Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Blaðsíða 61
föstudagur 15. október 2010 sviðsljós 61
Marilyn
gavin Rossdale fyrrverandi söngvari Bush hefur viðurkennt að hafa átt einnar nætur gaman með breska klæðskiptingnum og poppstjörnunni Marilyn. Það gerði hinn 44
ára gamli Gavin í viðtali við tímaritið Details, en atvik-
ið átti sér stað snemma á tíunda áratugnum. Það var
upprunalega Boy George sem sagði frá sambandinu
árið 1995 en Gavin hefur aldrei viðurkennt það fyrr en
nú.
Marilyn sló í gegn á níunda áratugnum með laginu
Calling Your Name en hann og Boy George voru miklir
vinir og urðu vinsælir á svipuðum tíma. Báðir eru þeir
samkynhneigðir klæðskiptingar.
„Ég held að ástæðan hafi verið ótti,“ sagði Gavin um
ástæðu þess að hann viðurkenndi samband sitt við
Marilyn ekki fyrr. „Þetta er ekki eitthvað sem ég vildi
endilega fela. Þetta var bara á þeim tíma sem Bush var
að fara af stað og ég vildi ekki að þetta atvik hefði áhrif
á feril sveitarinnar,“ sagði Gavin sem var aðeins 17 ára
gamall og sagðist hafa verið að prófa sig áfram.
„Maður verður að vita hvað maður vill og í dag veit
ég það mjög vel,“ sagði söngvarinn í viðtalinu, en hann
er kvæntur poppstjörnunni Gwen Stefani og á með
henni tvö börn.
Sængaði hjá
Gavin Rossdale eiginmaður Gwen Stefani:
Gavin Rossdale Var 17
ára að fikra sig áfram í lífinu.
MaRilyn Átti einnar
nætur gaman með Gavin.
KóKið
freistaði
L eikkonan og vandræðageml-ingurinn Lindsay Lohan reyndi að flýja af meðferðar-stofnuninni Betty Ford Clin-
ic á dögunum. Ástæðan var kókfíkn
hennar, sem þó er skömminni skárri
en kókaínfíknin sem einnig hrjáir
hana. Betty Ford bannar alfarið alla
koffíndrykki og brá Lindsay á það ráð
ásamt öðrum vistmanni að smeygja
sér undir girðinguna á lóðinni og
freista þess að komast yfir í nærliggj-
andi byggingu þar sem gossjálfsala
var víst að finna. Ekki tókst betur til
en svo að félagi Lindsay festi flík sem
hún klæddist í girðingunni og gat
sig hvergi hrært. Þær neyddust til að
kalla á starfsmann sem losaði þær og
svo var farið yfir málið á fundi.
Þetta er í fimmta sinn sem Lind-
say fer í meðferð en var hún send í
meðferð eftir að kókaín fannst í blóði
hennar örfáum vikum eftir að hún
losnaði úr fangelsi.
KóKið fReistaR Lindsay á í
vandræðum með koffínið líka.
HataR eKKi KóKið
Lindsay reyndi að
strjúka fyrir sopa.
Lindsay Lohan reyndi að flýja af
meðferðarstofnun:
Ógnvekjandi
adam
Adam Sandler tekur upp mynd:
Þ að er ekki annað hægt að segja en að gamanleikarinn Adam Sand-ler sé hreinlega ógnvekjandi á tökustað myndarinnar Jack and Jill. Kappinn er ekki lítið ófrýnilegur – klæddur og farðaður sem kona – en í myndinni leikur Sandler bæði Jack og Jill.
Myndin fjallar um manninn Jack og mjög svo undarlega tvíburasystur
hans Jill. Það eru engir smáleikarar sem fara með aðalhlutverkin á móti
Sandler. Þau Katie Holmes og gamla brýnið Al Pacino.
Tökurnar fara fram í Los Angeles en báðar dætur Sandler eru með honum
á tökustað og hafa þremenningarnir skemmt sér vel á milli atriða.
adaM sandleR Leikur í
myndinni Jack and Jill.