Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Page 15
Föstudagur 15. október 2010 fréttir 15
Fyrir minnið
Aukin orka
Andoxunarefni
Þorbjörg Hafsteinsdóttir, næringarþerapisti DET og
metsöluhöfundur bóka um heilsu og mataræði, er
þriggja barna móðir sem varð fimmtug árið 2009. Hún
segir sjálf að sér líði þó ekki degi eldri en 30 ára… Af
hverju skyldi það vera? Þorbjörg hugsar vel um heilsuna,
matarræði sitt og þekkir auk þess vel til fæðubótarefna
sem hún nýtir sér til að auka á vellíðan sína og viðhalda
unglegu útliti og fullri atorku. Hún er í krefjandi starfi
þar sem hún þarf meðal annars að reiða sig á að
toppstykkið virki sem allra, allra best. Þorbjörg hefur
notað Æskubrunn frá Lýsi hf. allt frá því að hann kom
fyrst á markað og hennar niðurstaða er einföld.
Ég mæli með Æskubrunni!
Æskubrunnur inniheldur þekkta samsetningu á fæðurbótarefnunum
asetýl- L- karnitín og alfalípóiksýru ásamt túnfisklýsisperlu.
Túnfisklýsi
Jákvæðir eiginleikar Omega-3 fitusýra, EPA og DHA, eru vel þekktir. Í ólíkum
tegundum af fiskiolíu er að finna mismunandi magn af fitusýrunum EPA og
DHA sem gegna veigamiklu hlutverki víða í líkamanum. Túnfisklýsi inniheldur
hátt hlutfall af fitusýrunni DHA. Rannsóknir hafa sýnt að í heila okkar er
að finna umtalsvert magn af DHA enda er oft talað um fisk sem heilafæði.
Vaxandi fjöldi rannsókna sýna sterka fylgni milli neyslu á Omega-3 fitusýrum,
einkum DHA og vitsmuna, sjónar og almennri virkni heila okkar.
Asetýl-L-karnitín og alfalípóiksýra
Rannsóknir hafa verið gerðar á áhrifum þessara efna á efnaskipti og hrörnun
fruma líkamans. Asetýl-L-karnitín auðveldar flutning orkuefna í frumum
líkamans og alfalípóiksýra er öflugt andoxunarefni sem verndar þær gegn
skemmdum. Niðurstöður benda til þess að efnin geti unnið gegn minnistapi
sem oft fylgir hækkandi aldri og hafi að auki jákvæð áhrif á hjarta- og
æðakerfi. Saman geta þessi efni dregið úr þessum einkennum.
Ég mæli með æskubrunni
fyrir fólk á öllum aldri
Þorbjörg Hafsteinsdóttir,
næringarþerapisti DET
Æskubrunnurinn getur því
viðhaldið heilbrigði fruma
líkamans, stuðlað að því
að við höldum góðu minni,
höfum næga orku og getum
betur notið lífsins.
Æskubrunnur er ætlaður þeim sem vilja viðhalda
almennu heilbrigði á efri árum en nýtist þó einnig
þeim sem eru í krefjandi starfi eða undir miklu álagi.
„Um áramótin fórum við í landssöfn-
um þar sem Öflun ehf. hringdi fyrir
okkur. Það stóð með hléum yfir í um
tvo mánuði þar sem hringt var í bæði
einstaklinga og fyrirtæki. Í stuttu
máli var árangurinn það góður að
við ákváðum að gefa Barnaspítalan-
um peningagjöf,“ segir Hörður Björg-
vinsson hjá Einstökum börnum.
Samtökin voru stofnuð í mars
árið 1997. Foreldrar 13 barna sem
ekki fundu sér farveg í öðrum félög-
um eða samtökum tóku sig saman
og stofnuðu Einstök börn.
Keyptu hægindastóla og
blóðþrýstingsmæli
Hörður segir að 180 fjölskyldur lang-
veikra barna séu í félaginu. Flestar
ef ekki allar fjölskyldurnar eigi börn
sem hafi þurft að liggja langdvölum á
Barnaspítalanum. Því liggi beint við
að gefa Barnaspítala Hringsins þessa
gjöf. „Við vildum sýna í verki hve ár-
angurinn af söfnuninni var góður.
Við höfðum samband við spítalann
og niðurstaðan varð sú að gefa eina
milljón króna,“ segir Hörður og held-
ur áfram: „Fyrir þá upphæð voru
keyptir sex „lazy boy“ hægindastól-
ar og vandað tæki til að mæla blóð-
þrýsting.“ Hörður segist hafa vissu
fyrir því að gjöfin komi að góðum
notum. „Jafnvel betri notum en við
höfðum gert okkur grein fyrir. Í dag
var mér sagt að þessir stólar gætu
tímabundið losað um einhver rúm
inni á stofum,“ segir hann en þá ættu
fleiri að geta komist að.
Rúmin nýtast betur
„Þetta er mjög kærkomin gjöf. Hluti
af þeim börnum sem fá meðferð
uppi á dagdeild er börn sem þarf ekki
endilega að hátta ofan í rúm,“ seg-
ir Auður Ragnarsdóttir, deildarstjóri
á dag- og barnadeild Barnaspítala
Hringsins. Hún segir að börn sem
til dæmis komi í lyfjagjafir í fáeinar
klukkustundir hafi nú góða aðstöðu
utan sjúkrarúma. Tveir og tveir stólar
séu hafðir saman þannig að foreldrar
geti látið fara vel um sig með börnum
sínum. „Með þessu móti nýtast rúm-
in betur,“ segir Auður.
Eins og áður sagði fékk Barna-
spítalinn einnig vandaðan blóð-
þrýstingsmæli að gjöf. „Hann kem-
ur sér einkar vel því með honum er
ekki bara hægt að mæla blóðþrýsting
heldur líka súrefnismettun í blóði og
hita,“ segir hún.
Aðspurð segir Auður að Barna-
spítalinn eigi félögum eins og Ein-
stökum börnum mikið að þakka.
„Ég veit ekki hvar við værum ef við
ættum ekki allt þetta velgjörðafólk
að,“ segir hún og bætir við að stuðn-
ingur sem þessi sé ómetanlegur.
Hún segist aðspurð ekki vita hvern-
ig niðurskurður í heilbrigðiskerf-
inu muni bitna á starfi deildarinnar.
„Það verður fundur á næstu dögum
og það er ekki búið að útfæra þetta.
Við krossum bara fingurna,“ segir
hún.
balduR guðmundsson
blaðamaður skrifar: baldur@dv.is
Ég veit ekki hvar við værum ef við
ættum ekki allt þetta
velgjörðafólk að.
Einstök börn, stuðningsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma, gáfu Barnaspítala Hringsins
milljón krónur á miðvikudaginn. Fyrir það voru keyptir hægindastólar og blóðþrýstingsmælir. auður Ragn-
arsdóttir, deildarstjóri hjá Barnaspítala Hringsins, segir stuðninginn ómetanlegan.
afhendu styrkinn EinstökbörnfærðuBarnaspítalahringsinsveglegagjöfá
miðvikudaginn.mynd sigtRygguR aRi Jóhannsson
Gáfu milljón til spítalans
Boða klofninG veGna
deilna um kvótaeiGn