útlendingastofnun og vinnu- leyfi frá Vinnumálastofnun í kjölfar skilnaðar við íslenskan eiginmann sinn, og dóttur hennar var synjað um nám í Háskóla Íslands vegna þess að þar þótti hún ekki uppfylla inntöku- skilyrði. Jaqueline synjað um skólavist Komi til þess að Jussanam þurfi að fara af landi brott þá þarf dóttir henn- ar að fara með henni. Jaqueline er 22 ára gömul og hefur dvalið hér með móður sinni í tvö ár. Jussanam segist, vegna dóttur sinnar, ekki ætla að gef- ast upp en hún hafi mætt mótlæti og fordómum þegar hún sótti um nám í Háskóla Íslands. „Henni var hafnað á þeim forsendum að nám hennar í brasilískum háskóla dygði ekki sem inntökuskilyrði í Háskóla Íslands.“ „Það er fráleitt,“ segir Jussanam og bendir á að Jaqueline hafi lokið 112 ECT-einingum við háskólann Estác- io de Sá í Brasilíu. Háskólinn Estácio de Sá í Brasilíu er sá stærsti í Brasilíu. Þar nema 180 þúsund manns og segir Jussanam að ársnám við þann skóla með ágætum árangri hljóti að jafngilda góðu stúd- entsprófi og meira en það. Kröfur Háskóla Íslands séu 60 ECT-eining- ar. Jussanam segir Háskóla Íslands hafa hafnað Jaqueline með því að reikna tímafjölda hennar í háskólan- um í stað einingafjölda þrátt fyrir að hvergi sé minnst á að slíkar aðferðir séu notaðar til að meta hæfi til náms við Háskóla Íslands. „Hvergi í Evrópu yrði Jaqueline hafnað um háskóla- vist á þessum forsendum,“ telur Juss- anam. „Jafnvel þótt tímafjöldi væri reiknaður til að meta hæfi nemenda þá uppfyllir hún 75 prósent tíma- fjöldans og það myndi duga henni inn í ríkisháskóla annars staðar í Evr- ópu.“ Jussanam sendi kvörtunarbréf til Háskóla Íslands en fékk við því engin svör. Blaðamaður leitaði svara hjá Gísla Fannberg hjá Háskóla Ís- lands sem segir Jaqueline hafa ver- ið hafnað vegna þess hve mat á ECT- einingum sé misjafnt milli landa. Eftir þeim reiknireglum sem notast er við hér á landi þá uppfylli Jaquel- ine ekki skilyrði til háskólanáms. Hjúskapur eða ekki hjúskapur Lögmaður Jussanam, Jóhannes Ei- ríksson, kærði ákvörðun Útlendinga- stofnunar til dómsmála- og mannrétt- indaráðuneytis fyrir hennar hönd og sendi dómsmálaráðherra beiðni um að meta mál Jussanam. Í dómsmála- ráðuneytinu er nú verið að kanna mál Jussanam betur í kjölfar ákvörðunar Útlendingastofnunnar. Jussanam segir að deilt sé um hvort fara eigi eftir lögum um hjúskap eða þrengri túlkunum starfsmanna á lög- unum. Jóhannes segir Útlendinga- stofnun hafa tekið ákvörðun um aft- urköllun dvalarleyfis 6. maí og þá hafi hún þurft að sækja um dvalarleyfi og vinnuleyfi. Það hafi stofnunin gert með vísan til þess að mánuði áður hafi hún fengið samþykktan skilnað að borði að sæng. „Jussanam lítur hins vegar svo á að dvalarleyfi hennar hafi alltaf verið í gildi og verði það áfram þar til 15. okt- óber þegar lögskilnaður gengur í gegn og því hafi allar ákvarðanir þar sem henni hefur verið synjað um réttindi hér á landi verið ólögmætar,“ segir Jó- hannes. „Samkvæmt íslenskum lögum lýkur hins vegar hjúskap ekki fyrr en lögskilnaður gengur í gegn. Ef maður lítur á lögfræðileg atriði málsins þá fæ ég ekki betur séð að þessi ákvörðunin virðist ólögmæt.“ Hreiðar Sigurðsson hjá Útlend- ingastofnun segir hins vegar að hing- að til hafi lögin verið túlkuð með þeim hætti að um leið og erlendur ríkisborg- ari utan EES-svæðisins sem fær dval- arleyfi vegna makans dvelur ekki hér á landi til þess að vera með maka sín- um þá séu forsendur dvalar brostnar. Á þetta hafi reynt hjá dómsmálaráðu- neyti, Útlendingastofnun í vil. Álagið mikið Jussanam segir langlundargeð sitt nærri á þrotum. „Ef ég vissi að ég væri hér á röngum forsendum og hefði engan tilverurétt hér, þá myndi ég hreinlega pakka saman og fara frá Íslandi. Auðvitað hafa komið stundir þegar mér leið einmitt þannig að ég ætti bara að gefast upp og fara, eft- ir meðferðina hjá Útlendingastofn- un og Vinnumálastofnun. En ég hef sterkar taugar til landsins og ef ég gæfist upp þá yrði réttlætinu aldrei fullnægt.“ Hún segir verulega farið að draga af þeim mæðgum. Álagið vegna baráttunnar við stjórnvöld sé mikið og sé farið að taka sinn toll. Íslensk- ir ríkisborgarar með full réttindi geti líklega ekki áttað sig á því álagi sem fylgir slíkri baráttu. „Dóttir mín lærir íslensku og reynir sem best hún getur að halda striki. En rétt eins og það er sárt fyrir mig að hugsa til þess að mér og mínum verðleikum sé hafnað á svo áberandi hátt þá er erfitt fyrir hana að finna að hér á landi sé hún sett í sér- stakt hólf þar sem þrengt er að mögu- leikum hennar. Hún fær ekki að njóta sín eins og hún myndi sjálfsagt gera annars staðar. Ég held áfram að berj- ast fyrir réttindum mínum vegna þess að ég hef bundist þessu landi sterk- um böndum en ég geri það ekki síður hennar vegna vegna þess að ég verð að fá hana til að sigrast á þeim tak- mörkunum sem henni eru settar.“ KRISTJANA GUÐBRANDSDÓTTIR blaðamaður skrifar: kristjana@dv.is Ef ég vissi að ég væri hér á röng- um forsendum og hefði engan tilverurétt hér, þá myndi ég hreinlega pakka saman og fara frá Íslandi. MÆÐGUR NEITA AÐ GEFAST UPP Mikið mótlæti Jussanamhefurverið vísaðúrlandiogneitaðumvinnuog dótturhennarneitaðumháskólavist. MYND SIGTRYGGUR ARI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.