Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Blaðsíða 31
Styrktartónleikar fyrir MnD félagið Laugar-
daginn 23. október mun hópur listamanna, undir forystu Kristjáns Jóhannssonar
óperusöngvara, efna til tónleika í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði til styrktar MND
félaginu á Íslandi. Með Kristjáni verða nokkrar skærustu söngstjörnur landsins
og munu þau flytja létt-klassísk verk, einsöngslög og dúetta sem höfða til
breiðs hóps áheyrenda. Listafólkið gefur vinnu sína og rennur allur ágóði til
íbúðasjóðs MND félagsins. Auk Kristjáns Jóhannssonar koma meðal annars fram
á tónleikunum Anna Sigríður Helgadóttir mezzosópran, Gissur Páll Gissurarson
tenór, Hallveig Rúnarsdóttir sópran og Kristján Ingi Jóhannesson.
aukaSýningar á rigoletto Uppselt er nú á allar
sýningar á Rigoletto í Íslensku óperunni eftir vel heppnaða frum-
sýningu síðastliðið laugardagskvöld. Óhætt er að segja að sýningin
hafi fengið frábærar viðtökur áhorfenda og fagnaðarlátum ætlaði
aldrei að linna. Nú hefur tveimur aukasýningum verið bætt við, til
viðbótar tveimur aukasýningum sem seldist strax upp á; föstudaginn
19. nóvember klukkan 20 og sunnudaginn 21. nóvember klukkan 20.
Miðaverð er sem fyrr 5.900 krónur í almenn sæti og er áhugasömum
bent á að tryggja sér miða sem fyrst.
föStuDagur
n Jónas heiðrar Árna
Jónas Ingimundarson verður með
tónleika til heiðurs tónskáldinu Árna
Thorsteinssyni á föstudagskvöldið en
Árni hefði orðið 140 ára þá. Árni fæddist
15. október árið 1870. Tónleikarnir
hefjast klukkan 20.00 og verða haldnir
í Salnum í Kópavogi. Miðaverð er 2.900
krónur en hægt er að kaupa miða á miði.
is.
n Gunni og Hebbi á 800 Bar
Það verður heldur betur „station“-helgi
á 800 Bar á Selfossi um helgina. Á föstu-
daginn ætla Skítamórals-stjörnurnar
Gunni Óla og Hebbi að trúbadorast fram
á rauða nótt en það kostar ekki krónu
inn. Gunna Óla þarf auðvitað ekki að
kynna fyrir neinum en hann fór á kostum
í laginu Angel í Eurovision á sínum tíma.
laugarDagur
n Mannakorn í Háskólabíói
Hin goðsagnakennda hljómsveit
Mannakorn hélt ógleymanlega tónleika
í Háskólabíói í sumar og nú á að end-
urtaka leikinn. Tvennir tónleikar verða
haldnir á laugardaginn – fyrst klukkan
19.00 fyrir ósótta miða, en miða er hægt
að kaupa á miði.is. Klukkan 23.00 verða
svo aukatónleikar og eru örfáir miðar
eftir. Aðgangseyrir er 4.400 krónur og er
lofað dúndurskemmtun.
n Páll flytur sín bestu lög
Páll Rósinkranz heldur tónleika í Salnum
í Kópavogi á laugardagskvöldið þar
sem hann flytur sín bestu lög auk nýs
efnis. Margir gestir verða á tónleikunum
og má þeirra á meðal nefna Magnús
Þór Sigmundsson, Margréti Eir, Jökul
Jörgensen og Gunna Bjarna Ragnarsson.
Miðinn kostar 3.500 krónur en tónleik-
arnir hefjast klukkan 20.00.
n Alvöru Playboy-partí
Agent.is og Jägermeister ætla að slá upp
mögnuðu Playboy-partíi í Sjallanum
á Akureyri á laugardagskvöldið. Á
staðnum verða tuttugu Playboy-kanínur
sem taka á móti gestum með fordrykk
frá Jägermeister og tíu magnaðir
plötusnúðar munu þeyta skífum. Þar á
meðal verða DJ Óli Geir, DJ Frigore og DJ
Sindri BM. Glaðningur verður fyrir þær
stelpur sem mæta í Playboy-dressi.
n Palli í Hvíta húsinu
Páll Óskar Hjálmtýsson ætlar að trylla
lýðinn á Selfossi á laugardagskvöldið en
hann ætlar að troða upp í Hvíta húsinu.
Það er morgunljóst að Palli verður
„gordjöss“ og þá er bara spurning hverjir
ætla að verða það líka?
Skref í rétta átt
FIFA-leikirnir hafa komið sterkir inn
undanfarin misseri og hafa forsvars-
menn EA Sports greinilega verið að
vinna vinnuna sína. Með útgáfu FIFA
9 og FIFA 10 varð ákveðin kúvending.
FIFA hirti krúnuna af Pro Evolution
og varð konungur fótboltaleikjanna.
Það er engum ofsögum sagt að
margir hafi beðið eftir FIFA 11 með
eftirvæntingu. Miðað við framfarir
undanfarinna ára bjuggust eflaust
margir við einhverjum byltingar-
kenndum nýjungum. Einhverjir hafa
orðið fyrir vonbrigðum meðan aðrir
telja FIFA 11 vera skref í rétta átt.
Leikurinn bætir í sjálfu sér ekki
miklu við FIFA 10 ef aðeins er horft
til möguleikanna til spilunar. Allt það
sem var í FIFA 10 er enn til staðar en
með ákveðnum nýjungum. Nú er
hægt að spila sem markmaður og þá
byggjast hæfileikar leikmanna ekki
eingöngu á getu þeirra með boltann
því andlegi þátturinn skiptir einnig
máli.
Búið er að taka spilun leiksins í
gegn. Nú þarftu að vanda sendingar
betur, tímasetja tæklingarnar betur
og þá skiptir líkamlegur styrkur leik-
manna meira máli en áður. Það er
líka ánægjuleg breyting að nú hef-
urðu möguleika á að ná góðum úr-
slitum þó liðið sem þú stjórnar sé
veikara á pappírunum en hitt liðið.
Áður var það alltaf svo að leikmenn
lélegra liða voru sjálfkrafa veikari lík-
amlega og hægari. Nú er þetta alls
engin regla þó einstaka sending-
ar kunni að rata á andstæðinginn
og leikmenn þreytist fyrr. Nú skiptir
uppstilling og leikaðferð meira máli.
Leikurinn er meira krefjandi.
Netspilunin er við fyrstu sýn nán-
ast eins og í FIFA 10 þó ég viðurkenni
fúslega að hún fái að mæta afgangi
þar til allir krókar og kimar FIFA 11
hafa verið skoðaðir betur.
FIFA 11 er langt frá því að vera
fullkominn. Lýsingarnar verða fljótt
þreytandi, hagnaðarreglan fær allt
of sjaldan að njóta sín og einhverra
hluta vegna eiga leikirnir það til að
leysast upp í hálfgert miðjumoð. Það
tók dágóðan tíma að venjast spilun-
inni og var ég fullur efasemda um
ágæti leiksins í byrjun. Hann vinnur
á og um leið og þú nærð tökum á öll-
um nýjungum ferðu að hafa rækilega
gaman af þessu.
FIFA 11 er virkilega eigulegur
gripur. Hann byggir á góðum grunni
FIFA 10 en með ágætlega heppnuð-
um nýjungum. Einar Þór Sigurðsson
föstudagur 15. október 2010 fókus 31
Hvað er að
GERAsT?
FIFA 11
Tegund: Fótboltaleikur
Spilast á: PS3
TölvulEikiR
Meira krefjandi Nú skiptir uppstilling
og leikaðferð meira máli en áður.
Semur lög
um óorðna hluti
eigin nálgun og ég er nokkuð sátt
ef það hefur tekist. Ég hef aldrei
gert greinarmun á því að semja ein-
falda fallega tónlist og tónlist sem
er innihaldsrík og persónuleg. Það
hafa líka alltaf verið til popparar
sem fylgja þessari línu. Án þess að
ég sé að bera mig saman við einn
eða neinn, þá er alveg nóg að nefna
til sögunnar listamenn eins og Kate
Bush og Björk,“ útskýrir Robyn.
Hún hafi alist upp við að hlusta á
tónlistarfólk á borð við Prince, Nen-
eh Cherry, Biggie Smalls og Techno-
tronic. „Í mínum eyrum er þetta
allt popptónlist með mismunandi
áherslum. Allir þessir listamenn
eiga það þó sameiginlegt að hafa
verið sannir og sjálfum sér sam-
kvæmir og þetta var eitthvað sem
ég vildi gera líka. Það er engin þver-
sögn í því að gera innihaldsríka eða
frumlega popptónlist.“
LeikHúSfJöLSkyLdAn
Robyn hefur í gegnum tíðina átt
farsælt samstarf við reynt og fjöl-
hæft tónlistarfólk úr ýmsum áttum.
Þarna má nefna norska dúettinn
Röyksopp og Svíana Christian Falk
og Kleerup. Hefur þetta samstarf
átt þátt í velgengni hennar? „Auð-
vitað hefur þetta samstarf mótað
mig. With Every Heartbeat, lag sem
ég vann með Kleerup, reyndist vera
mjög mikilvægt lag fyrir mig. Vel-
gengni mín í kjölfar þessa lags varð
til þess að ég fann farveg til þess að
setja tilfinningarík lög í búning sem
hægt er að markaðssetja án þess að
fórna miklu. Með Röyksopp vann ég
á þeirra eigin plötu og það var ein-
hvern veginn eðlilegasti hlutur að
halda áfram með þá vinnu.“
Áhrifi annarra listamanna á Ro-
byn ná þó mun lengra aftur. Hún
er alin upp í fjölskyldu leikhúsfólks.
Móðir hennar er leikkona og
faðir hennar leikstjóri.
„Þarna tilheyri ég
ákveðinni
hefð og
er
stolt af því. Ég hef fengið að um-
gangast mikið af skapandi einstakl-
ingum sem hafa verið óhræddir við
alla tilraunastarfsemi. Þetta er hluti
af mér og þetta er eitthvað sem ég
heillast af í listsköpun annarra. Þetta
er eitthvað sem ég þarf að kanna til
hlítar.“
LAGASMíðArnAr
Lagasmíðarnar eru hluti af daglegri
rútínu hjá Robyn. „Það er ekki ein-
hver sérstök aðferð sem ég beiti.
Auðvitað eru ákveðnar leiðir sem
hægt er að styðjast við. Hins veg-
ar veit ég aldrei hvenær gott lag er
á leiðinni eða hvernig það birtist.
With Every Heartbeat varð til á með-
an ég var að keyra bílinn. Hins veg-
ar er ekki hægt að sitja og bíða eftir
góðu lagi,“ segir hún. Þess vegna sé
mikilvægt að hafa öguð vinnubrögð
og líta á lagasmíðar og útsetningar
eins og hverja aðra vinnu.
Textarnir séu hins vegar per-
sónulegir. Öðruvísi sé ekki hægt að
gera góða texta. „Ég get ekki skrifað
texta eða samið lag sem á ekki ræt-
ur í minni eigin reynslu. Það þýðir
samt ekki að allt sem ég segi í text-
unum hafi gerst í raunveruleikan-
um. Það sem er skrýtnast við þetta
er að stundum er eins og ég nái að
gera texta um eitthvað sem á eftir
að gerast. Ég hallast að því að þetta
sé nánast ómeðvitað. Í undirvit-
undinni bærist hugsanir eða jafnvel
ákvarðanir sem brjótist fram í text-
unum.“
Þetta segir hún að sé hins vegar
bara lítið brot af miklu stærra ferli.
„Tónlist er tjáning. Að sumu leyti al-
veg eins og hvernig maður velur föt-
in sín, kaupir í matinn eða hvernig
maður dansar. Ég er ekki með skýr
og mótuð markmið eða skilaboð til
fólks þegar kemur að tónlistinni.
Tónlistin er bara hluti af mínu
lífi eins og það er.“
Hvernig verður svo
laugardagskvöldið í
Listasafninu? „Hljóm-
sveitin mín sam-
anstendur af tveim-
ur trommurum og
tveimur hljómborð-
sleikurum, auk mín.
Ef við náum teng-
ingu og fólkið dans-
ar þá verð ég ánægð.“
sigtryggur@dv.is
Það er engin þversögn í því að
gera innihaldsríka eða
frumlega popptónlist