Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Síða 20
20 fréttir 15. október 2010 Föstudagur
Á dögunum var 77 ára gamall mað-
ur, Sveinbjörn Tryggvason, dæmd-
ur í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa
tælt stúlku undir átján ára aldri til
kynferðismaka við sig. Samband
þeirra varði í nokkur ár. Svein-
björn mótmælir dómi Hæstarétt-
ar og kallar hann hneyksli. Honum
fannst ekkert að þessu. Hann við-
urkennir að hafa átt í kynferðislegu
sambandi við stúlkuna og að hafa
gefið henni gjafir, en segir að það sé
aðeins vegna þess að honum þyki
gaman að gefa. Hann er sannfærður
um að hann hafi ekki fengið sann-
gjarna málsmeðferð og ætlar hann
með málið til Mannréttindadóm-
stóls Evrópu.
Kristján sonur hans kemur með
honum í viðtal við DV þar sem
Sveinbjörn óskar eftir því að fá að
útskýra sitt sjónarmið. Í dómsorði
sagði að hann ætti sér engar máls-
bætur, en hann telur svo vera og vill
fara yfir það. Kristján er hér föður
sínum til halds og traust. Hann trú-
ir á sakleysi föður síns og segist ekki
sætta sig við niðurstöðu Hæstarétt-
ar og dómstóls götunnar. Kristján
hefur búið úti í Danmörku síðustu
ár og hefur hvorki hitt umrædda
stúlku né hafði hann nokkra vitn-
eskju um samband föður síns við
hana, ekki fyrr en málið kom upp.
Kristján sest í sófann en Svein-
björn fær sér sæti í stól gegnt hon-
um. Hann segir: „Ég er dæmdur fyr-
ir að hafa haft samfarir við stúlku
og tæla hana með gjöfum þegar
hún var yngri en átján ára. Þetta
er hreinn skandall. Þetta er bara
hneyksli. Algjört hneyksli,“ segir
Sveinbjörn ákveðinn.
Hefur aldrei átt klám
Hann bendir á meintar rangfærsl-
ur í máli stúlkunnar en ekkert af
þeim atriðum varða dóminn sjálf-
an. Þá þykir honum sárt að í dóms-
orði segir að hann hafi sér engar
málsbætur, til dæmis að ekkert klá-
mefni hafi fundist á heimili hans.
„Lögreglan gerði húsleit heima hjá
mér. Þar var óskað sérstaklega eftir
því að leitað væri að klámmyndum.
En það fannst ekkert slíkt heima hjá
mér. Ég tók myndir af henni í nokk-
ur skipti þegar við vorum að hafa
munnmök en þurrkaði þær all-
ar út þegar það var afstaðið. Ekki í
eitt einasta skipti hef ég farið inn á
klámsíðu og ég á engar klámmynd-
ir. Svo er sagt að ég eigi mér engar
málsbætur. Hvað er það annað en
málsbætur? Eftir því sem ég best
veit er þetta einsdæmi. Að fullorð-
inn karlmaður sem býr einn horfi
aldrei á klám. Perrar og barnaníð-
ingar eru með fullt af klámmynd-
um.“
Lögum samkvæmt má fullorð-
inn karlmaður hafa samræði við
stúlku sem er orðin fimmtán ára
gömul. Hann var því ekki dæmdur
fyrir það heldur að hafa tælt hana
með gjöfum og öðru slíku til kyn-
maka við sig. Sveinbjörn heldur því
engu að síður fram að hann hafi
alltaf talið að hún væri eldri en hún
raunverulega var.
Bauð henni far
Saga þeirra hófst þegar hann tók
hana upp í bílinn og bauð henni far.
Þá var hún fjórtán ára. „Það rigndi
og hún var illa klædd. Ég keyrði
hana heim og við spjölluðum á
leiðinni. Ég sagði henni að hún
liti út fyrir að vera 19 ára gömul en
hún var 14 ára. Þú getur ímyndað
þér hvernig stúlkan leit út. Hún var
búin að vera að stunda næturlífið.
Ég á myndir sem ég tók af henni á
þessum tíma og þar sést að hún leit
út fyrir að vera fullorðin kona, 18, 19
eða 20 ára gömul.
Henni fannst þægilegt að fá far
og spurði hvort ég væri að vinna þar
rétt hjá. Ég játti því og hún spurði
hvort hún mætti hringja í mig ef
hana vantaði far. Síðan skiptumst
við á símanúmerum. Ég gaf henni
líka pening fyrir strætó.“
„Mér fannst þetta bara
allt í lagi“
Í kjölfarið fór hann að skutla henni á
milli staða, hvert sem hún vildi fara
og hvenær sem var. „Hún notfærði
sér það að ég var einn og gat skutlað
henni. Mér fannst það allt í lagi, það
var ekkert mál. Ég var ekki bundinn
yfir neinu. Einu sinni sótti ég hana
niður á höfn að nóttu til. Annars var
þetta oftast að degi til. Eftir að við
byrjuðum að hafa samfarir gerð-
um við það líka á daginn líka. Mér
fannst þetta bara allt í lagi.“
Auk þess þá sá hann um ýmis
praktísk mál fyrir hana. Pantaði
tíma hjá tannlækni, lagaði rafmagn-
ið þegar því sló út heima hjá henni,
greiddi lækniskostnaðinn þegar
hún lenti í árekstri og þar fram eft-
ir götum. „Bara eins og pabbi þinn
myndi gera fyrir þig eða afi þinn.
Hún leitaði alltaf til mín.“
Gaman að gefa
Á sama tíma gaf hann henni pen-
inga og gjafir. Hann hefur aldrei
þvertekið fyrir það en segir að það
hafi ekki verið í því skyni að tæla
hana. Hann sé bara þannig mað-
ur að honum þyki gaman að gefa.
Hann hafi alltaf gefið börnunum
sínum mikið en þar sem þau bjuggu
öll erlendis eða úti á landi hafi hann
gefið henni gjafir í staðinn. Hann
gaf henni einnig peninga. Hann gaf
henni skó, skartgripi, sófa og einu
sinni bauð hann henni og móð-
ur hennar til útlanda og gaf henni
gjaldeyri með. „Hún útskýrði það
fyrir móður sinni með því að hún
hefði verið svo dugleg í vinnunni að
hún hefði fengið þessa ferð í vinn-
ing. Mamma hennar vissi ekki að
ég hafði greitt fyrir þetta. En ég hef
gaman af því að gefa gjafir og hef
verið þannig alla tíð. Ég gaf henni
gjafir og hafði gaman af því. Ekkert
annað. Ég sé ekkert að því að fólk
kynnist hvort öðru.
Einu sinni var ég í partíi hjá fólki
sem var blankt og átti ekki sjónvarp.
Daginn eftir sendi ég því sjónvarp.
Þetta er minn háttur.“
Klæðalítil heima hjá honum
Stúlkan heldur því fram, og í dóms-
orði segir að frásögn hennar sé trú-
verðug, að sambandið hafi orð-
ið kynferðislegt mjög fljótlega eftir
að þau Sveinbjörn kynntust. Hann
neitar því og segist hafa verið í kyn-
ferðissambandi með öðru kvenfólki
á þeim tíma. Þar á meðal var ung
stúlka sem var átján, nítján eða jafn-
vel tuttugu ára. Sveinbjörn er ekki
viss. En hann veit að hún er lögfræð-
ingur í dag. „Ég var ekkert að pæla í
aldrinum. Og þær voru fleiri en ein.
Ég hef alla mína ævi verið með kven-
fólki.“
Hann telur að kynferðissam-
band þeirra hafi ekki hafist fyrr en
rétt áður en hún tók bílprófið 17 ára
gömul. Þá hafi hann talið að hún
væri 19 ára. Hann lýsir þessu svona:
„Ég ætlaði að gefa henni bílpróf því
hún kvartaði undan áreiti frá öðr-
um mönnum. Ég vildi síðan hætta
við það af því að ég var orðinn svo
þreyttur á þessu væli alltaf í henni.
Hún var alltaf að fara fram á meira.
Ég vildi losna út úr þessu. En þá
kom hún til mín nakin og við sváf-
um saman. Það var hennar leið til
þess að tryggja að ég myndi ekki slíta
þessu og hætta að gefa henni gjafir.“
Hann segir þó að það hafi ekki
komið sér mjög á óvart að sjá hana
nakta. Hún hafi verið reglulegur
gestur heima hjá honum og gjarna
fengið að nota sólarbekk uppi á lofti
hjá honum. „Það var ekkert nýtt fyrir
mig að sjá hana klæðalitla. Og þeg-
ar við vorum einu sinni búin að sofa
saman var ekkert óeðlilegt að gera
það aftur.“
Bauð henni 1,3 miljónir
Að lokum vill hann taka það fram
að til þess að koma upp um meintar
lygar hennar vilji hann bjóða henni
til Bandaríkjanna. „Ég ætla að borga
fyrir hana flug og uppihald og gefa
henni eina koma þrjár miljónir. En
með einu skilyrði. Að hún fari í lyga-
próf hjá FBI.“ Hann verður æstur:
„Þetta er lygi og ég get sannað það.
Reginhneyksli.“
Sonur hans er einnig sannfærður
um sakleysi föður síns. Hann er bú-
settur í Danmörku en flaug heim til
þess að styðja föður sinn í gegnum
þetta áfall. „Þetta var áfall fyrir pabba
gamla þannig að ég kom heim til að
vera með honum í þessu ógeði. Þetta
er pabbi minn. Ég verð að standa með
honum í þessu. Mér fannst það ekki
einu sinni spurning. Það væri erfitt að
sitja hjá og horfa upp á pabba dæmd-
an af Hæstarétti og dómstól götunn-
ar sem barnaníðingur og perri. Ég
sætti mig ekkert við það.“
„Hæstiréttur svipti pabba
frelsinu“
Hann er með útprentaðar greinar
eftir Jón Steinar Gunnlaugsson. „Ég
ber mikla virðingu fyrir þeim kalli.
Hann er maður sem segir það sem
honum finnst.“ Kristján les upp úr
annarri greininni: „Meðal annars til
að ákveða hvort dæma eigi menn til
refsingar, svo sem frelsissviptingar,
um skemmri eða lengri tíma. Þeg-
ar um slíkt er deilt er tekist á um
afar verðmæta hagsmuni þess sem
fyrir sökum er hafður. Það er refsi-
vert samkvæmt 1. mgr. 226. gr. al-
mennra hegningarlaga að svipta
annan mann frelsi sínu.“ „Hæsti-
réttur svipti pabba frelsinu,“ skýt-
ur hann inn í áður en hann held-
ur áfram: „Það er því eins gott að
vanda sig.“ „Þetta er eins og þetta sé
skrifað um málið hans pabba.“
Barnaníðingar feitir og sveittir
Faðir hans réttir fram mynd af stúlk-
unni. Mynd sem var tekin þegar
hún var tólf ára og hún gaf honum
einu sinni. Kristján tekur við henni
og bendir á að hún líti ekki út fyrir
að vera barn. „Ef ég myndi rekast á
svona gellu í háum stígvélum og töff
djammklæðnaði myndi ég ekki spyrja
hana um skilríki ef ég væri á leiðinni
heim með henni. Hún lítur ekki út
fyrir að vera barn. Ef við erum að tala
barnaníðing þá erum við að tala um
sex, sjö ára krakka og feitan sveittan
ógeðslegan karl,“ segir Kristján.
Málið fyrir mannréttindadóm-
stól
Brynjar Níelsson var lögmaður
Sveinbjörns í hæstarétti. Ef Svein-
björn lætur verða af því að fara með
málið til Mannréttindadómstóls
Evrópu mun hann sennilega flytja
málið. „Það er ekki komið að því
en hann hefur rætt það sjálfur. Ég
hef ekki skoðað það hvort það séu
forsendur fyrir því en mun fara yfir
það fljótlega. Ég get allavega full-
vissað hann um það að það er ekki
auðvelt að fara með svona mál fyr-
ir Mannréttindadómstólinn. Ef til
þess kemur mun það taka mörg ár.“
Endanleg niðurstaða
„En það er ekkert óeðlilegt við það
að hann sé ósáttur við þennan dóm
og tali um hann sem hneisu. Það
á við um flesta sem lenda í hans
stöðu. Hann var sakfelldur fyrir eitt-
hvað sem honum þótti ekki rétt. Og
hann verst því með því að tala um
dómaraskandal. Engu að síður var
þetta niðurstaða dómsins og hann
verður að una henni. Hún er end-
anleg hvort sem honum líkar bet-
ur eða verr. Hvort sem þessu máli
verður vísað til Mannréttindadóm-
stóls eða ekki er það svo að hann
mun þurfa að afplána sinn dóm.“
Hefði viljað haldbetri rök-
stuðning
„Sjálfur hefði ég viljað sjá haldbetri
rökstuðning fyrir því að þetta sé tæl-
ing sem þarna fer fram. Það ligg-
ur fyrir að þau voru í kynferðissam-
bandi. Það liggur líka fyrir að hann
hafi gefið henni gjafir. Aftur á móti
er deilt um það hvort hann hafi gef-
ið henni gjafir í þeim tilgangi að fá
hana til kynlífs. Það er deilt um það
hvort þetta hafi verið tæling.
Þessi dómur er fyrsti tælingar-
dómurinn sem fellur í svona máli.
Áður hafa fallið dómar þar sem það
er óumdeilt að gjafir voru gefnar í
skiptum fyrir kynlíf. Þetta er ekki svo
einfalt mál. Þetta var ekki eitthvað
eitt stakt skipti og það var heldur
ekki svo að hann gaf henni gjöf og
fékk kynlíf á móti. Þau áttu í löngu
kynferðissambandi og þá er í sjálfu
sér ekkert óeðlilegt við það að gjafir
gangi á milli þeirra. Að vísu var það
aðallega hann sem gaf henni gjaf-
„Mér fannst bara
ekkert að þessu“
Sveinbjörn Tryggvason, 77 ára, var
dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að
hafa tælt stúlku undir átján ára aldri til
kynferðismaka við sig. Hann íhugar að
fara með málið til Mannréttindadóm-
stóls Evrópu og vill koma sjónarmiðum
sínum á framfæri.
inGiBjörG döGG KjarTanSdóTTir
blaðamaður skrifar: ingibjorg@dv.is
Gerði allt fyrir hana
Sveinbjörnsegisthafagefið
stúlkunnihvaðsemeroggert
nánastalltfyrirhana.Hannhafi
jafnvelvaknaðummiðjarnætur
tilaðkeyrahanaámillistaða,
gefiðhennigjafirogstutthana
fjárhagslegaífjölmörgár.
Bara eins og pabbi þinn
myndi gera fyrir þig
eða afi þinn. Hún
leitaði alltaf til mín.